Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 03.07.1997, Qupperneq 23

Helgarpósturinn - 03.07.1997, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ1997 23 Ekki • m m • • ® « • nRrr^a oersonal contacts Böll og slíkt Nú er sumarið komið og hinar ýmsu hljómsveitir farnar að líta hýru auga til landsbyggðarinnar og smæstu félagsheimila með ball f huga og húllumhæ. Sálin hans Jóns míns hefur 13 tónleika túr þessa gleðimarseringu. Og fleira frá Hinu húsinu. Allir vita að á hverjum föstudagseftirmið- degi klukkan fimm fara fram tón- leikar á vegum þess. Svo hefur alltaf verið (næstum því) og svo mun ávallt vera (vonandi). Á morg- un eru það Kolrassa og Sýrupolka- hljómsveitin Hringir (bræðingur úr gömlu Júpíters) sem troða upp á Ingólfstorgi. :-*síá«e.íS8iE,vW . • , - ■ -a'. •íw Risprapp aftur á Nelly’s DUUZ fjórða júlí í Fischersundi 4 er hefð fýrir frísk- um, Ijörlegum skemmtistöðum með fallegu, fínu fólki. Þetta vita Árni Sæv- arsson og Sverrir Rafns- son manna best og því munu þeiropna um helgina glænýj- an stað með gömlu nafni. DUUZ heitir klúbburinn og verður samkvæmt heimildum blaðsins þó nokkuð öðruvísi en fýr- irrennarar hans. Áherslurnar verða ekki á einhverri einstakri tónlistar- stefnu heldur mun músíkin ráðast af gestunum. Þossi og DJ-Kári taka púlsinn á fólkinu og spila það sem stemmningin krefst. Sem sagt: Mikil fjölbreytni og umfram allt góð tónlist en það getur maður verið viss um með slíka menn við stjórnvölinn. Hægt verður að velja milli tveggia hæða með mismun- andi músík, andrúmslofti og stíl þannig að sófafrikur í leit að af- slappaðri stemmningu jafnt sem trylltir dansgeggjarar fá óskir sínar uppfylltar. Og prófa má hvort tveggja án þess að ráfa út í kuldann og nepjuna til þess að freista gæfunnar annars staðar. Það er stóri plúsinn. „Við ætlum ekki að vera í dansgeiranum beint heldur reynum við að höfða til fólks á okkar aldri, ég er 28 ára en hann þrftugur. Ef fólk vill hlusta á danstónlist verð- um við að sjálfsögðu við því,“ sagði annar eigendanna, Árni Sævarsson. Aldurstakmarkið á hin- um nýja stað verður tuttugu og eitt ár, eins og í Bandarikjunum, enda er formleg opnun á þjóöhátíðardegi USA, föstu- daginn 4. júlí. Orð skáldsins koma upp í hugann: „Born on the fourth of July“ og eins víst að DUUZ verði hið nýja, fýr- irheitna land ungra íslendinga. oddsen og Ólafur Þórðar- son ásamt Szymon Kuran, fiðluleikara, og Bjama Stein- grímssyni, bassaleikara. Hver man ekki eftir slagaran- um „Skólavörðuholtið" sem oft sést f Sjónvarpinu? Það voru Kuran Swing í fínum föt- um með kúluhatta en hvernig verða þeir í kvöld? Feðgar (!) og Milljónamæring- arnir Sumarsveifla verður á Kaffi Puccini í kvöld þegar Kuran Swing plokkarýmiss konar strengi frá klukkan hálf tíu. Tveir gítarar, fiðla og bassi og gaman að sjá útkomuna. í hljómsveitinni eru Bjöm Thor- Götuleikhús Hins hússins, sem meðal annars hefur innan- borðs hina undurfriðu Elínu ásamt 32 öðrum á aldrinum 16 til 25, hefur starfað frá júníbyijun við góð- ar undirtektir. í dag klukkan hálf þrjú stendur leikhúsið fýrir skrúð- göngu niður Laugaveg ásamt sjötíu manna danskri lúðrasveit. Lagt verður af stað frá Hlemmi og eru stórir sem smáir boðnir með í Flóamarkaður Á laugardögum í sumar verður flóa- markaður í tjaldinu við Kænuna í Hafnarfirði. Opið verður frá tíu til fjögur og kostar hvert borð þúsund krónur en hálft fimm hundruð. Flóa- markaösfólk og skransafnarar og allir aðrir áhugasamir hjartanlega velkomnir. Hér fyrir nokkrum vikum brjálaðist allt í Óperukjallaranum þegar Mill- arnir léku fýrir dansi ásamt nokkr- um valinkunnum söngvurum. Að- sóknarmet féllu og staðurinn troð- fýlltist. Næsta