Helgarpósturinn - 03.04.1996, Side 28

Helgarpósturinn - 03.04.1996, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL1996 Aö vera rekínn. Þaö er oröiö asskoti heitt aö reka þá sem reyna aö starfa samviskusam- lega og í góöri trú. Ferskust í minningunni eru Viöar Eggerts- ' son, fyrrverandi Borgarleikhús- stjóri, og Anna Margrét Magnús- dóttir, fyrrverandi keppandi fyrir íslands hönd í tónlistarspurninga- þættinum Kontrapunkti. Þau eiga þaö sammerkt aö hafa vera rekin meö skömm af fólki sem lætur stjórnast af dyntum fremur en íhygli. Þjóöin sér hins vegar í gegnum þetta og fólk er furöu lostiö yfir þessum dæmalausu stjórnunarháttum. Hvað veröur þaö næst? kalt Karlmenn sem taka golf fram yfir kynlrf. Svona í tilefni þess aö tími golfaranna fer senn aö renna upp og þeir eru víst nokkuö margir. Sumir eru svo langt leiddir aö þeir hugsa meira aö segja um golf á meöan þeir stunda kynlíf og segja þar aö auki fullnæging- unni svipa til þess aö fara holu í höggil Þetta er svolítiö undarlegt í Ijósi þess aö golfíþróttin er ekki vitund sexí íþrótt (ef íþrótt skyldi kalla). Þaö hefur ekki bara meö kylfurnar og kúlurnar aö gera (fyr- ir utan þetta meö holu i höggi) heldur allt; hreyfingarnar, klæön- aöinn... Og þótt flestir þessara karla telji sig stunda „íþrótt“ sína af kappi hverfur bumban ekki. Aö vísu eru til kynþokkafullir menn í rööum golfleikara, en þeir eru einmitt kynþokkafullir þegar þeir eru ekki aö spila golf. ttíM ... Jónsmeitsurunna — tei sem nýkomiö er é ís- lenskan markaö og er í Þýska- landi jafnmlkiö selt og undralyfiö Prozac. Enda sagt hafa sömu virkni: gott fyrir taugakerfið. ... súkkulaðiáU ~~ þaö er ekki á hverjum degi sem maöur nánast lögum sarrv kvæmt á að innbyröa heil býsn af súkkulaöi... ... eöalkaffl og góðu koniald — það er svo gott tíl aö skola súkkulaöinu niöur meö. ... Qölskylduaamkvaemum — þau eru nauösynleg, þó ekki væri nema um jól og páska. 1. Kontrapunktur. Er ekki tími til kominn aö RÚV hætti nú aö sýna þetta leiöinlegasta sjónvarps- efni allra tíma? 2. Prestar. Þeir eru hvorki um- ræðuefni né ástæöa til kirkju- rækni nema forsetakjör, deilur eöa kærur séu 1 loftinu. 3. Viðskiptablaðið. Blaö sem var um tíma Ijómandi fínt, en hefur týnt sér í hagtölum og hægrisinn- uöu íhaldstrúboöi. 4. Sólin. Eldhnötturinn („gula flfliö”) sem hitar upp skrlfstofur og híbýli, en ekki andrúmsloftlö aö neinu marki. 5. Ómar Ragnamson. Þessar ofurgervilegu beinu útsendingar í Dagsljósi og væmnu lögin í kjölfar- iö eru óþolandi. 6. Ættingjar. Þaö er óþolandi þegar þeir tilkynna aö þeir séu á leiðinni meö páskaegg sem síðan reynist agnarsmátt. 7. Davið Oddsoon. Ætlar maö- urinn virkilega aö halda þjóö sinni f heljargreipum efans langt fram á sumar? 8. ER, X-FUes, Frasier, Simp- sons, Gettu betur, Stöðin og íþróttir. Rnir þættir, en slátra fjöl- skyldulifinu. 