Alþýðublaðið - 21.05.1972, Page 6

Alþýðublaðið - 21.05.1972, Page 6
Sjötta og síðasta grein Gests Guðfinnssonar um ferðalög innanlands I siðasta ferðaþætti var vikið að nokkrum sumarleyfisferðum, að- allega á Vestfjörðum. I þessum þætti, sem er sá siðasti um innan- landsferðir i sumar, verður fram haldið upplýsingum um sumar- leyfisferðirnar eftir þvi sem rúm leyfir. Strandaferð Ferðafélag Islands gerir það ekki endasleppt við Vestfjarða- kjálkann i sumar. Auk Vest fjarðaferðar og 2 ja Hornstranda ferða, sem þegar er getið, ráðger- ir félagið sex daga ferð norður á Strandir 8.-12. júli. Verður ekið norður Kjöl til Hveravalla, siðan um Auðkúluheiði i Vatnsdal og Borgarvirki, en þaðan fyrir Vatnsnes og allt til Ingólfsf jarðar á Ströndum. Ef veður og aðstæð- ur leyfa er svo áætluð bátsferð til Drangaskarða. Heim verður ekið um Dali. Þetta er næsta fjölbreytileg ferð, eins og sjá má af upptaln- ingunni. Er þó aðeins stiklað á stóru. Til viðbótar má t.d. minna á Blöndugljúfur, Hvitserk og Hindisvik á Vatnsnesi og rekann á Ströndum, auk fugla og sels á þeim slóðum. Sömuleiðis Skarð á Skarðsströnd og Staðarfell á Fellsströnd, sem hvortveggja eru sögufrægir staðir. Fyrir þá sem litið hafa ferðazt, má ennfremur geta þess að farið mun verða um Þingvelii og litið á Gullfoss og Geysi i leiðinni, en þetta eru allt staðir, sem standa fyrir sinu, i jafnvel þótt maður hafi komið þar j áður. — Ferðin kostar aðeins i 4.950 krónur. Eyjafjarðarfjöll Þá er ein Ferðaféiagsferð, sem ég vildi sérstaklega benda dug- legum fjallgöngumönnum á, en það er átta daga ferð um fjall- lendið vestan Eyjafjarðar. M.a. má nefna Súlur, Kerlingu, Stóra- stail, Tröllafjall og Vindheima- jökul kringum Glerárdal, Háfjall við öxnadal, fjöllin norðan Hörg- árdals og vestan Svarfaðardals. Ætlunin er að ganga á svo mörg fjöll sem timi vinnst til, en á þessu svæði eru sum hrikalegustu og hæstu fjöll norðanlands, svo sem Kerling við Eyjafjörð, sem er 1538 m yfir sjávarmál. Tiitölu- lega litið hefur verið farið um þetta svæði af ferðamönnum, en nú gefst tækifærið. En þessi ferð er þó varla nema fyrir nokkuð gönguvant fólk og kemur sjálf- sagt út svitadropunum á ein- hverjum áður en lýkur. Hinsveg- ar er útsýnið viða stórkostlegt og i raun og veru óborganlegt, ef veð- ur og skyggni er gott. —-Ferðin er 6.-13. júli og kostar 6.600 krónur. Miðlandsöræfi Bæði Ferðafélagið og Farfuglar ráðgera Miölandsöræfaferð i sumar eins og undanfarin ár. Ferðafélagsferðin tekur tólf daga, en Farfuglar gera ráð fyrir að eyða fjórtán dögum i ferðina. 1 stórum dráttum er báðum ferð- unum hagað á svipaðan hátt. Ekið er til Veiðivatna, meðfram Þóris- vatni, i Nýjadal. Þaðan um Sprengisand, Gæsavötn og Dyngjuháls til öskju með við- komu i Vonarskarði. Þaðan verð- ur farið i Herðubreiðarlindir. Farfuglar áætla göngu á Herðu- breið, ef veður leyfir. Siðan verð- ur ekið um Grimsstaði, Kreppu- brú og Hvannalindir til Kverk- fjalla, þar sem gengið verður I is- hellana i jöklinum. 