Alþýðublaðið - 03.06.1971, Qupperneq 8
ÆIÍPMÐIÍi
IUKÍÍÍE)
Útg. AlþýSuflokkuriim
F.ifstjóri:
Sighv. Björgvinsson (áb.)
//
STEFNAN
//
Einar Ágústssyni varð tíðrætt um
„stefnu“ Framsóknarflokksins í sjónvarp
inu. Hann hefur sem sé fundið fyr-
ir því, eins og fleiri framsóknarmenn, að
fólki þyki djúpt á þeirri stefnu. Þvi
varði hann mestöllum ræðutíma sínum
í það eitt að reyna að sannfæra fólk um,
að Framsóknarflokkurinn hefði stefnu.
Það eru aum örlög fyrir forystumenn
stjórnmálaflokks að þurfa að verja öll-
um sínum dýrmæta ræðutíma í sjón-
varpi til þess eins að reyna að koma því
á framfæri við kjósendur, að flokkur
inn hefði eitthvað til málanna að leggja.
Einar Ágústss. sagði eitthvað á þá lund,
að andstæðingar Framsóknarflokks-
ins hefðu borið hann þeim sökum að
hann væri stefnulaus. Vitanlega hafa
þeir gert það og ekki að ósekju. En það
voru ekki stjórnmálalegir andstæðingar
Framsóknarflokksins, sem fyrstir komu
því inn hjá almenningi í landinu, að
Framsóknarflokkurinn væri reikull í ráð
inu. Það voru framsóknarmenn sjálfir,
sem eiga heiðurinn af því.
Einar Ágústsson man ef til vill ekki,
hvernig hann og fleiri framsóknarmenn
gerðu þetta. Alþýðublaðið skal þá rifja
það upp.
í næst síðustu kosningum gengu Fram
sóknarmenn grunnreifir til leiks. Þá
höfðu þeir fundið upp nýja „stefnu“.
Hana nefndu þeir „hina leiðina“. Það
slagorð glumdi daglega í eyrum kjós-
enda alla kosningabaráttuna út í gegn.En
hver var þessi „stefna“. Hver var „hin
leiðin“. Man nokkur eftir því, að Fram-
sóknarflokkurinn hafi getað komizt svo
langt að skýra þá „stefnu“ sína út? Nei,
enda þess vart að vænta. Hann komst
aldrei lengra, en að gefa „stefnunni“
nafn.
I kosningunum þar á eftir lögðu Fram
sóknarmenn frá landi undir nýjum gunn
fána. Þeir höfðu fundið enn eitt nýtt
„stefnunafn“. Nú hét „stefnan“ ekki
lengur „hin leiðin“, heldur „þriðja leið-
in“. Það slagorð klingdi í eyrum þjóðar-
innar alla kosningabaráttuna. En hver
var þessi „þriðja leið“? Man nokkur
það? Auðvitað ekki, því hún var aldrei
skýrð! Framsóknarflokkurinn komst
aldrei lengra, en að nafninu einu.
Fyrir rösku ári söðlaði flokkurinn svo
enn einu sinni um. Einkennisorð nýj-
ustu „stefnunnar“ voru hin landsfleygu
ummæli Ólafs Jóhannessonar: „Fram-
sóknarflokkurinn segir hvorki já, já né
nei, nei“. Þessi stefna var svo ítrekuð á
flokksþingi Framsóknar í vor og þar var
henni svo lýst af kosningastjóra flokks-
ins í Reykjavík, að hún væri opin í báða
enda!
Svo eru Framsóknarmenn að áfellast
þjóðina fyrir að saka. flokkinn um stefnu'
leysi! Hverjir hafa lagt meira .af mörk-
unura til þess að almenningur myndaði
sér þá rökstuddu og eðlilegu skoðun á
flokknum en einmitt framsóknarforkólf
arnir sjálfir?
□ Jónína M. Guðjónsdóttir
formaffur verkakvennafélagrs-
ins Framsóknar, skipar 4. sæt-
ið á framboðslista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík við þess-
ar kosning'ar. Jónína fæddist
□ Sigurður E. Guðmundsson
skrifstofustjóri skipar 3. sætið
á lista Alþýðuflokksins í
Reykjavík. Sigurður fæddist í
Reykjavík 18. jmaí 1932 og
eru foreldrar hans Guðmundur
Kristinsson verkamaður þar
og kona hans Guðrún Á. Eli-
mundardóttir. Sigurður stund
aði nám við Menntaskólann í
Reykjavík og Iauk baðan stúd
entsprófi 1952. Eftir það hóf
hann nám við Iláskóia íslands,
en hætti því fljótlega og gerð-
2. ágúst 1899, að Hörgslandi á
Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu.
