Helgarpósturinn - 07.05.1997, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 07.05.1997, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 23 Ekki , missaía: þessu unum. Áföstudaginn kemur veröur opnuö sýning í anddyri Norræna hússins á skipslíkön- um af þessum Svíþjóðarbátum, en eins líkönum af eldri og yngri skipum sem áttu sinn frægðarferil. Ljósmyndir sem tengjast hafinu prýöa og sýning- una. Líkönin geröi Grímur Karlsson, skipstjóri í Njarðvík, en hann á mikið safn skipslík- ana sem hann hefur gert af miklum hagleik undanfarin ár. Sígaretta — nei takk! Nú ættu þeir sem reykja og eru aö velta fyrir sér að hætta þessum slæma ósið aö nýta tækifærið og hætta á sunnu- daginn, því þá verður hinn ár- legi Reyklausi dagur Tóbaks- varnarnefndar. í tilefni dagsins verður haldin karnival-hátíð í fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal sem stendur frá klukkan 13 til 18. Aögangur er ókeypis og boðið veröur meðal annars upp á Emmess-ís og Svala. Skemmtidagskráin verð- ur fjölbreytt og mikið um alls kyns uppátæki. Klukkan eitt hefst skrúðganga frá stúkunni á Laugardalsvelli og verða götu- leikhópur og lúörasveitin Svan- ur í fylkingarbrjósti. Slökkviliðið verður með bll á svæðinu og leyfir krökkum að prófa að sprauta. Magnús Scheving kemur sem íþróttaálfurinn úr Latabœ. Brúðubíllinn veröur með leiksýningu og öllum gefst kostur á að prófa veltibílinn og fara í þrivíddarherminn. Fallhlíf- arstökk verður sýnt, auk þess sem níu metra há risarenni- braut verður „frumsýnd" ásamt hoppköstulum og blöðruskúlp- túr og fleiru. Landsliðsmenn I knattspyrnu árita splunkunýtt plakat af landsliöinu. Barnakór Börn og bækur í Norræna húsinu Finnski barnabókahöfundurinn Irmelin Sandman Lilius er gestur Norræna hússins um næstu helgi og á laugardaginn ætlar hún að lesa, á sænsku, upp úr barnabókum sínum fyrir yngri kynslóðina I Barnahellin- um. Barnahellirinn er sérstakt barnaherbergi undir bókasafn- inu, fullt af bókum, púðum og öðru skemmtilegu fyrir yngstu gesti Norræna hússins. Her- bergiö var opnað síðastliðinn janúar og hefur verið vinsælt hjá börnunum síðan. Á sunnu- daginn heldur Irmelin fyrirlestur sem höfðar ef til vill meira til eldri kynslóðarinnar, en þar verður rætt vítt og breitt um barnabókmenntir. Hún mun einnig segja frá bók sinni „Hand i hand“, sem erfjöl- skyldusaga hennar skrifuö I samvinnu við systur hennar. Á undan fyrirlestrinum syngur telpnakór frá Ábo I Finnlandi sem er á ferð hér á landi. Austurbæjarskóla syngur og síðast en ekki síst treður hin geysivinsæla rapphljómsveit Quarashi upp á þessu karni- vali. Súperblástur á Gauknum 1 kvöld og annað kvöld mun hressileg tónlist glymja um sal Gauks á Stöng. Stórhljómsveit- in SÚPER 7, sem meðal annars er skipuð þremur fyrrverandi Sælgætisgerðarmeðlimum, þenur blásturshljóðfæri sln auk annarra hefðbundinna rokk- hljóðfæra þessi kvöld. Tón- listin sem hljómsveitin leikur er úr öllum áttum; djassrokk, fönk, diskó og jafnvel út I rokk. Föstudags- og laugar- dagskvöld veröur hin geysi- vinsæla Reggae on ice með sitt alkunna stuðprógramm með reggae-ívafi. Rólegheitin munu svo ráöa ríkjum sunnu- dags- og mánudagskvöld er hljómsveitin T- Vertigo flytur fyrir gesti krárinnar óraf- magnað gæðarokk. Gaukur á Stöng ætti þvl að vera ágæt- isskemmtistaöur alla helg- ina. sýning Helga opnuð