Alþýðublaðið - 08.03.1972, Side 5
lalþýðul útgáfufélag Alþýðublaðsins h.f. Ritstjóri
BBiffTpd Sighvatur Björgvinsson (áb.). Aðsetur rit-
111r-11J111 stjórnar Hverfisgötu 8-10. Símar 14-900
(4 línur). Auglýsingasími 14-906. Blaðaprent
SÉRSKÖTTUN HJÚNA
Fyrsta atriði i breytingartillögum Alþýðu-
flokksins við skattafrumvörp rikis-
stjórnarinnar er, að Alþingi visi málinu i heild
til stjórnarinnar, sem fái það til athugunar og
umfjöllunar til næsta þings. Röksemdir
Alþýðuflokksins fyrir þvi, að málið eigi ekki að
afgreiðast nú, eru margar og þungar á met-
unum. Hefur Alþýðublaðið þegar rakið
nokkrar þeirra og verða þær ekki endurteknar
að sinnia
Einsog kunnugt er ráðgerir rikisstjórnin
ýmsar kerfisbreytingar á skattalögunum. Það
er vissulega timabært að gera slikar
breytingar. En það er ekki sama, hvernig það
er gert.
Rikisstjórnin hefur aðeins tekið sér nokkra
mánuði til þess að framkvæma heildar-
endurskoðun á skattakerfinu og ákveða
breytingar á þvi. Sá timi er vitaskuld allt of
skammur. Það hefur glögglega komið i ljós,
m.a. á þann hátt, að rikisstjórnin hefur þurft að
taka sér þrjá mánuði til þess eins að reyna að
gera einhverja bragarbót á upphaflegum til-
lögum sinum. Það verk var unnið i örvænt-
ingaræði og lyktaði þannig, að allir una illa við.
Svona vinnubrögð geta vitaskuld ekki leitt til
neins skynsamlegs árangurs. Það er ekki hægt
að framkvæma svo umfangsmikið verk eins og
heildarendurskoðun skattalöggjafar er á
aðeins nokkrum vikum eða mánuðum.
Þingflokkur Alþýðuflokksins hefur bent á
ýmislegt, sem sérstaklega þyrfti að sinna við
heildarendurskoðun skattakerfisins, en rikis-
stjórnin hefur engan tima gefið sér til að
athuga. Meðal þeirra stóru nýmæla, sem
Alþýðuflokkurinn leggur til að athuguð verði,
er sérsköttun hjóna. Þannig verði giftum
konum reiknaðar hluti af tekjum mannsins og
konan siðan skattlögð sem sjálfstæður einstak-
lingur, en skattar eiginmannsins vitaskuld
lækkaðir að sama skapi.
Þessi hugmynd er stórkostlegt nýmæli i fullu
samræmi við nútimaleg sjónarmið. Hana þarf
að athuga gaumgæfilega. Það eru einmitt
slikar hugmyndir, sem timi verður að fást til
þess að fjalla um i sambandi við heildar-
enduskoðun skattkerfis.
AUKNIR ERFIDLEIKAR
f FINNSKRI PðLITÍK
Fyrir skömmu kom Kekkonen
Finnlandsforseti heim frá Sovét-
rikjunum, þar sem hann var i
snöggri ferð i einkaerindum . Á
þvi ferðalagi hitti hann að máli
næstum alla toppmennina i
Kreml og allir telja vist, að á
fundum þeirra hafi sérstaklega
verið rætt um stjórnmálaástandið
i Finnlandi nú, jafnvel þótt hluti
af dvalartima Kekkonens i Rúss-
landi hafi farið i villisvinaveiöar,
en Kekkonen er sportmaður hinn
mesti, eins og allir vita.
Aður en Kekkonen hélt heim
fékk hann nýtt heimboö. Hinir
rússnesku gestgjafar vilja gjarna
fá að sjá framan i hann aftur i
ágúst i haust.
