Helgarpósturinn - 03.07.1997, Síða 7
RMMTUDAGUR 3. JÚLÍ1997
rof. Austast er rýrt, hallandi
land sem er mikið rofið og
óhæft til beitar. í horninu ofan
við Gljúfrastein er land einnig
óhæft til beitar sem rekja má
til mikils traðks hrossa."
í lok skýrslunnar segir svo:
„Ljóst er að nær allt land sem
tilheyrir Laxnesi er í slæmu
ástandi eða óhæft til beitar.
Friða þarf hluta þess nú þegar
og minnka álag á öðru landi.
Gera má átak til úrbóta með
því að nýta þann búfjáráburð
sem fellur til á búinu til upp-
græðslu og jafnvel bera tilbú-
inn áburð á þar sem hægt er
að koma því við. Miðað við
áframhaldandi rekstur um-
fangsmikillar hestaleigu í Lax-
nesi þarf töluvert beitiland ná-
lægt bænum þar sem hross
þurfa að vera tiltæk og því þarf
nauðsynlega að bæta landið
þar. Auk þess þyrfti að gera
ráðstafanir til að útvega aukið
beitiland ekki fjarri Laxnesi því
beitarálagið er of mikið.“
Þriðjungur friðaður
„Drög að áætlun um land-
nýtingu" heitir samkomulag
sem fulltrúar Landgræðslunn-
ar, RALA, Búnaðarsambands
Kjalarnessþings og Bænda-
samtakanna gerðu við Þórarin
Jónasson, ábúanda í Laxnesi, á
mánudaginn. Samkvæmt
þessu samkomulagi verða um
100 hektarar, eða tæpur þriðj-
ungur jarðarinnar, alfriðaðir
næstu ár. Þess er vænst að
Mosfellsbær verði einnig aðili
að þessu samkomulagi. Sá
hluti landsins sem nú á að
friða er nú orðinn svo illa far-
inn vegna ofbeitar að friðun
Dæmi um land sem óhæft er til beitar samkvæmt nýju flokkunarkerfi Landgræðslunnar og RALA. Hér er virkt
rof í gangi og gras rótnagað. Myndina er að finna í bæklingi sem gefinn hefur verið út um flokkunarkerfið. í
bæklingnum er fjöldi Ijósmynda til að skýra ástand beitilands en allmargar þeirra mynda sem notaðar eru til
að sýna slæmt ástand voru einmitt teknar í Laxnesi. Litla myndin er einnig tekin úr bæklingnum. Hún sýnir
nærmynd af jarðvegi sem heyrír undir þennan flokk.
ein og sér dugar ekki heldur á
að taka þetta land til upp-
græðslu.
Hrossataðið sem til hefur
fallið í Laxnesi á undanförnum
árum hefur lítið eða ekki verið
nýtt til áburðar en þess í stað
safnast í haug. Þessu á nú að
breyta og er hugmyndin að
nýta hrossataðið til áburðar á
uppgræðslusvæði. Grasfræi
verður sáð í stærstan hluta
landsins en sums staðar mun
ætlunin að sá lúpínufræi.
Á þeim tveim þriðju hlutum
Laxnesslands sem enn eru
Iestaleigan í Laxnesi í Mos-
fellsdal mun vera stærsta
hestaleiga landsins. Helgar-
pósturinn hefur heimildir fyrir
því að stór hluti starfseminnar
sé „svartur". Svo mikið er víst
að framtaldar tekjur Þóraríns
Jónassonar og konu hans,
sem reka leiguna, hafa verið
mjög lágar undanfarin ár og
hestaleigan hefur ekki einu
sinni virðisaukaskattsnúmer.
Þeir hundrað hestar sem leig-
an hefur á sínum snærum hafa
gengið svo hart að landinu að
þar má heita sviðin jörð. í
nýrri, sameiginlegri skýrslu
Landgræðslunnar og Rann-
sóknastofnunar landbúnaðar-
ins segir að nær allt land í Lax-
nesi sé í slæmu ástandi eða al-
veg óhæft til beitar. Nú I vik-
unni náðist þó samkomulag
um að taka þriðjung landsins
til uppgræðslu og verður sá
hluti landsins alfriðaður.
