Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 05.06.1997, Qupperneq 24

Helgarpósturinn - 05.06.1997, Qupperneq 24
HELGARPOSTURINN 5. JÚNÍ 1997 22. TBL. 4. ÁRG. VERÐ 250 KR. Japis og Skífan takast á um hljómplötumarkaðinn hérlendis og þá skiptir máli að hafa góð erlend umboð. Fyrir skömmu náði Japis BMG-umboðinu af Skífunni, sem hafði haft það allt frá ár- inu 1981. Japis mun hafa boðið BMG að tryggja ákveðna lág- markssölu á hljómpiötum frá þeim. Skífan er ekki á flæðiskeri stödd því hún er enn með sterkar útgáfur á sínum snærum, t.d. EMI, Virgin og Polygram. Þá hefur Japis boðiö í starfsmenn Skíf- unnar en ekki haft erindi sem erfiði, þegar síðast fréttist... Akureyri er að verða heppilegur staður til að búa á stundi maður líkamsrækt. Björn Leifsson í World Class hyggst opna stöð í höfuð- borg Norðurlands og Ágústa Johnson er með aðra í bígerð. Og eftir að hafa ræktað líkamann verður hægt að beita honum á nýjum skemmtistað sem Grétar Örvars- son og Sigríður Beinteinsdóttir eru skráð fyrir. Það er á mörkunum að maðurtrúi þessu... Leynd hvílir yfir nýju tónlistarblaði sem líta mun dagsins Ijós I næsta mánuði ef allt gengur eftir. Útgáfan verður I dagblaðsbroti og Þorsteinn Kragh umboðsmaður og Viðar, alltaf kenndur við Levis-búð- ina, eru helstu hvatamenn fyrirtækisins en Svanhvít Gísladóttir verður ritstjóri... Barnaverndarstofa krefst rannsóknar á auglýsingum sem birst hafa í dagblööum (og HP) þar sem ungum stúlkum frá 15 ára aldri er boðið að sækja um fyrirsætustörf. í framhaldi væri ekki úr vegi fyrir Barnaverndarstofu að athuga hvernig ferðamála- yfirvöld og hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu auglýsa íslenskt kvenfólk. Áhugi erlendra aðila á fljóðum á Fróni verður ekki til úr engu... Veitingahúsið Astró hefur tekið upp þá nýjung að bjóða fólki að hafa það huggulegtí prívatsal inn af veitingastaðnum. Inni í salnum hefur verið komið fyrir heljarinnar súlu sem kölluð er kampavínssúlan. Fjórir aðilar hafa nú orðið þess heiðurs að- njótandi að fá nafn sitt letraö á súluna. Dáðin sem þarf að drýgja til að verða að kampavínssúlunafni felst ekki í því að klífa Mont Everest eða sigra í glímu, ekki einu sinni vinna í kampa- vínskappdrykkju. Nei, til að koma nafni þínu á súluna þarftu að kaupa kampavínsflösku. Ekki bara freyðivín heldur kampavín sem óhætt er að segja að sé með því dýrara sem fæst, hér á landi að minnsta kosti, en flaskan kostar einar fjörutíu þúsund krónur! Staðurinn keypti fjórar flöskur og á tveimur vikum hafa þær allar selst. Það er ýmsu til kostandi að fá nafn sitt á súlú... Tökur eru nú hafnar á dönsku myndinni Vilde spor. Mikið ein- valalið leikara erí myndinni, þeirra á meðal stærstu ungstirni Dananna, þeir Nicolai Coster Valdau úr Nattevag- ten og Mads Mekelsen. I nokkuð stóru hlutverki í myndinni er íslensk leikkona sem ekki hefur sést til, hvorki á sviði né hvfta tjaldinu, í mörg ár. Þetta er leikkonan Hrönn Steingrímsdóttir sem síðast lék í mynd Friðriks Þórs Skyttunum. Stórleikur hennar í þeirri mynd er í minnum hafður og þykja senurnar með henni ein- hverjar þær albestu sem sést hafa í íslenskri kvikmynd. Það er því mikill fengur að þessu „comebacki" Hrannar... Asgeir EbenezerÞórðarson, eða Geiri frændi, eins og hann kallastí fíkniefnaheiminum, er stundum seinheppinn. Svo mikið er vfst að hann ætti að vera búinn aö fá nóg af því að flytja inn fíkniefni í Citroén-bílum. Ásgeir fékk í september á síðasta ári sendingu frá Hollendingnum sem nú situr í varð- haldi. Þessi sending kom í Citroén-bíl sem ekið var beina leið til Keflavíkur og inn í bflskúr Ásgeirs. Allir vita hvernig fór. En þetta var ekki í fyrsta sinn sem Ásgeir flytur inn hass í Citroén. Hann átti á sínum tíma, ásamt Sævari Ciesielski, hlut í hassfarmi sem settur var í Citroén Guðjóns Skarphéðinssonar árið 1975. Sá bíll var tekinn í tollinum sem frægt varð. Ástæðan mun reynd- ar hafa verið sú að Ásgeir stóðst