Helgarpósturinn - 03.07.1997, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 03.07.1997, Blaðsíða 2
2 RMMTUDAGUR 3. JÚLÍ1997 Rkniefnamálið: * Smáfiskamir í gæslu en HákaHmn laus Asgeir Ebenezer Þórðarson sætir alvarlegustu ákær- unni af íslendingunum sem dæma á í stóra fíkniefnamálinu eða Hollendingsmálinu sem nú er farið að kalla svo. Hann er engu að síður sá eini sem fær að ganga laus. Aðrir voru dæmdir á mánudaginn í áfram- haldandi gæsluvarðhald til 2. september. Ákærður fyrir sölu Ásgeir er sá eini í hópnum sem ákærður er fyrir sölu. Að því er fram kemur í opinberri ákæru sem gefin var út í síð- ustu viku keypti Ásgeir 2 kg af hassi af Albart van Houten hinn 4. september á síðasta ári. Fyrir þetta hass greiddi Ás- geir að áliti lögreglunnar a.m.k. 640 þúsund krónur en það samsvarar 320 kr. fyrir hvert gramm. Þá telur lögreglan sig hafa sannanir fyrir því að Ásgeir hafi keypt eitt kg af amfetamíni af van Houten og greitt honum 1.200.000 krónur fyrir það. Inn- kaupsverð Ásgeirs var sam- kvæmt þessu 1.200 krónur fyr- ir hvert gramm en álagningin var líka þokkaleg því sam- kvæmt því er fram kemur í ákærunni seldi Ásgeir megnið af efninu. Söluverðið mun hafa verið nokkuð mismunandi en á bilinu frá 2.500-3.300 krónur fyrir hvert gramm. Samkvæmt þessu hefur hagnaður Ásgeirs af amfeta- míninu einu numið a.m.k. einni og hálfri milljón og þó senni- lega meiru. Hafi honum tekist að koma einhverju af hassinu út líka er kannski ekki fráleitt að áætla að hagnaður hans hafi numið um tveimur milljón- um. Það verður að teljast þokkaiegur hagnaður, ekki síst þegar tekið er tillit til þess að í samræmi við eðli þessarar starfsemi er t.d. enginn virðis- aukaskattur greiddur og raun- ar enginn tekjuskattur heldur. Lögreglan seldi hass Rúnar Óskarsson, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi síðan 12. desember, er ákærður fyrir að taka til geymslu samtals 13 kg af hassi, 2 kg af amfetamíni og 500-600 E-töflur. Þá er Rún- ar ákærður fyrir að kaupa 116 g af hassi sem hann keypti í raun af lögreglunni! Þetta gerðist á kaffihúsi í Austurstræti hinn 12. desem- ber. Albart van Houten hafði þá verið handtekinn daginn áður ásamt Cörlu Wolff með tæp 10 kg af hassi. Til að ná ís- lensku samstarfsmönnunum var Albart sendur á Hótel Bar- ón og síðan, eftir að hann hafði náð sambandi við Rúnar, á kaffihúsið í Austurstræti. Þar afhenti Rúnar 140 þúsund krónur en fékk í staðinn 116 g af hassi sem lögreglan hafði látið van Houten hafa aftur. Þetta hass fór Rúnar með til „efnagreiningar“ en það hass sem hann hafði varðveitt fyrir van Houten var nánast svikin vara. Þannig atvikaðist það að hluti fengsins sem tekinn var í tollhliðinu í Keflavík komst í umferð þrátt fyrir allt. Amfetamín og E-töflur Lára Dís Sigurðardóttir er einungis ákærð fyrir að hafa um tíma haft a.m.k. 380 g af amfetamíni og 480 E-töflur í sinni vörslu, ásamt því að koma þessum efnum til Rúnars „til söludreifingar“ eins og seg- ir í ákæru. Þrátt fyrir meira en hálfs árs gæsluvarðhald hafa bæði Rúnar og Lára þverneit- að að hafa átt nokkurn þátt í að selja þessi efni. Þáttur Láru í málinu er greinilega langminnstur sam- kvæmt ákæru. Nærtækt er að bera saman þátt hennar og Ás- geirs Ebenzar samkvæmt ákærunni. Lára er ákærð fyrir að geyma 380 g af amfetamíni og 480 E-töflur. Ásgeir fyrir að kaupa og selja 1 kg af amfeta- míni og 2 kg af hassi. Skoðað í þessu ljósi virðist óhjákvæmilega undarlegt að Láru skuli haldið í gæsluvarð- haldi þar til dómur gengur en ekki gerð krafa um