Alþýðublaðið - 11.08.1972, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 11.08.1972, Blaðsíða 1
SEX LÆKNIS- HÉRUD LAUS Þrátl fyrir ýmsar tilraunir yfir- valda til að vinna bug á lækna- skortinum úti á landsbyggðinni eru a.m.k. sex læknishcruð læknislaus sem stendur og þannig mun ástandið hafa verið meiri hluta sumars. Alþýðublaðið hafði samband við Pál Sigurðsson, ráðuneytis- stjóra i heilbrigðisráðuneytinu, I gær og forvitnaðisl um ástandið. Hann sagði, að ckki væri að ncita, að það ríkti vandræða- ástand, en i sumar hefði ýmislegt hjálpað upp á sakirnar. Þannig hefðu margir læknar i Alþýðublaðið skýrði frá þvi fyr- ir skönimu, að hópur ungs fólks hygðist krefjast opinbcrrar rannsóknar vegna handtöku, sem lögreglan frainkvæmdi heimildarlaust að þeirra mati. Yfirsakadómaranum i Reykja- vík hefur nú bor'izt ósk þessa efnis frá lögfræðingi hér í bæ og er ósk- að eftir sakadómsrannsókn i mál- inu. Málið hefur verið fengið í hend- ur fulltrúa i sakadómi og má bú- ast við, að lögregluþjónarnir, sem Framhald á bls. 4 Keykjavik farið út á land til starfa i stuttan tima i senn auk þess, sem læknastúdentar væru viða að störfum. Þeir verða hins vegar að hætta strax og skólinn byrjar að nýju og einnig taldi Páll hættu á, að ekki yrði eins auðvelt að fá starfandi lækna i Réykjavik til þess að fara út á land i vetur, eins og verið hef- ur i sumar. Hins vegar sagði hann, að gerð- ar hcfðu vcrið aðrar ráðstafanir til þess að vinna bug á vandamál- inu, eða leysa það að einhverju leyti. i vor var t.d. samþykkt breyt- ing á læknaskipunarlögunum um nýjar stöður við rikisspitalana, en i þeim felst skylda um veru úti á landi. Kvað Páll standa vonir til þess, að þessi breyting kæmist til fram- kvæmda i haust. Þá hefur lánum til lækna- stúdenta verið breytt i styrki með skuldbindingum um veru i héraði. i sumar hafa Djúpivogur, Þórs- höfn, Raufarhöfn, Hólmavik og Flateyri verið læknislaus. FISKURINN FLÓÐI ÚT UM ALLA GÖTUNA Það óhapp vildi til um kvöld- matarleytið i gær, að heill fisk- fannur hrundi ofan af vörubils- palli hjá fyrirtæki Jóns Loftsonar á Hringbraut. Billinn var að flytja fisk fyrir Kiskvinnslustöðina, þegar óhapp- ið vildi til og var lögregla kvödd á staðinn til þess að stjórna um- fcrðinni á meðan verkamenn frá fyrirtækinu hreinsuðu fiskinn af akbrautinni. FRU SPASSKl LÉT BÍUA EFTIR SÉR §11(1 Var væntanleg með SAS í nótt Það var vonsvikinn Nei, sem sneri frá Keflavikurflugvelli með fangið fullt af blómum i gær. Blómvendirnir voru ætlað- ir fjórum rússneskum konum, þeim frú Spasski, frú Krógius, frú Geller og frú Nei. En þær létu bara alis ekki sjá sig, hvernig sem á þvi stendur. Ljósmyndarar voru að sjálf- sögðu á staðnum, þvi það hefur gengið fjöllunum hærra undan- farna daga, að von væri á frún- um til landsins, og i gær fullyrti blaðafulltrúi Loftlciða, að þær kæinu með þotu félagsins frá Kaupmannahöfn klukkan fjög- ur. Kn það cina, sem Ijósmyndar- inn okkar. Edvard. gat fest á filinu við þctta tækifæri, var vonsvikinn Nei — hann er engu likari en hryggbrotnum biðli, sem þó reynir að bera höfuðið liátt. Ilinir þrir biðu þolinmóðir á Framhald á bls. 8. SÆNSKA