Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.05.1997, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 07.05.1997, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 Vaxandi líkur á sameiningu A-flokkanna hliðareðaspa tímann fllþýðuflokks- og Alþýðubandalagsfé- lögin í Reykjavík héldu sameiginlegan fund á Hótel Borg þann 1. maí undir stjóm formannanna, Gests Ásólfssonar og Rúnars Geirmundssonar. Horfur á sameiningu A- flokkanna og e.t.v. Kvennalista fara vaxandi og þróunin virðist jafnvei vera komin lengra en fólk hefur al- mennt gert sér grein fyrir. Hnitmiðuð ræða Svavars Gestssonar á sameiginlegum 1. maí-fundi A-flokksfélaganna í Reykjavík markaði þáttaskil í þróuninni. Svavar sparkaði öðru helsta ágreiningsefni flokkanna fimm ár fram í tím- ann en nefndi hitt „taeknilegt fyrirkomulagsatriði“. Fram að þessu hefur Svavar virst treg- ur í taumi þegar sameiningar- mál hefur borið á góma en þessi ummæli hans virðist mega túlka sem grænt ljós. Máiefnaágreiningur Alþýðu- flokksins og Alþýðubandalags- ins hefur vissulega verið mikill ailt fram á síðustu ár og stend- ur auk þess á sögulegum grunni. Þegar á heildina er litið má þó ef til vill orða það svo að þessir flokkar eigi nokkuð sambærilega framtíðarsýn en hafi ólíka afstöðu í dægurmál- um. Áratugum saman myndaði afstaðan til bandaríska hersins í Keflavík þá hyldýpisgjá milii flokkanna að sameining eða jafnvel svo náið samstarf sem kosningabandalag hefði verið óhugsandi. Á allra síðustu ár- um hafa tvö stærstu deilumál- in verið afstaðan tii aðildar fs- lands að Evrópusambandinu, í daglegu taii nefnt Evrópumál- in, og svo afstaðan til gjald- töku fyrir veiðileyfi. Alþýðu- flokkurinn hefur barist fyrir veiðileyfagjaldi alllengi. Aðrir flokkar hafa tekið afstöðu gegn því og nefnt það auðlindaskatt. Það orð hafa þingmenn Al- þýðubandalagsins, ekki síst Svavar Gestsson, notað óspart á undanförnum árum. „Tæknilegt fyrirkomulags- atriði" Svavar vék að báðum þess- um misklíðarefnum flokkanna í ræðu sinni á Hótel Borg á fimmtudaginn í síðustu viku og sagði: „Evrópumálin verða ekki til neinnar afgreiðslu fyrr en eftir 2002; þótt þau séu auð- vitað á dagskrá. En þau eru ekki til afgreiðslu í bráð... Um veiðileyfagjald segi ég það eitt að ég hef enga nauðsyn séð til þess að skattleggja sjávarút- veginn öðru vísi en aðrar greinar; ég tel að hér sé ekki á Hverjir skipa frambodslistana? Pótt enn séu nærri tvö ár til þingkosninga er þegar far- ið að ræða skipan framboðs- lista, a.m.k. í sumum kjördæm- um. Umræðuefnið er auðvitað forvitnilegt, sérstaklega ef A- flokkarnir og jafnvel Kvenna- listi bjóða fram sameiginlega lista sem væntanlega yrði kenndur við jafnaðarstefnu. Helgarpósturinn hefur kannað lauslega hvernig framboðslist- arnir gætu litið út í einstökum kjördæmum. Þessa uppstill- ingu ber að sjálfsögðu að taka með fyrirvara, enda „er þetta mál sem verður einfaldlega leyst þegar þar að kemur, — ef við komumst einhvern tíma svo langt“, eins og einn við- mælandi HP orðaði það. Hér er ekki gert ráð fyrir þátttöku Kvennalistans en ætla má að samfylgd Kvenna- listans hefði einkum áhrif á uppstillingu í Reykjavík og Reykjanesi. Kvennalistinn fékk síðast konur á þing í þessum kjördæmum. Fylgi listans hef- ur annars staðar verið mest á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra og hugsanlegt að Kvennalistakonur myndu gera kröfu um a.m.k. vonarsæti öðru hvoru þessara kjör- dæma. Reykjavík Að meðtöldum Þjóðvaka- þingmönnunum Jóhönnu Sig- urðardóttur og Ástu Ragn- heiði Jóhannesdóttur eiga A- flokkarnir nú sjö þingmenn í Reykjavík. Jón Baldvin Hanni- balsson og Össur Skarphéð- insson sitja á þingi fyrir Al- þýðuflokkinn og Alþýðubanda- lagið fékk þrjá þingmenn, Svavar Gestsson, Bryndísi Hlöðversdóttur og ögmund Jónasson. Það auðveldar uppstilling- una í Reykjavík að vísu nokkuð að Jón Baldvin tekur við sendi- herrastöðu á næstunni. Ásta B. Þorsteinsdóttir, sem kemur inn á þing þegar Jón hættir, er vissulega varaformaður Al- þýðuflokksins en kemur þó tæplega til að blanda sér í slag- inn um efstu sætin. Alþýðubandalagið hlaut mun fleiri atkvæði í Reykjavík en Alþýðuflokkurinn eins og raunar oftast eða alltaf undan- farna áratugi og ætti því vænt- anlega rétt á fyrsta sætinu. Þetta gildir raunar um öll kjör- dæmin nema Reykjanes og Vestfirði. E.t.v. mætti hugsa sér að sameiginlegur