1 bakaleiðinni verður m.a. komið að Dettifossi og Asbyrgi, i Hljóðakletta og Hólmatungur, en siðan i Húsavik og að Mývatni og haldið þaðan til Akureyrar. Loks verður svo hald- ið suður Auðkúluheiði um Hvera- velli og Kjöl til Gullfoss og Geysis i lokin. Þetta eru tvimælalaust lengstu og mestu sumarleyfis- ferðirnar, enda hafa þær upp á ýmsa fegurstu staði landsins að bjóða. Of langt mál yrði að fara náið út i einstaka staði á þessari leið, en drepa má þó á nokkur atriði, sem við sögu koma. A þessari leið er komið við á flestum helztu dvalarstöðum Fjalla-Eyvindar á hálendinu, svo sem rústunum við Hreysiskvlsl, i Herðubreiðarlindum, Hvanna- lindum og á Hveravöllum, og þykir mörgum það ómaksins vert. Einnig sér vel tíl Arnarfells múlanna, þarsem Eyvindur hafði bækistöð um skeið. Ýmsir hafa lesið og heyrt sitthvað um útilegu Eyvindar á fjöllum, en kannski ekki alltaf gert sér ljósa hugmynd um staðhætti, þar sem hann hefur dvalið. 1 þessum ferðum öðlazt menn áreiðanlega nýjan skilning á lifsskilyrðum og aðbúnaði Fjalla-Eyvindar og Höllu I úti- leguhreysunum margar dagleiðir frá mannabyggðum, og er þó sitt- hvað að koma þangað á hlýjum sumardegi eða dvelja þar við nauman kost i kulda og hörkum skammdegis og vetrar. Sérstaklega eftirminnilegir staðir á þessari leið eru t.d. Askja, Herðubreið, is- hvelfingarnar i Kverkfjöllum, Asbyrgi, Hljóðaklettar og Detti- foss. Sömuleiðis Mývatn, en ráð- legast er fyrir fólk að hafa þar einhvern útbúnað til að verjast flugunni, sem gjarnan hrellir að- komumenn illilega, ef hún er i essinu sinu, en það er nokkuð misjafnt eftir veðri og ,,göng- um.” Ferðafélagið fer Miðlandsör- æfaferð sína 9.-20. ágdst. Hún kostar 9.100 krónur. Farfuglar eru aðeins seinna á ferðinni eða 16.-26. águst. Miðlandsöræfaferðirnar hafa verið mjög vinsælar undanfarin sumur og mikil þátttaka i þeim. Þess vegna ætti fólk að hafa fyrra fallið á að panta sér far og ná sér i miða i þessar ferðir og búa sig vel i útileguna, sem mestmegnis verður væntanlega I tjöldum. 12.-23 ágúst er Ferðafélagið með aðra langa ferð á áætlun sinni, en það er um Norðaustur- land, m.a. i Borgarfjörð og á Snæ- fell. Þessi ferð kostar lika 9.100 krónur. Borgarfjörður og Snæfell Stærsta númerið i þessari ferð er auðvitað Snæfell. En einnig er Borgarfjörður eystri sérlega eftirsóknarverður staður. 1 þess- ari ferð geta menn valið á milli ferðarinnar á Snæfell og fjögurra daga dvalar i Borgarfirði og má segja um það, að sá kvölina sem á völina, þvi ekki verður bæði sleppt og haldið. Þeir brattgengustu munu auð- vitað velja Snæfellið, en grjót- safnararnir falla fyrir Borgar- firðinum, þvi ekki er annarstaðar meira að finna af ýmiskonar dýr- indis steinum en þar, og hefur margur komið klyfjaður grjóti þaðan úr fjöllunum. Þar eru lika hin fögru og sérkennilegu Dyrfjöll og fleira fyrir augað. 1 þessari ferð er einnig farið út á Langanesfont og kringum Sléttu, með viðkomu á Rauðunúp- um, og um Húsavik eða Kinn i Náttfaravikur. Hofsjökull og Þjófadalir Stutt gaman er hinsvegar fjög- urra daga ferð norður fyrir Hofs- jökul 24.-27. ágúst. Ekið er um Hveravelli og þaðan austur með Hofsjökli um Asbjarnarvötn til Laugafells og Nýjadals. Komið i Vonarskarð, Eyvindarver og Veiðivötn. Þetta er sjaldfarin leið, enda nokkuð afskekkt. 1 þessari ferð verður gist I Ferðafé- lagsskálum. Ferðin kostar 3.200 krónur. Þá ráðgerir Ferðafélagið Þjófadalaferð 11.