9. Súsanna Svavarsdóttir. At- hyglissýkin er konuna lifandi aö drepa og slær jafnvel Hallgrím Helgason rithöfund út. 10. Nýöldin. Þaö hlýtur aö vera einstætt aö heil þjóö gangl af göfl- unum vegna mambódjambó-kukls og skottulækninga. Gylfi Bjömsson sjóntækjafræðingur braut sér fyrir áramót leið út úr einni af gamalgrónustu gleraugnaverslunum landsins og opnaði ásamt eiginkonu sinni, Önnu Þóra Björasdóttur, eigin gleraugnaverslun á Laugavegi 40. Það er verslunin „Sjáðu“ sem hefur sett svip sinn á Laugaveginn síðan í október. „Mig langaði bara að prófa sjálfur að sjá um að reka verslun frá A til Ö,“ segir Gylfi, sem fullyrðir að með þessari ákvörðun sinni hafi hann heldur betur dottið í lukkupottinn. „Ég hef verið alveg ofboðslega heppinn; með húsnæði, merki... eft- ir að ég tók ákvörðun um að opna eigin verslun hefur bara allt gengið eins og.í sögu.“ Aðalstolt Gylfa eru gleraugu frá fyrirtækinu LA Eyework. „Það er mjög mikið lagt í þetta merki og það sem skiptir ekki síst máli er að ef eitthvað kemur fyrir umgjarðirnar er ekki verið með neitt ströggl heldur ábyrgist fyrirtækið þær fullkomlega. Á móti setja þeir ströng skilyrði, leggja meðal annars blátt bann við því að þetta merki sé sett á útsölu og að auki má ég ekki auglýsa það nema með þeirra samþykki. Aðstandendur LA Eyework eru líka metnaðar- gjarnir að því leyti að þeir vilja bæði láta þekkta ljósmyndara og þekkt nöfn aug- lýsa fyrir sig gleraugun.“ Þess má geta að eitt aðalauglýsinganafn LA Eyework er þýska söngkonan Nina Hagen. Gleraugun sem þú berð eru vœntanlega LA Eyework? „Já, að sjálfsögðu, en þó ekki dæmigerð fyrir það merki. Tískan nú er að bera einfaldar og léttar umgjarðir. Þessi er hins vegar nokkuð massíf. Það sem er ein- mitt skemmtilegast við LA Eyework er að hver umgjörð á sína sögu. Sú sem ég er með myndar til dæmis landakort frá álmuenda til álmuenda. Kortið táknar þjóð- leiðina gömlu Route 66 og þannig eiga höfuðstöðvar LA Eyework að vera fyrir miðju á vinstra glerinu. Og eins og þú sérð eru álmuendarnir kringlóttir, þeir eiga að mynda eins og spor eftir froskatær, en það er löng saga að segja frá því.“ Ertu einn afþeim sem enginn fer frá gleraugnalaus? „Það er ekki markmið í sjálfu sér. Ég að minnsta kosti pressa ekki og píni fólk til að kaupa umgjörð, enda er minn markaðshópur fólk, — ekki fífl.“ -GK Ematur Etið með hljóðum Fólk - ekki fífl Vendaloo er þekktur, eld- heitur og sinnepskryddað- ur sælkeramatur frá suðvest- urströnd Indlands. Svo undar- lega sem það kann að hljóma miðað við alþekktar indversk- ar trúarvenjur inniheldur hinn upprunalegi Vendaloo-réttur svínakjöt. Ástæða þess að sumir Indverjar leggja sér svínakjöt til munns, jafnvel þótt það sé óhreint f þeirra huga, er einfaldlega fátækt. Svínakjöt er mun ódýrara en lambakjöt eða kjúklingur. Önn- ur skýring á litlum vinsældum svínakjöts á Indlandi er sú að kornið sem þarf til þess að næra svínin svo þau verði fyrsta flokks vex ekki á nógu stóru svæði á Indlandi. Vendaloo má líka elda úr lambi, kjúklingi eða jafnvel önd. Þar sem páskar fara í hönd mæli ég eindregið með lambakjöti og tilheyrandi — það er að segja ekki rauðkáli og grænum ora-baunum, held- ur jógúrtsósu, fennelkartöfl- um, grænum strengjabaunum með kókoshnetu og svörtum sinnepsfræjum, lauk og góðu indversku brauði (Nan-mix má kaupa í næstu stórverslun). Hér kemur svo ástæðan fyrir því