Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 03.07.1997, Qupperneq 3

Helgarpósturinn - 03.07.1997, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 3. JÚU1997 3 Franklín Steiner, sem nýlega var dæmdur fyrir fíkniefnamis- ferli og hefur mikið verið til umfjöllunar í fjölmiðlum und- anfarnar vikur og mánuði, er sannfærður um að Jón Ólafs- son, stjórnarformaður Stöðvar 2 hafi stuðlað að ófrægingar- herferð á hendur sér. Franklín lætur lítið á sér kræla um þess- ar mundir en í undirheimum Reykjavíkur er það opinbert leyndarmál að Franklín safnar gögnum um Jón Ólafsson og séð hefur verið til þess að stjórnarformaðurinn fá vitn- eskju um hvað sé á seyði. Meðal þeirra gagna sem Franklín og kunningjar hans hafa spurst fyrir um er tíu ára gamall víxill með nöfnum Jóns, Franklíns og Tryggva Bjaraa Kristjánssonar, hálfbróður Jóns. Víxillinn hefur ekki kom- ið í leitirnar að því er best er vitað. Fyrir utan þau gögn sem Franklín kann að hafa um Jón Ólafsson býr hann yfir upplýs- ingum um Jón allt frá þeim ár- um þegar sá síðarnefndi komst fyrst í kast við lögin vegna fíkniefnamisferlis. Franklín Steiner og Jón Ólafsson voru báðir þátttak- endur í innflutningi og sölu á fíkniefnum í upphafi áttunda áratugarins. Franklín bjó þá í Franklín Steiner gefur fjölmiðlum ekki kost á viðtali við sig. Það er heldur ekki víst að hann vilji raun- verulega konta á framfærí þeim upplýsingum sem hann býr yfir. Kannski vill hann aðeins fá fríð fyrír fjölmiðlum. Og hvað er þá betra en að segjast hafa eitthvað á Jón Ólafsson? Reykjavík en Jón í Keflavík. ís- Iendingar seldu bandarískum hermönnum á Keflavíkurflug- velli fíkniefni. Vegna nálægðar Jóns við Völlinn var hann ákjósanlegur milliliður. Versl- un við hermennina var ábata- söm, sérstaklega í ljósi þess að þeir greiddu með dollurum. Á þessum tíma voru strangar takmarkanir á gjaldeyri og þeir sem fluttu inn hass og önnur vitundarefni urðu að hafa allar klær úti til að afla gjaldeyris. Ef Hermann fékk ekki greitt fyr- ir ómakið, a.m.k. ekki nægilega mikið, og fannst honum að Stöð 2 hefði leikið á sig. í við- tali við HP í mars gaf hann til kynna að hagsmunir Jóns Ól- afssonar réðu ferðinni í um- fjöllun fjölmiðla um Franklín. Fjölmiðlafárið var Franklín Steiner ekki til framdráttar þegar hann í vor mætti fyrir héraðsdóm í Reykjavík til að svara til saka vegna fíkniefn- amisferlis. Dómurinn var held- ur ekki vægur og Franklín rek- ur það til ímyndarinnar sem hann var búinn að fá í fjölmiðl- um. Hann áfrýjaði til Hæsta- réttar. Á sama tíma og málefni Franklíns og lögreglunnar voru til opinberrar umræðu var fíkniefnalögreglan á kafi í rann- sókn á stóra fíkniefnamálinu sem núna er kallað Hollend- ingamálið. Málið fór af stað í desember á síðasta ári þegar upp komst um smygl á miklu magni af fíkniefnum til landins. Aðalmennirnir voru taldir Hol- lendingurinn Albart van Hou- ten og Ásgeir Ebenezer Þórð- arson en Rúnar Óskarsson og Lára Dís Sigurðardóttir voru einnig talin eiga hlut að