Helgarpósturinn - 05.06.1997, Síða 7

Helgarpósturinn - 05.06.1997, Síða 7
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 ■ 7 Jón Ólafsson milligöngumaður AVUL VL NJ JIJJL ^ Fíkniefu peningai sendir til Skvfimu Hálfbróðir Jóns Ólafssonar á Stöð 2, Tryggvi Bjarni Kristjánsson, innheimti fíkniefnagróða í gegnum Skífuna, sem er kjarninn í viðskipta- veldi Jóns. Tryggvi Bjarni vísaði manni sem skuldaði honum peninga til Jóns Ólafssonar en Jón átti síðan að koma peningunum til Tryggva Bjarna, sem þá sat í fangelsi á Malaga á Spáni. í bréfi sem Tryggvi Bjarni skrifaði úr fangelsinu kemur fram að Jón veit um fíkniefnamisferli Tryggva. Bréfið veitir innsýn í heim fíkniefnasala þar sem á víxl er höfðað til vináttu og hótað lim- lestingum og morði í því skyni að inn- heimta skuld sem hvergi er til á við- skiptapappírum. Tryggvi Bjarni skrifaði bréfið í lok janúar árið 1993. Hann hafði dvaiið í fangelsi á Malaga um átta mánaða skeið og átti að koma fyrir dóm í febrú- ar. Tryggvi Bjarni taldi sig eiga um 500 þúsund krónur inni hjá Sigurbimi Þorkelssyni vegna fíkniefna sem Tryggvi Bjarni útvegaði og Sigurbjörn kom í verð á íslandi. Peningana hugð- ist Tryggvi Bjarni nota til að setja sem tryggingu og komast út úr fangelsi áð- ur en réttað yrði í máli hans. Hann bjóst við að standa betur að vígi í dómsainum sem frjáls maður en gæsluvarðhaldsfangi. Síðasta melding Sigurbjörns hafði verið að Tryggvi Bjarni fengi pening- ana í desember. Tryggvi Bjarni gerði sér vonir um að eyða jólunum með fjölskyldunni á Spáni, þar sem hann hefur verið búsettur mörg undémfarin ár. Hann missti einnig af afmæli yngsta sonar síns. Þegar komið var fram í janúar og ekkert bólaði á peningunum sem áttu að kaupa Tryggva Bjarna frelsi skrifaði hann Sigurbirni bréfið. „Ef ég verð dæmdur og er ekki laus þegar það skeður þá skuluð þið vona að þið sjáið mig aldrei framar, því ég vil ekki þekkja svikara sem svíkja mann. Svo- leiðis menn eiga ekki gott skilið frá minni hálfu séð,“ skrifaði Tryggvi Bjarni og til að leggja áherslu á orð sín teiknaði hann hakakross á spássíuna. Tryggvi Bjarni útvegaði háift kíló af fíkniefnum sem hann verðleggur á 300 þúsund krónur og þar fyrir utan vill hann 200 þúsund í áhættuþóknun. Niður í Skífu með peningana Tryggva Bjarna grunaði að Sigur- björn hefði sólundað ágóðanum af fíkniefnasölunni og spyr hvað það eigi að þýða að vera á sukki og gleyma vin- um sínum. Síðan skipar Tryggvi Bjarni Sigurbirni að fara niður í Skífu, sem hann skrifar með ufsiloni, og láta Jón Ólafsson eða ritara hans fá peningana. „Taktu á honum stóra þínum og red- daðu þessum peningum, farðu niðrý Skýfu og láttu Jón Olafs eða ritaran hans fá þessa þeninga, þannig að þeir komi helst í gær. Er það skilið!" Leiðir bræðranna Jóns Ólafssonar og Tryggva Bjarna Kristjánssonar hafa áður legið saman í fíkniefnamálum. Vorið 1976 viðurkenndi Jón Ólafsson í yfirheyrslu í Sakadómi að hann hefði haft milligöngu fyrir Bjarna Tryggva um kaup á fíkniefnum fyrir varnarliðs- mann á Keflavíkurflugvelli. Ári seinna var Jón dæmdur fyrir skjalafals í héraðsdómi og var málinu áfrýjað til Hæstaréttar. Áður en Hæsti- réttur kvað upp dóm sinn kom Tryggvi Bjarni bróður sínum til bjargar og lagði fram yfirlýsingu þess efnis að hann væri sekur um skjalafalsið sem Jón var dæmdur fyrir í undirrétti. Málatilbúnaður saksóknara ónýttist með yfirlýsingunni og Jón Ólafsson var sýknaður í Hæstarétti. Tryggvi Bjarni hefur margsinnis komið við sögu fíkniefnamála, bæði hér heima og erlendis. Hann hefur hlotið á annan tug dóma vegna alvar- legra afbrota og margsinnis samþykkt dómsátt í léttvægari málum. Lærði Jón á lífið, eða iærði hann á kerfið? Jón Ólafsson er umsvifamesti fé- sýslumaður landsins á sviði skemmt- anaiðnaðar og fjölmiðla. Hann lagði grunninn að veldi sínu með hljóm- plötu- og myndbandainnflutningi Skíf- unnar á síðasta áratug. Jón var einn af stofnendum