Alþýðublaðið - 02.07.1972, Qupperneq 7
BÍLAR OG UMFEkU
Ford Gscort er smekklegur aö innan, laus viö allan iburð. Mæiaboröiö er þannig
úr garöi gert, aö þeir hlutar þess, sem hætt er viö aö menn lendi á viö árekstur, iáta
undan.
Þetta er ekki öryggisbili samkvæmt ströngustu kröfum, en ætti allavega ekki aö
þola verr hristinginn á islandi en I Austur-Afrfku.
Lipur í innanbæjarakstri og spar-
neytinn — en þó helzt til þröngur
Enginn vafi leikur á
hagkvæmni þeirrar stefnu
bíla framleiöenda að
leggja nokkra áherzlu á
að framleiða litla bíla, og
framleiða þá óbreytta í
meginatriðum árum og
jafnvel áratugum saman.
t janúar 1968 hófu Fordverk-
smiöjurnar i Englandi að fram-
leiöa litinn fimm manna bil, Es-
cort. Útliti hans hefur ekkert
veriö breytt og ætlunin er að
gera engar breytingar næstu
árin, jafnvel næsta áratug.
Verksmiðjurnar virðast hafa
hitt naglann á höfuöið með þess-
um bil, þvi á þessum fjórum
árum hafa verið seldir rúmlega
milljón Escortar.
Það er þó ekki fyrr en nú sem
billinn er kynntur á islenzkum
markaði, og innflutningur hefst
i haust. Astæðan fyrir þvi að Es-
cortinn er svo seint á ferðinni er
sú, að sögn talsmanns ,,Ford of
Europe”, sem var staddur hér á
landi fyrir skömmu, að islenzki
markaðurinn er einn sá erfið-
asti í Evrópu. Það sagði hann
fyrst og fremst stafa af þvi(að
hér eru engir bilar framleiddir,
en fjölmargar tegundir fluttar
inn.
Ford Escort er litill bill með
litla vél, raunar óþægilega litill
fyrir fólk, sem er hærra en i
meðallagi, — en þaö er enginn
að biðja þannig fólk um að
kaupa Escort.
Eitthvað er það samt sem
gerir Escort vinsælan bil er-
lendis. Það er eflaust það, að
billinn hefur staöið sig vel i
„rally”, varð m.a. i fyrstu
þremur sætunum og fimmta
sæti i Austur-Afriku Safari. Með
þessum sigrum og geysimiklum
auglýsingum hefur tekizt að
gera bilinn vinsælan.
— En hvað þýðir það að vinna
Safari? Fyrst og fremst er það
spurning um úthald vélarinnar
og hjólabúnaðar. Þessir hlutir,
ásamt sjálfri yfirbyggingunni,
hljóta að vera nokkuð yfir
meðallagi, miðaö við þennan
árangur. ökumaðurinn á vitan-
lega stóran þátt i þessu, og ef
hann er heimsfrægur ökuþór
hjálpar hann ómetanlega til við
auglýsinguna.
Af þeirri litlu kynningu, sem
ég hafði af Ford Escort, þegar
hann var kynntur blaðamönn-
um i siðustu viku, er ég vitan-
lega ekki fær um aö dæma hann.
En við þessi fyrstu kynni fannst
mér billinn fyrst og fremst allur
of þröngur, og ekki of vel fallinn
til langferöa á islenzkum
vegum. Þá fannst mér vélin
heldur kraftlaus, enda er hún
ekki nema 57 hestöfl, og það er
þó stærri vélin sem fæst i stand
ardbilinn. Þaö bætir þó úr, að
vélin er hraðgeng (þessi kraftur
fæst við 5500 snún. á min.), gir-
skiptingin mjög lipur og þægi-
leg, svo ná má all góðu við-
bragöi með þvi að keyra með
„sportbilahandtökum”. Það
þýöir aftur á móti meira álag á
vélina, og þvi styttri endingu og
meiri benzineyðslu. En segja
má þó, aö ekki sé þörf fyrir
meira afl i innanbæjarakstri, og
með skikkanlegri keyrslu á
eyðslan ekki að vera meiri en 9
1. pr. 100 km.
Billinn lætur aö öllu leyti vel
aö stjórn i innanbæjarakstri, og
öll stjórntæki eru vel staösett.
Ekki haföi ég tækifæri til að
reyna hann á malarvegi, en á
ósléttu malbiki var hann þýður
sem bezti töltari.
Ekki er hægt að segja, að
margt nýstárlegt sé við Escort
inn, útlitið er afskaplega
„klassiskt”, og fjaðrabúnaöur
sömuleiðis, stifur afturöxull, og
gormar aö framan. Boröa-
bremsur eru aö aftan og
framan.
En allt þetta hefur sinn kost,
þ.e. þann, að billinn er ódýr.
Hann er aðeins fluttur hingað
meö 1300 rúmsentimetra vél (57
DIN hö), og er verðið kr. 349
þúsund (tveggja dyra) og kr.
353 þúsund (fjögurra dyra).