annað en farbann á hendur Ásgeiri. Hann hefur raunar ekki einu sinni verið í farbanni allan tím- ann. Svo virðist sem fíkniefna- lögreglan hafi ekki hirt um að halda því við. Lágt launað burðardýr Carla Wolff átti aðeins að fá 500 gyllini eða sem svarar 18.500 krónum fyrir að smygla 10 kg af hassi inn í landið hinn 11. desember. Þetta er meðal þeirra upplýsinga sem lesa má út úr ákærunni. Carla er ekki ákærð fyrir að eiga annan þátt í málinu en að flytja efnin inn í landið, fyrst með bíl í sept- ember og síðan ásamt Albart van Houten í desember. Albart van Houten er hins vegar ákærður sem skipuleggj- andi auk þess að hann var sá er fjármagnaði innkaupin er- lendis. Albart útvegaði einnig Citroén-bílinn sem notaður var til flutninga með Norrönu. Hallvarður Einvarðsson rík- issaksóknari krefst þess í lok ákærunnar að þau fimm sem ákærð eru í málinu verði dæmd til refsinga og efnin sem náðust verði gerð upptæk. Sömuleiðis er þess krafist að ríkissjóður íslands eignist Citroén-bílinn sem notaður var til flutninganna í september. Samband Dýraverndunarfélaga íslands: Opinber stefna Reykjavíkuriistans er að fjölga konum í ábyrgðarstöðum hjá borginni og það er litið alvar- legum augum að fulltrúi Framsóknarflokksins geri bandalag við Sjálfstæðisflokkinn til að brjóta aftur stefnu R-listans. Fram^ókn vill son fyrr- um SlS-forstjóra í embætti hj á borglnni Ríkisstjórnarbandalag gegn R-listanum Fulltrúi Framsóknarflokks- ins í menningarmála- nefnd Reykjavíkurborgar gerði bandalag við fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í at- kvæðagreiðslu um næsta for- stöðumann Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Fulltrúar Reykjavíkurlist- ans, Guðrún Jónsdóttir og Guðrún Ágústsdóttir, greiddu atkvæði með Guð- nýju Gerði Gunnarsdóttur, safnverði Minjasafnsins á Ak- ureyri. Helgi Pétursson, þriðji fulltrúi Reykjavíkurlist- ans, og Inga Jóna Þórðar- dóttir og Jóna Gróa Sigurð- ardóttir, fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins, greiddu Einari Er- lendssyni atkvæði sitt. Einar er sonur Erlends Einarsson- ar, fyrrverandi forstjóra SÍS. Málið er viðkvæmt innan Reykjavíkurlistans. Opinber stefna núverandi meirihluta er að fjölga konum í ábyrgð- arstöðum og enginn efast um hæfni Guðnýjar Gerðar til að veita Ljósmyndasafninu for- stöðu. Á þriðjudag frestaði borgarráð afgreiðslu málsins og það verður því ekki á dag- skrá borgarstjórnar í dag. Það þýðir að borgarráð mun fá umboð til að afgreiða mál- ið endanlega því borgar- stjórn er komin í sumarfrí eft- ir fundinn í dag. Einar Erlendsson hefur rek- ið fyrirtækið Stafræna myndasafnið en starfsemin hefur að mestu legið niðri undanfarið. Nýrri stjórn Sambands dýra- verndunarfélaga hefur enn ekki tekist að komast til botns í fjár- reiðum sambandsins eftir rúm- lega árs starf. Nýja stjórnin var kjörin á stormasömum aðal- fundi í mars í fyrra en þá höfðu ekki verið haldnir aðalfundir í sambandinu í áratug. Fráfar- andi formaður, Jórunn Sören- sen, hefur enn ekki skilað af sér bókhaldsgögnum sambandsins þrátt fyrir eftirgangsmuni. Rík- issaksóknari hefur neitað nýju stjórninni um opinbera rann- sókn á fjárreiðum sambands- ins. Engir aðalfundir í tíu ár Jórunn Sörensen var kjörin forseti Sambands dýravernd- unarfélaga íslands á aðalfundi sem haldinn var 1986. Eftir það voru aðalfundir ekki haldnir fyrr en 1996 og þá í trássi við Jórunni sem virðist hafa rekið sambandið nánast sem einka- fyrirtæki þennan áratug. Sam- band dýraverndunarfélaga var ríkisstyrkt fram til 1986 