Alþýðublaðið - 16.05.1972, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 16.05.1972, Blaðsíða 8
LAUGARASBIÓ sími 32075 TÓNABÍÓ Vinur Indiánanna Geysispennandi Indiánamynd i litum og Cinema Scope. Aðalhlut- verk: Lex Barker, Pierre Brice. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 12 ára. AUSTURBÆ JARBÍÓ tslenzkur texti Bankarániö mikla Bráðskemmtileg og spennandi ný, bandarísk úrvalsmynd I litum og Panavision. Aðalhlutverk: Zero Mostel, Kim Novak, Cl'-it Walker. Bönnuð in.ian 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9 STJÖRNUBÍÓ_______________ Gestur til miðdegisverö- ar íslenzkur texti. Þessi áhrifamikla og vel leikna ameríska verðlaunakvikmynd i Technicolor með úrvalsleikurun- um: Sidney Poiter, Spencer Tracy, Katharine Hepurn. Sýnd vegna fjölda áskorana. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HAFNARBÍÓ Rio Lobo Hörkuspennandi og viðburðarrik ný bandarisk litmynd með gamla kappanum John Waynevendilega i essinu sinu. tslenzkur texti Sýnd kl. 5, 9, og 11.15. Bönnuð innan 12 ára. Siðasta sinn. KÓPAVOGSBÍÓ Ást-4 tilbrigði Velgerð og leikin, itölsk mynd er fjallar á skemmtilegan hátt um hin ýmsu tilbrigði ástarinnar. íslenzkur texti. Endursýnd kl. 5.15 og 9. Bönnuð börnum. NÝJA BÍÓ M.A.S.H. Ein frægasta og vinsælasta kvik- mynd gerð i Bandarikjunum sið- ustu árin. Mynd sem alls staðar hefur vakið mikla athygli og verið sýnd við metaðsókn. Aðalhlutverk: Donald Sutherland Elliott Gould, Tom Skerritt. Bönnuð innan 12 ára Sýnd ki. 5, 7 og 9. l-kw = ux '■< Lagerstaerðir miðað við múrop: Haeð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270 sm Aðrar stærðir smíÖaðar eítir beiðni. GLUGGAS MIÐJAN Siðumúla 12 - Sími 38220 * Brúin við Remagen Sérstaklega spennandi og vel gerð og leikin kvikmynd er gerist i siðari heimsstyrjöldinni. Leikstjórn: John Guillermin Tónlist: Elmer Bernstein Aðalhlutverk: GEO.GE SEGAL, ROBERT VAUGHN, BEN GAZZ- ARA, E.G. MARSHALL — tslenzkur tcxti — Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. Barnasýning kl. 3. Nýtt teiknimyndasafn. HASKÓLABÍÓ Ungfrú Doktor Sannsöguleg kvikmynd frá Paramount um einn frægasta kvennjósnara, sem uppi hefur verið, — tekin i litum og á breið- tjald. tslenzkur texti Aðalhlutverk: Suzy Kendall Kenneth More Frumsýnd kl. 5. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HAFNARFJARÐARBIÓ Þú lifir aðeins tvisvar. Snilldar vel gerð og spennandi | James Bond mynd i litum með is- lenzkum texta. Aðalhlutverk: Sian Cinnery. Sýnd kl. 9. ^LEIKFÉLAG®j| HfREYKIAVÍKUy^B Atomstöðin; i kvöld. Uppselt. Spanskflugan: miðvikudag 124 sýning. 3 sýningar. Skugga-Sveinn :fimmtudag, 3 sýningar eftir. Atomstöðin: föstudag. Uppselt. Atomstöðin: annan Hvitasunnu- dag. GOÐSAGA Gestaleikur frá sænska Rlkisleik- húsinu, Sýningar i Norræna húsinu i kvöld kl. 20,30. Fimmtudag kl. 20,30. Föstudag kl. 20,30. Laugardag kl. 16.00. Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin frá kl. 14. Simi 13191. <! íti WÓDLEÍKHÚSIÐ SJALFSTÆTT FÓLK Sýning i kvöid kl. 20. Uppselt. Uppselt. SJALFSTÆTT FÓLK 10. sýning fimmtudag kl. 20. OKLAHOMA Sýning föstudag kl. 20. GLÓKOLLUJR Sýning mánudag 2. hvitasunnu- dag kl. 20. Tvær sýningar eftir. SJALFSTÆTT FÓLK sýning mánudag 2. hvitasunnu- dag kl. 20. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13.15 til 20. Simi 1-1200. OG MOKlif) kjO t 8-66 IÞRÚTTIR 1 IBK MEISTARI ÍBK sigraði i Meistarakeppni KSÍ að þessu sinni. Siðasti leik- ur keppninnar fór fram i Kefla- vik á laugardaginn, og áttust þar við heimamenn og Vest- mannaeyingar. Keflavik nægði jafntefli, og þannig urðu úrslit- in, 2:2. IBK hlaut 6 stig i keppn- inni, IBV 5 stig og Vikingur 1 stig. Gott veður var þegar leikur- inn fór fram, og bæði liðin sýndu góðan leik. Vestmannaeyingar sóttu meira f byrjun, og skoruðu eftir 20. minutur með sjálfs- marki ÍBK eftir skot frá Val Andersen. A 44. minútu jafnaði ÍBK fallega, Karl Hermannsson sneiddi boltann með höfðinu i netið, eftir fyrirgjöf ólafs Jú- liussonar. I seinni hálfleik voru Keflvfk- ingar meira með boitann, og þeir skoruðu á 37. minútu. Var Hörður Ragnarsson þar að verki eftir mistök i vörn IBV. Siðasta mark leiksins skoraði örn Óskarsson, rétt fyrir leiks- lok, með fastri spyrnu af vita- teigshorni i markhornið fjær. í liði IBK var Ólafur Júliusson langbeztur, en i liði Eyjamanna voru beztir þeir Ólafur Sigur- vinsson, Þórður Hallgrimsson og örn Óskarsson. MORTON IÍT OSIERAÐ Ekki tókst KR að sigra skozka liðiö Morton á sunnudaginn, og fóru Skotarnir þvi heim ósigraðir. 