Helgarpósturinn - 05.06.1997, Page 5

Helgarpósturinn - 05.06.1997, Page 5
RMIVTTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 5 mm Barn rangt feörað vegna mistaka Péturs Kr. Hafstein: Ríkislö að- nsiogm urskooar embættSs- færshi Péturs Pétur Kr. Haf- stein: Hefði átt að gangast fyrir ítarlegri rann- sókn í barnsfað- ernismáli. Ríkislögmaður hefur nú m.a. til skoðunar mál sem tengist hugsanlegri vanrækslu Péturs Hafstein þegar hann var sýslumaður á ísafirði. Til ríkislögmanns hefur borist end- urgreiðslukrafa Jóhannesar Bjarnasonar, sem í níu ár greiddi meðlag með barni sem hann reyndist ekki faðir að. Það var Pétur Kr. Hafstein, þá sýslumað- ur á ísafirði, sem lagði hart að Jóhannesi að játa fað- ernið þótt verulegur vafi léki á því. Jafnframt virðist sem Pétur hafi látið undir höfuð leggjast að rannsaka hvort annar maður gæti verið faðir barnsins, þrátt fyrir ábendingar þar að lút- andi. DV greindi frá þessu barnsfaðernismáli á for- síðu á miðvikudaginn í síð- ustu viku. Blaðið nefndi ekki Pétur Hafstein, heldur aðeins „sýslumann" úti landi, og hafði eftir Jóhannesi að „sýslumað- urinn“ hefði sagt að það væru yfirgnæfandi líkur til að Jóhannes ætti barnið og ef hann skrifaði ekki undir yrði honum dæmt barnið. Jóhannes skrifaði undir og greiddi meðlag með barninu í níu ár, eða þar til hann fór fram á DNA- rannsókn sem leiddi óyggjandi í ljós að hann væri ekki faðir barnsins. Engu að síður kostaði það málaferli að fá fað- erninu rift. Jóhannes Bjarna- son vildi sjálfur sem minnst segja um þetta mál þegar Helg- arpósturinn ræddi við hann í gær og kvaðst aldrei hafa hugsað sér að gera jafn við- kvæmt mál og þetta að fjölmiðlamáli. Hann staðfesti þó að allt sem kom fram í frétt DV í síðustu viku hefði verið rétt eftir sér haft. Hafstein grein fyrir því að annar maður gæti verið faðir barnsins og að hann hefði veru- legar efasemdir um að hann sjálfur væri fað- irinn. Niðurstöður blóðrannsóknarinnar gáfu til kynna að Jóhannes kynni að vera faðir barnsins. í DV er haft eftir Jóhannesi að nið- urstöðurnar hafi sýnt að rúmlega 50% líkur bentu til að hann væri faðirinn. DNA-rann- sóknir voru ekki gerðar á þessum tíma. AÐEINS ÚTILOKUNARPRÓF Eftir því sem HP kemst næst mun svonefnt "paternity- index” ekki hafa verið komið til sögunnar á þessum tíma. Þetta er aðferð sem gerir kleift að ákvarða hversu miklar lík- ur séu fyrir faðerni. Áður en þessi aðferð kom til sögunnar var blóðrannsókn í þessu tilliti eingungis útilokunaraðferð. Niðurstöð- urnar leiddu annaðhvort í ljós að viðkom- andi væri ekki faðir barnsins eða að hann gæti verið það. Árið 1986 mun það hafa ver- ið slík niðurstaða sem Pétur Kr. Hafstein hafði í höndunum þegar hann gaf Jóhannesi kost á því að skrifa undir sjálfur eða verða dæmdur faðir barnsins. Ekki náðist í Pétur Kr. Hafstein í gær og ekki unnt að bera málsatvik undir hann.- Lögabilar - framtalsfrestur Framtalsfrestur fyrir lögaðila rennur út 31. maí nk. Lögaðilar hafa nú fengið sent áritað nýtt skattframtal rekstraraðila RSK 1.04. í ár geta lögaðilar valið um hvort þeir telja fram með sama hætti og áður eða telja fram á nýja framtalsforminu RSK 1.04. Þeir sem telja fram á RSK 1.04 geta skilað framtalinu á tölvutæku formi með sérstöku framtalsforriti. Það fæst afhent endurgjaldslaust hjá skattstjórum. Forritinu fylgja leiðbeiningar um uppsetningu og notkun. Allarfrekari upplýsingareru veittar hjá ríkisskattstjóra og skattstjórum. RSK RIKISSKATTSTJORI RIKISLOGMAÐ- UR RANNSAK- AR Jón G. Tómasson ríkislögmaður vildi í samtali við HP aðeins staðfesta að þetta mál væri til skoðunar hjá embættinu en neitaði að láta nokk- uð uppskátt um ein- stök efnisatriði þess, svo sem hugsanlega vanrækslu Péturs Kr. Hafstein í embætti. Ljóst virðist þó mið- að við málsatvik að Pétur hefði átt að láta fara fram blóð- rannsókn til að fá úr því skorið hvort hinn maðurinn sem til greina kom kynni að vera faðir barnsins. Tveir menn komu til greina sem feður. Móðir barnsins benti á Jóhannes Bjarna- son, sem krafðist blóðrannsóknar. Jóhannes staðfesti í samtali við HP að hann hefði gert Pétri Opnunartil 12“ m/3 áleggst. 9“ hvítlauksbrauö 1150.- 16“ m/3 áleggst. 12“ hvítlauksbrauð 1350.- Hamborgari að hætti hússins franskar og sósa 490.- Verið velkomin til okkar eða hringið og gerið pöntun Frí heimsendingarþjónusta Pizza Reykjavík er líka söluturn og Grill ♦ Ef tilboðsréttur er sóttir fylgir frítt COKE með

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.