en eftir það hefur ekki verið sótt um styrki til starfseminnar, enda kannski erfitt þar sem ekki var hægt að sýna fram á eðlilega starfsemi. Þótt aðalfundir væru ekki haldnir og sama stjórnin sæti í tíu ár, lá starfsemin alls ekki niðri. Ársreikningar fyrir árin 1986-1994 voru gerðir í einu lagi. Það annaðist Grétar Har- aldsson, hæstaréttarlögmaður. Jórunn Sörensen afhenti nýju stjórninni þessa reikninga skömmu eftir aðalfundinn í fyrra en með þeim fylgdu engin fylgiskjöl og því ekki unnt að sannreyna þá. Sjóðir tæmdir Sambandið hafði allnokkra minningarsjóði og dánargjafir í sinni vörslu. Reyndar var í fæst- um tilvikum um háar fjárhæðir að ræða. Sumir sjóðirnir voru reyndar mjög litlir, ekki nema fáein þúsund, en aðrir voru stærri. Allir þessir sjóðir voru tæmdir árið 1991 og féð úr þeim tekið í rekstur sambands- ins. Sambandið var rekið með tapi flest árin sem Jórunn Sör- ensen veitti því forstöðu. Lengst af var tapið ekki mikið, einhver þúsund eða tugir þús- unda á ári. Starfsárið 1991 var þó undantekning frá þessari reglu en þá fór tapið á aðra milljón króna. Innihald sjóð- anna sem tæmdir voru það ár dugði þó fyrir þessu tapi. Fengu allt sem þeir þurm Jórunn Sörensen, fyrrverandi forseti Sambands Dýravernd- unarfélags íslands, vildi ekki ræða þetta mál við Helgar- póstinn en staðfesti að það væri hennar skilningur að ný stjórn hefði tekið við sambandinu á aðalfundi hinn 24. mars 1996. „Þeir eru búnir að fá allt sem þeir eiga að fá — allt sem þeir þurfa að fá,“ sagði Jórunn þeg- ar hún var spurð um ástæður þess að hún hefði enn ekki af- hent nýrri stjórn sambandsins bókhaldsgögnin. Nýja stjórnin leitaði til lög- gilts endurskoðanda sem gerði allmargar og alvarlegar athuga- semdir við reikningana. Við at- hugun kom fram að í bókhaldi er ekki gerð nein grein fyrir bankareikningum sambands- ins. Svo virðist sem Jórunn Sör- ensen sé enn prókúruhafi þess- ara reikninga. Þar er heldur ekki að finna neitt um styrk sem samkvæmt fundagerðarbók virðist hafa verið veittur úr Minningarsjóði Peders Jakobs Steffensens. Ekki er vitað hvað varð um þennan styrk en í fundagerðar- bók er upphæðin, tæplega 1.400 þúsund, skráð sem skuld sambandsins við Jórunni Sör- ensen. Samband Dýraverndunarfé- lags íslands raíc lengi flóamark- að og seldi ódýr föt. Samkvæmt Engin bókhaldsgögn eftir tiu ár í Ríkissaksóknari neitar um opinbera rannsókn stjóm reikningum sambandsins virð- ist sem flóamarkaðurinn hafi verið helsta tekjulind þess, auk sjóða sem voru í vörslu sam- bandsins en voru allir tæmdir árið 1991. í september 1995, hálfu ári áður en kom til stjórn- arskipta á aðalfundi, var skráð nýtt félag hjá Hagstofu íslands, Flóamarkaður dýravina. Þetta félag tók við rekstri flóamarkað- arins og þar með var helsta tekjulind sambandsins horfin. Meðal stofnenda þessa „félags" var einmitt Jórunn Sörensen. Engin merki um afbrot Nýja stjórnin leitaði til emb- ættis ríkissaksóknara um opin- bera rannsókn á fjárreiðum sambandsins en fékk neitun. Hjá ríkissaksóknara var stjórn- inni bent á þá leið að höfða einkamál. Jón Erlendsson hjá saksóknaraembættinu kvaðst ekki muna eftir þessu máli í smáatriðum en sagði að í þeim gögnum sem hann hefði séð, hefði ekkert bent til saknæms athæfis. Hann kvað það heldur ekki í sínum verkahring að ráð- leggja mönnum hvert þeir gætu snúið sér í tilvikum sem þess- um. Það væri til fullt af lögfræð- ingum úti í bæ sem hefðu at- vinnu af slíku. Jórunn Sörensen hefur ekki skilað

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.