Alþýðublaðið - 08.09.1971, Page 4

Alþýðublaðið - 08.09.1971, Page 4
□ Bílar stöðvaSir þarsem þeir hljóta að hindra umferðina. □ Hvað urn skellinöðrur? □ Örkuml vara ævilangt, en ekki ökuréttindamissirinn. □ Strætisvagnar of breiðir og akreinar of mjóar. □ Slys þarsem hættan er minnst. REYKVÍKINGUR skiifar: — „Hafa lcigubílstjórar sérréttimli í umferöinni? Mega Þeir hleypa fólki út hvarsem er eöa reyna aö ná sér í farþega þarsem þeir hijóta aö tefja umferðina með því að nema staðar? Mér dettur t. d. í hug fyrir utan Naustið eða í Garðastræti þarsem stræt isvagnar eru alltaf á ferð og lenda oft i sjálfheldu útaf leigu bílum og einkabih',m. Þarf lög- reglan ekki að hafa betra eftir- lit með þessu? Eg sé hana afar sjaldan á þessum stöffum. Eins mætti hún vera aðsópsmeiri i Miðbænum. Þar vaða ölóðir menn oft að borgarbúum að sníkja af þeim aura, en það er ekkí til fyrirmyndar í ferða- mannaborg einsog Reykjavík. ENNFREMUR skrifar Reyk- víkingur: „Bifreiðaslys eru að aukast á þessu landi. Oft er sökin ölæði. Hér er veik að vinna. Lögreglan tekur fyrst til starfa fyrir alvöru þegar slys hefur orðið, en hún setti að vera athafnas?,mari fyrr. Til eru bif- reiðastjórar sem aka á tveimur hjólum um göturnar og finna ekkert athugavert við akstur- inn. Bæði lögreglan og hinn al- menni borgari þurfa að fylgjast vel með þessu. Svo eru það skellinöðrurnar, er ekki kominn tími til að banna þær? Reykja- ingur.“ j ÞAÐ ER engiiu furða þótt menn aki drukknir í Reykjavík, vegna þess að við því eru engin alvarleg viðurlög. Meira að segja það að missa ökuréttindin ævilangt varir ekki nema tvö til þrjú ár. En örkuml sem slík ir .menn valda stundum vara ævilangt. Er ekki rétt að gefa gau,m að því? — Eg vil svo í framhaldi af þessu, úr því ég er farinn að tala um umferðina í Reykjavík, benda á að annaö hvort eru strætisvagnar of breið ir eða akreinar of mjóar. Afar víða á beygjum þurfa þeir tvær akreinar, og rugla þá öllu heila systeminu. Eins eru útskotin har sem þeir nema staðar of mjó, því þótt vagnstjórinn víki ræki Iega inn í útskotið (og vagn- stjórarnir eiga allar þakkir ski] ið fyrir lipurð og færni í starfi) kemst ekki breiður bíll framhjá án Þess að fara yfir akreina-að- greininguna. ÚTLENDINGAR segja mér að þeýn finnist umferðin í Reykja v/k einstaklega regluleg og hæg. Sannast að segja er engin um- ferð í Reykjavfk sem því nafni nefnist í stórborgum. Enda ger ast ekki slys í Reykjavík helzt þarsem liættan er mest, heldur ga gnstætt þarsem hún er minnst. Skortur á aðgæzlu og hirðusemi er kannski helzta or sökin. UM SKELLINÖÐRUR og mót orhjól vil ég líka ræða: Þessi farartæki eru oftast óhæf í borg um sakir hávaða. Mér er ekki fullljóst hvaða reglur gilda um þau í Reykjavík, en annað slag ið ætlar allt um koll að keyra vegna þess að einhver skelli- nöðrugæinn er á ferðinni. Nú er vaxandi skilningur á því að vernda fólk fvrí.r h'Jaða c,g ætti því skC’ ( öðrumállð a.ff vera tekið fyrir ása,mt öðru slíku. SIGVALDI íslenzkur málsháttur KENNARI Kennarastaða er laus til umsóknar við Kópavogshælið. Æskilegt er, að kennarinn hafi menntun á sviði kennslu vangefinna barna, en er þó eklki skilyrði. Foístöðumað' ur hælisins veitir náhari xrpplýsinigar. Umsóknir sendilst stjórnarnefnd ríkisspít- alanna, Eiríksgötu 5, með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, fyrir 22. síept' ember n.k. Reykjavík, 7. septlember 1971. Skrifstofa ríkisspítalanna MAÐURINN SEM ENDURLÍFGAÐI ÞEKKTASTA SKOP BLAÐ VERALDAR BLAÐADAUEINN hefur herj- að eins og fansótt um heim allan, og mörg merk dagblöð orðið honum að bráð. Viku- blöðin hafa ekki heldur slopp- ið við þau ömurlegu örlög, og er bandaríska blaðið, Saturday Evening Post,“ sem stofnað var af sjálfum Benjamín Frank- lín, kannsÖii athyglilsverðaíta , dæmið um það. Brezka skop- blaðið ,,Punch“ hefur og þjáðst af nokkrum lasleika, og yrði litið á það sem þjóðarógæfu ef þetta rit, sem komið hefur út samfellt síðan 1841 og er fyrir löngu orðið fastur þátt- ur í brezku þjóðlifi, hlyti að gefa upp öndina. Því var það, að William Da- vís var til kvaddur — og fyrir kunnáttusama meðhöndlun hans, hefur „Punch“ komizt til heilsu aftur. Þegar það frétt- ist, að Davis ætti að taka við ritstjórn „Punch“, varð mörg- um