Alþýðublaðið - 02.04.1971, Qupperneq 11
ÝMISLEGT
□ Það var austur á landi að
hreppsnefnd ein hélt fund ásamt
sóknarprestinum og var umræðu
efnið drykkjumaður sem skapaði
hin mestu vandræði. Einn fund-
armanna stakk upp á því að
prófa að taka manninn tii bæna-
stundar. I>á gall við í prestinum:
— Það gengur nú enginn hégómi
við þennan mann. —
KVENFÉLAG IIALLGRÍMS -
KIRKJU
'heldur aðalfund mármidaginn
5. apríl kl. 8,30. — Venju-
leg aðalfumdairstörf. Kaffi.
KVENFÉLAG LAUGARNESSr
SÓKNAR.
30 ára afmælishóf félagsins
verður 6. apríl að Hótel Sögu.
Átthagasal. Tilkynnið þátt-
töku í síma 32060 hjá Ástu eða
32948 hjá Katrínu.
Minningarspjöld Flugbjörgun-
arsveitarinnar, fást á eftirtöldum
stöðum: Bók'abúð Braga Bryn-
jólfssonar, Hafnarstræti. Mimn-
urði Þorsteinissyni 32060. Sigurði
Waage 34527. Magnúsi Þórar-
innssyni 37407. St'efáni Bjarina-
syni 37392..
Mlnningarkort Styrktarfélags
vangefinna fóst á eftirtöldum
etöðum; Bókabúð æskunnar, —
Bókabúð Snæbjarnar, Verzlun-
inni Iílín, Skólavörðustíg 18, —
Minningabúðinni Laugavegi 56,
Árbæjarblóminu, Rofabæ 7 og á
ekrifstofu félagsins Laugavegi 11
eími 15941.
Flugbjörgunarsveitin: Tilkynn-
Ir. Minningarkortin fást á eftir-
töldum stöðum: Hjá Sigurði Þor-
eteinssyni sími 32060. Sigurði
Waage sími 34527. Magnúsi Þór-
arinasyni sími 37407. Stefáni
Bjarnasyni sími 37392. Minning-
arbúðinni Laugaveg 24.
BRAUÐHÚSIÐ
Brauðhús — Steikhús
Laugavegi 126
við Hlemmtorg
VeizlubrauS — Cocktailsnittur
Kaffisnittur — Brauðtertur
Otbúum einnig köld borð í veizlur
og allskonar smárétti.
BRAUÐHÚSIÐ
S'ími 24631
Strandganiga:
Kúagerði—Strau'msvík.
Lagt af stað (kl. 9,30 frá Umferða-
miðstöðinni (B.S.Í.)
Feröafélag fslands
Bretarnir berjast í djöfulmóð. Ýmist einir, tveir og tveir
eða þrír og þrír saman. Sumir ganga berserksgang. Þeir slá
og sparka, nota byssuskefti og byssu, handsprengjur, allt...
Og milli sprenginganna heyrast kvalaóp hinna særðu ...
Walter hefur fleygt sér niður og sett höfuðið niður á milli
herðanna. Þetta kemur mér alls ekkert við, hugsar hann.
Getum við ekki gert með okkur samning? Ég geri ekkert
og þið ekki heldur! Hvern fjandann kemur okkur þetta við,
kæru vinir? Hvers vegna að sækjast eftir að slátra hver
öðrum?
Þá lyftir hann riddarabýssunni. Nokkrum metrum fyrir
framan hann grillir í þrjá Breta sem nálgast hljóðlaust,
skref fyrir skref.
Það stríkkar á fingrinum sem heldur um gikkinn. Walter
þrýstir sér niður. Bretarnir nema staðar og horfa í aðra átt.
Langi Maier hefur ekki tekið eftir þeim, athygli hans bein-
ist að prófessornum, sem er nokkrum metrum fyrir fram-
an hann. Stahl snýr bakinu í hann og tekur ekki eftir að
Maier hnígur niður án þess að gefa hljóð frá sér. Breti
hefur stokkið á hann aftan frá og slegið hann með byssu-
skeftinu.
Þá skýtur Walter. Einu sinni, tvisvar. Skuggarnir sam-
einast jörðinni. Hann skríður nokkra metra áfram, hlustar,
bíður ... Hvað er nú þetta? Hvað hafið þið gert af Maier?
Hinn óskipulegi bardagi stendur þar til dagar. Það er
hvergi nein regla. Enginn veit hvort hann hefur sigrað eða
tapað. Engin þreytumerki sjást á hermönnunum.
Karsten höfuðsmaður hniprar sig saman niður í skurði.
Hann er rispaður í andlitinu eftir hníf. Brezkur aðstoðar-
undirforingi, sem bar hnífinn, situr við hlið hans sem fangi,
Með honum eru sjö aðrir Bretar.
Brasch tilkynnir:
„17 fallnir, 1 saknað, 9 særðir“.