ekki freistinguna að kaupa te sem pressað hafði verið saman í stóra plötu. Þessi teplata Ás- geirs lá f skottinu þegar þfllinn kom til landsins. Tollverðir héldu að þetta væri hass og nánast rifu bílinn í sundur til að finna meira - og fundu hassið sem aldrei hefði fundist við venju- bundna tollskoðun... Aburðarverksmiðjan í Gufunesi hefur ekki lengur einkarétt á sölu áburðar. Innflutningur hefur hins vegar farið hægt af stað og það er ekki fyrr en á þessu ári að farið er að selja inn- fluttan áburð. Hér eins og annars staöar togast á hagnaðar- og umhverfisverndarsjónarmið. Áburðarverksmiöjan hefur síðustu árin notað hráefni sem inniheldur sáralítið kadmín, efni sem safnast upp í grasætum. Slíkt hráefni er auövitað umhverfis- APÖTEK OPIÐ ÖLL ICVÖLD VIKUNNAR TIL KL. 21,00 HRXNGBHAUT119, VID JLhSÍÐ - ;*** ySgsn ^ (ÍauSIIIÍ’ llldlH ÍjflílM ! \ II ! \ \ II F S r \ II II A \ I \gflKltaf ÉMm// 5684848 — -«-i»k43r,'JgR — 565 1515 EINNOTA ' BARNABORÐDUKUR „HUNDALÍF" 125.- NOATUN Sumarvönup MEÐflN BIRGÐIR ENDAST! PILUSPJALD 45 CM. M/6 PILUM 125.- HVITVINSGLOS 6 STK 250.- STEIKARSETT FYRIR 4 1350.- BJORGLOS3 STK DESERTSKÁLAR2 STK 250.- 250.- TEFL0N STEIKARPANNA 24 CM 540.- KULUKOLAGRILL 2990. HNIFAP0R 3 STK. 125.-PR.PK. BAÐHANDKLÆÐI 90X150 CM 790.- TEFL0N SKAFTPOTTUR 1.6 L 540.- . n 4% \M% 'St ^ % FJÖLTENGI 3 0G 4 TENGI 250.- PR.STK GRILLSTEIKARFAT 45CM 185.- UTVARP FM/AM 1650.- I/ HAND0FIN BORÐDUKUR 90X90 CM 650.- KÆLIKUBBUR 125." 2 STK KÆLITASKA 14 LITRAR 540.- SUMARGLOS M/MYND 6 STK 250.- TAUKARFA 60 X 40 CM 250.- HNIFASTANDUR M/ 5 HNÍFUM 790.- KOPAR ELDHÚSSKRAUT15-17 CM 250.- (þróttasokkar HERRA/DÖMU 10STK 650.- SÓLGLERAUGU BLANDAÐAR GERÐIR 250.- SKIPTILYKILL 250.- TAUKARFA 60 L. 250.- BAÐHERBERGISKLUKKA 250.- fík „KLAPP“PLASTKASSI " 250.- FLUGNAFÆLUKERTI 125. ANDAPAR 250.- EINLITIR HERRA/ DÖMUS0KKAR 5 STK 640.- FASTIR SKRÚF- LYKLAR 5 STK SALATSETT M/AH0LDUM 1370.- 250.- ÞVINGUR 2 GATATONG 60X399 CM 250.- 250.- BOGASÖG 75 CM 250.- SKRUFJARN 6 STK 250.- STÁLHAMAR STÓR 250.- DÚKALÓÐ 125.- GARÐSLONGUAHOLD OG TENGI (25.- PR.STK HALLAMAL 60 CM 250.- ÞJÓFAVARNARSKYNJARI 1140.-. Verslanir Nóatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld. NOATUN NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP. ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68 FLUGNAHLIF F/ MATVÆLI 2 STK. 250.- vænna en einnig dýrara. Það vekur athygli að inn- flutti áburöurinn inniheldur um tfu sinnum meira kadmín en sá innlendi. Kadmíninnihaldið er samt talsvert innan lögleyfðra marka... * Islenskir aðalverktakar sendu í vikunni frá sér fréttatilkynningu þess efnis að fyrirtækinu hefði nú verið breytt úr sameignarfélagi í hlutafélag. Helgarpósturinn fékk þessa fréttatilkynningu eins og aðrir fjölmiðlar og að sjálfsögðu hafa Aðalverk- takar tekið nútímatækni í þjónustu sína. Fréttatil- kynningin barst á faxi. Líkt og fjölmargir aðiiar sem nota faxtæknina eitthvað að ráði nota íslenskir að- alverktakar staðlað upphafsblað fyrir sendingar af þessu tagi. Hjá þessu fyrirtæki virðast menn þó vera vanari að fara með leyndarmál en senda frá sér fréttir, Á þessu staðlaða faxformi stendur nefnilega: Efni þessa myndbréfs kann að vera trún- aðarmál, vinsamlegast meðhöndliö sem slíkt... Embætti byggingarfulltrúans í Reykjavík telst vera undirdeild hjá embætti borgarverkfræð- ings. Engu að síður ber svo við stöku sinnum að hlutverkin snúast við og borgarverkfræðingur þarf að leita til þyggingarfulltrúa. Þetta gerðist einmitt nýlega þegar borgarverkfræðingur sótti um leyfi til að breyta geymslum í kjallara og koma fyrir vöru- lyftu á Engjavegi 8. Svo undarlega brá við að undir- maðurinn treysti sér ekki til að samþykkja þessa beiðni. Ástæða: Ófullnægjandi teikningar. Fyrir þá sem ekki kannast við þetta heimilisfang má svo geta þess að húsið á Engjavegi 8 gengur í daglegu tali undirheitinu Laugardalshöll...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.