1 mal sinum höfðu þeir meðferðis þrjá sigra, og markatöluna 12 gegn þrem. Enda þótt sigurjnn yfir KR hafi verið stærstur, 6:1, sýndi KR mestu baráttuna af öllum liðun- um, og markatalan er langt frá þvi að gefa rétta mynd af gangi leiksins. KR átti margar hættu- legar sóknarlotur, en aðeins ein þeirra gaf mark. Marktækifæri Skotanna nýttust mun betur, enda átti vörn KR afleitan dag. Fyrsta hættulega tækifæri leiksins kom á 5. minútu. Halldór Björnsson var enn að reima skóna sina, þegar Morton hóf stórsókn, en málunum var bjarg- að. A 7. minútu tók Morton stutt horn, Chalmers þrumaði að marki og Gillies vippaði boltan- um i netið, alveg óvaldaður. Næstu tvö tækifæri átti KR, og úr þvi seinna var bjargað á linu skallabolta ólafs ólafssonar (sjá mynd). Á 30. minútu kom bolti að marki KR, Halldór „kiksaði” og Chalmers komst inn og skoraði. Rétt fyrir hálfleik komst Gunnar Gunnarsson einn inn fyrir, en hitti ekki markið. Á 6. minútu seinni hálfleiks átti Chalmers eitt af sinum þrumu- skotum að marki. Boltinn hrökk i ólaf bakvörð og beint i netið. Fallegt sjálfsmark aldrei þessu vant. Á 15. minútu er Chalmers enn á ferð, hann skallaði, mjög fallega yfir Magnús sem var illa staðsettur i markinu. A 28. minútu misnotaði Björn Pétursson herfilega gott tækifæri, en hann bætti fyrir mistökin min- útu siðar, með þvi að skora af stuttu færi. En KR-vörnin átti eft- ir að gera tvö mistök enn, og bæði þessi mistök kostuðu mark. Það fyrra skoraði innherjinni Mason, og Chalmers það seinna. Lokatölurnar urðu þvi 6:1, allt of stór sigur eftir gangi leiksins. Chalmers var sem fyrr i sérflokki i liði Morton, en hjá KR stóðu flestir sig vel, nema miðjan á öft- ustu vörninni. — SS. ALLS STAÐAR Fyrsta stóra golfkeppni sumarsins fór fram hjá Golf- klúbbi Suðurnesja um helgina, svokölluð Dunlop keppni. Alls mættu 83 keppendur til leiks, sem er mjög góð þátttaka. Seinni dag keppninnar var veður slæmt til keppni, rok og kuldi, og misstu margir kylfinganna bolta sina i sjóinn. Úrslit urðu þessi: A11 forgjafar: 1. Einar Guðnason GR 162högg 2. Sigurður Albertsson GS 164 högg 3. óttar Yngvarsson GR 165högg 4. Helgi Hólm GS 165högg MINNKANDI VINSÆLDIR italskir knattspyrnumenn hröpuðu mjög i vinsældum i lieimalandi sinu á laugardag- inn, þegar þeir töpuðu fyrir Belgiu 2:1 i Evrópukeppni landsliöa. ítalir, sem sigruðu i keppninni sfðast, eru þar með úr leik. Þegar þeir komu heim til ttalíu á sunnudaginn, var kast- að í þá skemnidum tómötum. Ekki voru ensku landsliðs- inennirnir heldur vinsælir eftir að liafa gert markalaust jafn- tefli við Vestur-Þjóðverja i Ber- lin. Sir Alf Ramsey lét liðið leika 4-4-2, og þótti sú aðferð ekki lik- leg til þess að gefa mörg mörk. Rússland sigraði Júgóslaviu 3:0, og kemst i undanúrslit. Þar mætir Rússland annaðhvort Ungverjalandi eða Rúmeniu sem gerðu jafnt 2:2, og verða aö leika að nýju. Hinn undan- úrslitaleikurinn verður milli Vestur-Þýzkalands og Belgiu. Með forgjöf: 1. Helgi Hólm GS 165-24= 141 högg. 2. Sigurður AlbertssonGS 164- 22= 142 högg. Á sunnudaginn fóru fram nokkrir leikir i tslandsmótinu i körfuknattleik. Eftir þá leiki er KR sigurstranglegast i 2. flokki kvenna og 1. flokki karla. Hið gamalkunna félag Real Madrid tryggði sér um helgina sigur i 1. deildinni á Spáni. t sið- asta leik sinum sigraði Real lið Seville 4:1. t öðru sæti varð Valencia, en Barcelona lenti i þriðja sæti. Carl Zeiss Jena varð um helg- ina bikarmeistari i Austur- Þýzkalandi. 1 úrslitunum sigraði Jena lið Dynamo Dresden 2:1. Sviþjóð tapaði fyrir Tékkóslóvakiu i knattspyrnu- landsleik um helgina 2:1. Leikur- inn fór fram i Sviþjóð. Um helgina setti Flemming Johansen nýtt danskt met i stangarstökki, stökk 4.96 metra. Hann átti bezt áður 4.80, svo framfarir hans eru mjög miklar. Þriðjudagur 16. maí 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.