Alþýðublaðið - 22.07.1971, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 22.07.1971, Qupperneq 3
HEIMSPEKIDEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS FYRIRLESARASTAÐAN OKKUR OVIDKOMANDI □ ATþýðublaðinu hefur borizt 1 yfirlýsing frá Heimspekideild Háskóla íslands. Efni yfirlýsing ari-nnar er samþykkt, sem gerð var á fundi deildarinnar 20. júlí sJ. vegna ráðningar í starf fyrir lesara í íslenzkum nútímabók- menntum við Háskólann, en í það starf var ráðinn Guðmund- ur Gíslason Hagalín, rithöfund- ur, ein's og skýrt heíur verið frá í fréttum. í yfirlýsingunni eru rakin bréfaskipti milli deildai'innar og menntamálaráðuneytisins vegna fyrirlesarastöðu þessarar og kemur þar m.a. fram, að deild in hafði iagt til, að í stað stöðu fyrirlesara í íslenzkum nútíma- bókmenntum yrði stofnuð staða gistiprófessors við rannsóknar-r og fræðslustofnun í bókmennta- fræði við heimspekideildina og dr. fil. Peter Hallberg í Gauta- borg yrði boðinn starfinn. í lok yfirlýsingarinnar segir svo: „Við meðferð málsins hefur menntamálaráðhenra virt að vettugi allar tillögur Heimspeki- deildar og hefur ekki heldur far ið eftir því, sem ha.nn taldi ,,eðlilegt“ í þréfinu frá 11. marz. Vegna þessa vill Heimspeki- deild taka fram: Deildin telur, að við stofnun fyrrnetfnds fyririesarastarfs hafi menntamálaráðherra sniðgengið gildandi lög um Háskóla íslands og við veitingu starfsins haíi hann jafnframt brotið þær regl- ur, er hingað til hafa verið virt- nr við mat á hæfni ksetrnnara við Háskólann, þar sem hvorki hef- ur yertð leitað álits akademiskr ar dómnefndar né Heimspeki- deildar. Af þessum sökum lýsir Heim- Framh. á bls. 8. IÐ VIÐ HOFUNDA segir Gylfi Gislason □ Alþýðúblaðið hafði í gær tal af fyrrverandi menntamála- ráðherra, Gylfa Þ. Gíslasyni, en ékvörðunin um stofnun fyrir- lesarastöðunnar var tekin í ráð- herratíð hans, og spurðist fyrir um mál þetta og nánari máls- atvik. — Upphaf þessa máls er það, sagði Gylfi, að síðasta þing ís- lenzkra rithöf- unda gerði ein- rómia ályktun um að óska eft- ir þvi, að kom- ið yrði á fót við HejrrJ jpJákildei’ld Háskóla íslands gistiprófessorsembætti í íslenzk- um nútíma bókmenntum, sem ætlað væri rithöfundi eða bók- menntafræðingi, og væri ekki um íast embætti að ræða, held- ur ráðið í það frá ári til árs. ■Mér fannst þthsi hugmynd. mjög athyglisverð. Hins vegar taldi ég ekki rétt að nota heitið gistipróf.essor um slíkt starf, þar eð þetta orð er við erlenda há- skóla notað í nokku ðannarri merkingu, en hér um ræðir. Ég taldi því réttara að nota starfs- heitið fyrhiesari. Að tillögu mini samþykkti svo þáverandi ríkllsstjórn (heimild til handa menntamálaráðuneytinu að aug lýsa slíkt starf og skyldi fyrir- lesarinn ráðinn til eins árs og njóta prófassortslauna og halda fyrirlestra um íslenzkar nútíma- bókmenntir fyrir almenning og stúdenta. Jafnframt hafði ég hugsað mér, að þriggja manna nefnd, —einn frá rithöfunda- sambandinu, sem átti hugmynd- ina að málinu, einn frá h-eim- spekideild og sá þriðji frá menntamálaráðuneytinu —, skyldi athuga. umsóknir þær, sem bærust um starfið og gera tillögu um það til ráðherra, hver starfið skyidi hljóta. Áður en ráðuneytið aðhafðist nokkuð í málinu ræddi ég bað við stjórn rithöfundasamband.i- Frarnh. á bls, 8. AN I ENNTA- ALLIR sanngjarnir menn meta og viðurkenna hið um- fangsmikla uppbyggúngar- starf í mennta- og menning- armálum þjóðarinnar, sem unnið var undir forustu Alþýðuflokksins, í ráðunevti Gylfa Þ. Gíslasonar. Stór- kortlegar framkvæmdir á æðri sem lægri skólasíigum tala þar skýlausu máli; þegar gengið er um Ilá- skólalóðina blasir þar við hver nýbyggingin á fætur annarri, og þetta á einnig við annar staðar í skól- kerfinu. Enginn fullnaðar- sigur er þó unninn, enda er hann ekki til; fullkomið skólakerfi er það sem stöð- ugt breytist og endurnýjar sig. Þess ber þó að geta, að réttu, að hið mikla uppbygg- ingarstart hefði ekki verið liægt að vinna nema með heiðarlegu og einlægu sam- spili fjármálaráðuneiytis og menntamálaráðuneytis. Á