Laxnes í Mosfellsdal skiptist
í Laxnes I og Laxnes II. Skipt-
ingin er að stórum hluta sam-
hliða þjóðveginum til Þing-
valla og er Laxnes II allt norð-
an vegar en Laxnes I að stærst-
um hluta sunnan vegcU"ins.
Óhæft til beitar
Stór hluti landsins er algjör-
lega óhæfur til hrossabeitar,
samkvæmt niðurstöðum Land-
græðslunnar og RALA. Ástand
landsins var metið út frá sér-
stökum ástandsskala sem
RALA hefur þróað. Eftir þess-
um skala er land flokkað í alls
sex flokka frá 0 til 5. í fimmta
flokknum lendir land sem er
algjörlega óhæft til beitar og
flokkaðist stór hluti Laxness-
jarðanna beggja í þann flokk.
Sá hluti jarðarinnar sem ekki
lendir í þessum neðsta flokki
ástandsskalans er þó fjarri því
að vera í lagi. Höfundar skýrsl-
unnar, Bjöm H. Barkarson hjá
Landgræðslunni og Borgþór
Magnússon hjá RALA, telja
ljóst að nær aílt land sem til-
heyri Laxnesi sé í slæmu
ástandi eða óhæft til beitar.
RALA
rtkjílns
Skýrsla um ástand brossahaga á jðrðloni Laxntsi t Mosfellsbæ.
Þann 7. mai, 1097, fóru undimtaóir um hluto Itndi Laxncas I og II til að meta
istand hrossahaga. MeS i fír w Þórtnnn Jónaaaon tem rekur þar heitaleigu.
Ártand iandrint
Áitand lands er metið út frá nokkrum þittum og ilokkafi eftir iitandnkaia sem
þróafiur hefúr verifi af Rannióknaitofnun landbúnaðarim (sji mefifylgjandi blafi) og er
0 ftokkur þar lem iatand gróðun og jarfivegi er mjog gott en 5 land aem ólueft er tiJ
beitar.
f landi Laxneaa II, norfian Þingvaftavegar er mikið jarfivcgirof, mdar en
mólcndi og mýradrðg inn i milli. Skógarbringumar (iji uppdrilt) austast 1 landinu eru f
hvaó veratu iatandi og akv. iatandaskala óhcfar tU beittr. Þegar vestar dregur er
issand landsins hcldur skirra en þó mjóg slxmt efia óhcft lil beitar.
Sunnan Þingvailavegar, i landi Laxness 1, er land heldur meira gróifi og
mýradrög sem vel mi nýta til bcitar. Inn i miili og I ðllum jofirum er þó rof. Austast er
rýrt haftandi land sem er mikifi roflfi og óhacft til beitar. 1 hominu ofan vifi Gljúftastein
er land einnig óhcft til beitar sem rekja mi tU mikils traóks hrossa. Þtr er hhó sem
hrossin eru rckin 1 gegnum hcim aó Laxnesi.
Á hsegri hfind þegar ekifi er heim að Laxnesi er hfilf sem er i mjog slcmu
istandi cn þfi afi mestu gróifi. Túnin sem tilheyra Laxnesi eru nýtt til bcitar.
Tíl vifibótar þvi tandi scm tilheyrir Laxnesi I og U hefitr Þórarinn fengið lind til
beitar hji Mosfellsbc inn undir Stardal. Hluti af þvi landi hentar igctlega til beitar og
er istand þess viðunandi. Þó virfiist si hlutt þess sem er vestast og nyrst mjðg rýr og
ekki henta tU hrossabeitar.
Úrbctur
Naufisynlegt er afi fnða Skógarbringur og var Þörarinn nokkufi sittur við það enda um
mjog rýrt beitiland afi rcfia. Þann hiuta landsins sem þar er fýrir vestan mi beta með
uppgnefislu enda aðgengilegir melar sem aufivelt er að komast ura. MikiU
búSiriburfiur er tiitckur I Laxnesi þvi hsnn hefiir ekki verifi nýttur I fjfilda ins an
hlaðist þar upp i haug. Þerutan búfjiriburð þyrfti afi ftytja upp i mciana og jafna úr
Skýrsla RALA og Landgræðslunnar er einn samfelldur áfellisdómur yfir
ofbert hrossa í Laxnesi.
