Helgarpósturinn - 05.06.1997, Side 11

Helgarpósturinn - 05.06.1997, Side 11
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 Ílli ■ 11 Framhaldsskólar eru misjafnir, það er viðurkennt. En eru þeir misgóðir? Oddgeir Eysteinsson útskrifaðist úr MH en er alls ekki viss um að hann sé sá besti... Góðir skólar, snobbið og sköpunaraleðm Flestir nýútskrifaðir grunnskólanemar hafa síðustu daga verið að skrá sig í framhalds- skóla. Ekki eru margir áratugir síðan einungis börn heldra fólks héldu áfram í skóla eftir að skyldunáminu lauk meðan hin fóru beint í puð- ið. Nú fara flestir íslenskir unglingar í framhalds- skóla óháð efnahag foreldra. En fara þau í sömu skólana? í ónefndum kaupstað sunnanlands þekkist það að börn útgerðarmannanna og þeirra sem eiga eitthvað undir sér fari í Verslun- arskólann í Reykjavík, meðan allur almenningur í bænum gerir sig ánægðan með framhaldsskól- ann í plássinu. Sömu sögur berast af Reykjavík- ursvæðinu; krakkar hinna tekjumeiri lærdóms- manna og -kvenna fari í „gömlu góðu“ skólana frekar en hverfisskólann sinn. í hugum flestra er tími stéttaskiptingar á ís- landi liðinn. En það sem á undan er rakið vekur hins vegar þá spurningu hvort hægt sé að tala um einhvern stéttamun í skólakerfinu og þá í framhaldi af því hvort hægt sé að tala um ein- hvern gæðamun á skólum á framhaldsskóla- stigi. Samanburðurinn... Próf í framhaldsskólum eru ekki samræmd en hins vegar hefur námsframmistaða nemenda á fyrsta ári í Háskóla íslands verið metin með hlið- sjón af bakgrunni þeirra, þ.e. þeim framhalds- skólum sem þeir komu úr. Síðast var slík könn- un gerð heyrinkunnug árið 1992 en að henni stóðu Guðmundur B. Amkelsson og Friðrik H. Jónsson, kennarar við félagsvísindadeild. Könn: unin var byggð á upplýsingum nemendaskrár HÍ um innritanir árin 1984-1989. Niðurstaðan var miðuð við helstu deildir Háskólans með þeim undantekningum að guðfræðideild þótti ekki raunhæfur kostur til athugunar vegna fámennis og sökum fjöldatakmarkana í lagadeild og læknadeild þótti það ekki þjóna tilgangi að spá fyrir um námsgengi miðað við tiltekna lágmarks- einkunn í þessum deildum. Niðurstöður voru annars á þá lund að Menntaskólinn á Akureyri var með hæsta með- aleinkunn í öllum hinum könnuðu deildum, MA var alls staðar í fyrsta sæti. Annað sætið var skipað hinum ýmsu skólum, eftir deildum. í við- skipta- og hagfræðideild sem og félagsvísinda- deild var Verslunarskólinn í öðru sæti, í heim- spekideild var Menntaskólinn í Reykjavík í öðru sæti, í raunvísindadeild var Menntaskólinn á Laugarvatni í öðru sæti og í verkfræðideild var Menntaskólinn við Hamrahlíð í öðru sæti. ... og orðsporið Er hægt að leggja út af þessari rannsókn um frammistöðu háskólanema á fyrsta ári? Þær raddir hafa heyrst, frá leikum sem lærðum, að þessar niðurstöður sanni yfirburði bekkjakerfis- ins gagnvart áfangakerfinu. Manna á meðal hef- ur þessi útkoma jafnvel treyst í sessi þær skoð- anir að gömlu framhaldsskólarnir séu betri menntastofnanir en þær nýju. Það er raunar ekki nýtt að einkunnin „góður skóli“ tengist gamalgrónum stofnunum. Orðspor verður til á löngum tíma, frá einni kynslóð til annarrar, og þar standa hinir fornfrægu skólar vel að vígi. Aðstandendur rannsóknarinnar taka það hins vegar fram að árangur stúdenta í HÍ segi ekki endilega til um gæði tiltekinna framhaldsskóla. Þeir segja það þó eigi að síður ljóst að reynsla Háskólans af einstökum framhaldsskólum sé misgóð. Það þýðir að það má nokkurn veginn ganga út frá því sem vísu að nemendur í efstu sætum á háskólaprófum séu