BREFIÐ ER KOMIÐ OG ER i bréfi, sem sendiráð Sviþjóðar hér á landi hefur sent utanrikis- ráðuneylinu, er þvi lýst yfir, að Sviar muni á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna styðja, að allar hlulaðeigandi þjóðir fái lög- mætum þörlum sinum fullnægt. „Þetta á ckki hvað sizt við um islcndinga vegna þess hve mikil- vægur þáttur fiskvciðar eru i is- lcnzku efnahagslifi”, segir i bréf- inu. Tckið er fram í bréfinu, að al- Framhald á bls. 4 BEOID UM OPINBERA RANN- SdKN A FANGELSISMALINU LðGREGLAN SEGIR ALLT ADRA SÖGU EN FANGINN Yfirlögregluþjónninn i Vest- mannaeyjum fór I gær fram á það við bæjarfógetaembættið i Vest- mannaeyjum, að fram fari opin- ber rannsókn vegna likamsá- verka, sem 22 ára gamall Selfyss- ingur scgist liafa hlotið i viðskipt- um sinum við fjóra lögregluþjóna i Eyjum. Asakanir Selfyssingsins birtust i Alþýðublaðinu i gær og þar segir liann, að lögregluþjónarnir liafi ráðizt á sig og þjarmað svo harkalega að sér, að hann hafi verið nær meðvitundarlaus á eft- ir. Og ástæðuna kveður maðurinn vera þá, að hann óskaði cftir þvi að fara á klósett, en hafði verið synjað. „Það, scm kemur fram i frétt blaðsins, ber ekki saman við það, sem lögregluþjónarnir segja”, sagði Guðmundur i viðtali við Al- þýðublaðið i gær. „Þeir segjast ekki hafa beitt liann hörku umfram það, sem nauösynlegt var. Hann hefði ætl- að að ryðjast út”. Við skýrðum frá þvi i gær, að maöurinn og fimm vinir hans liefðu verið teknir fyrir utan hús isfélagsins í Vestmannaeyjum, þegar þeir hefðu reynt að ná sain- bandi við stúlku, sem þar býr. Um þetta sagði Guðmundur, að hópurinn hefði veriðbeðinn um að lara frá húsinu vcgna ónæðis, sem þeir sköpuðu og ætlunin hefði til að bvrja með aldrei verið sú að hafa hönd á þeim. Þcir lieföu hins vegar ekki vilj- að fara frá húsinu og þvi hafi þeir verið teknir. „Það stangast svo mikiö á i sögu lögregluþjónanna og manns- ins, að ég þori varla að segja mik- ið um þetta”, sagði Guðmundur. „Þeir segjast jafnvel hafa séð hann óhaltan i bænuin daginn eft- ir og jafnvel, að hann hafi grýtt á cftir bil, sem lögregluþjónn var i”, bætti hann við. Eins og segir i frétt Alþýðu- blaðsins i gær meiddist maðurinn i baki og taliö er, að brjósk i hné hafi skaddazt eða jafnvel brotn- að. Pilturinn mun hafa i huga að kæra atvikið og mun Alþýðublað- ið lylgjast með framvindu mála á næstunni. Hafrannsóknaskipið Knorr, frá Haf rannsóknarstof nuninni i Woods HoLe i Bandaríkjunum er statt i Reykjavik og verður hér fram á laugardag 12. ágúst. Skip- ið er hér i rannsóknarleiðangri og hefur áhöfn boðið gestum að koma um borð og skoöa skipið. ÖRYGGIS- BELTIÐ BJARGAÐI KONUNNI Ný Volkswagenbifreið, sem var rétt komin á götuna, stór- skemmdist, þegar hún valt út af veginum undir Hafnarfjalli i gærdag. Mcsta mildi var, að ekki hlauztaf alvarlegt slys, en tal- ið er, að kona, sem ók bifreið- iiini og var ein i henni, hafi sloppið ómeidd vegna þess, að hún notaði öryggisbelti. Bifreiðinni var ekið á nokk- urri ferð, þegar hún fór út af veginum, og cr talið, að hún hafi fariö tvær cða þrjár velt- ur áður en hún stöðvaðist.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.