Helgarpósturinn - 03.07.1997, Side 8
8
RMMTUDAGUR 3 JÚLÍ1997
luiiliir „liiraiiiíliikkiii'inn" Miliim liiskii|iskjiii-s?
Síðasta helgi var frekar óvenjuleg miðað við það
sem ég á að venjast en það er alltaf gaman að
breyta til. Helgin byrjaði á miðvikudegi á tónleik-
um Sting (sem Einar Örn kallar
Stink). Sting var betri en ég bjóst
við og kom mér á óvart hve breið-
an aðdáendahóp hann á. Það sást í
Andra Snæ Magnason rithöfund
og ég fór enn og aftur að hugsa um
íranskeisara og Andy Warhol
heitna en þeir eiga það sameigin-
legt að hafa látist á skurðarborðinu
hjá lækninum, afa Andra Snæs, ekki
þó af völdum læknisins. Það sást
einnig í KK og Ellen
systur hans í hópi
fólks. Davíð Þór og
sæta kærastan hans,
stigavörðurinn Katr-
ín Jakobs, virtust
skemmta sér vel, einnig Ami Ein-
arsson hótelstjóri og MM-maður. w
Hrafn Jökulsson, annar ritstjóri
Mannlífs, virtist skemmta sér kon-
unglega þótt hann kæmist aldrei
inn í salinn sjálfan. Hann var allan
tímann á tali við mann í anddyri
Laugardalshallar. Útvarpsfólkið lét
sig ekki vanta og sá ég allmarga
slíka eins og hinn ljúfa Sigvalda
Búa á Sígildu FM, útvarpsstöð sem
lék eingöngu háklassíska tónlist til að byrja með en nú
allt milli himins og jarðar ... meira að segja Spice
Girls. Steinar Viktorsson sem var
ráðinn í stað Sigvalda á Aðalstöð-
ina stóð stjarfur með frosið bros á
andlitinu, enda forfallinn aðdáandi
Stings eins og flestir á staðnum.
Einn mann hitti ég þó sem kallaði
Sting óttalegan vælukjóa.
Hann sagði það ekki mjög
hátt, ella hefði verið
gengið í skrokk á honum.
__________Lísa Páls á Rás 2 var
þarna á ferð með ektamakanum, ívar Guð-
mundsson á Bylgjunni og Joiii, maðurinn sem
söng með Sting, voru að tala við Gurrí á Aðalstöð-
inni. Mig grunar að þau hafi verið að tala um Sting og
frábæra frammistöðu Jolla sem heitir víst Sverrir í al-
vörunni. Forsíða nýjasta Mann-
lífs, Jón Sæmundur, virtist hinn
ánægðasti með tónleikana, einn-
ig hinn ritstjóri Mannlífs, Guðrún
Kristjánsdóttir, sem mætti með
fríðum flokki fönguiegra kvenna
sem Hall-
grímur Helgason kallar síðustu
klíkuna í bænum, Ari Alexander
myndlistarmaður gladdi eflaust
augu þeirra eins og mín ... nokkuð
myndarlegur maðurinn sá. Vil-
helmina ástarfíkill Magnúsdóttir
var á staðnum, kannski í vett-
vangsrannsókn um leið og hún
naut tónlistarinnar. Maður getur
ábyggilega orðið jafn háður því að
fara á tónleika eins og að elska
einhvern, stunda kynlíf eða jafnvel horfa á sjónvarpið.
Vilhelmína hefur undanfarið haldið fyrirlestra um
ástarfíkn og fleiri fíknir, ágætis fyrirlestra hef ég heyrt,
þótt þeir veki ekki áhuga minn ... ég er orðin svo
þreytt á öllum þessum skilgreiningum ... arggggg.
Þarna voru á fimmta þúsund aðrir gestir sem of langt
mál væri að telja upp hér svo ég sleppi því en vind
mér á Sólon Islandus. Þar var fullt út úr dyrum á
fimmtudagskvöldið og kannaðist ég ekki við marga en
sá eina frægustu konu íslands, önnu vélstjóra Krist-
jánsdóttur í fylgd með myndarlegum manni. Kannski
hefur þessi fáránlega forsíða á Séð og heyrt, „Vand-
ræði að ná mér í mann“, haft einhver jákvæð áhrif á
karlhylli hennar. Anna varð víst mjög sár yfir þessari
setningu sem hún sagði ekki í viðtalinu. Anna er orðin
svo mikil almenningseign að fleiri viðtöl birtast við
hana en eru tekin.
