Helgarpósturinn - 05.06.1997, Side 4
4
RMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997
89
Vægur dómur Hér-
aösdóms Reykja-
víkur yfir ölvuðum
ökumanni sem
drap eina mann-
eskju og limlesti
aðra hefur vakið
furðu. Átta mán-
aða fangelsi, þar
af fimm skilorðs-
bundnir, það var
allt og sumt. Hvað
finnst þeim sem
vinna í forvömum
hérlendis? Sigurð-
ur Helgason hjá
Umferðarráði varð
fyrir svörum.
Dómur ekki
í samræmi
við eðli
brots
Hverjar telur þú for-
sendurnar á bak við dóm
Hœstaréttar?
„Nú er erfitt fyrir mig að
svara því, — væntanlega lög-
in. Menn þurfa hins vegar að
spyrja sig hvort sá lagabók-
stafur þjóni markmiðum um-
ferðaröryggis."
Er þessi dómur ekki í
hrópandi mótsögn við for-
varnir gegn ölvunarakstri
sem Um-
ferðarráð
og fleiri
hafa staðið
í lengi vel?
„Ég, ásamt
mörgum
öðrum, er
ekki hlynnt-
ur því að beita mjög hörðum
refsingum og tel það fráleitt
einu aðferðina til þess að
koma í veg fyrir svona harm-
leiki. Hins vegar hljóta menn
að velta því fyrir sér hvers
konar gildismat sé á bak við
svona lagað.
Það sem mér finnst að
mætti gera er að finna önnur
úrræði til að fást við síbrota-
menn á þessu sviði. Reyna
að koma í veg fyrir brotin
áður en þau eiga sér stað.
Það er nefnilega of seint að
byrgja brunninn eftir að
barnið er dottið ofan í. Ég
veit til þess að erlendis hafa
verið haldin námskeið, n.k.
meðferðarnámskeið, þar
sem menn sem ítrekað hafa
verið teknir við ölvunarakst-
ur hafa verið skikkaðir til
þess að taka þátt og refsing
þeirra linuð að sama skapi.
Það þarf hugarfarsbreytingu
hjá þessu fólki, ökuleyfis-
svipting ein sér er ekici nóg.“
Borið saman við mann-
drápsdóma þar sem vopn-
ið er annaö, hvað segir
þessi vœgi dómur um við-
horf dómsvaldsins til ölv-
unaraksturs?
„Það liggur í augum uppi
að allir sem þetta sjá velta
fyrir sér hverju þurfi að
breyta i kerfinu til að komist
verði hjá svona ósamræmi.
Dómurinn er að mínu mati í
engu samræmi við eðli
brotsins.“
Mœtti ekki segja að þetta
vœri líkt og blaut tuska
framan í ykkur og lögregl-
una?
„Þetta er að minnsta kosti
ekki þau skilaboð sem ég
viidi sjá þá fjölmörgu aðila
sem vinna að forvörnum fá
frá dómsvaldinu."
í síöustu viku var haldið í Reykjavík fyrsta sinni íslenska söguþingiö. Finnur Vilhjálms-
son fór á staðinn og ræddi m.a. viö Þórmund Jónatansson, blaðafulltrúa þingsins.
Söguþingið var haldið í Há-
skóla Islands á vegum
Sagnfræðingafélags fslands og
Sagnfræðistofnunar Háskóla
íslands. Blaðamaður náði tali
af Þórmundi og forvitnaðist
um þingið og fólkið sem sat
það.
Hvernig fór þingið fram og
hvað var á dagskrá?
„Þingið hófst með þingsetn-
ingu miðvikudaginn 28. maí og
síðan var þingað í þrjá daga,
eða fram á laugardag. Dagskrá-
in var mjög fjölbreytt, alltaf
þrjár málstofur virkar í senn,
og tóku þingstörfin til níu
ólíkra efnissviða auk þess sem
tólf stakir fyrirlestrar voru
fluttir. Aðalefnin voru tvö, ann-
ars vegar „Heimili og samfélag
á miðöldum" og hins vegar „ís-
land og umheimurinn". Þessi
efni voru rædd á einum degi
hvort af mörgum fræðimönn-
um. Að auki voru sex hliðar-
efni, rædd á hálfum degi, t.d.
