Alþýðublaðið - 04.08.1972, Blaðsíða 9
MORKIN A FÆRIBANDI OG
ÍSLAND TAPADI 4:1
HHtfiTTIR 2
Island mátti þola 4:1 tap í
leiknum við Noreg i gær-
kvöldi. Samkvæmt frétta-
skeyti NTB frétta-
stofunnar, var leikurinn
ákaflega lélegur, og góðir
kaflar hjá Norðmönnum í
seinni hálfleik gerðu út um
leikínn. öll mörkin komu í
.
seinni hálfleik, en Island
hafði leikið undan vindi í
fyrri hálfleik, án þess að
leikur þeirra gæfi af sér
mark. Eina mark islenzka-
liðsins skoraði Örn Óskars-
son úr Vestmannaeyjum.
islendingar sóttu nokkuö fast i
fyrri hálfleiknum, en NTB segir
* * H
LEKIIEINS 06
BYRJENDUR!
Margt merkilegt gerðist á golf-
landsmótinu i gær, en af öllu sem
gerðist vakti léleg frammistaða
þekktra meistara, svo sem
Björgvins ITólm, Einars Guðna-
sonar og Þorbjarnar Kjærbo
mesta athygli.
Slökust var frammistaöa
Björgvins Hólm, sem fór fyrri
9 holurnar á 48 höggum, og hætti
svo keppni þegar hann var að
nálgast 90 högg á 18 holurnar.
Einar fór hringinn á 88 höggum
og Kjærbo á 84 höggum. Þessir
ciga ekki lengur möguleika.
Beztu skori eftir daginn náði
islandsmeistarinn frá i fyrra,
Björgvin Þorsteinsson, fór hring-
inn á 75 höggum. Loftur og
Jóhann Benediktsson náðu 76
höggum.
Staðan að keppni hálfnaðri i
meistaraflokki er þessi:
1. Björgvin Þorsteinsson GA 151
2. Loftur Ólafsson NK 153
3. Óskar Sæmundsson GR 153
5. Óttar Yngvason GR 153
6. Jóhann Benediktsson GS 154
i 1. flokki er ómar Kristjánsson
efstur aö keppni hálfnaðri með
162 högg, Sigurjón Ilallbjörnsson
GR er efstur i 2. flokki meö 181
högg og Samúel Jónsson GR i 3.
flokki með 189 högg. i kvenna-
flokkier Jakobina Guðlaugsdóttir
GV efst með 263 högg eftir 54
holur. —SS.
að hið unga islenzka lið hafi ekki
haft mikið að segja i sterka
norska vörn. Norski markvörð-
urinn þurfti oft að bjarga vel, en
afturá mótifékk norska liðið ekki
eitt einasta tækifæri allan fyrri
hálfleik leiksins.
i seinni háifieik snerist dæmið
við, Norðmenn sóttu mun meira,
enda höfðu þeir nú vindinn i
bakið. Norski markvörðurinn
hafði litið aö gera þessar
minútur.
Fyrsta mark leiksins kom á 10.*
minútu seinni hálfleiks. Einar
Gunnarsson brá þá Jan Fuglset
innan vítateigs, og vitaspyrna var
sæmd. Úr henni skoraði Fuglset
sjálfur án þess Þorbergur fengi
vörnum við komið. Þrem minút-
um siðar bættu Norðmenn við
marki, Tom Lund frá 3. deildar
félaginu Lilleström skoraði.
A 38. minútu kom mark númer
þrjú, og hafði islenzka vörnin þá
varist af grimmd um nokkurn
tima. Þetta þriðja mark lciksins
skoraði Harry Hestad. Siðasta
mark Norðmanna gerði svo Egii
Johansen aðeins tveim minútum
fyrir leikslok. Og á siðustu
sekúndum leiksins lá knötturinn
loks i norska markinu, nýliðinn
Örn óskarsson skoraði þá eftir
hornspyrnu, og eftir að knött-
urinn hafði þvælst lengi fyrir
framan markið. Þetta er undar-
lcga árátta hjá Eyjamönnum,
þeir skora alltaf I sinum fyrsta
landsleik, samanber Tómas
Pálsson I fyrra.
i fréttaskeyti NTB er ekkert
sagt um frammistöðu einstakra
leikmanna islenzka liðsins.
FRÉTTIR FRÁ BISLET:
Ekki sýndi Islenzka iþrótta-
fólkið neitt sérstaka frammistöðu
á Bislet leikunum i gærkvöldi,
nema hvað Þorsteinn
Þorsteinsson náði ágætum tima i
800 metra hlaupi 1.51.5. Eriendur
Valdimarsson kastaði 55,72 metra
i kringlukasti, 8 metrum styttra
en sigurvegarinn Ricky Bruch.
