Alþýðublaðið - 21.07.1972, Blaðsíða 9
MUNCHENFERÐIVERÐLAUN
I dag klukkan 16 hefst á Grafar-
holtsvellinum önnur stærsta golf-
keppni sumarsins hjá GR, Coca-
cola keppnin. Keppni þessi er 72
holur, með og án forgjafar, og er
hún öllum opin. Keppni þessi
gefur stig i stigakeppni GSl.
Keppnin verður með þvi fyrir-
komulagi, að allir flokkar leika
fyrstu 18 holurnar i dag. A
morgun byrjar keppnin klukkan
9, og verða þá leiknar 18 holur.
Eftir það lýkur keppni með for-
gjöf, og 20 þeir beztu halda áfram
keppni án forgjafar á sunnudag-
inn. Þá verða leiknar 36 holur, og
hefst keppnin klukkan 9.
LEIKNUM FRESTAÐ
Ekkert varð úr leik Vals og IBV
i gærkvöldi. Mótanefndin frestaði
honum nefnilega enn um sinn, en
flýtti þess i stað leik Vals og
Breiðabliks um nokkra daga. Fer
sá leikur fram á Laugardalsvelli i
kvöld. Er þetta gert vegna Fær-
eyjarfarar Vals i næstu viku.
Eyjamenn eru æfir yfir þessum
hringlanda mótanefndar, að setja
leikina á og fresta þeim siðan
jafnóðum. Eyjamenn eru bara
með 5 leiki, en Breiðabliksmenn
hafa i kvöld lokið 8 leikjum.
Einar Magnússon,
Víkingi, Sigfús Guð-
mundsson, Víkingi og
Þorsteinn Björnsson,
Fram. Þetta eru nöfn
þeirra þriggja hand-
knattleiksmanna sem i
gær urðu að hlýða á
Salómonsdóm lands-
liðsnefndar.„Þvi miður
piltar minir, við getum
ekki notað ykkur i
Munchen”.
En við 16 aðra handknatt-
leiksmenn sagði landsliðs-
nefndin, „piltar minir, þið fáið
lúxus verölaunaferð til
Munchen fyrir frábæra frammi-
stöðu i undankeppninni á Spáni i
vetur."
Það fór nefnilega eins og
marga hafði grunað, menn
stóðu ekki jafnt að vigi gagnvart
vali, ef þeir voru fyrir i hópnum
eða bættust í æfingarnar i vor.
Landsliðsnefndin hafði að visu
gcfið slikt i skyn, en varö að éta
þaö ofan i sig aftur. En nú er
Ijóst að bitinn fór aldrei nema
niöur i kok.
Aðeins einum leikmanni tókst
að smjúga inn I hópinn, sá
gamalkunni linumaður
Sigurður Einarsson. Hann kom i
stað Sigfúsar Guðmundssonar,
sem er svo óheppinn aö vera
einn þeirra iþróttamanna sem
aldrei ná að sýna sitt bezta i
landsleikjum. Sigfús er hinn
dæmigerði félagsleikmaöur,
nær alltaf sinu bezta i félags-
leikjum. Þeir Einar Magnús-
son og Þorsteinn Björnsson
komu inn i landsliðshópinn i vor.
Þeir hafa æft alveg sérlega vel,
og báðir sýndu þeir stórgóða
leiki i útimótinu i sumar. En
samt eru þessir frábæru hand-
knattleiksmcnn skildir eftir
heima, Þorsteinn liklega okkar
bezti markvöröur þegar honum
tekst upp.og Einar hávaxnasti
leikmaður islenzks handknatt-
leiks, og öruggur i hvaða lið sem
er, ef hann er rétt notaöur.
Þorsteinn átti að visu við
harðan keppinaut að etja, Ólaf
Benediktsson, en enginn vandi
er að telja upp leikmenn sem
mættu missa sín frekar en
Einar. Nöfn eins og Agúst
Ögmundsson, Stefán Jónsson og
Viðar Simonarson koma fljót-
lega upp i hugann. Nci, það er
augljóst, að menn hafa ekki
staðið jafnt að vigi gagnvart
vali.
Þessir eru þeir 16 heppnu:
Hjalti Einarsson FH, Birgir
Finnbogason FH, Ólafur Bene-
diktsson Val, Gunnsteinn Skúla-
son Val, ólafur Jónsson Val,
Gisli Blöndal Val, Stefán
Gunnarsson Val, Ágúst
ögmundsson Val, Geir llall-
steinsson FH, Viðar Simonarson
KH, Stefán Jónsson Haukum,
SigurbergurSigsteinsson Fram,
Axel Axelsson Fram, Sigurður
Einarsson Fram, Björgvin
Björgvinsson Fram og Jón
Hjaltalin Magnússon Vikingi.
Hópurinn fer utan á þriðju-
daginn, og leikur tvo leiki við
Norðmenn og tvo leiki við
Vestur-Þjóðverja. Heim kemur
hópurinn aftur 31. júli.
Myndirnar eru frá landsleik
islendinga og Bandarikja-
manna.
SS.
FRAM NÁLGAST
Hlj 13. STItlB
Framarar nálgast nú óðum 13
stigin, stigatala sem þeim er
eflaust ekki úr minni gengin. i
fyrra var Fram neirfilega lang-
efst með 13 stig I byrjun seinni
umferðar, og virtist stefna að
sigri.
En stigin hjá Fram urðu ekki
mikið fleiri en 13 i fyrra. Þegar
þessum stigafjölda var náö,
snérist allt á verri veg fyrir
Framara. Þeir töpuðu hverjum
leiknum á fætur öðrum, og
höfnuðu loks i þriðja sæti.
Einn af fyrstu tapleikjum Fram
i fyrra var gegn ÍBV i Vest-
mannaeyjum, og næsti leikur
Framara er einmitt i Eyjum, á
laugardaginn kemur. Hann getur
oröið afdrifarfkur fyrir félagið.
Það verður i öllu falli fróðlegt
aö fylgjast með frammistöðu
Fram i næstu leikjum, og engir
munu fylgjast eins náið með
henni og helztu keppinautar
félagsins.
Staðan I 1. deild er nú þessi:
Fram 7 5 11 15:6 12
1A 7 5 0 2 15:8 10
ÍBK 7 2 4 1 14:11 8
KR 6 3 12 10:8 7
Breiöabl. 7 2 2 3 7:13 6
Valur 6 2 13 11:11 5
ÍBV 5 113 9:11 3
Vikingur 7 0 16 0:13 1
Markahæstir:
Eyleifur Hafsteinsson ÍA 8
Ingi Björn Albertsson Val 6
Atli Þór Héöinsson KR 5
Föstudagur. 21. júli 1972