Helgarpósturinn - 17.07.1997, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 17.07.1997, Blaðsíða 24
 Velkomin um borö arferjuna Baldur Mmmsmm Frá Stykkishólmi kl. 10.00 &16.30 Frá Brjánslæk kl. 13.00 & 19.30 Símar: 438-1120 Stykkishólmi 456-2020 Brjánslæk Fax: 438-1093 Stykkishólmi 17.JÚU 1997 28. TBL. 4. ÁRG. VERÐ 250 KR. Morgunblaðið heldur yfirburöastöðu sinni á blaðamarkaðnum. Sam- kvæmt upplagsettirliti Verslunarráðsins var meðaltalssala blaðsins á fyrstu sex mánuðum þessa árs nær óbreytt frá sama timabili í fyrra, liölega 53.200 ein- tök á dag. Morgunblaösmenn eru hins vegar ekki jafnánægöir meö þróunina á auglýsingamarkaðnum. Fasteignaauglýs- ingar hafa í áratugi verið blaðinu drjúg tekjulind en Fasteignablaðið hefur stöð- ugt sótt í sig veðrið og bætt jafnt og þétt við sig auglýsingum á kostnað Morgun- blaðsins. Núna stendur til að Fasteigna- blaðið komi út aðra hverja viku, í stað mánaðarlega, og taki upp samstarf við Félag fasteignasala og ekki verður það til aö kæta Morgunblaðsmenn... Ríkissaksóknari hefur af- greitt ósk Jóns Ólafsson- ar, stjórnarformanns Stöðuar 2, um rannsókn vegna umfjöll- unar Helgarpóstsins um stóra fikniefna- málið. Jón Eriendsson, lögfræðingur hjá ríkissaksóknara, skrifaði Jóni bréf fyrir síð- ustu helgi þar sem honum var kynnt niður- staða embættisins. Jón Ólafsson hefur ekki látið Stöð 2 segja frá svari rikissak- sóknara og má af þvf draga þá ályktun að hann hafi ekki verið yfir sig ánægður... Hallvarður Einvarðsson rikissaksókn- ari er á leið úr embætti þótt óvíst sé um hvernig eftirlaunagreiðsl- um til hans veröi háttaö. Þeir tveir sem llklegastir eru til að berjast um embættið eru Bogi Nilsson, nýráðinn rikis- lögreglustjóri, og Eiríkur Tómasson, prófessorf lagadeild... * Utvarpið skýrði frá því á fimmtudag í sfðustu viku að lögmannafélagið hygðist leita álits Samkeppnisstofnunar á samkeppni lagaprófessora við Fláskóla ís- lands viö lögmenn úti í bæ. Lagaprófess- orarnir taka aö sér aö vinna álitsgerðir rétt eins og praktfserandi lögmenn úti f bæ en álitsgerðir þeirra njóta hærra álits vegna þess að þær kallast gerðar á veg- um Lagastofnunar Fláskólans. Helgar- pósturinn hafði reyndar haft veður af þvf fyrr I vikunni að þetta stæði til og hafði samband við Sigurmar K. Albertsson, formann lögmannafélagsins, til aö fá fréttina staðfesta. Sigurmar virtist koma af flöllum og kvað blaðamann vera að segja sér fréttir. Flér á HP ætlum við ekki að erfa þessa ósannsögli við formanninn en bföum eftir niðurstöðunni f þessari deilu lögmanna og lagakennara. Fari lög- mannafélagið með sigur af hólmi væntum við þess aö sigurinn veröi kenndur við for- mann lögmannafélagsins, Sigurmar K. Al- bertsson, og nefndur Sigurmark Al- berts... Enn eru ekki fengin úrslit f meirihluta- málum f Flafnarfirði en sviptingar tals- veröar. Arni Hjörieifsson bæjarfulltrúi stendur sem fastast með Ing- vari Viktorssyni f þvi að halda áfram