„Er það allt og sumt?“ spyr höfuðsmaðurinn alvarlegur,
en það er ekki laust við háð í röddinni. Hann virðir Bret-
ana fyrir sér — háir, ljóshærðir menn. Þeir reykja vindlinga
og rabba saman. Þeir líta á fangelsunina sem dálítið hlé á
bardaganum. Þeir eru ekki í vafa um að félagar þeirra
muni koma bráðlega og frelsa þá.
„Já, það er að minnsta kosti huggun“, segir brezki að-*
stoðarundirforinginn á ensku.
Karsten lítur undrandi á hann.
„Hvað er huggun?“
„Að þið skulið vera fallhlífahermenn. Það er frekar hægt
að afsaka, þegar maður er tekinn til fanga af þannig mönn-
um. Maður getur sagt frá því heima, án þess að skamnÞ
ast sín“.
Bretarnir hafa te með sér og spyrja hvort þeir geti fengið
svolítið heitt vatn. Þeir virðast vera orðnir hagvanir, þó
þeir séu rétt við fremstu víglínu.
„Good fight“, segir brezki aðstoðarundirforinginn.
Karsten kinkar kolli, sárgramur. Góður bardagi, bjálf-
inn þinn, hugsar hann. Sautján fallnir í okkar herdeild, og
ég get sjálfsagt ekki talið hvað eru margir fallnir af ykkar
mönnum.
Hann er alltaf að gefa föngunum auga og honum finnst
allt í einu, að þessir menn séu sama manngerð og hans eig-t
in rnenn. Þetta eru menn með félagsanda og líta á allt frá
sjónarmiði íþróttamanns — þangað til það rennur upp fyr-i
ir þeim einn góðan veðurdag, að stríð er ekki íþrótt, heldur
skipulögð morð.
„Sorry“, svarar Karsten. „Bráðlega getum við drukkið
saman te, en við verðum fyrst að hugsa svolítið um félaga
ykkar“.
Bretarnir hlæja. Þeim geðjast vel að þessum þýzka yfir-i
manni. Það er verst að hann skuli vera einn af óvinunum.
Gagnárás í dögun. Karsten ætlar að koma í'veg fyrir að
Bretarnir komi sér vel fyrir á brúnni. En þeir eru þegar
búnir að tryggja sér hana og búnir að gera skurði sitt hvoru
megin. Og það er ekki laust, sem skrattinn heldur. Lög falL
hlífahermannanna eru alþjóðalög ...
Kúlnaregnið dembist yfir árásarherdeildina. Hér skortiijj
ekkert, sem þarf til hernaðar og Bandamenn hafa skipulagt
vörnina jafn vel og herdeild Karstens gerði á Krít, á sínum
tíma.
Langi Maier, sem er þeirra eini fangi, hniprar sig sam-;
an í vélbyssuhreiðri, hrósar brezku vindlingunum og bíð-1
ur ... Þeir fylla vasa hans af súkkulaði, gefa honum romm
Húsbruni í Vestm.eyjum
□ í gærkvöldi brann þriggja
bæða hús í eigu'Hrað'frystistöðv-
airinnar í Vestmannaeyjum, en
allir Sem í því v'oiriu g>átu forðað
sér og hlu'tu nokkrir þeii'ra að-
eins simlávæigiltegar skrámur,
Hús þietta heitir Dagsbrún og
var notað sem íbúðir fyrir starfs
’fólik jlriaí|íry'stiBtc^'vaxmniar iog
bjuggu þar nú 16 manns, seini
missti leignir sínar því engu varð
bjangað.
Eldisins varð fyrst vart í stiga-
gangi á mið'hæð 'húsisins og tókst
fólkinu á iannarri og 'þriðju hæð
að bjarga sér 'út á köðlbm. Logn
var þegar eldiurimn brautzt út og
má teC'ja það Ilán í 010011, því að
fjeiri timburhús standa þarna
mjög náíæigt og má tél'ja víst að
eld'urinn hefðá .borizt í þau, ef
'einhver vindiur hefði verið.
Slö'kkvistarfið gekk v,el, en elds
upptök enu enn ókunn.
Deildarhjúkrunarkona óskast
Staða deilclarhjúkrunaúkonu við Kl'epps-
spítailann er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
5'tarfsmanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
m'ermtu'n og fyrri störf 'sendist stjórnarnefnd
rfkiiííspífa'Tanna, Klappairs'tílg 26, fyrir |I0.
apríl n.k. | "•
ReykjaVfk, 1. apríi 1971.
Skrifsfofa rflíisspítalanna
Tökum að okkur
brevtingar, viðgerðir og húsbyggingar
Vönduö vinna
Upplýsingar í síma 18892.
STARF
áfengisvarnaráðunautar ríkisins er l'aust til
uimsöknar.
Laun amkvæmt 21. launaflökki í kjarasamn-
ingi starfsmanna ríkisins.
Um'sóknir, ásamt upp'lýsingum um menntun
■og fyrri störf, sendist 'Weilbrigðis- og trygg-
ingamála ráðuneytinu fyrir 1. maí n.k.
Reykjavík, 31. marz 1971
Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytið
FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 1971 11