Helgarpósturinn - 05.06.1997, Síða 18

Helgarpósturinn - 05.06.1997, Síða 18
RMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1397 18 m X íþróttir Sigurður Ágústsson sknfar HSV Hamburg Arnar Grétarsson er á góðri leið með að verða Ijóska. Mætir hann kannski í landsleikinn nk. miðviku- dag Ijóshærður? Ljósk- urí Leiftrí Það eru undarlega margir glókollar í Leiftri og þeim fer fjölgandi. Núna eru: Davíð Garðars, Balli Braga, Júlli Tryggva og Gunnar Már ljós- hærðir og litfríðir. Þetta er ekki gert í neinu sérstöku virðingar- skyni við ljóshært kvenfólk, a.m.k. ekki svo HP viti. Það er þó vitað um þennan faraldur að þetta er eins konar „keðju- litun“. Svipað og keðjubréfin vinsælu sem allir urðu svo rík- ir af. Næstur í röðinni til að verða ljóska er Pétur Bjöm og þegar hann er búinn að fara í litun má hann segja hver fer næstur og svo koll af kolli. Kunnugir segja að Daði Dervic verði fyrir valinu og það verð- ur fróðlegt að sjá hvort Daði lætur lita ljóst, en hann er eins og allir vita dökkur á brún og brá. HP segir samt að það verði mest spennandi að sjá hvernig Addi Grétars tekur sig út sem ljóska. Leiftursmenn munu nýta frí- ið vel því Toto-keppnin fer að byrja með því aukaálagi sem því fylgir. Þótt ekki sé full- ljóst hvaða lið taka þátt fyrir hönd þeirra landa sem eru með Leiftri í riðli þá er ljóst að Hamburger SV kemur til lands- ins frá Þýskalandi. Það má heita mikil mildi, enda langt síðan annar eins stórklúbbur kom til landsins. Feyenoord kom og spilaði við Skagamenn um árið, en að þeim slepptum er langt síðan hingað hefur komið viðlíka lið. Það vita það kannski ekki margir að einn leikmanna Leift- urs, Davíð Garðarsson, lék með áhugamannaliði HSV fyrir tveimur árum og með honum þá léku nokkrir af núverandi leikmönnum HSV. Lið HSV ætti því ekki að verða Leiftri með öllu ókunnugt. Leiftursmenn hyggjast spila heimaleikina í TOTO-keppninni á Ólafsfirði. Það er nú alveg á mörkunum að völlurinn verði klár, hvað þá boðiegur. En hitt er hægt að ábyrgjast að leikmenn er- lendra félagsliða fá áfall þegar þeir koma út úr göngunum og sjá „byggðina" blasa við. Ef leikmenn taka ekki upp úr töskunum smávanmat þá er ég illa svikinn. Davíð Garðarsson ætti að þekkja vel til alimargra leikmanna Ham- burg. Spurningin er bara hvort þeir þekki hann svona útlítandi. ^,XÚllí . orðnepþni Fyrrum Stjörnuleikmaður- inn og „Eyjapeyinn" Lúðvik Jónasson er ekki orðheppnasti maður á landinu. Hann er svo yfirlýsingaglaður að hann ætti helst af öllu að vera með pistla í HP. Og Lúlli er enn eina ferð- ina búinn að koma sér í vand- ræði. Það er haft eftir honum í nýjasta eintaki íþróttablaðsins að Þróttur sé einn verst rekni klúbbur sem hann þekki til og finnur félaginu flest til foráttu. Þessi ummæli Lúðvíks eru ekki ný af nálinni og það mun hafa ráðið mestu um framtíð Lúð- víks í Þrótti. Það er býsna kyndugt að Lúlli skuli láta þessi orð falla um Þrótt núna, einmitt þegar öll umgjörð fé- lagsins er með besta móti. Lið- ið flutt í Laugardalinn, frábærir áhorfendur, gott lið og síðast en ekki síst góð stjórn. Líklega hefur knattspyrnudeild Þróttar aldrei verið jafn vel mönnuð. HP rekur ekki minni til að Lúð- vík hafi spilað með öðrum fé- lögum en ÍBV (3/4 úr tímabili) og Stjörnunni. Stjarnan hefur hingað til ekki getað státað af góðri umgjörð, þannig að það er ekki alveg Ijóst hvaðan Lúlli hefur við- mið. Reynt að stöðva prentun Samkvæmt áreiðanlegum heimildum reyndu forsvars- menn Þróttar að stöðva prent- un íþróttablaðsins eftir að þeir fengu pata af ummælum Lúð- víks. Enda eru ummælin af þeim toga að fæst félög vildu slíka umsögn, án tillits til sann- leikskorns ummælanna. Lúð- vík hefur beðið stjórnarmenn og leikmenn knattspyrnudeild- ar Þróttar afsökunar á ummæl- um sínum og verður áfram í herbúðum Þróttar þó það hafi verið tvísýnt um tíma. Þá er bara eftir að sjá hvernig „Kött- ararnir“, stuðningsmenn Þrótt- ar, taka Lúðvíki. Það er vel þekkt erlendis að leikmenn missi eitthvað út úr sér sem þeir hefðu betur látið ósagt og það er misjafnt hvernig áhang- endur liðsins taka