í stað þess að fara út á djammið á laugardagskvöld-
ið eins og ég er vön, sat ég með vinafólki og horfði á
hnefaleika! Það var ekki eins leiðinlegt og ég átti von á
og sérlega gaman að sjá guðsmanninn Holyfield kljást
við Allah-gaurinn og kvennabíterinn Tyson. Fyndið að
heyra Holyfield, þennan þungavigtarkappa, syngja
sálma í undirbúningsskyni. Þulirnir áSýn slepptu sér
og sögðu þetta ótrúlegan og óvæntan atburð, þeim
fannst það álíka merkilegt og þegar Tyson stýfði eyra
Holyfields. Sálmasöngurinn er kannski trikk til að fá
sértrúarfólk til að kaupa áskrift að Sýn og öðrum álíka
stöðvum. Niðurstaða mín í hnefaleikaeyrnabitsmálinu
er einföld. Fyrst Holyfield gefur sig út í það að vera
guðslamb á hann skilið að vera markaður í eyraA,
Q7vu/a
Síðsumars verður kjörinn
nýr biskup yfir íslandi. Kosn-
ingabaráttan fer að mestu fram
að tjaldabaki en aðeins 190
manns eru með atkvæðisrétt
og kjósa í póstkosningu. Fimm
prestar eru í framboði til að
setjast í sæti Ólafs Skúlasonar
sem hverfur úr stólnum fyrr en
ætlað var. í biskupskosning-
um, eins og prestkosningum
áður, eru sagðar sögur ýmist
til að upphefja eða klekkja á
frambjóðendum. Sögurnar
berast frá manni til manns en
eru aldrei sagðar opinberlega,
hvorki á mannafundum né í
fjölmiðlum.
Útbreidd saga í yfirstand-
andi kosningabaráttu er að for-
setaflokkurinn svokallaði ætli
sér biskupsembættið. Forseta-
flokkurinn er nýtt hugtak í ís-
lenskum stjórnmálum. Það vís-
ar til hópsins í kringum Ólaf
Ragnar Grímsson forseta lýð-
veldisins. í hópnum eru meðal
annarra Gunnar Steinn Páls-
son, auglýsinga- og ímynda-
hönnuður, Siguður G. Guð-
jónsson, fyrrum stjórnarfor-
maður Stöðvar 2 og lögfræð-
ingur Jóns Ólafssonar og Már
Guðmundsson í Seðlabankan-
um. Þá er ótalinn Einar Karl
Haraldsson, sem kallaður er
hershöfðingi forsetaflokksins
en hann var nánasti samstarfs-
maður Ólafs Ragnars í Alþýðu-
bandalaginu og væri enn fram-
kvæmdastjóri þar á bæ ef ekki
hefði kastast í kekki milli hans
og Margrétar Frímannsdóttur
sem tók við formennsku af
Ólafi Ragnari.
Stuðningsmenn Sigurðar
Sigurðarsonar,
vígslubiskups í
Skálholti,
segja þá
sögu að
forseta-
flokkurinn
styðji til bisk-
ups Karl
Sigurbjömsson, sóknar
prest í Hallgrímskirkju. Sagan
er trúverðug með því að Karl
og Einar Karl eru nákunnugir,
búa í tvíbýli á Þórsgötu í Þing-
holtunum. Einar Karl er rækt-
arsamt sóknarbarn og hefur
um árabil lagt sitt af mörkum
til safnaðarstarfs Hallgríms-
kirkju.
Sagan er líka til þess fallin að
fæla atkvæði frá Karli og til
þess er hún vitanlega sögð.