Það er orðin föst regla hjá
Kekkonen að heimsækja hinn
volduga nágranna i austri a.m.k.
tvisvar á ári. Hinar opinberu
ástæður, sem gefnar eru fyrir
þessum ferðum, eru margvis-
legar, — allt frá bjarndýra- og
villisvinaveiðum upp i leiðtoga-
fundi á hæsta plani. En raun-
verulegur tilgangur er ætið ká
sami, að viöhalda nánum
tengsíum milli finnska forsetans
og leiðtoga Sovétrikjanna. i þau
sextán ár, sem Kekkonen hefur
gegnt forsetaembætti, hefur hann
lagt sérstaka áherzlu á að við
halda nánum tengslum austur
yfir og margir halda þvi fram, að
hann búi yfir sérátökum hæfileik-
um til þess að meta stjórnmála-
viðhorfið i Kreml i smáatriðum
og kunni að hegða sér samkvæmt
þvi. Aðrir eru hins vegar þeirrar
skoðunar, að hann noti sin góðu
tengsl við leiðtoga Sovétrikjanna
til þess að auka stjórnmálalegt
sjálfræði Finna og auðvelda landi
sinu að framfylgja hlutleysis-
stefnu.
Eitt er þó vist. Eins og málin nú
standa hefur Finnlandsforseti
vafalaust lagt sérstaka áherzlu á
að upplýsa leiðtoga Sovét-
rikjanna um stjórnmálaþróun þá,
sem átt hefur sér staö i Finnlandi
undanfarnar vikur og ástandið
nú. Jafnframt hefur hann viljað
fá nánari skýringar hjá leiðtogum
Sovétríkjanna á viðhorfum þeirra
til ýmissra mála, sem snerta
Finnland. Ýmislegt hefur gefið til
kynna, að hinir sérstöku hæfi-
leikar Kekkonens til þess að meta
viðhorf og viðbrögð sovéskra
ráðamanna hafi ekki reynst alveg
óskeikulir upp á siðkastið. t þvi
sambandi er nægilegt að nefna
ákveðna andstöðu Sovétrikjanna
gegn Finnanum Max Jacobsen
sem arftaka U-Thants hjá
Sameinuðu þjóðunum. Eftir að
Finnar höfðu með öllum ráðum
leitað eftir stuöningi Rússa við
framboð Jacobsen kom hin
ákveðna neitun Rússanna
Finnum alveg á óvart. Allir
höfðu þótzt þess fullvissir, að
bæði finnski forsetinn og finnska
stjórnin hefðu skilið rétt ýmis
viðbrögð Rússa við framboðinu
áður en það var endanlega
ákveðiö og framboðið væri þvi
reist á raunhæfu mati. Það
Um það leyti, sem islenzku
for se ta h j ón i n sækja
Kekkonen, F'innlands-
forseta, heim eru mikil
veðrabrigði i finnskum
stjórnmálum. Meðfylgjandi
grein fjallar um þátt Kekk-
onens i þvi tafli og er stuðst
við grein um það efni, sem
birtist i Arbejderblaðinu
norska fyrir þrem dögum.
reyndist hins vegar ekki vera, þvi
Rússar sögðu blákalt nei, þegar
opinberlega var óskað eftir stuðn-
ingi þeirra við framboð .Jacob-
sens.
Einnig heima fyrir hefur
Kekkonen átt i erfiðleikum, og
ýmsir hafa einnig farið að efast
um stjórnmálalega innsýni hans i
þeim efnum.
Samsteypustjórn Karjalainens,
þar sem jafnaðarmenn og
Miðflokkurinn voru helztu
máttarstoðirnar, lamaöist smátt
og smátt vegna deilna innan
stjórnarinnar um land-
búnaðarmál. Deilurnar náðu
hámarki i. fyrra haust. Skyndi-
lega greip þá Kekkonen forseti
inn i gang mála og fyrirskipaði
nýjar þingkosningar.