Metin féllu hvert af öðru á
Bislet i Osió i gærkvöldi, bæöi
Norðurlandamet, landsmet og
vallarmet. Attu þar Norðmenn i
hlut i sumum greinum. Gær-
dagurinn hcfur þvi verið mikili
happadagur hjá Norðmönnum,
þvi auk góðrar frammistöðu á
Bislet sigruðu knattspyrnumann
þeirra iandslið okkar 4:1 og hand-
knattleikslandslið þeirra vann
Svia f2:10. —SS.
Getraunaseölar
Getraunirnar eru nú vaknaðar
af sumardvalanum, og hafa þær
sent út seðla fyrir 20. ieikviku, en
þar er um að ræða enska leiki
sem fram fara 12. ágúst n.k.
Getraunirnar byrja væntanlega
i rólegheitum, en að venju eykst
þátttakan mikið með haustinu.
Ólympíulágmörkin:
ADEINS VIKA
TIL STEFNU
Nú er aðeins vika til stefnu fyrir
þá iþróttamenn islenzka sem
glima við Ólympiulágmörk og
hafa ekki náð þeim ennþá. Ólym-
píunefndin þarf að ganga frá vaii
sinu og tilkynna það út til
Munchen fyrir 10. ágúst, eða fyrir
fimmtudag i næstu viku. Verður
val nefndarinnar þá væntanlega
tilkynnt opinberlega.
Nú hafa 23 islenzkir iþrótta-
menn náð lágmörkum fyrir
Ólympiuleikana, 16 handknatt-
leiksmenn, 3 sundmenn, 2 frjáls-
iþróttamenn og 2 lyftingamenn.
Sumir iþróttamannanna hafa náð
lágmörkunum tvisvar eins og
Ólympiunefndin krefst, aörir að-
eins eiuu sinni.
llandknattleiksmennirnir 16
fara örugglega á leikana, sömu-
leiðis Erlendur Valdimarsson 1R
sem keppir i kringlukasti, Lára
Sveinsdóttir A sem keppir I há-
stökki, öskar Sigurpálsson A sem
keppir í lyftingum og Guðmundur
Sigurðsson A sem einnig keppir i
lyftingum.
Sundmennirnir hafa aðeins náð
lágmörkunum einu sinni, Guðjón
Guömundsson 1A i 100 og 200
metra bringusundi, Guðmundur
Gislason A í 200 metra fjórsundi
og Friðrik Guðmundsson KR i
1500 metra skriðsundi. Verið get-
ur að ólympiunefndin taki þaö
gilt þó þessir menn nái lágmörk-
unum aðeins einu sinni, en þaö
kemur væntanlega i Ijðs.
Vrnsir íþróttamenn eru ennþá
aö reyna við lágmörkin, og það
iþróttamenn sem taldir voru i
byrjun árs öruggir á Ólympiu-
leikana.
Má þar nefna Bjarna Stefáns-
son KR, sem ekki hefur náð þvi
formi i ár sem vonazt var eftir.
Hefur Bjarni verið nokkuð langt
frá sinu bezta i 400 metra hlaup-
inu, og ekki náð að hlaupa undir
48 sekúndum, en lágmarkið er
47,5 sekúndur. Annar frjáls-
iþróttamaður reynir einnig við
lágmarkiö, Guömundur Her-
mannsson KR kúluvarpari, en
enn sem komið er vantar mikið
uppá hjá Guömundi.
i sundinu er Siguröur ólafsson
A ekki langt frá Ólympiulág-
marki, og verið getúr að hann
bætist i hóp sundmannanna
þriggja fyrir 10 ágúst. í lyftingun-
um var Gústaf Agnarsson A ekki
langtfrá lágmarkinu, en meiðsli i
baki hafa komið i veg fyrir árang-
ur hjá honum I sumar.
—SS.
KONSTANTINI
ÚR LEIK
Griska herforingjastjórnin
hefur gert að engu vonir Kon-
stantins fyrrum Grikkjakon-
ungs um þátttöku i ólympíu-
leikunum i sumar. Konstantin
er sem kunnugt er mjög snjall
siglingamaður, og vann til gull-
verðlauna á leikjunum i Róm
1960.
Skilyrði til þátttöku fyrir
Grikkland voru þau, að Kon-
stantin kæmi tii úrtökumóts i
Grikkiandi, að öðrum kosti yrði
hann ekki valinn. Þótt hann
hefði feginn viijað fara til
Grikklands, stóð honum það
ekki til boða, þvi griska herfor
ingjastjórnin vill ekki leyfa hom
um að koma inn i landið.
Föstudagur 4. ágúst 1972
9