laugardagskvöld munu þeir endurtaka leikinn, enn sem fýrr með sínum fasta söngv- ara, Bjaraa Arasyni, en einnig stfgur á svið guð- faðir poppsins, Ragnar Bjaraa- son. Hann kom sveiflunni af stað hér fýrir áratugum og enn hefur hún ekki stöðvast. í fréttatilkynningu halda Millarnir fram fullum fetum að Raggi sé iaun- sonur Bjarna Ara og þar sé komin skýringin á hinu ótvíræða kúli sem þeir hafa umfram flesta aðra. Ekki skal fjölyrt um trúverðug- leika þessarar fréttar enda milljónamæringar yfirhöfuð lé- legir blaðamenn en hver veit nema sannleikurinn komi í Ijós í Óperukjallaranum á laugar- dagskvöldið? Kuran Swing á Kaffi Puccini Hinn stórkostlegi Homocomsumus iðkar risprapp af hjartans list á Nelly’s sunnu- daginn 6. júlí enda verður að gefa þeim fáu sem ekki komu síðast tækifæri til þess aö kynnast þessu fýrirþæri. Rauðglóandi rauður pipar í kvöld á Rósenberg, „musteri rokksins", munu nokkrir fífldjarfir, ungir menn spreyta sig á dægur- flugum fönkaranna í Red Hot Chili Peppers. Tónleikarnir hefjast klukk- an tíu, aögangseyrir er þrjú hundr- uö krónur og þyrstir fá Bud lce. Æðri menning, málverk og þess háttar í dag opnar í Ingólfsstræti 8 sýning með nýjum málverkum eftirTuma Magnússon. Sá á meöal annars verk í Listasafni íslands, Lista- safni Reykjavík- urborgar og víö- ar. Hann tók einnig þátt í Al- þjóðlega þienn- alnum í Sao Paulo, fýrir þá sem vita deili á þeirri samkomu. Þetta er ellefta einkasýning Tuma og stend- ur hún út mán- uðinn. I kvöld verður haldinn fýrirlest- ur um íslenska myndlist á opnu húsi í Norræna húsinu. Þarfjallar Hrafnhildur Schram, listfræöing- ur, um frumherja í íslenskri mynd- list frá aldamótum fram til 1945 og talar einkum um landslagsmál- verkið. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku og að loknu kaffihléi verður svo sýnd kvikmyndin „Reykjaviks gamle bykjerne" með norsku tali. Norska og sænska í Norræna húsinu í kvöld en íslensk- ir sérréttir á boðstólum. Spurningin er því: Hvað fer best í munni? Taktmælar á menningarvið- burði Á morgun, föstudag, munu fara fram Ijúfir tónleikar í Herrafataversl- un Kormáks og Skjald- ar, Hverfisgötu 26. Hljómsveitin Taktmæl- arnir leikur fýrir dansi (hafi gestir tilhneigingu til þess háttar iðkana), en annars er gestum og gangandi frjáls að- gangur, áheyrn og lím- onaði til drykkjar. Takt- mælarnir ku leika ný- móðins tónlist en hljóm'sveitin er skipuð heiðursmönnunum Kristjáni Eldjám, sem leikur á slaggígju, Ró- bert Þórhallssyni, sem plokkar bas-gígju, og Jóhanni Hjörleifssyni, sem ber bumbur (þó ekki sína). Hljómleikahald hefst klukk- an fjegur (16.00) stundvís- lega, líkt og herramönnum sæmir, og fýlgir með kveöja frá Kormáki, Skildi og unnustum. Góðar stundir. Skrúðganga og síðdegis- tónleikar um landið í Ýdölum, Aðaldal, á laugardagskvöld og er þar um að ræða miðnæturtónleika, hvorki meira né minna. Sama kvöld verða Hunang og sumar stúlkur... afsak- ið, sumarstúlkur Suðurlands í miklu stuði á stórdansleik á veit- ingahúsinu Inghóli, Selfossi. Konungar sumarútgerðarinnar, Sniglabandið, spilar á Landsmóti Snigla sem fram fer í félagsheimil- inu Végarði skammt frá Egilsstöð- um. Svo eru Sól-dögg, Skítamórall og þess háttar hljómsveitir örugg- lega að glamra einhvers staðar fýr- ir ykkur sem hafið áhuga. Hveriir HEIM Á HORNAFJÖRÐ „Ég ætla á Hornafjörð," sagði Ólaf- ía Hrönn Jónsdóttir, leikkona. „Höfn er hundrað ára eins og allir vita, þar er humarhátíð og ég ætla að skemmta mér og skemmta öðrum. Ég er í hljómsveitinni „Lolla Popp og pír- arnir“ sem er skipuð burtfluttum Hornfirðingum og einnig kem ég fram með systkinum mínum.