En kosningarnar, sem áttu sér
stað i janúarmánuði, höfðu ekki i
för með sér neinar stórvægilegar
breytingar i finnskri pólitik. Og
það kom strax i ljós, að það var
engan veginn auðvelt að koma
saman nýrri samsteypustjórn.
Jafnaðarmannaflokkurinn
styrkti stöðu sina sem stærsti
flokkur landsins. Það var þvi
eðlilégt, að formanni flokksins
hinum 69 ára gamia Rafael
Paasio, væri falið að reyna að
koma á fót nýrri rikisstjórn,
Fyrst reyndi Kekkonen að stuðla
að stjórnarmyndun 5 flokka, þar
sem bæði kommúnistar og mið-
flokkarnir væru með. En eftir
miklar vangaveltur höfnuðu
jafnaðarmenn þvi.
Þá var reynt að koma á fót fjög-
urra flokka samsteypustjórn, þar
sem jafnaðarmenn og Miðflokk-
urinn væru helztu burðarstoð-
irnar. Eftir vikulanga fundi á bak
við tjöidin rann sú tilraun einnig
út i sandinn. Þá var aðeins einn
möguleiki eftir. Minnihlutastjórn
jafnaðarmanna, studd 55 af 200
þingmönnum rikisþingsins. Og sú
stjórn var mynduð fyrir röskri
viku.
Frá sjónarhóli Kekkonens er
þessi rikisstjórn örugglega aðeins
siðasta neyðarúrræðið. E- inng
fyrir jafnaðarmenn eru þessi
málalok ekkert sérstaklega
ánægjuleg. Rikisstjórnin þarf
strax i byrjunað fást við launa- og
verðlagsvandamál, sem eru geig
vænleg og geta leitt til sundrandi
átaka. Og jafnaðarmenn þurfa i
þokkabót að eiga við kommúnista
innan verkalýðshreyfingarinnar,
sem enga ábyrgð bera á stjórn
landsins og geta þvi orðið jafn
aðarmönnum óþægur ijár i þúfu.
Fáir reikna þvi með, að rikis-
stjórn Paasios sitji mikið lengur
en fram til sveitarstjórnakosn-
inganna, sem fram eiga að fara i
Finnlandi i haust.
Hin nýja rikisstjórn á einnig við
ýmis önnur vandamál að striða,
en verðlags- og kaupgjaldsmál.
Meðal annars þarf-hún að ná
samkomulagi við EBE, sem ekki
er aðeins hagkvæmt fyrir Finna
heldur einnig á þann veg, að
Sovétrikin geti sætt sig við. Enn
einu sinni verða Finnar þvi að
halda jafnvæginu á beirri erönnu
linu, sem þeim er ætlað að feta. I
þvi sambandi er rétt að benda á,
að Finnar hafa einnig uppi fyrir-
ætlanir um að tengjast á einhvern
hátt Comecon, efnahagssam-
steypu AusturEvrópu landa. Þaö
er hugsanlegt, að með þvi að
stækka gáttina til austurs leyfist
Finnum einnig að opna meir til
vesturs.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVlKUR
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur heldur
ARSHATtÐ n.k. laugardagskvöld, 11. marz, og
hefst hún með borðhaldi kl. 19,00 stundvíslega.
Hátiðin veröur á HÓTEL ESJU.
Dagskrá:
1. Stutt ávarp flytur Sigurður E. Guðmunds-
son, formaður félagsins.
2. Einleikur á pianó. Hrafnhildur Steinars-
dóttir, 15 ára, leikur.
3. Einsöngur. Guðrún Á. Slmonar, óperu-
söngkona, syngur viö undirlcik Guðrúnar
Kristinsdóttur.
4. Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason
skemmta.
Ilansaö verður til kl. 2 e.m.
Veizlustjóri Gylfi Þ. Gislason, formaður
Alþýðuflokksins.
Aðgöngumiðasala á skrifstofu Alþýðu-
flokksins er hafin. Borðapantanir á Hótel Esju,
simi 8-22-00, eftir kl. 15 I dag, miðvikudag.
Miövikudagur 8. marz 1972
0