slíkum um- mælum. Það er tilgáta HP að ef Lúlli leikur eins og hann best getur eftir sem áður þá verði ekki meiri eftirmál, annars er voðinn vís. Þróttarar hafa svo byrjað mun betur núna en oft áður og sumir eru farnir að sjá í hillingum úrvalsdeildar sætið sem svo oft hefur runnið þeim úr greip- um. Það er svo sem gott og blessað, en fari svo að Þróttur- um fatist flugið er al- veg ljóst að mörg lið verða á höttunum eftir verðmætustu eign Þróttar: Köttur- unum. Þeir eru lang- v flottastir og eiga heima á úrvals- deildarleikjum. DranmaleBcfléHa Vesturbæinga Pær raddir gerast æ hávær- ari sem vilja Guðjón Þórð- arson aftur til KR. Lúkas Kost- ic, sem hefur verið með liðið að undanförnu, hefur ekki náð því út úr liðinu sem til er ætl- ast og hafa KR;ingar oft á tíð- um leikið illa. Árangur er eng- an veginn í samræmi við vænt- ingar og KR-ingar að verða langþreyttir á rykinu í bikara- skápnum. Afsakanir í stórliði á borð við KR um að hinir og þessir séu meiddir eru hjákátlegar. Þeir leikmenn sem eru leikhæf- ir hvert sinn eru KR og aðrir ekki. Það er tómt mál að tala um að hinn og þenn- an vanti. Guðjón Þórðarson vann titil hjá KR og þar á bæ eru æ fleiri að sannfærast um að hann sé maðurinn sem þarf í brúna. Hann sé sá sem geti fengið menn til að trúa á sjálfa sig. Leikmenn KR hafa ekki tekið þessari hugmynd illa, ganga kannski allir með smá Guðjón í maganum (í óeiginlegri merk- ingu fíflin ykkar). Flestir þekkja þeir til hans og vilja ólmir fá hann aftur. Heimildamenn HP segja Guðjón hafa áhuga á að taka KR-liðið að sér bjóðist honum það. En hvað verður þá um Kostic? Leikflétta þessi gengur út á það að Kostic færi upp á Skaga og tæki við ÍA. Hvað yrði þá um Ivan Golac? Hverjum er ekki sama? segja KR-ingar, en Skagamenn taka ekki í sama streng. Þetta er bara ekki svona ein- falt og til að KR-ing- ar geti hugsanlega fengið Guðjón aftur þurfa þeir væntan- lega að reka Kostic og það er ekki víst að Guð- jóni líki sú hug- mynd. Guðjón og Kostic voru saman á Skaganum í mörg ár og hafa reynst hvor öðr- um vel. Samningamál Guðjóns Eins og allir vita var Guðjón rekinn frá Skaganum í fyrra, ein- mitt þegar hann þarfnað- ist félagsins sem mest segja sumir. Það ætti því að kitía hann að taka við KR-ingum og leiða til sigurs í kapp- Haraldur Hinríksson er væntanlega sáttur við gengið framan af og stefnir að því að verða sem sprækastur í Evr- ópukeppninni. hlaupi við Skagann. Málið er þó ekki svo einfalt. í augnablik- inu er hvorugt liðið á toppnum og verður ekki, a.m.k. ekki næstu tvær vikurnar, og svo er það spurning um samningamál Guðjóns. Guðjón var rekinn frá ÍA og telur sig eiga eftir að fá talsverðan hluta greiðslnanna sem áttu að falla honum í skaut. Lögfróðir menn eru ekki á eitt sáttir um hvort Guðjóni sé hollt að taka að sér þjálfun meðan hann er að reyna að fá það á hreint hvort við samn- inginn verður staðið. Það hlýt- ur að teljast skrýtið að maður þurfi að vera atvinnulaus þann tíma sem samningur sem var rofinn kvað á um. Annars eru samningamál sem þessi æði flókin og fáu að treysta. Sáttir við Golac Kannski hefði þessi flétta gengið eftir í upphafi móts og kannski ekki. Það er í það minnsta útilokað að Golac verði látinn fara af Skaganum. Þar á bæ eru menn ánægðir með þjálfarann, þótt menn hafi á sínum tíma efast um rétt- mæti þess að setja tvo menn sem áldrei höfðu mætt á æf- ingu beint í liðið. Skagaliðið er ekki á sama tímapunkti í formi núna og oft áður og þetta vita leikmenn liðsins og hafa því ekki of miklar áhyggjur. Ivan Golac hefur haldið því fram leynt og ljóst að Evrópukeppn- in sé það sem ÍA setur stefn- una á þetta árið. Gangi það eft- ir og ÍA verði bæði heppið með lið og spili vel eru líkur á að Skagaveldið verði ekki brotið á bak aftur. Komi ÍA til með að ganga vel þá ættu digrir sjóðir að falla félaginu í skaut. Sjáið ~ bara Gautaborg og fleiri skand- inavísk lið sem hafa meikað það í Evrópu. Þessi lið eru ósigrandi heimafyrir, hafa næga peninga til að gera það sem þau lystir og þurfa.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.