Lýsing RALA og Land-
græðslu
í skýrslu RALA og Land-
græðslunnar er ástandinu lýst
þannig: „í landi Laxness II,
norðan Þingvallavegar, er mik-
ið jarðvegsrof, melar, en mó-
lendi og mýradrög inn á milli.
Skógarbringurnar austast í
landinu eru í hvað verstu
ástandi og skv. ástandsskala
óhæfar til beitar. Þegar vestar
dregur er ástand landsins
heldur skárra en þó mjög
slæmt eða óhæft til beitar.
Sunnan Þingvallavegar, í
landi Laxness I, er land heldur
meira gróið og mýradrög sem
vel má nýta til beitar. Inn á
milli og í öllum jöðrum er þó
taldir þola einhverja beit á að
skipuleggja beitina og er gert
ráð fyrir að ábúandinn fái sér-
fræðilega ráðgjöf við það.
Þetta gildir líka um túnin í Lax-
nesi en ekki mun hafa verið
borið á þau undanfarin ár
nema það sem hrossin leggja
frá sér á beit sinni. Borið verð-
ur á túnin strax í sumar og er
ábúandinn raunar þegar búinn
að bera hluta áburðarins á.
Ekkert VSK-númer
í Laxnesi er rekin stærsta
hestaleiga landsins. Ábúand-
inn, Þórarinn Jónasson, rekur
hestaleiguna á sinni eigin
kennitölu en athygli vekur að
hann hefur ekki virðisauka-
skattsnúmer. Samkvæmt upp-
lýsingum sem Helgarpósturinn
aflaði sér hjá Ríkisskattstjóra
er hestaleiga þó virðisauka-
skattsskyld, a.m.k. að hluta.
Fólksflutningar á hestum eru
þó undanþegnir virðisauka-
skatti.
Vala Valtýsdóttir í virðis-
aukadeild Ríkisskattstjóra seg-
ir varðandi þetta, að megin-
reglan sé sú að útleiga lausa-
fjármuna sé virðisaukaskatts-
skyld. „Skipulagðar hestaferð-
ir með leiðsögumanni eru und-
anþegnar virðisaukaskatti,"
segir Vala og bætir því við að
muninum á þessu tvennu megi
iíkja við muninn á að taka
leigubíl og bílaleigubíl.
Sú staðreynd að stærsta
hestaleiga landsins skuli ekki
hafa virðisaukaskattsnúmer
vekur svo auðvitað upp spurn-
ingar um það hvernig skatt-
skilum þessa fyrirtækis sé var-
ið að öðru leyti. 1 því sambandi
má nefna að tryggingagjald
sem hjá tollstjóra hefur verið
áætlað á Þórarin bendir til að
laun hans séu talsvert undir
100 þúsund krónum á mánuði.
Á það má líka benda að áætlun
gjalda er yfirleitt höfð mun
hærri en rauntölur segja til
um.
Sjálfur segir Þórarinn Jónas-
son engan vafa leika á því að
ekkert af starfsemi hans sé
virðisaukaskattsskylt. Hann
fullyrti einnig í samtali við HP
að öll innkoma væri gefin upp
til skatts.
Borinn út á næstunni
Laxnes I, syðri hluti jarðar-
innar, er í eigu Wahtne-systra,
Mosfellsbæjar og systur Þórar-
ins Jónassonar. Eigandi Lax-
ness II er Laxnesbúið ehf. en
forsvarsmaður þess félags er
Jón Baldvinsson sem rekur
Ráðningarþjónustuna við Háa-
leitisbraut í Reykjavík. Öll hús
sem Þórarinn hefur til afnota
eru á Laxnesi II. Jón sagði Þór-
arni upp ábúðinni fyrir einu og
hálfu ári og samkvæmt þeirri
uppsögn hefði Þórarinn átt að
vera farinn fyrir 1. júní á þessu
ári.
Uppsögnin fór fyrir Héraðs-
dóm Reykjaness á mánudag-
inn, sem kvað upp þann úr-
skurð á mánudaginn að Þór-
arni beri að rýma jörðina. Þór-
arinn mætti ekki fyrir dóminn
til að halda uppi vörnum.
Stéttin
erfyrsta
skrefið
iim...
Mikiðúrval
afheUum
ogsteinum.
Mjög gott verð.
STÉTT
HELLUSTEYPA
HYRJARHÖFÐI 8
112 REYKJAVÍK
SÍMI 577 1700-FAX 577 1701