á föstudag- inn á einu besta kaffihúsi bæj- arins, Mokka. Sýningin stendur til 6. júní. Aðalbassaleikari bæjarins Róbert Þórhallsson er trúlega einn af betri bassaleikurum landsins, að minnsta kosti ber afrekaskrá hans vitni um það. Hann er I hljómsveit Emilíönu Torrini og spilaði I Stone Free og Superstar. Eins verður hann bassaleikari á Bítlatónleikunum sem haldnir verða I Háskólablói I júní. Þessa dagana er hann I Óperubandi Björgvins Hall- dórssonar. Hann hefur lært bassaleik hjá FÍH frá því áriö 1989, en eins og hann sjálfur segir hefur námið tekið svo langan tíma vegna mikillar vinnu sem hann hefur fengið út á að vera I FÍH-skólanum. „Ég hef bara ekki náð að Ijúka nám- inu,“ segir Róbert. Nú er samt komið að því og burtfarartónleikar Róberts verða nú á föstudagskvöldið klukkan 201 sal FÍH I Rauðagerði 27. En hvernig verður dagskráin hjá honum. „Raf- bassinn býður upp á svolltið nýrra pró- gramm en venju- legur bassi. Ég er að útskrifast af djassbraut, þannig að viö munum spila eins konar módern djass út I free djass. Lögin verða meðal ann- ars eftir mig og fjöldann allan af öðrum góðum djössurum. Þeir sem spila með mér eru Hilmar Jensson á gítar og Einar Sche- ving á trommur. Síöan veröa þrír gestir hjá mér; Jóel Páls- son á tenórsax, Jóhann Hjör- leifsson á trommur og Guð- mundur Pétursson á gítar. Svo spila ég aö sjálfsögðu á rafbassa og örlítið á kontra- bassa.“ Loksins útskrifaður... „Já og nú hefst alvöruvinnan, en ég hef unnið sem tónlistar- maður I fullu starfi slðustu fimm ár og gengiö ágætlega. Endar ná aö minnsta kosti sam- an. Hljómsveitir stranda oft á því að þær vantar bassaleikara og ég hef notiö mjög góðs af þvl.“ Eins og áöur segir verða tón- leikarnir á föstudagskvöldið I sal FÍH, Rauðagerði 27. Þeir hefjast klukkan 20 og er ókeyp- is inn. Föðurland vort hálft er hafið... Eftir heimsstyrjöldina síðari voru um 50 fiskiskip sérsmíðuð fyrir íslendinga I Svíþjóö og þar að auki keyptu íslendingar 30 skip af Svíum sem höföu verið smíðuð fyrir heimamarkað. Koma Svíþjóðarbátanna fyrir hálfri öld átti stóran þátt I ein- um mestu framförum sem oröið hafa fyrr og slðar til bættra lífs- kjara á íslandi. Viö hvern Svl- þjóðarbát, eða bát af svipaöri stærö, höföu 25 manns at- vinnu, þ.e.a.s. við veiöar, þjón- ustu og vinnslu aflans. Það hafa því 2.000 manns haft at- vinnu einungis af Svíþjóðarbát- Plast „Verkunum er ætlað að yfir- poppa og afhjúpa óþol gerand- ans gagnvart gjaldþroti miðils- ins. Þau framkalla plestnar kli- sjur sem hver um sig uppfyllir þó eitt af frumskilyrðum mynd- verksins; aö lifa sjálfstæðu lífi,“ segir Helgi Sig- urðsson hugverka- smiður um plastverka- sýningu sem hann opnar á Mokka nú á föstu- daginn. Helgi hefur um langt árabil starfað sjálf- stætt sem teiknari og grafíkhönn- uður þar sem tölvur hafa skipað stóran sess I vinnslu- ferlinu. Helgi segist vilja seil- ast út úr stafrænu umhverfi sínu til að kanna þá mót- sögn er felst I sköpun mynd- verka nú þegar upplausn allra forsendna vofir yfir. „Á sama tíma og ég veiti þess- ari sköpunarþörf útrás stunda ég einskonar fjöl- bragðaglímu við mótsagna- kennd viðhorf," segir Helgi. „Myndlistin sem boðberi nýrra strauma virðist hæpin nú þegar mögulegt er að flytja þrivíðan veruleikann yfir upplýsinganetiö og ofgnótt myndefnis á öllum sviðum herjar á og situr um