núverandi sam- starfi. Sumir fylgismenn Ing- vars höfðu þó á orði f gær- kvöldi að Árni heföi skotið sjálfan sig f fótinn þegar hann viöhafði þau ummæli um Guðmund Árna að hann ætlaði sem frelsandi engill aö sameina vinstrimenn, fyrst í Hafnarfirði og sfðan á lands- vfsu. Með þessum ummælum telja menn hætt við að Árni hafi fengið Guðmund nafna sinn svo harkalega upp á móti sér aö áframhaldandi setu hans f bæjarstjðrn eftir næstu kosningar kunni aö vera hætta búin, enda Guð- mundur Árni nokkuð óumdeildur leiðtogi Hafnarfjarðarkrata... Urskurður Hæstaréttar f endurupptöku- málinu hefur mikiö verið ræddur manna á meðal og er reyndar fullmikiö sagt að sitt sýnist hverjum, því allur al- menningur virðist á þeirri skoðun að rétt- urinn hafi komist aö skakkri niðurstöðu og þvf fari fjarri aö réttlætinu hafi veriö fullnægt. Sumir vilja orða þaö svo aö úr- skurður Hæstaréttar hafl ekki verið rétt- læti, heldur öllu fremur látalæti... Annars er margt skrýtið f þessum úr- skurði Hæstaréttar. í úrskurðinum sjálfum koma meira að segja fram ný gögn umfram þau sem Sævar Ciesielski og Ragnar Aðalsteinsson gátu lagt fram. Hæstiréttur fékk sem sagt aðgang að plaggi sem lengi hafði farið mjög hljótt, enda ekki íslenskum stjórnvöldum til vegsauka. Hér var um aö ræöa rannsókn Eínlit 1 frottébaðhandklæði | Mjúkt og notalegt 100% bómullarfrotté. a Fæst í mörgum fallegum litum. [\ sm: Sumarsæng j Margir fallegir litir og munstur. Fyllt með l mjúkum polyestertrefjum. Þolir vélarþvott. \ Stærð 135x200 sm. Holtagöröum v/Holtaveg 104 Fieykjavfk 588 7499 Reykjavikurvegl 72 220 Hafnarijöröur 565 5560 Badhandklæði 65x130sm: 299, af tréhúsgögnum, plasthúsgögnum, sessum fyrir sólstála og grlllum! sem Steingrimur Gautur Kristjánsson setudómari vann og fjallaöi um viöurlög við agabrotum f Síðumúlafangelsi. Stein- grímur Gautur tók skýrslu af yfirmanni Siöumúlafangelsis f október 1976. i þessari skýrslu lýsti Gunnar Guðmunds- son því yfir aö hann teldi engar reglur gilda um Síöumúla- fangelsiö nema þær sem hann setti sjálfur. í samræmi við þetta taldi Gunnar sig f fullum rétti meö að setja fanga í hand- og fótjárn og strekkja þá á klefagólfið... essi ummæli Gunnars Guðmundssonar yfirfangavarðar og raunar framkoma hans f garð fanganna minna óneitanlega nokkuð á bandariskan kollega hans sem síðustu vikur hefúr verið nokkuö f fréttum á íslandi. Hér er átt við Joe Arpajo, fangelsisstjóra f Maricoba-sýslu í Arizona, en hann leggur höf- uðáherslu á að niöurlægja fanga sína. Héraösdómur Reykjavfk- ur taldi ekki forsvaranlegt að framselja Hanestijónin f hend- umar á slikum manni. En varðandi Gunnar Guömundsson og aðferöir hans f Sfðumúlafangelsinu þá sendi sjálft dómsmála- ráðuneytið frá sér bréf til rikissaksóknara þar sem þvf var lýst yfir að agaviöurlög Gunnars væru ekki heppileg en ráðuneytið vildi þó ekki aö svo stöddu leggja bann viö þeim... I

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.