oftar en ekki úr gömlu framhaldsskólunum. Þá taka fræðimenn- irnir það fram í skýrslu sinni að góðir náms- menn í framhaldsskóla hafi tilhneigingu til að standa sig vel í HÍ og slakir nemendur eru líkleg- ir til að standa sig illa. Á það er líka hægt að benda að bestu nemend- urnir safnast í gamalgrónu skólana og oftar en ekki eru nemendurnir börn menntafólks sem sjálft var gjarnan í þessum sama skóla. Það gef- ur aukinheldur augaleið að menntunarlegt að- hald er meira hjá langskólagengnum foreldrum en þeim sem litla menntun hafa. Útkoman er því oft sú að góðir nemendur sækja í gömlu skólana, auk þess sem góðir nemendur af landsbyggð- inni fara frekar til Reykjavíkur (eða Akureyrar) en í næsta framhaldsskóla. Þá er það ónefnt að stóru skólarnir í Reykjavík geta valið og hafnað eftir árangri nemenda í samræmdum prófum, því meiri fjöldi sækir um skólavist en yfirvöld Verslunarskóli íslands: Böm ríkra útgerðarmanna í sjávarplássum landsins fara í Verslunarskólann í Reykjavík, meðan allur almenningur í bænum gerír sig ánægðan með framhaldsskólann í plássinu. þar telja fært að veita inngöngu. Það er gjarnan á það bent í sambandi við grunnskólastigið að landsbyggðarskólar hafa flestir búið við lítinn stöðugleika hvað varðar kennaralið. Hið sama má segja um litla fram- haldsskóla. Stöðug kennaraskipti þykja óheilla- vænleg til skólastarfs. Þá má telja það til baga að dreifbýlisskólar hafa færri réttindakennurum á að skipa en í þéttbýlinu. Það má líka gera því skóna að nálægð við atvinnulíf, eins og er raunin í mörgum sjávarplássum, togi nemendur í vinnu og fjársöfnun frekar en til langrar setu á skóla- bekk. íslenskir skólar leggja ofuráherslu á próf. í vissum tilvikum getur kennsla heillar annar snú- ist um að koma að þekkingu sem verður prófað úr — ekki öðru. Hér koma samræmdu prófin í 10. bekk upp í hugann. Þar hefur það löngum tíðkast að þrautþjálfa nemendur fyrir samræmdu próf- in með því að þræða í gegnum gömul próf. Um leið er verið að leggja allt annað til hliðar og prófið er orðið markmið í sjalfu sér. Þau eru farin að ráða ferðinni. Skólinn hefur þar með misst sjónar á tilgangi sín- um — að fræða og undirbúa fyrir lífið. Allt til þess að treysta ímynd skólans og friða foreldra og að- standendur. Og kenn- arana og skólann. Gott andrúmsloft — góður árangur „Góður skóli er sá skóli þar sem nem- endurnir læra,“ segir kona sem kennir raungreinar í menntaskóla í borginni. Hún hefur kennt í tíu ár og jafnframt gegnt stjórnunarstörfum innan skólans. „Svo er það spurning hvað það er sem við viljum láta nemendur læra í skólanum. Góður skóli ræktar nemendurna, þeir skila áfram þeirri menningu að námi loknu, sem þeim er miðlað. Það er hægt að kenna þessa menningu í gegnum námsgrein- ar en þeir læra hana líka í gegnum félagslífið og þá skila þeir menningunni áfram. Mér finnst góður skóli vera þar sem nemendurnir blómstra svolítið. Þá finnst mér skólinn eigi að vera meira á þeirra forsendum en nú er. Framhaldsskólinn er hvorki í takt við þróunina í þjóðfélaginu né við unga fólkið sjálft.“ Téðum kennara finnst líka ástæða til að víkja að vinnuanda I sambandi við framhaldsskólann. „Ég var að heyra af dönskum atvinnuráðgjafa sem sagði að þeir væru að hverfa frá þessum amerísku stjórnarháttum þar sem endalaust gæðamat á sér stað og fara inn á ákveðin lífs- gæðaviðhorf. Fólk á að hafa það gott í vinnunni og því á að líða vel. Það á að stjórna þannig að vinnuumhverfið sé gott og það skilar strax árangri. Það sama á að gera í skólum.