„Þjóðararfurinn11 og „Kyn og
saga“. Einnig var bryddað á
þeirri nýjung að hafa stutta og
snarpa fyrirlestra, „Skiptar
skoðanir“, þar sem fræðimenn
úr hinum ýmsu greinum rök-
ræddu um hvenær nútíminn
hóf innreið sína á íslandi," seg-
ir Þórmundur.
Hvernig tókst til með þing-
störfin?
„Þau gengu ákaflega vel.
Fræðileg umræða var öflug og
málstofur þéttsetnar. Við sem
unnum við þingið urðum vör
við að fræðimenn jafnt sem
áhugamenn voru mjög þakklát-
ir fyrir þetta tækifæri til að
grúska í íslenskri sögu. Ég get
fullyrt að strax verður hafinn
undirbúningur að næsta
þingi."
Tímamót í greininni
Hvert var markmiðið með
þinginu?
„Tilgangurinn var annars
vegar að efla fræðilega um-
ræðu með því að fræðimenn
hittust og bæru saman bækur
sínar. Á hinn bóginn vildum
við kynna störf sagnfræðinga
fyrir almenningi. Þessu þingi
var ætlað að kynna sagnfræð-
inga hvern fyrir öðrum og
rannsóknum hvers annars.
Þing af þessu tagi hafði aldrei
verið haldið hérlendis og því
má segja að þetta hafi verið
tímamót í greininni.“
Geturðu nefnt mér ein-
hverja fyrirlesara sem létu
Ijóssitt skína?
„í fyrsta lagi voru þeir
nánast allir íslenskir, enda alís-
lenskt þing um íslenska sögu
en ekki alþjóðleg ráðstefna.
Þeir voru um áttatíu talsins, en
gestur þingsins og þekktastur
af þremur erlendum fyrirlesur-
um var hinn heimsþekkti sagn-
fræðingur Arthur Marwick.
Hann ritaði bók sem hefur
lengi verið kennd við Háskól-
ann.
Sérstaklega gaman er frá
þ\\ að greina að við höfum
fengið hingað á þingið fjölda ís-
lenskra sagnfræðinga sem eru
við nám eða störf erlendis og
er þeim hér með þakkað. Marg-
ir af þeim eru ungir og gott fyr-
ir þá að fá tækifæri til að kynna
sig og sínar rannsóknir á
svona stóru þingi.“
Mœtti skoða þetta þing í
tengslum við hina miklu
aukningu nemenda í sagn-
frœði við Háskólann á síð-
ustu árum?
„Já, það tel ég. Að minnsta
kosti endurspeglar það hina
miklu grósku í starfi sagnfræð-
inga. Fyrir nokkrum áratugum
höfðu fáir sagnfræðingar sér-
þekkingu á hinum og þessum
málaflokkum en nú hafa sem
sagt loksins skapast forsendur
fyrir svona stóru þingi,“ sagði
Þórmundur og hélt til starfa á
ný.
„Margir nútímar!“
Blaðamaður hlýddi á rök-
ræður fræðimannanna um inn-
reið nútímans í hátíðarsalnum
síðasta föstudag. Meðal mæl-
enda voru Sigurður Líndal
prófessor, Heimir Þorleifsson
sagnfræðingur, Þorsteinn Vil-
hjálmsson prófessor og fleiri.
Þetta reyndist fróðlegt og hin
besta skemmtun. Fór blaða-
maður margs vísari af fundin-
um þótt ekki tækist fyrirlestr-
unum fyllilega að standa undir
nafni sem „stuttir og snarpir".
Flestir teygðust á langinn og
urðu töluvert lengri en hinar
áætluðu tíu mínútur, sem aftur
olli smáseinkun á fundinum.
Þetta telst þó fremur regla en
undantekning þegar fólk sem
hefur eitthvað merkilegt að
segja fær svo kjörið tækifæri til
þess.
