Alþýðublaðið - 10.01.1972, Side 7

Alþýðublaðið - 10.01.1972, Side 7
EQSEOS) Útg. Alþýðuflokkarinn Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson FARMENN SEMJA Seint í gærkvöldi voru undirskrifað- ir samningar milli útgerðarmanna og undirmanna á farskipum. I nótt voru svo undirskrifaðir samningar milli út- gerðarmanna og matreiðslumanna á far- skipum og þema. I dag halda svo við- komandi fagfélög fundi um samningana. Líkur benda því til, að verkfall far- manna, sem staðið hefur röskan mánuð, leysist í dag. , Farmannaverkfallið hefur verið langt og strangt. Það skall á um það leyti, sem samningar voru gerðir milli atvinnu- rekenda og landverkafólks. Sú samn- ingagerð fól í sér svo mikinn létti allra aðila, sem voru jafnvel farnir að búast við allsherjarverkfalli, að þjóðin gaf vart gaum kjarabaráttu farmanna og verkfalli þeirra. Farmenn háðu því sína kjarabaráttu við erfiðar aðstæður. f verkfalli stóðu þeir svo til einir og fengu lítinn stuðn- kig frá öðrum stéttarfélögum í landinu. Þó munu sjómenn á farskipum meðal þeirra, sem allra lægstu launin bera úr býtum í þessu þjóðfélagi. Fastalaun þeirra eru mjög lág og verða þeir að vinna mikla yfirvinnu til þess að njóta mannsæmandi tekna. Starf farmannsins er eigi að heldur sérstaklega eftirsóknarvert. Þeir verða að dveljast langdvölum fjarri heimilum sínum og stunda hættulegt starf, eins og dæmin sanna. fslendingar byggja afkomu sína á við- skiptum við önnur lönd. Einn af fyrstu óskadraumum íslenzku þjóðarinnar um það bil sem hún var að brjóta af sér hlekki erlends valds var að taka sjó- samgöngur við önnur lönd í sínar hend- ur. Hún vissi það af reynslu liðinna alda hversu mikilvægar þær samgöngur voru og hversu erfitt það var fyrir þjóð- ina að halda sjálfstæði sínu þyrfti hún að treysta á aðra til þess að flytja nauð- synjar til og frá landinu. Nú flytja landsmenn mestalla sína út- flutningsframleiðslu á markað með inn- lendum skipum og jafnframt mikið af innflutningnum. Öflug stétt reyndra og trausti-a farmanna hefur risið upp í land inu og það er hún, sem gerir þjóðinni rnögulegt að reka sjálf þessa nauðsyn- legu flutningastarfsemi. Farmannastétt- in er því þýðingarmikil starfsstétt í ís- lenzku þjóðfélagi og verðug þess að njóta góðrar umbunar fyrir störf sín. Er vonandi, að þeir samningar hafi nú tek- izt, sem farmenn geti vel við unað. MANNLAUS AR VERK- SMIÐJUR Framundan virðist vera sá tími í Japan er verksmiðjur starfa og frí mleiSa vöru algerlega án bess nekktir maSur sé þar við stjórn. Þetta verSa sem sagt mannlaus- ar vcrksmiSjur sem stjórnað er msð töivum frá sérstökum mið- stöðvum. Siík stjórnkeríi fyrir verksmiðjur hafa þegar verið smíðuð og verða reynd strax í næsta mánuði. Með þessu móti á að verða hægt að reka bíla verksmiðjur. ■ Bylting í byggingariðnaði virðist nú framundan í V,- Þýzkalandi. Síðari hluta þessa árs verða tilbúnar 70 húsasamstæðurnar í fyrstu „Meta-borginni" eins og Þjóðverjar nefna siíkt. Það má sjá á myndinni hér á síðunni, en módelið, sem teiknað var undir stjórn Richard J. Dietrich í Munchen, var lagt fyrir bygg- ingarnefnd ríkisins og hlaut mikla viðurkenningu hennar. Stærstu þýzku verksmiðjurnar á þessu sviði munu hefja framleiðslu á húsasamstæðunum. Þar á allt að vera til ails — verzlunarmiðstöðvar og skemmtistaðir — varið gegn veðri og ýmislegt ann- að eins og greina má á myndinni. Stúlkan, sem held ur þarna á spjaldi á minni myndinni, er með upplýsing- ar um það, að frá 1961—70 hafi byggingarfélög byggt 829 þúsund íbúðir að verðmæti 27 milljarða þýzkra marka í