máli. Fíkniefnalögreglan hafði ástæðu til að ætla að Jón Ólafs- son væri viðriðinn smyglið. Grunur lögreglunnar var m.a. reistur á þeim rökum að Lára Dís hafði verið í samskiptum við Tryggva Bjarna Kristjáns- son, hálfbróður Jóns sem búið hefur á Spáni í mörg ár og er eftirlýstur af lögreglunni hér heima. í bréfi sem Tryggvi Bjarni skrifaði samstarfsmanni sínum á íslandi, Sigurbirni Þorkelssyni, fyrir fjórum árum er Sigurbirni stefnt til Jóns Ólafssonar og þess krafist að hann geri upp við hann fíkni- efnaskuld. í húsleit heima hjá Láru Dís fann lögreglan einnig bréf frá erlendum fíkniefnasala þar sem spurt var um Jón Ólafsson og hversu mikið hann ætti undir sér. Hvort sem Jón hafði veður af rannsókn fíkniefnalögreglunn- ar eða ekki hafði hann hag af því að kastljósinu væri beint að manni eins og Franklín Steiner jafnframt því að trú- verðugleiki lögreglunnar yrði dreginn í efa. Jón getur í krafti eignarhalds á fjölmiðlum haft áhrif á dagskrá opinberrar um- ræðu. Þótt dæmi séu um að hann hafi skipt sér beint og milliliðalaust af fréttaflutningi Stöðvar 2 er það ekki algeng- asta leiðin til að hafa áhrif á fréttastefnu fjölmiðla. Iðulega skapast þegjandi samkomulag á ritstjórn um hvaða mál séu þess eðlis að þau eigi að tóna niður eða sleppa alveg. Lög- reglumenn hafa til dæmis tekið eftir því að fréttastofa Stöðvar 2/Bylgjunnar tekur einatt með öðrum hætt á fréttum af fíkni- efnamálum en aðrir fjölmiðlar. Fréttum, sem varpa neikvæðu ljósi á lögregluna, er aftur móti gert hátt undir höfði í frétta- tímum Stöðvar 2. Dæmi um það er frétt á Stöð 2 í vetur þar sem sagði að lög- reglan hefði selt 22 skamm- byssur á almennum markaði og ein byssan hefði komist í hendur geðtruflaðs manns. Af fréttinni mátti skilja að byss- urnar hefðu nýlega verið seld- ar hverjum sem vildi hafa. Staðreyndin var sú að þær voru seldar árið 1991 og eng- inn fékk leyfi til að kaupa nema uppfylla skilyrði um vopna- eign. Jón Bjartmarz, yfirmað- ur sérsveita lögreglunnar, sem átti byssurnar, bað um leið- réttingu í fréttatíma Stöðvar 2 en var synjað. Franklín Steiner hefur ekki gefið fjölmiðlum kost á viðtali. Ef frá er talið stutt útvarpsvið- tal sem var við hann á FMívet- ur þegar hvað mest gekk á hef- ur hann þagað þunnu hljóði. Með því að það spyrst út Franklín sitji á gögnum um Jón Ólafsson er hann orðinn heit- asta viðfangsefni fjölmiðla, sérstaklega þeirra tímarita sem byggja á viðtölum. Eitt tímaritanna á markaðnum mun hafa boðið Franklín nokk- ur hundruð þúsund krónur fyr- ir viðtal. Hins vegar er ekki víst að Franklín hafi í huga að verða fjölmiðlastjarna. Kannski gengur honum það eitt til að fá fjölmiðla til að hætta umfjöllun um sig. Og hvað er þá betra en að segjast hafa eitthvað á Jón Ólafsson? ekki tókst að selja bandarísk- um hermönnum fyrir dollara var eina ráðið að kaupa gjald- eyri á svörtu, til dæmis af ís- lenskum leigubílstjórum á Keflavíkurflugvelli. Þegar Franklín og Jón hófu fyrst afskipti af fíkniefnaheim- inum kom megnið af eiturlyfj- unum frá