Fyrirlestrarnir voru mjög
skemmtilegir á að hlýða og
gaman að heyra mismunandi
útlistanir gáfumanna á upphafi
nútímans. Flestir voru sam-
mála um að varla væri hægt að
negla upphaf hans niður mjög
nákvæmt en margir töluðu um
síðari hluta 19. aldar til fyrri
hluta 20. aldar.
Sumir töluðu jafnvel um
„marga nútíma“, t.a.m. Sigurð-
ur Líndal og Þorsteinn Vil-
hjálmsson. Fræðimennirnir
reyndu hver um sig að tíma-
setja innreið nútímans í ís-
lenskt samfélag út frá merkum
tímamótum og uppgötvunum í
sinni fræðigrein svo og þróun
hennar. Á stöku stað mátti
finna svo marga slíka merkis-
áfanga og rekja þróunina í svo
margar áttir að útkoman varð,
eins og áður sagði, „margir nú-
tírnar".
Að sjálfsögðu var hið sígilda
„konur og...“-erindi á sínum
stað enda ekki við öðru að bú-
ast frá iðkendum svo húman-
ískra fræða sem sagnfræðin er.
Erindið „Móðir, kona, meyja —
og nútíminn“ eftir Sigríði
Dúnu Kristmundsdóttur naut
sín vel í flutningi Ingu Dóru
Bjömsdóttur.
Þótt umræðan væri mest á
alvarlegu nótunum kom ýmis-
legt skondið fram. Heimir Þor-
leifsson benti á að upphaf nú-
tímans hérlendis væri eigin-
lega afstætt því fólk væri
gjarnt á að miða það við al-
genga og einkennandi hluti í
samfélaginu. Hann spurði því
hvort ekki lægi beinast við að
líta á tilkomu krítarkortanna
sívinsælu í kringum 1980 sem
upphaf nútímans á íslandi!
Jón Óskar Hafsteinsson myndlistarmaður er orðinn þjóðkunnur fyrir
teikningar sínar og myndskreytingar í hinum ýmsu blöðum. Myndirnar
eru einfaldar en draga þó alltaf fram persónueinkenni viðkomandi á
skemmtilegan og nýstárlegan hátt. En hvernig er Jón sjálfur?
Hvaöa listamaður hefur haft mest áhrif á þig?
Þaö myndu vera Andy Warhol og Yves Klein.
Hvaða stjórnmálamaður er í mestu uppáhaldi hjá þér?
Jón Baldvin og Ólafur Ragnar.
Hvaða skáldsagnapersónu vildirðu helst líkjast?
Percival lávaröi.
Hvaða persóna mannkynssögunnar vildirðu helst hafa veriö?
Jóhann Sebastían Bach. Mig hefur alltaf langaö til aö vera tónlistarmaöur.
Ef þú fengir að lifa lífinu aftur myndirðu þá breyta einhverju?
Já, ég myndi breyta öllu, því ég myndi náttúrulega ekki vilja fara í gegnum
sama ferlið aftur. Þá veit maður allt fyrirfram.
Hver er merkilegasti atburöur sem þú hefur upplifaö?
Þaö er þegar Christina Long vatt sér aö mér og spuröi: „Are you Jón Óskar?'
Hver er merkilegasti atburður sem þú ætlar að upplifa?
Þaö er stofnun FÍAL sem stendur fýrir: Félag íslenskra alvörulistamanna. Þar
myndu aðeins fá inni þeir allra bestu.
Hvað hefur mótað lífsviðhorf þitt framar ööru?
Fjölskyldan mín; konan mín, foreldrar o.s.frv.
Ef þú ættir þess kost að breyta einu atriði í þjóðfélaginu eöa umhverfinu,
hverju myndirðu þá breyta? *
Ég myndi hlúa betur aö þeim sem minna mega sín.
Sérðu eitthvaö sem ógnar samfélaginu öðru fremur?
Hmmm... ég er nú svolítið á gati hér. Nei, ekki í svipinn.
IVIottó?
Nei, ekkert mottó. Ég er á móti prinsippum.