Forsetaflokkurinn er litinn
hornauga af þeim hópum í
þjóðfélaginu sem finnst upp-
skafningsbragur af liðinu í
Hershöfðinginn í forsetaflokknum,
Einar Kari Haraldsson, er sagður
vinna fyrir einn frambjóðendanna í
biskupskjöri. Einar Kari verður
hins vegar fjarri góðu gamni
næstu vikurnar. Hann er í sagn-
fræðileiðangri í Suður-Frakklandi.
kringum forsetann. Ólafur
Ragnar Grímsson er ekki af
valdaættum og tengslin við ný-
ríka menn, suma með vafa-
sama fortíð, eru ekki fallin til
vinsælda í gamalgrónum fjöl-
skyldum með ítök víða í þjóð-
félaginu. Sigurðarmenn veðja á
að tilhugsunin um að sömu að-
ilarnir standi að baki forseta-
embættinu annars vegar og
biskupsembættinu hins vegar
sé mörgum guðsmanninum
um megn.
Til að bendla Karl Sigur-
björnsson við forsetaflokkinn
þarf meira en vinskap við hers-
höfðingjann Einar Karl. Og það
getur verið erfitt. Einar Karl
hefur ekki starfað fyrir Karl
vegna biskupskjörs og heldur
haldið sig til hlés þó að hann
sé eindreginn stuðningsmað-
ur. Til að auka enn á fjarlægð-
ina milli nágrannanna í Þing-
holtunum verður Einar Karl í
Suður-Frakklandi mánuðinn
fyrir biskupskjörið með eigin-
konu sinni Steinunni Jóhann-
esdóttur. Þar mun Einar Karl
aðstoða Steinunni við gagna-
öflun um Guðríði, Tyrkja-
Guddu" Hallgríms Péturssonar
sem hafði viðkomu í Suður-
Frakklandi á heimleið úr bar-
baríinu fyrir margt löngu. Og
fleiri minningar munu þau
hjónin rifja upp því að í borg-
inni Toulouse hittust þau fyrir
20 árum og ákváðu að rugla
saman reitum. Við látum Séð
og heyrt segja okkur hvort það
hafi verið ást við fyrstu sýn.
Á meðan Einar Karl sólar sig
í Frakklandi mun sóknarprest-
urinn í Hallgrímskirkju einn
bera þær áhyggjur hvort sagan
um valdabrölt forsetaflokksins
hafi áhrif á það hvernig prest-
ar greiða atkvæði í júlílok.
H.
Leimsbyggðin skókst af kvölum með Holy-
field ekki alls fyrir löngu þegar Tyson nartaði
vingjarnlega í eyra hans í boxhringnum en varð
undan að láta þegar sætt bragð hins æsti svo
upp hungur hans að hann uggði ekki að sér
heldur beit sér vænan bita.
Unnendur boxins reka upp
ramakvein, maðurinn er villi-
dýr, skepna og guð veit hvað,
skella sér á lær og berja sér á
brjóst í hræðilegri forundran.
Ómar Ragnarsson er undrandi
og miður sín og Bubbi svarar
ekki í síma vegna áfallsins. Eng-
inn rifjar það upp, ekki einu
sinni með sjálfum sér, að Tyson
er dæmdur nauðgari og þekkt-
ur ofbeldismaður gagnvart kon-
unum í lífi sínu.
Er það kannski vegna þess að
leikreglur hinnar göfugu íþrótt-
ar boxins gilda sjaldnast í
hringnum innan veggja heimil-
isins að ekki þykir benda til of-
beldishneigðar eða ruddaskap-
ar þó menn dangli lauslega í konu hér og þar
eða neyði til samræðis? Fleiri hundruð punda
vel þjálfaður skrokkur er vesælli andstæðingur
og menn því búnir að vera sem íþróttamenn
sem leggja sér slíkt til munns. Veiðileyfi á rýra
kvenskrokka er allt annað mál og gildir þar
sjálfsagt „permanent open season“ eins og þeir
myndu orða það í henni Ameríku. Kannski ætt-
um við að strengja vébönd þau er umlykja
hnefaleikahringinn (reyndar ferhyrninginn) ut-
an um þá heimilismeðlimi sem taka upp á að
tók Stöð 2 í
Stöð 2 er lúnkin í viðskiptum eins og best sást
þegar Stöð 3 var gleypt í vor. En Jóni Ólafssyni,
Hreggviði Jónssyni og félögum varð illa á í mess-
unni þegar þeir ákváðu að kaupa rúmlega fjögur
þúsund sæti til London af Helga Jónssyni for-
stjóra Samvinnuferða-Landsýnar. Tapið á þeim
viðskiptum stefnir í fimmtán til tuttugu milljónir
króna.