Kaupmannahöfn. Bæði Jón og Franklín fóru til Kaupmannahafnar í fíkniefna- leiðangra. í gögnum sem þegar hafa komið fram um misferli Jóns er staðfest að hann fór til Kaupmannahafnar í byrjun átt- unda áratugarins í þeim til- gangi að kaúpa hass og önnur vitundarvíkkandi efni. Þeir Franklín og Jón munu hafa átt samskipti fram á ní- unda áratuginn. Eftir miðjan áratuginn fór að ganga vel hjá Jóni í skemmtanaiðnaðinum og kjarninn í fyrirtækjaveldi hans, Skífan, fór að sýna góðan hagnað eftir mörg mögur ár. Efnahagur Franklíns var held- ur ekki slæmur. Jón Ólafsson hafði hag af því að kastljósinu værí beint að Franklín Steiner og að trúverðugleiki lög- reglunnar yrði dreginn í efa. Fíkni- efnalögreglan rannsakaði mál þar sem nafn Jóns kom við sögu á meðan fréttin um samskipti Frank- líns og fíkniefnalögreglunnar tröll- reið fjölmiðlum. Fíkniefnalögreglan telur að Franklín hafi á árabilinu 1985 til 1990 verið stærsti aðilinn á fíkniefnamarkaðnum. Um helmingur fíkniefna sem neytt var innanlands fór í gegnum hendur Franklíns en aðrir aðil- ar, um tuttugu samkvæmt áætlun lögreglunnar, voru með afganginn. Síðustu árin hefur syrt í ál- inn fyrir Franklín. Hann varð fyrir persónulegum áföllum. Á síðasta ári var ráðist inn á heimili hans og sambýliskonu Franklíns misþyrmt. Um síð- ustu áramót hófst fjölmiðlaum- fjöllun sem m.a. beindi kast- ljósinu að samstarfi Franklíns við lögregluna. Björa Hall- dórsson í fíkniefnalögreglunni skrifaði upp á byssuleyfi fyrir Franklín og það var talin örugg vísbending um samstarf lög- reglunnar við fíkniefnasala. Stöð 2 og DV voru í farar- broddi þeirra fjölmiðla sem greindu frá fíkniefnamisferli Franklíns Steiners og sam; skiptum hans við lögregluna. í vetur lét Franklín það uppi við kunningja sína að honum þætti undarlegt að fjölmiðlarnir sem hvað harðast gengu fram í fréttaflutningi af hans málum eru að stórum hluta í eigu Jóns Ólafssonar. Jón er stærsti eig- andinn að Stöð 2 sem aftur á rúman þriðjungshlut í DV. Tímaritið Mannlíf gerði stærstu, einstöku úttektina á Franklín og birtist hún í byrjun mars síðastliðnum. Aðalheim- ildarmaður tímaritsins var Hermann Óiason sem þekkir bæði Franklín og Jón. Her- mann er búsettur i Svíþjóð og Mannlíf borgaði flug hans heim. í Afann/íTs-viðtalinu sagði Hermann að Stöð 2 hefði ráðið hann til að vera ráðgjafi í fíkni- efnamálum. Hermann kom einnig fram í viðtalsþætti Ei- ríks Jónssonar á Stöð 2 og gerði ráð fyrir að fá vel borgað fyrir að ljósta upp leyndarmál- um Franklíns. Hermann Ólason er sameiginlegur kunningi Jóns Ólafssonar og Franklíns Steiners. Hlutur Hermanns í umfjöllun fjölmiðla um Franklín er mótsagnakenndur. Hermann lagði til upplýsingar og gaf viðtöl sem komu Franklín illa og taldi sig eiga peninga hjá Jóni Olafssyni fyrír vikið. Þegar hann fékk ekkert frá stjómarformanni Stöðvar 2 sneríst Hermann gegn honum. fTc/í ad/tie/* arf efyfJa //lOrs a oty /ná/a /ettfi i//)/j/(j'S'//nja/1 i&ímw 0(9(9 4272

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.