brezkum að spyrja hver hann væri, þesai William Dav- is. Hints vegatr vatr að Iþví sipiurt í hópi blaðamanna, hvers vegna Davis hefði orðið fyrir valinu. Þar vakti þetta svo mikla furðu, að sumir sem við brezk blöð starfa, umluðu bessa spurningu upp úr svefninum. En það leið ekki á löngu áður en menn hættu að velta þeirri spurningu fyrir sér, því að fyrsta misserið jókst upplag- ið um 8000 eintök vikulega. Slík söluaukning hefur ekki átt sér stað síðustu tvo ára- tugina. Davis er tíundi ritstjór- inn á þessum 129 árum, sem blaðið hefur komið út og ann- ar þeirra, sem ekki hefur verið valinn úr hópi ritstjórnarinn- ar. Hinn var Malcolm Mugga- ridge, sá næsti á undan hon- um, sem hélt því fram að sala blaðsins hefði minnkað vegna þess að skop-höfundamir væru ekki lengur jafn skoplegir og lifið sjálft. „Þá látum við lífið sjálft fá orðið,“ sagði Davis William. „Um aðra lausn er ekki að ræða.“ Sigur Davis byggist ekki eingöngu á óvenjulegri starfs- orku hans og dugnaði, heldur og sérstæðum hæfileikum hans og hæfni til að sjá skoplegu hliðina á mönnum og málefn- um. Og hann hefur ekki mið- að „Punch“ við klúbbana í Lundúnum fyrst og fremst, heldur að það talaði til al- mennings um allt land. t bví skyni fór hann með alla rit- stjórnina í ferðalag til átta horga víðs vegar á Englandi, fyrst og fremst til að ganga af þeirri hjátrú dauðri, að „Punch“ væri hvergi lesið nema í biðstofum tannlækna. Mestan sigur hefur „Punch“ þó unnið meðal háskólanema, þar sem það er meira lesið en nokkurt annað blað, sem ekki kemur út daglega. Eins á með- al ungra og framgjarnra brezkra manna. Prins Charles TÆRASTA HAF í VERÖLDINN! □ Saragossahafið í Vestur-At- lantshafi hefur lengst af verið álitið tærasti sjór í veröldinni, Ný umferðarljós □ Verkfræðingar í Leningrad hafa útbúið umferðarljós með ljómgasi. Ökumenn og vegfar- endur geta séð, hversu langt er, þangað til ljósið breytist. Rautt, gult og grænt Ijós birtast hvert á eftir öðru í 3 gegn-æjum pipum. Þegar gas- ljósið er alveg hjaðnað í einni pípunni. fyllist sú næsta alveg af gasljósi, og þannig koll af kolli. Nýju umferðaljósin eru algerlega sjálfvirk. en nú hefur sovézka rannsókn arskipið Dmitrí’ Mendélejev kollvarpað þeirri kenningu. í Kyrrahafi, suðvestur af Rai-otonga-kóralrifinu, sást 30 m. kringla greinilega á 70 m. dýpi, og er það um 5 metrum dýpra en í Saragossahafinu. Mendélejev, sem er í hnatt- siglingu frá Eystrasalti til VJa- divostok, hefur gert margar sjó mælingar á Atlantshafi frá Af- ríkuströnd til Antillaeyja og' á Kyrrahafi frá Honolulu til Ra- rotonga. Skipið hefur einnig uppgötvað um 4,500 m. hátt neðansjávarfjall norður af Rarotonga, en þar iiefur út- hafsbotninn verið álitinn til- tölulega sléttur fram til þessa. Það er álitið go-myndun — og gæti hafa komið upp við nýleg eldsumbrot. er til dæmis einn af aðdáend- um , ,Punch“ síðan það tók stakkaskiptunum, en ritstjórn þess hefur flutt af gamla staðn- um í nýtt húsnæði, neðar við Fleetstræti, og eru það hinir nýju útgefendur, United News- papers, sem eiga þá byggingu. Davis, sem ekki er neraa 37 ára, og yngsti ritstjórinn í sögu „Punch“„ er fæddur í Hannov- er 1933, og stundaði nám við háTkóla í Lundúnum. Hann hóf störf sem blaðamaður 18 ára og varð, að nokkrum reynsluárum liðnum, fastur starfsmaður „Financial Times“. William Davis Þegar hann var 25 ára, tók hann að skrifa vikulega sér- stakan dálk um fjárfestingar fyrir Beaverbrook lávarð og ári síðar varð hann hagfræði- legur meðritstjóri Lundúna- blaðsins „Evening Standard“, sem var með þekktustu blöð- um á Stóra-Bretlandi. Hann vann við það blað, .sem yngsti íjármálaritstjóri, sem nokkurn tíma hefur starfað að Fleet- stræti, til ársins 1985, nema hvað hann var borgarmálarit- stjóri ,Sunday Express“ í eitt ár. Þegar hann hætti að vinna hjá ,,Standard“, fluttist hann til „The Guardian“, þar sem hann skrifaði daglegan dálk um ýmiss eíni, auk þess sem hann var mikið á ferðalögum, einkum í Ameríku. Þá gerðist hann líka kunn- ur gestur í útvarpi og sjón- varpi, og hafði hönd í bagga mr-ð skipulagningu „peninga- dag*k”ár“ BBC vikulega. — Hann hefur og gert margar á- iFlramh. á bls. 11. 4 Miðvtkudagur 8. sept. 1971

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.