“ Og hún vill bæta því við að skólastarf í fram- haldsskólum sé þess eðlis að vald hans til að móta nemendur sé takmarkað, öndvert við það sem margir halda. Börnin komi mótuð inn í framhaldsskólann. „Skólinn býr ekki til nemend- urna — þeir koma á sínum forsendum, hver með sitt í farteskinu. Það sem skólinn leggur þeim til í þroskaátt sker úr um hvort skólinn er góður eða vondur. Skili hann nemendum betri og margs vísari er hann góður.“ Sköpunargledi og slugs íslendingum er tamt að bera stöðu skólans hér heimafyrir við það sem gengur og gerist í út- löndum. Oftast fer landinn halloka í þeim sam- anburði. Það sama er jafnan upp á teningnúm þegar fólk kemur heim eftir langa útivist með börn sín, úr betri skólum að því er það segir sjálft, í drollið hér heima. Það er við hæfi að bera málið undir íslending sem hefur saman- burð. Bima Ambjömsdóttir hefur kennt við bandarískan háskóla um árabil við uppfræðslu kennaraefna, auk þess að hafa kennt bæði á há- skóla- og framhaldsskólastigi á íslandi. Þar fyrir utan hefur hún samanburð í gegnum börn sín, á íslensku skólakerfi og banda- rísku. Stóra spurningin er borin undir hana: Hvað er góður skóli? „Aðalatriðið í mínum huga er væntingar til nemenda. Ég held að nemendur séu færir um að gera miklu meiri og stærri hluti en ætlast er til af þeim. Ég held að það sé jákvætt og neikvætt. Nú er oft talað um að krakkar á íslandi og nemendur á íslandi s@u svo „kreatíf“, séu öll í listum og einhvers konar félagsstarfi „Mín reynsla er sú, úr íslensk- um framhaldsskólum, að það eru litiar kröfur gerðar. Það eru miklu meiri kröfur gerðar í framhaldsskólum í Bandaríkjun- um. Til ritgerða, til námsins og til ástundunar. Og þetta er ekki bara mín skoðun heldur nýt ég þeirrar reynslu að eiga börn. Og þetta segir fólk líka sem kemur hingað frá Evrópu. Krökkum sem hafa þennan samanburð of- býður hvað það eru litlar kröfur gerðar hér.“ gapúr- og stærðfræði- umræða. Það er verið að kasta svona fram í fjölmiðlum meðan fólk hefur ekki þær forsendur sem þarf til þess að skilja sam- hengið. Fólk sér bara að það er æðislegt námsefni í Singapúr og það gengur of- boðslega vel. Það vita það hins vegar allir sem eitthvað hafa fengist við alþjóðlega menntun að það er lögð ofuráhersla á stærðfræði og raun- vísindi á kostnað hugvísindanna. Ég þekki þetta, ég hef verið með erlenda stúdenta til margra ára. Nemendur frá Japan, Kína, Tælandi og Singapúr sem ég hef haft reynslu af eru rosalega miklir námsmenn en þeir eru ekki endilega frjó- ir í hugsun að sama skapi. Þannig að það er bæði jákvæð og neikvæð hlið á þessu. En að taka ein- hverja af þessum þjóðum og bera sam- an við það sem er hjá okkur, það er bara eins og að bera sam- an epli og appelsínur. Og eins er með þessi samræmdu próf. Ég veit að það er skóli úti í bæ með mikið af og menningarstússi einhvers konar, að setja upp leikrit og þess háttar. Ég hef velt fyrir mér hvort ástæðan sé að þau fá ekki útrás fyrir sköp- unargleðina. Að allt púðrið og orkan fari í félags- störf frekar en skólastarfið sjálft, sem virðist vera algert aukaatriði hjá sumum krökkum." Birna hefur kennt ungum háskólanemum í Bandaríkjunum, í svokölluðu undergraduate- námi, fyrir 18 ára og eldri, í góðum háskólum. Hún segir það reynslu sína að nemendurnir hafi sýnt litla sköpunargáfu, að þau virtust ekki kunna að hugsa sjálfstætt. „Krakkar hér eru miklu meira í að finna sér leiðir til að nota sköp- unargáfu sína, sem mér finnst bara ekki vera til staðar hjá bandarísku krökkunum, ekki í sama mæli að minnsta kosti. Kerfið hér er jákvætt að því leyti að