skilning- arvitin. Sú spurning vaknar þess vegna óhjákvæmilega hvort þetta venjulega lista- brölt sé réttlætanlegt með tilliti til kostnaðar og fyrir- hafnar." Eins og áöur segir verður Hverjir HEIMSÆKI MÖMMU OG TENGDAMÖMMU „Næstu helgi? Ég er ekki búin að ákveða það,“ segir Nína Björk Árnadóttir rithöfundur. „Ætli helgin verði ekki róleg hjá mér. Ég heimsæki trúlega mömmu mína og tengdamóður mína. Ég sinni gömlu konunum um helgar, svo þetta er ekkert spennandi fyrir ykkur. Svo pikka ég eitthvað á tölvuna. Ég hef verið að skrifa gamanleikrit sem ég er að dútla við að breyta." Horfirðu eitthvað á sjónvarp? „Voða lítið. Ég er lítil sjónvarpsmanneskja. Það sem ég geri mér helst til dundurs hér heima er að skrifa og svo les ég eitthvað.“ AUSTUR YFIR FJALL „Drottinn minn dýri,“ segir Óli Tynes fréttamaður. „Þá er tíundi maí. Ja, venjulega um helgar þegar ég er I fríi á veturna er ég I skíðabrekkunum en núna, þar sem það var lokað um síðustu helgi, býst ég við að við hjónin förum að kanna hvort Suðurlands- undirlendið sé ennþá á sínum stað. Skreppum eitt- hvað austur yfir fjall og heimsækjum þar vini og kunningja. Við höfum lítið farið austur yfir fjall síðan einhvern tímann síðastliðið haust.“ Þekkirðu eitthvað til þar? „Ég hef verið I sveit þar og svo eigum við kunningja fyrir austan. Eins höfum við verið I sumarbústöðum þar. Þegar maður fer ekki I lengri ferðir er þetta skemmtilegur staður að ramba um.“ Vinnurðu mikið um helgar? „Við erum I vaktavinnu, þannig að ég vinn alltaf eina til tvær helgar I mánuði og fæ svo inn á milli frí á virkum dögum. Það þyk- ir mér I raun hin ágætustu skipti.“ BADMINTON Á LAUGARDÖGUM „Um næstu helgi? Þú segir nokkuð,“ segir Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna. „Heldurðu að ég sé búin að ákveða það?“ segir hún og hlær. „Bíddu nú við, ég er að fara I kvöldverð til vina- fólks á laugardeginum.“ Ertu frekar róleg um helgar? „Það er allur gangur á því. Eg fer ýmist út I garð eða I göngutúr með eiginmanninum. Svo er ég I badmin- ton á laugardagsmorgnum og hef gert það I á annan tug ára.“ Ertu þá ekki orðin nokkuð góð í badminton? „Ég get nú ekki alveg skrifað upp á það, en ég hef mjög mikla ánægju af þessu. Þetta er I rauninni eina íþróttin sem mér finnst gaman að, fyrir utan göngutúra.“ BÝÐ KONUNNI ÚT AÐ BORÐA „Um næstu helgi? Það er trúlega svo andlaust og ómögulegt að það er enginn blaðamatur,11 segir Óli H. Þórðarson hjá Umferðar- ráði. „Ég held að ég verði bara að vinna,“ segir hann og hlær I símann. „Nei það má varla segja þetta, en ég verð það.“ Hvað er svona mikið að gera um helgar? „Þetta starf er ekkert frá níu til fimm. Ég er hálf- gerður vinnufíkill — er alltaf I puðinu. Ég fer I badm- inton, en það er I miðri viku. Svo fæ ég heimsóknir um helgar af börnum og barnabörnum. Það eru nokk- uð fastir liðir um helgar. Annars ætla ég að reyna að fara út að borða með konunni. Ætli ég ákveði það ekki bara núna að bjóða henni út að borða fyrst þetta birtist I blaðinu ykkar.“ Gleðilegt sutnar! j Hiri cjullfaJlega, vinsæla íslensk- indverska prinsessa nýkomin frá Kanada meö ný sjóöheit lög og frábært „show", er reiðubúin aö skemmta um alít ísland, í félags- heimilum, skemmti- stööum og klúbbum. Veljum íslenskt! Hafið samband við LcOtlCÍCy sími 554 2878

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.