Helgarpósturinn - 05.06.1997, Side 12

Helgarpósturinn - 05.06.1997, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 X HHfler sem söguleg tilviljun astir og örlög sj onvarpstrul Algeng skýring á stjórn- málaleiðtoganum Adolf Hitler, sem komst til valda í Þýskalandi 1933 með hörmu- legum afleiðingum fyrir heims- byggðina, er að hann hafi verið afleiðing af óbilgjörnum skil- málum sigurvegara fyrri heimsstyrjaldar og upplausn- arástandi í Þýskalandi milli- stríðsáranna. Sumpart var það þægilegt fyrir sagnfræðinga að skella skuldinni á ópersónuleg söguieg öfl og láta sálfræðinga um persónuna Hitler. Nasista- tímabilið var til skamms tíma ekki hægt að ræða á sömu nót- um og aðra sögulega atburði. Heitar tilfinningar báru tilraun- ir til fræðilegrar umræðu iðu- lega ofurliði. Skilyrðin til að ræða valda- töku Hitlers eru smátt og smátt að breytast eftir því sem meiri fjarlægð fæst frá heims- styrjöjdinni og glæpum nas- ista. í New York Review of Books er nýlega greint frá bók eftir Henry Ashby Turner (Hitler's Thirty Days to Power) og í henni kemur fram það sjónarmið að ef ekki hefði ver- ið fyrir tilviljanir og heppni, ásamt smásálarskap og hé- góma lykilmanna í þýskum stjórnmálum, þá hefði Hitler ekki orðið kanslari. í þingkosningunum í nóv- ember 1932 fékk nasistaflokk- urinn tveimur milljónum færri atkvæði en í kosningunum júlí sama ár. Fjárhagsvandræði herjuðu á flokkinn og andóf Páll Vilhjálmsson gegn einræðistilburðum for- ingjans færðist í aukana innan flokksins. Áramótin 1932/1933 spáðu skoðanamyndandi fjöl- miðlar falli Hitlers. Hvernig mátti það vera að fá- einum vikum síðar var Hitler orðinn kanslari lýðveldisins sem hann tortímdi? Maðurinn sem ber mestu ábyrgðina er Franz von Papen, fyrrverandi kanslari. Von Papen gat ekki sætt sig við að missa embættið til hershöfðingjans Kurts von Schleicher og gróf skipulega undan honum. Papen átti trún- að Pauls von Hindenburg far- seta, sem veitti kanslaraemb- ættið. Þrátt fyrir viðvaranir taldi Papen að hann gæti tamið Hitler. Þegar sótt var að von Schleicher, sitjandi kanslara, lét hann af völdum án mót- spyrnu, sem honum hefði þó verið í lófa lagið að veita, enda gæddur ótvíræðum hæfileik- um stjórnmálamanns og naut stuðnings hersins. Hefði von Schleicher beitt sér eru líkur til að hægrisinnuð, afturhalds- söm og þjóðernissinnuð ríkis- stjórn hefði setið að völdum í Þýskalandi og Hitler væri neð- anmálsgrein í sögubókum um þýsk stjórnmál. í New York Review of Books er einnig fjallað um hjónakorn- in Jim og Tammy Bakker. Þau voru hvað þekktustu sjón- varpstrúboðarnir í Bandaríkj- unum á síðasta áratug þegar dagblaðið The Charlotte Obser- ver sagði frá sjö ára gömlu framhjáhaldi Jims með Jessicu Hahn og að hann hefði borgað henni með safnaðarfé til að þegja. í kjölfarið var OKKSOGUR Mansun hefur verið beðin að gera ábreiðu af Rolling Stones-lögum fyrir kvikmynd um Brían Jones sáluga, fyrrv. gítarleikara Rolling- anna. Hljómsveitarmeðlimir eru reyndar miklir aðdáendur Jones og eru í reglulegu sambandi við aðdáendaklúbb, sem hefur síðustu misseri verið að senda Mansun ýmislegt stöff. Klúbbfé- lögum þykir Chad í bandinu ótrúlega líkur Bri- an. Mansun-félagar eru byrjaðir að vinna með nokkrar hugmyndir, en of snemmt er þó að segja til um hver útkoman verður. Manic Street Preachers hafa verið beðnir um framlag til þessarar sömu mynd- ar en þeir gefa ekki kost á sér, eru víst önnum kafnir við gerð eigin efnis. Kvikmyndina gerir breska fyrirtækið Scala og nú er í gangi lokaátak til fjármögnunar verksins. Brad Pitt hefur verið nefndur sem einn af aðalleikur- um en of snemmt er þó að full- yrða nokkuð um það, þetta er allt á frumstigi. flett ofan af flottræfilslegum lifnaðarháttum hjónanna og skattyfirvöld rannsökuðu bók- haldið. Jim