skólinn lætur krakkana í friði til þess að finna sköpunargáfunni útrás og hafa tíma til þess að gera það annars staðar, en það er nei- kvætt að því leyti að það eru ekki allir sem hafa svona brennandi sköpunargáfu. Tilgangur skóla er náttúrulega að veita ein- hverja grunnmenntun. Og þá veit ég ekki hvort þetta nýtist þeim sem helst þurfa á því að halda, sem er þá sú grunnmenntun að kunna að draga ályktanir, að kunna að koma frá sér ýmsum hug- myndum og kunna að vinna úr hugmyndum og leysa vandamál. Ég er ekkert viss um það. Þetta er gott að því leyti að það gefur krökkunum svig- rúm til þess að veita sköpunarþránni einhvern farveg en það þarf líka að hugsa um þá sem ekki hafa einhverja rosalega sköpunargáfu og þurfa að fá einhverja þekkingu. Það er ekki nógu gott að hafa mikla sköpunargáfu en vanta að sama skapi grunnþekkingu. Ég hef oft verið að spekúlera í því hvort það geti verið eitthvert samhengi þarna á milli. Mín reynsla er sú, úr íslenskum framhaldsskólum, að það eru litlar kröfur gerðar. Það eru miklu meiri kröfur gerðar í framhaldsskólum í Banda- ríkjunum. Til ritgerða, til námsins og til ástund- unar. Og þetta er ekki bara mín skoðun heldur nýt ég þeirrar reynslu að eiga börn. Og þetta segir fólk líka sem kemur hingað frá Evrópu. Krökkum sem hafa þennan samanburð ofbýður hvað það eru litlar kröfur gerðar hér.“ Birna biðst undan samanburði og allri upp- hrópunarumræðu. „Þetta er eins og þessi Sin- nýbúum. Þarna voru nýbúar sem ekki töluðu islensku látnir taka sam- ræmd próf það árið og þeir náttúrlega drógu alla niður. Éf fjórðungur nemenda sem er að taka samræmd próf kann ekki íslensku þá kem- ur sá skóli auðvitað ekki vel út í heildarmynd- inni.“ Gott skólastarf Að sögn Birnu hafa rannsóknir í Bandaríkjun- um sýnt fram á ákveðna þætti sem verða að vera til staðar til að skapa góðan skóla. Það sem verður að vera fyrir hendi er i fyrsta lagi sam- vinna kennara og foreldra. ! öðru lagi þurfa kennarar og skólastjórnendur að hafa eitthvað um námsefnið að segja og ráða ferðinni að ein- hverju leyti og ráða vali á námsbókum. í þriðja lagi er talað um væntingar til nemenda. Margar rannsóknir munu hafa leitt þessar sömu niður- stöður í ljós. íslendingar hafa aldrei verið góðir í því að setja sér markmið. Hver er tilgangurinn með .menntun, hver er tilgangurinn með skólastarfi? Við höfum aldrei verið góð í að hugsa fram á við. Hvað ætlum við að gera við þessa menntun? Maður á því að venjast í Ameríku að foreldrar hafi skoðanir á því hvernig uppeldi eigi að vera, hver sé tilgangurinn með uppeldi barnanna og hvert sé stefnt. Það eru samt regiur um uppeldi hér en það talar bara enginn um það. Þetta var í lagi meðan ísland var bændasamfélag og allir hugsuðu eins og gerðu það sama. Þetta er bara að breytast og það er spurning hvort þetta þurfi ekki að vera eitthvað markvissara. Það þýðir ekki að kenna kennurum um, ráðherra, foreldr- um eða námsefninu. Það þurfa allir að taka sig á. Umræðan á að snúast um það hver er tilgangur- inn, hvert er markmiðið. Hvað viljum við að ís- lendingar kunni og geti. Hún er svo hallærisleg þessi nostalgía sem gengur út á að: „Þegar ég var í skóla þá var þetta svo ágætt.“ Það var ekk- ert ágætt. Kröfurnar voru bara allt aðrar og samfélagið var allt öðruvísi,“ segir Birna. Stimpillinn góður skóli eða vondur skóli er ómarktækur í íslensku skólakerfi. Það er hins vegar hægt að tala um góða nemendur eða slaka. Góðir nemendur standa sig vel í námi, hvaða skóla sem þeir stunda.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.