þetta er vert að minna nýja ríkisstjórn. Farsæl stjórnun En starf menntamálaráð- herra lýtur að fleiru. Það má sennilega telja á fingrum ann arrar handar þær embætta- veitingar í ráðherratíð Gylfa Þ. Gísiasonar, sem teljandi úlfuð vöktu. Það er víst, að í framtíðinni verður það talið mfkið afnek hjá fembættis- manni sem nær daglega þarf að skipa í stöður. Ennfremur, þegar mjög minni háttar mannlegum erjum sleppir, þá hefur samstarf menntamála- ráðuncytisins og allra þeirra stofnana, sem undir það lieyra, verið næstum því ótrú lpga gott. Þetta er atburða- rás, sem erfitt er að gera sér grein fyrir meðan hún á sér stað, en betra að gera sér grein fvrir heildarmyndinni, þegar hún lieyrir fortiðinni til. Um þetta bera vitni þeir- fjölmörgu sem Ieituðu til menntamálaráðuneytisins á þeim 15 árum sem Gylfi Þ. Gíslason var þar ráðherra, og ennfremur þeir, sem fylgzt hafa með gangi mála. SKrumlaus maður Nýi menntamálaráðherr- ann, Magnús Torfi Ólafssou, er sennilcga einhver jákvæð- asti aðilinn í nýju ríkisstjói'n inni, skrumlaus maður sem getið hefur sér góðan orðstír í fyrra starfi. í starfi >nun liann fljótlega kynnast af eig in raun sannleiksgildi þess sem hér hefur verið sagt. Og hann mun finna hversu gíf- urlega umfangsmikið starf hefur verið unnið í mennta- málaráðuneytinu á undán- förnum árum, þannig að á næstunni mun Magnús Toríi sennilega eiga nóg með að framfylgja þeim áætlunum, sem gerðar voru í tíð fyrrf stjórnar. Það væri göíugt takmark Framh. á bls. 8. □ Eins og áður hefur komið fram í fréttum standa nú vfir samningaviðræður um kjör togai'a • j ómanna. Samningar þeirra urðu lausir liO. júlí s.l. og hafa síðan. verið haldnir tveir samningafundir. AJþýðublaðið hafði- í gær tal af Jóni Sigurðssyni, formanni Sijómannasambands íslands og spurðist fyrir um gang samn- ingaviðræðnanna. — Ég á ekki von á því, að neitt gerist í samningamálunum á næstu dögum, sagði Jón. Við höfum lagt fram okkar krofur, en útvegsmenn eru enn ekki farnir að koma fram með nein. tilboð. Það hefur þvi lítið gerzt á þeim tveim fundum, sem haldnir hafa verið, en til þriðja fundarins verður væntanlega boðað á næstunni. Jón sagði, að kröfur samninga nefndar togarasjómannanna sam svöruðu um 23% kauphækkun að meðaltali, og væri þá tekið tillit til allra breytinga til hækk uin.ar á einstökuim liðum samn- inganna, sem kröfur hefðu ver- ið gerðar um. Aðspurður hvert væri það helzta nýmæli, is'ern fælist í kröf- um togaramanna sagði Jón, að þar væri gert ráð fyrir nokkri breytingu á samningsákvæðun- um um skiptakjöi'. í núverandi kjarasamningum er hlutur mannskapsins reiknað ur 17% miðað við 30 staða skipti, og eru í þeirri tölu allir skipsmenn, — yfir- og undir- menn. Við geruin nú kröfu til breytinga hér á, þannig að hlut- fal'lstalan, lækki í 15%, en í stað þess að skipta í 30 staði, eins og nú er gert, verði skiptatalan 2.3. Er þá aðeins miðað við þann : hluta skipshafnarinnar, sem við | semjum fyrir, — þ.e.a.s. undir- |mennina, en yfirmenn teknir út úr skiptatölunni í samnigum . oikkar. Er sú breyting vítaskuid ! eðlileg, því við semjum jú að- ’ eins fyrir okkar umbjóðendur, — undirmennina á togaraflot- i anum. Hinir hafa sín eigin félög. I Jón sagði enn fremur, að ekk- ert hefði á því borið í þessum | samningaviðræð'um, eins og svo I oft áður, að tpgaraeigendur ! vildu, að slakað yrði á vökulög- unum. Þess kröfðust þeir oft ] hér áður fyrr, sagði Jón, og bentu þá á fjölda skipsmanna á ■ bi’.ezkum og þýzkum togurum i samanborið við íslenzka, en við hötfum aldrei viljað fallast á slík ; ar tilslakanir. Pyrir nokkru var j sérstakri nefnd falið, að gera I athuganir a sta rö skipsnafna íslenzkum togurum og tiliögui þar um. Ég átti m.a. sæti i .þess- ari nefnd og skitaðli þar séráliti, þar sem fram kom, að ég teldi, 27—28 manna áhöfn á togara nægjanlega án þess aö það hefði í för með sér nauðsyn nokkra. Framh. á bls. 8. RÆÍT VIÐ JÓN SIGURÐSSON UM OGARÁSAMNINGA Fimmtudagur 22. jú!í 1971 5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.