listi A-flokkanna (og Þjóðvaka) liti einhvern veginn svona út: 1) Svavar Gestsson (Ab), 2) Össur Skarphéðinsson (A), 3) Jóhanna Sigurðardóttir (Þ), 4) Bryndís Hlöðversdóttir (Ab), Svavar Össur Jóhanna Biyndís Við þessa Ásta R- uppstillingu er auðvitað hægt að gera marg- víslegar athugasemdir. Ög- mundur Jónasson kom t.d. inn á lista Alþýðubandalagsins sem óháður fyrir síðustu kosn- ingar og hefur ekki verið talinn í hópi fylgjenda sameiningar. Hugsanlegt er að menn kæmu sér saman um að hafa konu of- ar á listanum en í þriðja sæti. Þjóðvaki hefur heldur ekki þann styrk að Jóhanna geti á þeim grundvelli gert kröfu til sætis ofarlega á listanum. Þannig mætti lengi halda áfram. Þátttaka Kvennalistans myndi flækja framboðsmálin nokkuð. Konurnar myndu tæp- lega láta sér nægja eitt öruggt sæti á listanum. Vissulega kæmi líka aukið fylgi með Kvennalistakonunum en engu að síður væri Ásta Ragnheiður, sem hér var sett í sjöunda sæt- ið, komin í það níunda og yrði þar með að e.t.v. að láta sér nægja varaþingmennsku næsta kjörtímabil. Sameinaður listi jafnaðar- manna ætti nokkuð örugglega að fá sjö þingsæti í Reykjavík og ef Kvennalistinn væri með eru níu sæti ekki ólíkleg niður- staða. Níunda sæti jafnaðar- manna myndi líka út af fyrir sig boða önnur þáttaskil í ís- lenskri stjórnmálasögu. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur alltaf átt 1. þingmann Reykvíkinga. Nú kæmi það í hlut Davíðs Oddssonar að tapa þessu heiðurssæti og láta sér nægja að vera 2. þingmaður Reykja- víkur. Reykjanes Ef fara ætti eftir útkomu A- flokkanna í síðustu kosningum ætti Alþýðuflokkurinn að eiga tvö til þrjú efstu sætin í sam- eiginlegu framboði. Líka má hugsa sér að Alþýðubandalag- ið fengi 2. sætið og svo 5. sætið sem hugsanlega gæti orðið baráttusæti. Útilokað er að spá um hvaða Alþýðubandalags- maður fengi baráttusætið en Rannveig Guðmundur Ámi Sigríður Ágúst með tilliti til að Sigríður Jó- hannesdóttir, sem tók við af Ólafí Ragnarí Grímssyni, er af Suðurnesjum má reikna með því að 5. sætið félli í hlut ein- hvers af höfuðborgarsvæðinu. Hér er líka spurning hvað gert yrði við Þjóðvakamanninn Ág- úst Einarsson, sem getið hefur sér allgott orð á þingi. Sameig- inlegur framboðslisti gæti litið einhvern veginn svona út: 1) Rannveig Guðmundsdótt- ir (A), 2) Guðmundur Árni Stefánsson (A), 3) Sigríður Jó- hannesdóttir (Ab), 4) Ágúst Einarsson (Þ) 5), ?(Ab) 6) Petr- ína Baldursdóttir (A). Hér gildir hið sama og í Reykjavík að þátttaka Kvenna- listans yrði að líkindum háð því skilyrði að öruggt þingsæti byðist. Ef gengið er út frá því að listinn yrði að öðru leyti svipaður þessu má gera ráð fyrir að Ágúst Einarsson væri kominn í baráttusæti. Listi jafnaðarmanna ætti að eiga vís fjögur sæti á Reykjanesi og jafnvel fimm ef Kvennalistinn verður með. Sjötta sætið gæti svo hugsanlega verið í augsýn með nokkurri fylgissveiflu. Vesturland Á Vesturlandi komst Gísli S. Einarsson inn síðast en Jó- hann Ársælsson sat eftir þrátt fyrir fleiri atkvæði. Þeir yrðu að koma sér saman um hvor þeirra færi í 2. sæti, sem raun- ar er baráttusætið, en þó ein- ungis vegna þess hvernig nýju kosningalögin meðhöndla upj> bótarsætin. Talsverðar líkur ættu að vera á því að nýr listi jafnaðarmanna fengi tvo þing- menn og ann- aðhvort sjálf- stæðismaður- inn Guðjón Guðmundsson eða framsókn- armaðurinn Magnús Stefánsson félii. 1) Jóhann Ársælsson (Ab), 2) Gísli S. Einarsson (A). Vestfirðir Ýmsar sögusagnir hafa geng- ið um að Kristinn H. Gunnars- son muni leita annað ef alvara verður úr sameiningu eða sam- starfi við Alþýðuflokkinn. Nú herma heimildir hins vegar að Kristinn hafi fullan hug á að halda áfram þingmennsku í sameiginlegum þingflokki. Ef til þess kemur að Kvennalist- inn taki þátt í sameiginlegu framboði verður vafalaust Sighvatur Krístinn H. þrýst mjög á að Jóna Valgerð- ur Kristjánsdóttir, sem vann þingsæti fyrir Kvennalistann 1991, fái 2. sætið á listanum. 1) Sighvatur Björgvinsson (A), 2) Kristinn H. Gunnarsson (Ab). Norðurland vestra Ragnar Amalds hefur lýst yfir að hann fari ekki aftur í framboð. Fylgismunur A-flokk- anna í þessu kjördæmi er slík- ur að enginn vafi leikur á því að 1. sætið tilheyrir Alþýðu- bandalaginu. Þar börðust síð- x & 1 3 f n a n 1 e 9 „ sœtir sofar Húsgagnalagerinn • Smiöjuvegi 9 • sími 564 1475 Jóhann

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.