var dæmur í fang- elsi og mátti þola nauðgunar- tilraun samfanga. í sjónvarpinu boðuðu hjónin fagnaðarerindi velmegunarinn- ar. Efnahagsleg velmegun var vitnisburður um velþóknun Guðs. í fangelsi las Jim Biblí- una betur en áður og fann ekki jákvætt samhengi milli pen- inga og trúarafstöðu. Þvert á móti, Jesús var mótfallinn auð- söfnun. Frá þessu segir hann í ævisögu sinni (/ was Wrong) og ritdómarinn, Martin Gardner, fer lofsamlegum orðum um rit- leikni höfundar. Svo sagan sé kláruð þá skildi Tammy við Jim 1992, á meðan hann sat inni, og tók saman við sameig- inlegan vin þeirra. Jim er laus til reynslu og biður um fyrir- gefningu og fyrirgefur öllum. Vanity Fair er gefið út af Condé Nast-samsteypunni og er með yfirbragð glanstíma- rits, fallegt (kven)fólk á forsíðu og viðmælendur valdir að ein- hverju Ieyti með tilliti til útlits, en lesmálið er engu að síður yf- irleitt áhugavert. í maí-útgáf- unni skrifar Christopher Hitc- hens um listrýninn Robert Hughes. Hitchens skrifar viku- lega dálka í Nation og þar fell- ur honum best að hjóla í menn og málefni. Nation er vikurit THM fÍCTílW ^ ttmwan í wflKMCa awgmn Mtm ösvifi mmmu. Hitler var ekki söguleg nauðsyn og fallnir sjónvarpstrú- boðar eiga sér við- reisnar von... Vanity Fair er glanstímarit með góðu en helst til gagnrýnislausu lesmáli... með pólitíska dagskrá en Van- ity Fair er mánaðarrit á mark- aði og Hitchens fer lofsamleg- um orðum um Hughes. Kannski að hann finni til sam- kenndar með listrýninum, báð- ir eru aðfluttir til Bandaríkj- anna, Hitchens frá Englandi en Hughes frá Ástralíu. Hitchens er ágætur í hlutverki sínum sem samúðarfullur portrett- höfundur en hann svíkur les- endur með því að koma ekki til skila menningargagnrýni Hug- hes. Bókin Culture of Complaint eftir Hughes er ein umtalað- asta gagnrýni á bandaríska mennmgu seinm ar- in og klént af Hitc- hens að láta eins og hún væri óskrifuð. Kannski er ástæðan að Vanity Fair er ekki gefið fyr- ir þjóðfélagslega gagnrýni af þeirri sortinni sem Hitchens iðkar í Nation. En það er gnótt af góðu lesefni í maíheftinu, t.d. skrifar David Halberstam um vanmetinn rithöfund, Ward Just, en hann er fyrrver- andi blaðamaður eins og Hal- berstam og höfundur skáld- sagna með pólitísku plotti og útdráttur er úr ævisögu Clare Boothe Luce, sem var glamúr- kona með járnvilja og gift eig- anda Time-útgáfunnar. Ef trúa má Eiríki Guðmunds- syni í nýjasta hefti tímarits Ují lega lengri tíma í hljóðver- um á meðan Babybird og Mansun halda plötukaupendum stöðugt við efn- ið. Sundays er í þeim hópi sem nostrar við af- kvæmi sín, „Blind“ kom út árið 1992 og þau eru nú að leggja lokahönd á næstu plötu. Courtney Love hefur ráðið Billy Corgan (Smashing Pumpkins) til að taka upp næstu plötu Hole, vinnutitillinn er „Celebrity skin“. Síðasta plata Hole var „Live throu this“ sem út kom skömmu eftir sjálfsmorð Kurts Cobain árið 1994. Hljómsveitir eru misduglegar að koma frá sér efni. Stone Roses gaf út frumburð sinn árið 1989. Það tók sveitina síðan nærri sex ár að koma frá sér framhaldinu, „The second com- ing“, og hún flosnaði upp í kjöl- farið. Og sveitirnar eru fleiri sem virðast ætla að hljóta svipuð ör- lög: Elastica, Hole, Stereo MC, My Bloody Valentine og Sundays hafa látið aðdáendur sína bíða í 3-6 ár eftir nýju efni. Ýmsar ástæður eru fyrir þessu; barneignir hljómsveitarmeðlima og önnur verkefni líkt og hjá Stereo MC, sem hljóðblanda og taka upp fyrir aðra listamenn. Sum bönd þurfa síðan einfald- Chemical Brothers og Dust Brothers hafa slíðrað sverðin og gott betur; þessir tveir „bræðra“-dúettar eru jafn- vel á leið í samstarf. Chemicals kölíuðu sig upphaflega Dust Brothers, voru síð- an skikkaðir til nafnbreytingar eftir lög- sókn frá hinum. Samstarfið sem er í deiglunni er