Og eflaust stendur Ford
Escort undir þvi aö vera tilval-
inn sem „fyrsti nýi billinn”, eða
frúarbill, eins og framleiöend-
urnir segja, að sé ætlunin.
Opel
framleiðir
Rekord með
dieselvél
KEPPIR VHI MERCEDES-BENZ
I september nk. hefst fram-
leiðsla á fyrsta Diesel-Opeln-
um, en það hefur tekiö sex ár
aö fullgera þessa vél, sem á að
keppa viö Mercedes-Benz og
Peugot á diselbilamarkaðn-
um.
Opelvelin verður meö oliu-
verk frá Bosch, og rúmtak
hans er 2,1 1. en hestaflatal
an 60 DIN, og billinn sem
verður fáanlegur með þessari
vél er Rekord 11.
Vélin var m.a. prófuð i þrjá
daga samfleytt á tilrauna-
braut verksmiðjanna i Duden-
hofen, þar sem sex kapp-
akstursmenn skiptust á um aö
keyra. Þeir settu 18 hraöamet
fyrir dieselvélar. Mesti
hraöinn sem þeir náöu var 190
km/klst (fyrra metið er 162
km/klst), en þá haföi diesel
vélin veriö sett i GT módel, og
útbúin með forþjöppu. Auk
þess var notaður girkassi úr
Commodore, og vélarkraftur-
inn jókst með þessu i 95 hö. Sá
bill sem verður sendur á
markaðinn i haust náði 130 km
hraöa.
Helzti gallinn á bilnum er
talinn hvað hámarkshraöinn
er litill og viðbragðshraðinn
sömuleiðis, en þaö tekur hann
23 sek. aö ná 100 km hraða.
Vélin er miöuð við, að hún
endist i það minnsta 200
þúsund km, og hún uppfyllir
öll þau skilyrði um mengun,
sem verða lögleidd eftir fimm
ár. Reiknað er með að selja
15000 Opel Rekord 11 Diesel á
ári.
STÖDVAR FORD FRAMLEIDSLUHA
og sitthvað um breytingar á bílamarkaðnum hér heima
Svo viröist sem sala á
notuðum bilum sé að
þróast i þá átt að vera
scm jöfnust allt árið.
Haustsalan hvarf með
síldinni. og nú er sá timi
mjög tregur hjá bilasöl-
um. Þó ennþá komi sjó-
menn með fullar hendur
fjár á vorin eftir vertíö-
ina virðist þaö fara
minnkandi, og svo til
einu kippirnir, scm
koma i bilasölu eru fyrir
langar frihelgar á sumr-
in, aðallega verzlunar-
mannahelgina.
Eftir hækkunina, sem
varð á bilum i vor, fóru
menn að sækjast eftir að
kaupa nýlega bila, sér-
staklega áður en veröið á
þeim hækkaði. Þá voru
útborganir miklar, og
litið iánað, enda auðvelt
aö selja bila. Sumir bilar
seldust meira að segja
ekki nema gegn stað-
greiðslu, sérstakiega á
þetta við um Volks-
wagen.
Nú hcfur verð á
tveggja og þriggja ára
bilum hækkað nokkuð,
cn þeir seljast samt vel,
og enn hafa menn efni á
aö lána litið.
Þeir bilar, sem seljast
mest um þessar mundir
eru Voikswagen,
Cortina, Volvo,
Peugeout og Saab.
Margir spyrja lika um
Toyota og brezku bilana
frá Roots.
Sú breyting hefur lika
orðið i bilaviðskiptum
aö gamlir, ameriskir
bilar virðast vera að
hverfa, og sömu sögu er
að segja um jeppana.
Það voru aðallega ungir
menn, mest innan við
tvitugt, sem keyptu
þessa bila, en nú virðist
sem þessir ökumenn
sækist helzt eftir göml-
um, cvrópskum bilum.
Vafalaust er aðalástæð-
an fyrir þessu stórhækk-
aður rekstrarkostnaður,
sem kemur harðast nið-'
ur á stærri bilunum.
Veriö gctur, að Ford
hringurinn I Bandarikj-
unum veröi að stöðva
bilaframleiöslu sina i
sumar. Astæðan er
sú, að 1973 árgerðirnar
uppfylla ekki þau skil-
yrði, sem hafa veriö sett
um útblástursloft frá
vélum. Þessar upplýs-
ingar eru haföar eftir
f ors töðum an ni um-
hverfisverndarstofnunar
Bandarikjanna, William
Ruckelshaus, og hann
heíur skýrt mengunar
nefnd öldungardeildar-
innar frá þessum mögu-
leika.
Kuckelshaus sagði
ennfremur, að eigi bila-
framieiðsla Fords að
halda áfram verði að
milda reglugerðina á
meðan fundin sé leið til
að koma fultkomlega til
móts við hana. Haft er
eftir stjórnarmönnum
Fords, að hugsaniega
verði verksmiðjunum
lokað i fjóra mánuði, og
starfsfóiki gefiö fri, á
meðan fundin sé leið til
að minnka mengun frá
Fordvélum.
Sunnudagur 2. júlí 1972