að ég mæii svo eindregið með Vendaloo: í þau fáu skipti sem ég hef borðað Vendaloo í góðum hópi hefur það verið bráðskemmtileg upplifun. Eitt sinn þegar ég fór á Taj-Mahal (sem þá var á Laugaveginum) með tveimur vinum mínum hélt ég að nú væri komið að því að ég endaði líf mitt — hlæjandi að vísu. Rétturinn var svo sterkur að tárin bókstaf- lega flóðu niður hvarma ann- ars vinar míns. Ég hef aldrei á ævinni séð nokkurn mann þamba jafnmikinn bjór á jafn- stuttum tíma. Þá var ég eitt sinn í matarboði með nokkrum vinkonum mínum þar sem þessi réttur var fram borinn. Ein úr hópnum hefur þann ósið að geta aldrei beðið eftir að allt sé komið á borðið og tróð upp í sig vænum bita af Vendaloo án þess að hafa nokkurn vökva við höndina nema þann sem var í blóma- vasa á borðinu. Fyrr en varði voru blómin komin út um allt og blómavasinn að vitum hennar. Úr honum teygaði hún næringarríkt blómavatnið. í það skiptið var Vendaloo-ið reyndar örlitlu sterkara en gef- ið er upp í uppskriftinni hér á eftir, — aðeins meira af rauð- um pipar og sinnepsfræjum. Ef það vefst fyrir einhverjum hvar flestar þessara kryddteg- unda fást má benda á Heilsu- húsið. Tamarind-ávöxturinn fæst í einhverju formi í Krydd- kofanum og hráefni eins og grænu strengjabaunirnar í Hagkaup — að minnsta kosti í Kringlunni. Lögurinn 1 tsk. kúmínfræ 1 tsk. svört sinnepsfræ 1 meðalstór laukur 4 meðalstór hvítlauksrif 1 msk. ferskur engifer 2 msk. eplaedik 2 msk. grænmetisolía 1/2 tsk. malaður kanill 1/4 tsk. malaður negull 1/2 bolli tamarind-mauk 1/2 bolli sinnepsolía (græn- metisolía dugir) 1 1/2 tsk. túrmerik 1 1/2 tsk. rauður pipar 1 1/2 tsk paprikukrydd 2 tsk. salt Matreiösla • Skerið um það bil eitt kíló af lambi í litla bita • Hitið steikarpönnu upp að meðalhita. Ristið sinnepsfræin og kúmínfræin uns sinnepsfræ- in dökkna og sinnepsfræin verða grá, eða í um það bil þrjár mínútur. Takið þau af pönnunni og látið kólna lítil- lega áður en þau eru möluð í morteli. • Setjið lauk, hvítiauk, engi- fer, edik og olíu í matvinnuslu- vél og maukið. Bætið við kúm- ín- og sinnepsfræjunum og af- ganginum af kryddinu. • Blandið í stórri skál saman við kjötið og látið marinerast í í minnst 8 klukkustundir. í ís- skáp má það vera upp undir tvo sólarhringa. • Setjið Tamarindmaukið í skál og blandið við það rúm- lega einum bolla af sjóðheitu vatni og látið ávöxtinn drekka vatnið í sig í 15 mínútur. • Ef þið notið sinnepsolíu (lyktin af henni er ekki góð) verðið þið að hita hana uns upp úr henni stígur reykur og kæla hana svo og hita upp aft- ur þegar þið byrjið að steika. Forhitun gærnmetisolíu er hins vegar óþörf. • Hitið olíuna að nýju (eða ekki) og steikið laukinn þar til hann verður fallega brúnn, í 10 eða 12 mínútur. Hrærið stans- laust svo hann brenni ekki. Lækkið hitann, setjið út í túrmerik, rauðan pipar og papriku, setjið kjötið út í innan við hálfri mínútu eftir að kryddið fer í en skiljið sem mest eftir af marineringunni. Steikið kjötið í um það bil tíu mínútur. • Bætið út í tamarindsafan- um, salti og því sem eftir er af marineringunni og látið malla. Lækkið hitann enn meir og