Bylgjunnar og eignaðist síðar stóran hlut í Stöð 2, þar hann er núna stjórnarformaður og sjónvarps- stjóri. I gegnum Stöð 2 á Jón ítök í fjöl- mörgum fyrirtækjum, t.a.m. útgáfufé- lagi DV og ýmsum smærri útgáfum og margmiðlunarfyrirtækjum. Áður en uppgangur Skífunnar hófst kom Jón Ólafsson allnokkrum sinnum við sögu fíkniefnamála. í lögreglu- skýrslum og fíkniefnadómum sem Morgunpósturinn birti fyrir þremur ár- um eru tíunduð á annan tug tilvika frá árunum 1972, 1973, 1976 og 1981 þar sem Jón m.a. viðurkennir að hafa Bróðir Jóns innheimtir skuldir vegna fíkniefnasölu í gegnum fýrirtæki Jóns smyglað eiturlyfjum til landsins og haft milligöngu um sölu þeirra. Þegar Jón braust til áhrifa í við- skiptaheiminum var sumum þeim sem hann var í félagi við í nöp við fyrri iðju hans. Áður en Morgunpósturinn birti gögn sem staðfestu aðild Jóns að fíkni- efnamisferli sagði Jón félögum sínum að hann hefði aldrei selt fíkniefni eða tekið að sér dreifingu þeirra. Eftir út- komu greinarinnar sagði Jón af afskipt- in af fíkniefnaheiminum hefðu verið bernskubrek og að hann hefði tekið út sína refsingu. Fíkniefnalögregluna grunar að mál- um sé á annan veg háttað. Bernsku- brekin fólust í því að Jón var óvarkár og lét komast upp um sig. Jóni „má treysta“ Bréf Tryggva Bjarna er ekki til að draga úr tortryggni fíkniefnalögregl- unnar. Vegna fyrri samskipta Jóns Öl- afssonar og Tryggva Bjarna er ástæða til að ætla að Jón viti um „atvinnu“ bróður síns. f bréfinu segir Tryggvi Bjarni fullum fetum að Jón Ölafsson og móðir bræðranna, Heiða Kristjáns- dóttir, séu upplýst um það hvað sé á seyði. „Móðir mín veit hvað málið snýst um því ég hef engan annan til að íta við þér þannig að ég lét hana vita útaf hverju og Jón bróðir líka. Þaug segja engum frá því. Það er hægt að treista þeim,“ skrifar Tryggvi Bjarni. Fíkniefnasala og dreifing er alvarlegt lögbrot. Þeir sem standa að Slíku starfa utan ramma samfélagsins og hafa þar af leiðandi ekki tök á að leita formlegra leiða þegar ekki er staðið við gerða samninga, sem eðli málsins samkvæmt eru alltaf munnlegir. Traust skiptir höfuðmáli í samskiptum fíkniefnasala og til þess höfðar Tryggvi Bjarni þrásinnis í bréfinu. Sjaldnast þó undir jákvæðum formerkjum. Sá sem bregst trausti er svikari og það orð kemur reglulega fyrir í bréfinu. í niður- lagi er hnykkt á alvöru málsins með lítt dulbúinni morðhótun. „Tóti svarti“ í heimsókn „Svikara á jafnvel að ganga frá því þá kann ég ekki við,“ skrifar Tryggvi Bjarni til Sigurbjörns. „Það er hræði- legt ef vinir standa ekki saman. Ég stend alltaf með mínum vinum. Því geryr þú ekki það sama gagnvart okkar vinskap?" spyr gæsluvarðhaldsfang- inn á Spáni. Morðhótunin er almennt orðuð en til að undirstrika að hann sé þess albú- inn að láta eitthvað verulega óviðfélld- ið koma fyrir Sigurbjörn segist Tryggvi Bjarni tilbúinn að senda „Tóta svarta" í heimsókn. „Kanski á ég að þurfa að senda Tóta svarta í heimsókn. Ég get hryngt í hann ef þú vilt, ef það er betra að fá hann til þess að rukka inn firyr þá gery ég það ef þetta kemur ekki í gær.“ Tóti svarti er Þórður Siguijónsson, sem sætt hefur ákærum fyrir líkams- meiðingar, m.a. á tollverði á reykvísk- um skemmtistað fyrir nokkrum miss- erum og eiginkonu þekkts fíkniefna- sala. Lokaorð Tryggva Bjarna í bréfinu eru þessi: „Enga leti í bankan og niðurý Skýfu strax með fjögur til fimm hundruð þús- und krónur strax. Einn sem er ekki hress með það að vera svikin. Tryggvi.“ V'élfc'iU 3 \ioMUH K<3 fijUM O'J fc€cbidfxj Pe/Jia/cuh r fybfou • P öý Sfcýfn dy CQ-héíJ ]q,\! ÓL3'f /rP3 f ’ petf wc<3 , &Ð feni WeLSi ( A :[&). Skú’f£> flé s 'þf&y' sb* HöBÁw HiH V6í*f HV'SP naff SjV/SV f j-r j>Vi e<j H'€.r a h -X\ L W Ht-c^ Vf-v- t yijz? iuf>f l(v€í-\a Oöa/ ^3 a fr; $6i~7Ö// htfPN 3^/7 ö/sfcyh jf/ ZjC'/L ^ LLfc, yié' ht3SyeNci /{í+c) f blix//> h hhpi SNhfcí. 0/c/cOh

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.