Vestur-Þýzkalandi. ; 6 Mánudagur 10. janúar 1972 ✓ FLUGVEL Þarna sjáum við mynd af fyrir- brigði, sem er að hálfu leyti bát- ur og hálfu leyti flugvél, í reynslu fiugi og skríður yfir vatnsflötinn á Constance-vatni í Vestur- Þýzkalandi. Hinn kunni sérfræð- ingur í sambandi við flugvéla- smíði, prófessor Alexander Lipp- isch, átti hugmyndina að þessum flugvélarbát, sem nefndur er Aero foil. Ef reynsluferðirnar heppn- ast vel hefur þýzka ríkið hug á að láta hefja mikla framleiðslu á slíkum vélum. Þær gætu kom- ið i stað fiugpúðabáta og eru taldar bæði þægilegri og auð- veldari í meðförum á flestan hátt. Þetta model úr plasti hefur að- eins rúm fyrir flugmann- Farþega bátur af slíkri gerð mundi kosta 24 milljónir kr. og á að komast 100. km. á klukkustund. Begum Aga Khan og baron de Rede bezt klædd 1971 □ BEGUM Aga Khan var af 2000 tízkuscrívæðingum víðs vegar að úr heiminum kjörinn „bezt klædda kona he!ms“, eft- ir Jtvi, sem fréttastofa- Reuters skýrði frá á föstuda.g, en franski ba'róninn Alexis de Rede „bezt klæddi maður lieims 1971“. Eiginmaður Margrétar Eng- landsprinsessu, Snowdon lávarð ur og ijósmyndari Sunday Tim- es, va'rð að láta sér nægja átt- unda sæti á listanum, en borg- r ar’stjórinn í New York, John Linsay náði þriðja sæti. Hin næfurþunna sýningarkona, Twiggy frá Englandi, var í 10. sæti ásamt Cher Bono í söng- parinu Sonny og Cher. Popp- arinn Mick Ja.gger náði sjötta sæti, en listarnir eru þannig. KONUR: — 1. Begum Aga Khan. 2. Frú Ronald Reagan 3. Frú Richard Pistell, New York, 4. Frú Francois Catroux, París, 5. Frú Frederick Melha- do, New York, 6. Frú Sidney Brody, Los Angeles, 7. Liza Minelli, 8. Frú Pierre Schlum- berger, París, 9. Frú Reinaldo Herrera, Caracas og 10. Twig- gy og Ciier Bono. KARLAR: Baron de Rede, 2. Gianni Bulgari, Róm, 3. John Lindsay, 4. Billy Baldwin, New York, 5. Sidney Poitier, leikari, 6. Mick Jagger, 7. Har ry Belafonte, söngvari, 8. Snow don lávarður, 9. Robert Rad- ford, leikari og 10. De Villa- verd., (tengdasonur Frankó).— Vekjaraklukkan giumdi Enginn tók eftir Því, þegar Oscar Frette stakk inn á sig tveimur vekjaraklukku,m í verzlun í París. Fn rétt í því að hann komst að dyrum verzl unarinnar komst upp urn hann — önnur klukkan tók upp á því að hringja. Oscar var hand tekinn og dreginn fyrir rétt — og fckk átta vikna. skilorðs- bundinn dóm. Og önnur bió til nýjan dag Farþegum, sem fóru • um Heathrow-i'lugvöHinn á nýárs- dag, varð starsýnt að affal- alklukku ílugstöövarbyggingar irnar, þar sem upplýsingar um flugferffir birtust á töflu. Far stóð Desember 32 í stað Jan- úar 1. Kringum hnöttinri á 90 dögum Fi>m hundruð rikir Banda ríkjamenn, 420 Frakkar, 55 Þjóðverjar, 87 Bretar, 35 Spán verjar og 30 Belgar lögðu fyr- ir nokkrum dögum upp í „dýr- ustu sjóferð, sem sögur fara af“ með flaggskipi franska flotans SS France. Allir í ferð inni, sem taka mun Þrjá mán- uffi, eiga eitt sameiginlegt — fullt af peningum — en al- menningur þarf þó ekki að öf- undast að komast ekki |tneð í þessa för Það hlýtur að vera allt annað en gaman að geta ekki slopþið frá hópnum í þrjá mánuði, því meðalaldur- inn er 67 ára — og kvenfólk er í meirihluta. Skipið lagði uppfrá New York og fargjald er frá 460 þúsund kr. upp í 1,6 miMjón- ir kr. fyrir hvern og einn — mismunandi eftir plássi í þessu slórkostlega lúxusskipi. Tvær frúr frá Texas munaði þó ekki u,m að' snara út 6,6 millj- ónum króna fyrir fjögur her- bergi — tvö til að sofa í, og hin tvö til að geyma fötin sín í. Talið er að hinir 1100 far- þegar muni eyða rúmlega ein- um milljarð króna í fargjöld- in. Viðkomustaðir eru m. a. Rio Falklandseyjar, Salpariso, Ta- hiti, Hong Kong, Bombey, Hó'fðaborg, Dakar, Cannes. Madeira og aftur til New York. > , Fjórir dagar — 13 milljónir. Raquel Welsh, kynbomban fræga í Hollywood, hefur feng ið hlutverk í kvikmynd, þar sem Richard Burton leikur að- alhlutverkin og nefnist hún „Blái björninn.