Stöð 2 hugðist bjóða áskrifendum sínum ódýra
Lundúnaferð gegn skuldbindingu um að áskrifend-
ur segðu ekki upp Stöð 2 næstu þrjá mánuði á eftir.
Reynsla undanfarinna ára sýnir að fólk segir gjarn-
an upp áskriftinni að Stöð 2 yfir sumarmánuðina
og það skapar erfiðleika í tekjuflæði fyrirtækisins.
Forsvarsmenn Stöðvar 2 leituðu til Helga Jó-
hannssonar í Samvinnuferðum-Landsýn og keyptu
af honum rúm fjögur þúsund sæti til London á
9.900 kr. í ferðabransanum er fullyrt að Helgi hafi
fengið hvert sæti á 6.900 hjá Atlanta sem mun
fljúga með áskrifendur Stöðvar 2 til London. Sam-
vinnuferðir-Landsýn og Atlanta hafa þannig allt
sitt á þurru en áhættan er öll hjá sjónvarpsstöð-
inni.
Illu heilli fyrir Stöð 2 er takmarkaður áhugi fyrir
rífast og sjá hvort þá beri minna á ofbeldi og
skepnuskap í samskiptum þeirra.
Þessi hágöfuga íþrótt, hnefaleikar, hefur
nefnilega aldrei átt neitt skylt við ofbeldi og síð-
ur en svo ýtt undir eða vakið slíkar kenndir
með mönnum. Hér fer allt fram eftir föstum
reglum og sjálfsagt betra að lifa með heila-
skemmdir eftir á ef maður veit að sá sem barði
fór að lögum hnefaleikanna að maður ekki
minnist á ólympísku hnefaleikana.
Sjálf er ég ein þessara andlega vanhæfu vesal-
inga sem aldrei hafa skilið göfgi ofbeldis hvort
heldur er innan hrings eða utan og kom því at-
hæfi Tysons varla aftan að mér og því síður olli
það þeirri undrun og skelfingu að ég drægist
ekki úr rúmi daginn eftir. Kaldhæðnin er nefni-
lega svo sterkur hluti af eðli mínu að mér var
ljóst að Tyson er villidýr um ieið og hann var
dæmdur fyrir nauðgun og þá, ekki nú, þótti mér
einsýnt að maðurinn hefði ekkert að gera með
opinbert leyfi til að berja á öðrum, hvort heldur
er með hönskum eða án þeirra.
Steingerður Steinarsdóttir
Helgi Jóhannsson tekur
því fálega að skera Stöð 2
úr snörunni vegna samn-
inga sem gerðir vorn um
Lundúnaferðir fyrir áskrif-
endur sjónvarpsstöðvar-
innar.
flugferð til London á tæpar tíu
þúsund krónur, ekki síst vegna
þess að fyrir litlu hærri upphæð
er hægt að fá flug og bíl til Evr-
ópu. Tilboðið til áskrifenda gild-
ir fram í september og síðast
þegar fréttist var aðeins búið að
selja tæplega helming sætanna.
Haílinn á viðskiptunum er 20
milljónir og Stöðvarmenn mega
hafa sig alla við til að rétta sinn
hlut. Tilmæli þeirra til Helga um
afslátt er fálega tekið.
Til að bæta gráu ofaná svart
móðguðust Flugleiðir þegar
Stöð 2 samdi við Samvinnuferð-
ir-Landsýn og Atlanta. Tilraunir
Stöðvarmanna til að jafna skuld
Stöðvar 3 við Flugleiðir með
auglýsingasamningkum fóru út
um þúfur. Flugleiðamenn vildu
uppgjör í reiðufé og varð ekki
haggað.