Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 05.06.1997, Qupperneq 19

Helgarpósturinn - 05.06.1997, Qupperneq 19
RMMTUDAGUR 5. JÚNÍ ±997 19 Útlend- ingamir á Skag- anum - kettirnir í sekknum? w Iherbúðum Akurnesinga eru nú fjórir útlendingar; einn þjálfari og þrír leikmenn. Einn Íeikmannanna er reyndar með ítalskt vegabréf og telst því ekki útlendingur, eiginlega er hann íslendingur. Taisvert hef- ur verið rætt um getu þessara útlendinga hingað til og sýnist sitt hverjum. Menn hafa spurt sig sem svo: Hvers vegna að kaupa þrjá leikmenn ef þeir eru svo ekki notaðir og hvers vegna að kaupa svona lélega leikmenn yfirleitt? Er ekki stefnan að kaupa leikmenn sem eru betri en þeir sem fyrir eru? Það hefur áður verið talað um erlenda leikmenn, fáir ef nokkrir höfðu trú á Mihajlo Bi- bercic á sínum tíma. Mönnum fannst hann of feitur, of seinn og of slakur. Hann sýndi og sannaði, þegar á leið, að hann er góður leikmaður sem var liði sínu oft á tíðum mjög mikil- vægur. Það er eðlilega menn- ingarsjokk að koma til íslands að spila og því verður að gefa mönnum smáséns. Það er ótrúlegt að Golac hafi keypt þrjá ketti í sekk. Helgi Björgvinsson gæti allt eins spilað undir stjóm nýs þjálfara í næstu umferð. armenn að horfa aðgerðalausir á liðið sitt tapa og tapa. Það er ótrúlegt að Valsævin- týrið verði endurtekið, en Valsarar sluppu við fall um ár- ið á ótrúlegan hátt með því að keppa í „sjö leikja mótinu". Það vill brenna við að þjálfarar séu reknir of seint og nýir menn hafa úr litlu sem engu að moða. Það er búið að loka á fé- lagaskipti þannig að ekki er hægt að gera miklar breyting- ar, hvorki á liði né öðru. Stjarn- an brenndi sig á þessu 1994 þegar Sigurlás Þorleifsson var með liðið; stjórnin skirrðist við að gera breytingar þangað til það var um seinan. í herbúð- um Stjörnumanna er fullur hugur á meiri og betri árangri en náðst hefur á þessu tíma- bili. Liðið hefur, að undan- skildum fyrsta leiknum, spilað afleitlega. Þjálfaranum, Þórði Lárussyni, er kannski vorkunn að því leyti að starfsskilyrði í vetur voru fyrir neðan allar hellur. í nær allan vetur vant- aði ríflega helming af leik- mannahópi Stjörnunnar. Þetta vissi Þórður þegar hann tók starfið að sér, þannig að ekki er hægt að skýla sér bakvið það. Það er líklega ekki þetta sem fer með Garðbæinga til fjand- ans, heldur karakterleysið. „Hafa gaman af að ferðast og kynnast nýju fólki...“ Flestir æfa knattspyrnu til að keppa. Ef menn komast ekki í lið heldur á bekkinn bíða þeir eftir tækifæri til að komast inn á. Biðji þjálfari varamann eða menn að hita upp þá eiga þeir að fyllast einurð og vera í bar- áttuhug, staðráðnir í að standa sig í leiknum og sýna þjálfaran- um að þeir eigi skilið annað og betra en að verma bekkinn. I ur að gera ráð fyrir að hann hafi ekki vitað annað en að það væri í lagi með þá fyrst hann valdi þá í sextán manna hóp. Hvað á að gera í tilfelli sem þessu? Á að reka þjálfarann þegar svona liði gengur illa eða á að ráðast að rótum vand- ans og reka þær lyddur frá fé- laginu sem bregðast félögum sínum pg félagi með þessum hætti? Á hitt má benda að lík- lega hefðu umræddir leikmenn brugðist öðruvísi við tilmæl- um frá öðrum og harðari þjálf- ara. Hvað eru svona menn að gera í knattspyrnu í efstu deild? Eru þeir í þessu fyrir fé- lagsskapinn, til að ferðast og hitta skemmtilegt fólk eins og fegurðardrottningarnar? Svari nú hver fyrir sig. HP fagnar því þegar og ef fram kemur þjálfari sem tekur á málum og hrein- lega rekur svona leikmenn, burtséð frá hæfni þeirra inni á vellinum. Ekki ómerkari maður en Stefan Effenberg var rekinn heim af HM eftir ósæmi- lega framkomu gagnvart áhorf- endum. Það fara varla margir í fýlu þótt því sé haldið fram hér og nú að enginn í Stjörnuliðinu jafnist á við hann. Hekji Kohfiðs í landsliðið? Eins og allir vita er landslið- ið okkar að fara að spila á næstu dögum, ekki einn heldur tvo leiki. Gegn Litháum og Makedónum. Nú sem endra- nær er liðið að mestu leyti skipað leikmönnum sem spila erlendis. Það út af fyrir sig er jákvætt, það má leiða að því sterk rök að þeir leikmenn séu betur á sig komnir og betri leikmenn en þeir sem spila á klakanum. Áður hefur verið bent á þá sorglegu staðreynd að fæstir íslendinganna spila í toppdeildum og ekki allir í efstu deildum þeirra landa sem þeir eru í. Þetta breytist þó til batnaðar á næstu leiktíð, en Eyjólfur Sverrisson, Guðni Bergsson og Helgi Kolviðsson færast allir upp í úrvalsdeiid. Jolli í Bundesliguna, Guðni í ensku úrvalsdeildina og Helgi í austurrísku