Foreldrar hennar voru Guðrún
Guð,mundsdóttir og Guðjón
Benediktsson. Jónína fluttist
til Reykjavíkur 1908, og starf
aði þar allmörg ár sem verka
kona, en vann síðar skrifstofu
störf, og starfar nú hjá Trygg
ingastofnun ríkisins.
Jónína gekk í verkakvenna
félagið Framsókn 1917, og tók
fyrst sæti í stjórn bess 1934
sem varafcrmaður. Hún liefur
verið formaður félagsins síðan
1962. Á þingum Alþýð'usam-
bands íslands hefur hún setið
sem fulltrúi síðan 1932, og í
miðstjórn ASÍ hefur hún átt
sæti síðan 1968. Jónína gekk í
Alþýðuflokkinn 1932 og er með
al stofnenda Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur.
ist blaðamaður við Alþýðu-
blaðið. Við Alþýðublaðið starf
aði hanni til 1959, að hann var
ráðinn framkvæmdastjóri Al-
þýðuflokksins. 1965 var hann
ráffinn skrifstofustjóri Húsnæð
ismálastofnunar ríkisins, og
framkvæmdastjóri sömu stofn
unar hefur liann verið frá síð-
ustu áraimótum.
Sigurður tók nokkurn þátt
í málefnum stúdenta á náms-
árum sínum og átti sæti í
Stúdentaráði 1953—54. Hann
gekk ungur að árum í Alþýðu
flokkinn, og var formaður Sam
bands ungra jafnaffarmanna
1962 — 1968, en í miffstjóm Al-
þýffuflokksins hefur hann átt
sæti aff mestu óslitið síðan
1952. Þá var hann formaður
fra,mkvæmdanefndar Herferð-
ar gegn hungri 1965—79, og
varaformaður húsnæðismála-
stjómar 1966—70. Hann hefur
einnig verið ritstjóri tímarits
ins Áfanga. Sigurffur á nú sæti
í stjórn Alþýffuflokksfélags
Reykjavíkur.
Eiginkona Sigurðar er Aldís
P. Benediktsdóttir. •
OPIÐ BRÉF 7/1 SVÖV
□ Punfframbjóffandi Alþvðu-
bandalagsins, Svava Jakobs-
dóttir, talar mikiff um jafnrétt-
ismál karla og kvenna. Er ekki
aff efa að konan er mjög áhuga
söm um jafnréttismálin, enfla
hefiir hún skrifað um þau
leikrit. Það er í sjálfu sér á-
gætt og virðingarvert, aff fí-.Ma
í leikritum u,m samtímavanda-
mál, en varla leysast þair ";ð
það. Tæplega verffa leikrit
Svövu Jakobsdóttur talin valda
miklum kaflaskiptum í »ögu
jafnréttisbaráttu kvenna á ís-
Iandi. Þar þarf aðgerðir, en
ekki orð.
Svava telur sig fylgja AHý'u
bandalaginu vegna þess, hve
það hafi mikinn áhuga á jafn
réttismálum kynjanna. Hver er
sá? Þaff er rétt, að Þjóðvilia-
klíkan, sem AlþýðubandaKg-
inu st.jórnar, liefur haft nm
þau mál fögur orð. En hvar
eru affgerðirnar?
Frú Auður
iinálaráðherra,
um efndir AIJ
í sjónvarpsum
kvöld. Hún vi
félagsins. sem
Lúðvík og kon
stjórnað um f
á f jö.yíum og i
ir u«i öll mál.
indamálum k'
þeim bæ, — j
Ilvað hefur A
bar afrekað i
kvenna?
Jú, þar er
Það er starfr
mánuðina þr.i:
ar konur komi
fvrir tíma úr
uði ársins þui
úti. Og hvað
mánuöina. þe
lokað? Gatan,
vel!
Mikil stórv
Að Grensásvegi 12 í Reykjavft er kosningask
Alþýðuflokksins fyrir .Árbæiarhverfi, Lar
hverfi, Rreiðagerðishverfi og Álftarmýrarhvi
Þessi skrifstoía er opin daglega frá kl. 17 til
veitir Lars Jakobsson henni forstöðu. Lars sa
þýðublaðinu í bær, að talsvert væri iað gera ;
stofunni, enda væri hún fyrir stór og f jölmenn
Þetta væri svipað og venjulega, og sér virti
verður áhugi vera fyrir málefnum Alþýðufli
í þessum kosningum. — Myndin var tekin «
ingaskrifstofunni við Grensásveg í gær.
8 Fimmtudagur 3. júní 1971