“ Þú ert þá nokkurs konar Homecoming Queen? „Nákvæmlega, djöfull hittir þú vel á þarna, maður." Ertu búin að ákveða hvað þú borðar? „Nú, humar! Þetta er humarhátíð, skilurðu. Humar og bjór verð- ur uppistaðan." Ertu sátt við árangur íslenska bridslandsliðsins? „Ja, ég get nú eiginlega ekki tjáð mig um það því að ég fylgdist ekkert með. Maður var jú voða stoltur af þeim hérna um árið þeg- ar þeir urðu heimsmeistarar en síðan hef ég aðeins tapað þræðin- um. Gekk þeim ekki nógu vel, segirðu? Eru þeir ekki búnir að halda sér við? Orðnir kærulausir? Helvítis vesen...“ VER VÍÐFÖRLI „Ég ætla til Hollands að keppa í kraftakeppni. Svo næstu helgi er ann- að mót í Hollandi, þá í Litháen og loks í Finnlandi. Svo stoppar maður hér heima dag og dag,“ sagði Magnús Ver Magnússon, kraftakarl. / hverju verður keppt þarna úti? „Ég hef ekki hugmynd um það, enda hugsa ég aldrei um slíkt fyrr en í keppnina er komið. Þá tek ég bara á. Ætli það verði ekki eitthvað trukka- tog og svoleiðis. Lyftur yfir haus líka, þessar greinar, læt nægja að lyfta.“ Hvað áttu í bekknum? „Það er svo langt síðan, maður. Ég hef ekki tekið bekkpressu lengi. Ég á best, að því er mig minnir, eitthvað um 260 kíló.“ Hvað borðar þú í svona keppnum? „Ég borða mikið létt kjöt, kjúklingakjot og þess háttar, til þess að fá kolvetni." Hvenœr munt þú verja titilinn „Sterkasti maður heims“? „I lok september. Það er ekki alveg komið á hreint hvar en ís- land kemur til greina. Reyndar gengur mér yfirleitt best þar sem hvað allra heitast er í veðri og var bara í öðru sæti hér á íslandi síðast. Það er víst kominn tími til að breyta því. Ég hef harma að hefna.“ HEIMA í HÚSINU „Ég er ekkert að gera neitt spenn- andi um þessa helgi. Við Frikki erum nýbúin að kaupa okkur hús og verð- um bara að vinna í því eins og ber- serkir,“ sagði Andrea Róbertsdóttir, auglýsingastjóri, létt í lund. „Ég er í málningargallanum núna, að bletta og sparsla og þannig. Við lifum bara á hamborgurum og ruslfæði þessa stundina. Hringdu endilega síðar þegar ég hef eitthvað áhugavert að segja þér.“ Nei, veistu, mér finnst þetta alveg kjörið, má égbirta þetta? „Jú, ég býst við því. Ef þú vilt. Og þú ert náttúrulega með eld- gamla og hallærislega mynd líka...“ Nei, er það nokkuð? spurt... Ef þú fengir að ferðast í tíma og rúmi, hvert myndir þú þá fara? Öskar Jónasson, kvikmyndagerðarmaður „Ég myndi vilja fara austur á land, þar sem góða veðrið er. Kannski fyrir svona tólf hundruð árum, áður en Norsararnir fóru að streyma hingað. Ekki það að mér sé illa við Austfirðinga. Það væri bara gott að sleppa við að borga tjaldstæðið.“ Oghitta munkana? „Já, jafnvel. Voru þeir ekki þar um þetta leyti? Það væri að minnsta kosti allt í lagi að hafa þá ef maður þyrfti að kaupa mjólk og svoleiðis. Annars myndi maður náttúrulega bara veiða í ánum og reyna að ná sér í eitt og eitt hreindýr. Nóg af timbri og ókeypis í allar laxveiðiárnar. Maður yrði þá líklega að hafa með sér svolítið af veiðarfærum, laxaflugum og svoleiðis. Væri þetta ekki miði fram og til baka?“ " Jújú, báðar leiðir. „Já, ætli þetta myndu ekki verða svona tvær vikur. I lok júlí. Ég myndi að sjálfsögðu taka frúna, Evu Maríu. Er samt ekki alveg viss um hvort henni myndi líka sjoppuleysið. Ég þarf að ræða þetta við hana fyrst, áð- ur en við leggjum af stað. Ætli veðrið hafi verið svona gott þá?“ Já, örugglega. Betra ef eitthvað er. Skjólsœlt og gott í Hallorms- staðaskógi. „Já, hann var líklega út um allt þá. Lagarfljótsormurinn hefur víst allt- af verið þarna býst ég við. Ætli ég myndi ekki taka með mér fjallahjól. Valda fornleifafræðingunum okkar smá heilabrotum þegar einhvers staðar niðri á steinaldarlaginu væri pedali... og sprungið dekk.“

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.