lát- ið malla í 30 mínútur. Eftirskrift: Þennan rétt má elda allt að fjórum dögum áður en hann borðaður, en geymið hann þá í ísskáp. Ef þið ætlið að bjóða hann síðar þarf að passa að hita hann upp við vægan hita. Fennelkartöflur 1/2 kíló kartöflur 3 msk. grænmetisolía 1 tsk. fennelfræ 1/4 tsk. rauður pipar salt • Sjóðið kartöflurnar, afhýð- ið og skerið í litla báta. Hitið ol- íuna á pönnu og bætið krydd- inu út í. Steikið kartöflurnar þannig að þær fái að njóta sína á báðum hliðum uns þær verða stökkar og brúnar. Grænar baunir með kókoshnetu og svört- um sinnepsfræjum 500 g ferskar grænar strengjabaunir 1/3 tsk. túrmerik 3/4 tsk. salt 2 msk. ljós sesamolía, eða grænmetisolía 1/2 tsk. svört sinnepsfræ 1/3 bolli raspaður kókos- hnetumassi 1 til 2 græn fersk chili 1 msk söxuð fersk kóríander- lauf • Skerið endann af baunun- um og skerið lengjurnar um það bil til helminga. • Sjóðið baunirnar í tveimur bollum af vatnl með túrmeriki og salti á pönnu í 15 til 20 mín- útur. • Hitið olíuna á háum hita á stórri pönnu og setjið sinneps- fræin út í. Passið að halda höndum og andliti í hæfilegri fjarlægð frá pönnunni, því sinnepsfræin „poppast“. • Setjið raspaða kókoshnetu og saxað fræhreinsað chili á pönnuna og hrærið í eina til tvær mínútur. Setjið baunirnar út í og hrærið í fimm mínútur. Lækkið hitann og setjið áð lok- um kóríanderlaufin út á og saltið eilítið. Berið fram sam- stundis. Jógúrtsósa Með jafnsterkum rétti og Vendaloo er gott að hafa kæl- inguna sem ferskasta og því mæli ég með að einvörðungu verði blandað saman jógúrti og rifinni agúrku. Ef þið kælið þessa blöndu vel verður hún afar fersk. Þá er jafnframt gott að sneiða niður lauk, kreista yf- ir sítrónusafa, strá myntulauf- um yfir og kæla sömuleiðis í að minnsta kosti klukkustund. Með þessum rétti er óþarfi að splæsa dýru rauðvíni. Það hverfur hvort eð er í skuggann af þessum bragðmikla mat. Beljuvín ellegar kaldur bjór á ágætlega við. Og notið helst ekki hnífapör, bara guðsgaffl- ana — og þá bara hægri hönd- ina að indverskum sið (þið munið til hvers Indverjar nota þá vinstri). Skál! Guðrún Kristjánsdóttir Besta beljurauðvínið f\aö sætti tíöindum þegar franska „byltingarrauðvíniö" í þriggja lítra kössunum fór aö fást á Islandi annó 1989, í tilefni tveggja alda af- mælis frönsku byltingarinnar. En eins og flestir vita njóta þeir sjaldnast eldanna sem kveikja þá. Nokkru síðar kom á markaö annaö franskt beljurauövín, Merlot — Le Cep Francais, fallega dumbrautt að lit meö sterku berjabragöi. Og þaö eru ekki bara vínáhugamenn í starfsliöi HP sem svolgra þaö í sig heldur finnst flestum kunnum vín- smökkurum þaö besta beljurauð- víniö á markaðnum. Þaö nær aö vísu ekki gæðum margra flösku- vfna, en í þvf eru engu aö síður góö kaup — einkum fyrir langar hátíðir eins og framundan er. Þaö er nefnilega eins og það megi endalaust mjólka beljuna. Auk þess er það líkt meö beljurauðvíni og lokuöum öskubakka aö stund- um er gott að komast hjá því aö sjá hvaö maður hefur reykt eða drukkiö. Svoleiðis á maöur einmitt að hafa það um páskana.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.