fyrstu deildina. Hver sem er getur efast um ágæti austurrískrar knatt- spyrnu, en sú deild er í það minnsta ekki slakari en sú norska eða sænska. Sam- kvæmt þessu á Helgi að eiga tryggt sæti í íslenska landslið- inu frá og með hausti kom- anda. Hverjir fjúka fyrstir Pað er lenska hérlendis eins og annars staðar að reka þjálfara þegar illa gengur. Meira að segja stundum líka þegar vel gengur, en það er þó óalgengt (Ingi Björn og Kefla- vík). Það má segja sem svo að það sé auðveldara að reka einn en ellefu, og það er alveg rétt en oft er það ekki lausnin, a.m.k. ekki nema skammtíma- lausn. Á hitt verður svo að horfa að ekki þýðir fyrir stjórn- leik ÍBV og Stjörnunnar um daginn bar það hins vegar við að tveir leikmenn Stjörnunnar skirrðust við að fara inn á og báru við meiðslum. Hvort óheillavænleg staða hafði þar áhrif eða ekki skal ósagt látið, en það er eitthvað alveg nýtt ef félög eru farin að ferðast með meidda og óleikhæfa leik- menn. Þarna stóð semsagt Þórður „Ferguson" frammi fyr- ir því að tveir leikmanna hans neituðu að fara inn á. Það verð- Mikið mun mæða á Loga Ólafssyni landsliðsþjálfara á næstu dögum. Allra augu munu beinast að honum á vígsluleik nýs og glæsilegs Laugardals- vallar. Þessi piltur hefur ekki enn náð að festa sig í sessi hjá ÍA. En ef það er ekki þeim mun minna spunnið í þjálfarahæfileika Golacs mun þessi leikmaður láta mikið að sér kveða á næstunni. Arbæjarbræður í bobba Fylkir í Árbænum hefur ver- ið eitt af þremur helstu jó- jóliðum landsins. Árbæingar hafa ýmist unnið aðra deildina með yfirburðum eða verið með allt niðrum sig í efstu deild. í fyrra byrjuðu þeir með látum og gjörsigruðu Blika í fyrsta leik. Síðan varla söguna meir. Til að sporna við fyrir- sjánlegri endurtekningu var brugðið á það ráð að fá Atla Eðvaldsson til að þjálfa og bróður hans Jóhannes til að taka að sér framkvæmdastjórn félagsins og hafa yfirumsjón með knattspyrnustarfinu. Ávöxtur af samstarfi þeirra bræðra og Árbæinga hefur ver- ið heldur beiskur enn sem komið er. Reyndar ióku þeir sig til og stóðu fyrir skemmti- legu innanhússmóti í Víðidaln- um, en það hefur lítið að gera með úrslit leikja í fyrstu deild- inni. Reyndar missti liðið tvo af „Fylkisþríburunum", þá Þór- hall Dan og Finn Kolbeins. Þeir Finnur og Þórhallur ákváðu að freista gæfunnar með öðrum liðum í sumar, Tóti hjá KR og Finnur hjá Leiftri. Kristinn Tómasson, verðast við slælegt gengi Fylk- is er að tveir af frægari sonum íslands í fótboltaheiminum eru þar við stjórnvölinn. Það er talsvert algengt að menn sem hafa verið í atvinnumennsku fari út í þjálfun, en með mjög misgóðum árangri. Ásgeir Sig- urvinsson reyndi fyrir sér hér með slælegum árangri og þótt Skipbrot atvinnumanna Það sem er kannski athyglis- Atli hafi náð viðunandi árangri með ÍBV þá búast menn við meiru. Lárus Guðmundsson var lengi atvinnumaður og hef- ur verið að þjálfa hér, án stór- kostlegs árangurs. Fleiri mætti að ósekju nefna til sögunnar. Auðvitað eru til menn sem koma úr atvinnumennsku og gengur nokkuð vel að sam- sama sig siðum og venjum í íslenskum fótbolta, gott dæmi þar um er t.d. Guðmundur Torfason, sem þjálfar Grindav- íkurliðið. Reyndar er Grindav- íkurliðið ekki að gera neitt merkilegra en að berjast fyrir lífi sínu, svo að í fljótu bragði kemur maður ekki auga á að atvinnumennirnir nái að miðla nægilega vél af reynslu sinni utan úr heimi. nnur Kolbeins á hér í höggi við /aldimar Kristófersson í Stjörn- unni. Lið hvorugs þeirra hefur staðið undir væntingum. Leift- ursmenn hafa þó rétt úr kútn- um og virðast á réttri braut, "n Stjarnan er búin að fá á >ig tólf mörk og skora ein- ungis eitt. Þeirra bíður fyrirsjáanleg kjallaravist. helsti markahrókur Fylkis gegnum árin, sat hins vegar eftir í Árbænum. Gengi þeirra félaga hefur engu að síður ver- ið áþekkt. Finnur og félagar í Leiftri hafa ekki fundið sig al- mennilega ennþá, en Finnur hefur þó spilað ágætlega. Þór- hallur Dan er haldinn sömu meinloku og aðrir KR-ingar um þessar mundir; að geta með engu móti skorað, sama hversu góð færi þeir fá. Kiddi Tomm og félagar í Fylki hafa virst vera úti á þekju það sem af er. Kannski varð liðið fyrir of mikilli blóðtöku. En lið sem ætlar sér einhverja hluti í fótbolta hefur ekki efni á að tala og hugsa um það sem var eða gæti verið — ef. Það er alltaf þetta ef. Hvað sem öðru líður verða Fylkismenn að hy- sja upp um sig buxurnar og koma með reimaða skóna eftir „fríið“ ef þeir ætla sér ekki að vera í 1. deild um ókomin ár.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.