bakgrunnstónlist við „De- ad Man on Campus", svartan gaman- leik í framleiðslu MTV-sjónvarpsstöðv- arinnar, frumsýndur í haust. Dust Brot- hers eru frá LA og voru t.d. takkakarlar á plötu Becks „Odeley“. Undanfarið hafa þeir svo verið með puttana í nýju Rolling Stones-plötunni, sem væntan- leg er með haustinu. Don Was, Baby- face og Danny Saber yfirfara einnig nokkur lög með Jagger og félögum. Annars segja talsmenn Stones þá vera afar hrifna af meðferð DB á lögunum. John King, annar „bróðirinn", segir að þeir hafi farið með lögin út á ystu nöf, Mick Jagger síðan dregið þau lítið eitt til baka svo gamla manninum liði ögn betur. blandanir lagsins í höndum Pauls Oakenfold og Matthews Robit hafi orðið feikilega vinsælar í klúbbum. Plötusnúðar sem undir venjulegum kringumstæðum hefðu aldrei spilað lagið í hljómsveitarútgáfunni léku dansútgáfurnar grimmt. í framhaldi mikilla vinsælda í klúbbun- um fékk lagið mikla útvarpsspilun. Forsprakki Olive, Kellett, var 19 ára orðinn meðlimur í Simply Red. Þá var hann tónlistar- nemi sem var að reyna að verða klassískur trompetleikari. Skyndilega var hann kominn í „Top of the pops“ sem þátttakandi í laginu „Holding back the years“, sem fór reyndar að- eins í 2. sæti breska listans en á tind þess bandaríska. Hann hætti síðan í Simply Red sök- um sterkrar löngunar til að semja lög sjálfur. Frumburðaralbúm Olive kom út 19. maí frá RCA, nafn þess er „Extra Virgin". Olive heitir hljómsveit sem hefur setið nokkrar vikur á tindi breska smáskífulistans með lagið „You’re not alone“. Tim Kellett útskýrir velgengn- ina með dansútgáfum lagsins. Hljóð- Arið 1997 er ekki hálfnað, en þó virðist sem albúm ársins hafi nú þegar litið dagsins ljós: „Ladies and Gentlemen we are Floating in Space“, fjórða plata Spirítualized, fær hæstu einkunn á flestum stöðum. Talað er um afkom- anda í þriðja lið frá albúmum eins og „Clear Spot“ frá Captain Beefheart og „There’s a Riot Goin On“ frá Sly & the Family Stone. Lagahöf- undurinn og aðalmaðurinn er Jason Pierce, áður í Space- men 3. Þrjár fyrri plötur Spi- ritualized eru „Lazer-Guided Melodies” ‘92, „F—er Up In- side“ ‘93 og „Pure Phase“ ‘95. Jason var búinn að semja 12 lög þegar síðasta platan kom út og fór sveitin þá í tónleika- ferð til Bandaríkjanna. Þegar hann kom aftur til Englands hafði hann gjörsamlega gleymt lögunum 'og einnig hvar hann geymdi demóin. Eitt lag átti hann þó til í minn- inu, „Broken Heart“. í lok árs- ins 1995 fór hann svo í hljóðver og samdi 14 lög á 11 dögum! Aðalyrkis- efni nýju plötunnar er eiturlyf og Jason var staðráðinn í að láta albúmið hljóma ólíkt öllu öðru sem gert hefði verið. Dr John, 56 ára blúsari, er gestur í laginu „Cop shoot Cop“, sem er 16 mínútna langt. Það var hans eigin hugmynd að syngja í laginu og spila breska þjóðsönginn í því miðju. Blur eru að senda frá sér þriðju smáskíf- una af albúminu „Blur“, 16. júní kemur út hjá Food lagið „On your own“. Bakhliðarlögin eru læfhljóðritanir gerðar hjá John Peel 5. maí si., „Popscene“, „Song 2“, „On your own“, „Chinese bombs“, „Moving on“ og „MOR“. Damon og fé- lagar eru núna í heimsferð og voru í Japan um mánaðamótin, halda þaðan til Band- ríkjanna. Þar er ætlunin m.a. að vera með á tónleikum í New York til stuðnings frjálsu Tíbet. Blur verður og á plötunni „Long Live Tibet“ sem EMI gefur út 30. júní. Framlag piltanna verður tónleikaút- gáfa af „She’s so high“, Pulp býður upp á læfútsetningu á „Live Bedshow“, Radio- head er með demó af „The Bends“, Super- grass með nýtt mix af „Wait for the sun“ og Kula Shaker með „Govinda". Aðrir listamenn á „Long Live Tibet“: Longpigs, Ocean Colour Scene, Paul Weller, David Bowie, Gail Ann Dorsey, Björk, Reef, James, Echobelly, Texas og Terrorvision.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.