“ Raque] á að leika þar eina af eiginkonum Burtons. Kvikmyndun á hlut- verki hennar mun taka fjóra daga — og sagt er, að hún fái þrettán milljónir og tvö hundruð þúsund íslenzkra kr. fyrir það. Myrtur í hafi Vestur-þýzkur siómaður, Herbert Frolich, var stunginn Samvinna og samkeppni Það er samvinna milli Flugfélagsins og BEA, en jafnframt sam- keppni um að ná sameiginlegu takmarki: tíðum og reglubundnum ferðum milli íslands og Bretlands, aukinni þjónustu og auðveldun farþega til framhaldsflugs, hvert sem ferðinni er heitið. Flugfélagið og BEA bjóða íslenzkum farþegum 5 vikulegar ferðir að vetrarlagi og 11 ferðir í viku að sumarlagi milli Reykjavíkur, Glasgow og London með fullkomnustu farkostum, sem völ er á: Boeing 727 og Trident 2. Aðalsmerki okkar er: þjonusta, Hraói, þægindi FLUGFÉLAC LSLANDS mnm'ammmammmnatmm a——asa til hana á sænska skipinu Fin land, þegar það var statt um síðustu helgi undan Englands- strönd á leið til Falmouth. Til átaka hafði komid á hinu átta þúsund smálesta sænska flntningaskipi, þegar þaff var utan enskrar landhelgi og var Herbert, sem var 25 ára, þá særð'ur til ólífis. Enskir Ieyni- lögreglumenn fóru út í skipið ásamt lækni, en sjómaðurinn var látinn, þegar þeir ko,mu. Eftir að’ samband hafði verið haft við sænska sendiráðið í London fékk skipið, sem var með' blaðapappír, áð halda á- fram ferð sinni, en tveir lög- reglumenn voru um kyrrt um borð, Sjórinn getur eimað sig sjálfur Moskvu. — í hitabeltinu er hægt að vinna ódýrt ferskvatn úr sjónum með’ þvi að nýta hinn mikla hitamLsmun se,m er á milli yfirbcrðssjávar og sjávar á mikiu dýpi, Sovézkir eimingairséríræðingar hafa fundið upp aðferð, sem er í því fólgin, að köhlum sjó af miklu dýpi er dælt upp um frá skipí mcð e:,mingartækjun- um. Viff samstreymi kalda sjáv arins og hins heita yfirborðs- sjávar myndast rafmagn, er knýr tækin. Loftiff yfir heita sjónum er næstum mettað vatnsgrru. Þegar vatnsdropar, saltkristaUar og ýmis óhrein- indi eru sigtuff sundur kólnar Ioftið viff aff streyma í gegn um kælikerfi, þar se,m kaldi sjórinn er notaður sem kæli- vökvi. Fást um þaff bil þrír lítr ar af fersku vatni úr um 30 rúmnietrum af lcfti. Orkunotk unin við þessa eimingaraffferð er minni en viff nokkra aðra. (APN) Sleffaferð til kuldapólsins Moskvu. Sleffalest, dregin af dráttarvél, er komin til sovézku stöðvaiinnar Vostok á Antarktis í grennd við kulda- póiinn eftir 1500 km. langt lamgt rör, sem sölikt er niffur ferffalag frá Mirnyjastöðinni. Tck ferðin 34 daga. Þeíta er 30. sleðalestin, er fer jrssa leið, er liggur í 3500 metra Iiæff yfir sjó. Á leiðinni voru gerffar jmargvíslegar veour- fræð!-athuga.nir og rannsóknir á snjólögum. (APN) Þyrtur til Antarkitis Moskvu. — Margar stórar sovézkar þyrlur eru nú á leiff til Antarktis um borð í flutn- ingaskipi, er flytur 17. sovézlca suffurpólsleiffangurinn, þátt- takendur og allan búnaff. Þyrl urnar verð'a jöfnum hönduin notaðar til landkönnunar úr lofti og til flutninga á varn- ir’gi og vistiim til Vostokstöðv arinnar. Þetta eru þyrlur af geirðinni Mil-8, sem geta boriff 28 farþega effa fjögur tönn af vörum. (APN) Mánudagur 10. janúar 1972 7

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.