—20 ágúst, eða 10 daga ferð. Sú ferð hefst með þvi að ekið verður til Kerlinga- fjalla og gist fyrstu nóttina i As- garði. En síðan verður ekið til Hveravalla og Þjófadala og gist þar i Ferðafélagsskálanum. Er hugmyndin að nota vikuna til gönguferða i ýmsar áttir, en nóg er þarna gf girnilegum f jöllum og stöðum. T.d. Rauðkollur og Hrútafell og Strýtur i Kjalhrauni. Ennfremur Fagrahlið og Jökul- krókur. Sjálfir eru Þjófadalirnir einstaklega geðþekkur staður, einn þessarar búsældarlegu úti legumannadala, sem maður þekkir bezt úr þjóðsögunum, grænir og gróðursælir upp til brúna, sauðir á beit og bær i daln- um, I þessu tilfelli litið og þokka- legtsæluhús Ferðafélags Islands. Ferðin er einstaklega ódýr miðað við timann, kostar aðeins 3.300 krónur. Lónsöræfi Þá er að geta 8 daga Ferðafé- lagsferðar i Lónsöræfi. Það er ekki langt siðan farið var að fara slikar ferðir i Lónsöræfi, en þær hafa notið árvaxandi vinsælda, enda er eftir talsverðu að slægj- ast á þessum slóðum, náttúrufeg- urðin óvenjuleg. Flogið verður til Hornaf jarðar og siðan ekið þaðan inn á Illakamb i Lónsöræfum, þar sem tjöldum verður slegið rétt við Jökulsá, en siðan gengið um svæðið umhverfis, eftir þvi sem timi vinnst til, m.a. i Tröllakróka og Víðidal. 1 Viðidal var búið um skeið og var það eitthvert af- skekktasta býli landsins. Það hét Grund og sést vel fyrir rústunum i dalnum, en snotur foss er ör- skammt frá bæjartóttunum og sumarfritt umhverfið. Ferðin kostar 8.000 krónur. Skaftafell og Oræfajokull Þrjár sumarleyfisferðir eru áætlaðar hjá Ferðafélaginu að Skaftafelli i öræfum, allt 8 daga ferðir. Þjóðgarðinn i Skaftafelli þarf ekki að kynna ýtarlega, en viðbrugðið er nátturufegurðinni þar. Möguleiki er á göngu á Hvannadalshnjúk i þessum ferð- um, en það er svo sem vænta má erfiðasta fjailganga á íslandi, þvi að ekki er annar tindur hærri en Hvannadalshnúkur. I sllkri ferð er allrar varúðar þörf og ekki far- andi nema jöklavanir menn séu i ferðinni, sem kunna skil á nauð- synlegum útbúnaði. Hinsvegar er nóg að skoða, þótt sleppt sé jökl- inum: Bæjarstaðaskógur, Kristinartindar, Svartifoss, enn- fremur er ekið út i Ingólfshöfða og til Hornafjarðar. Tjöld og hit- unartæki eru lögð til á staðnum. Verð á þessum ferðum er 7.700 krónur. Fyrsta ferðin er 13.—20. júli, önnur 20.—27. júli, þriðja 27. júli—3. ágúst. Fjallabaksvegur 22.—27. júli ráðgerir Ferðafé- lagið ferð um Fjallabaksveg syðri °g 14,—17. ágúst i Hrafntinnu- sker, Eldgjá og að Langasjó. 1 seinni ferðinni verður m.a. gengið á Sveinstind. Fyrri ferðin kostar 4.700 krónur, en sú seinni 3.200 krónur. I Hrafntinnuskeri eru langir og miklir ishellar, sem ýmsir kannast eflaust við af myndum. Svo sem sjá má af allri þessari upptalningu, er um margar og fjölbreytilegar hópferðir að ræða innanlands I sumarleyfinu, og er þó ekki allt upp talið. Kannski verður erfiðasti hluturinn að velja og hafna, þar sem svo margra kosta er völ. Þar með er þessum ferðaþátt- um lokið og aðeins eftir að óska þátttakendum i ferðunum góðs sumarleyfis og ánægjulegs ferða- lags i byggð og á fjöllum. Slútnes i Mývatni er gróðursælt með afbrigðum og fuglalif er þar mikið. Þessi mynd er þaðan. - Mynd- ina tók Gestur Guðfinnsson. Þessi mynd er úr Vonarskarði. Eins og sjá má er ekki gróðrinum fyrir að fara á þeim stað. Þar sést ekki einu sinni melgrasskúfur. -- Myndina tók Gestur Guðfinnsson. 0 Sunnudagur 21. maí 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.