Alþýðublaðið - 11.08.1972, Qupperneq 7
UPPELDI
BÖRNSEM
SKORTIR
MÖBURÁST
EIGA A HÆTTU
DVERBVÖXT
ESADAUDA
FULLYRÐIR
BANDARÍSKUR
BARNALÆKNIR
Bandariski barna-
la-knirinn Lytt Gardner vib Rikis-
háskólann i New York heldur þvi
i'ram, aó börn, sem eiga viö litla
eöa takmarkaóa móóurást aö
búa, geti ai' þeim sökum vaxiö
mun hægar en ella, þaö dragi
mjög úr eölilegum andlegum
þroska þeirra og jainvel geli lariö
svo, aö þau aö lokum láli liiiö
vegna skorts á móöurkærleik.
Hiö la'knisfræöilega heiti sjúk-
dómsins er dvergvöxtur" og hann
helur átt þátt i dauöa fjiilda barna
á fósturheimilum. I)r. Garnder
segir, aö meira aö segja áriö 1915
hafi þessi skortur á móöurást,
umönnun og hiýju, átt þátt i 90%
dauösfalla ungbarna á barna-
heimilunum i Baltimore i Mary-
land. ,,Jafnvel i dag veröa mörg
þeirra ungbarna, sem flutt eru aö
heiman til meöferöar á sjúkra-
húsum vegna ýmissa sjúkdóma
illa íyrir baröinu á þessum sjúk-
dómi. Hins vegar er þaö lika til,
Þar lækka þeir
Þegar menn eru rétt að jafna
sig á hækkun bilaverðs á Islandi
vegna nýrra innflutningsgjalda
berast þær fréttir frá ná-
grönnum okkar Dönum, að þar i
landi sé stefnt að þvi að lækka
þessi gjöld.
Lög þar að lútandi tóku gildi 1.
júli s.l., og við rákumst á smá-
frétt i dönsku blaði þar sem eitt
innflutningsfyrirtæki tilkynnti
lækkun á bilum sinum. Það er
Chrysler i Danmörku, og
lækkunin er frá um kr. 9000 á
Simca 1100 GLS upp i kr. 11400 á
Chrysler 180.
að sjúkrahúsvist getur læknað
biirn meö „saknaöar-dvergvöxt ’,
er koma Irá kærleikssnauöum
heimilum. Kf til þeirra næst i
ta'ka tiö er ásl og umhyggja ein
saman fullna'gjandi til aö lækna
sjúkdóminn”, segir dr. (iardner.
Dr. Gardner sýnir svart á hvitu
hvernig vanriamáliö er vaxiö meö
þvi aö segja sögu af móöur, er
eignaöist tvibura, dreng og telpu.
Fjórum mánuðum siðar varð hún
svo aftur þunguö. Kiginmaöur
hennar missti alvinnuna og
strauk siöan aö heiman, en hatur
konunnar i garö eiginmannsins
færöist á tviburasoninn. Allt til
þess tima haföi drengurinn
þroskast meö eölilegum ha'tti og
var jafnvel litiö eitt á undan
systur sinni aö þroska til. Fn nú
tók heilsu hans aö hraka og
skortur móður hans á ást og um-
hyggju leiddi til þess, að
drengurinn sýndi iill merki um
„saknaðar-dvergvöxt". Þegar
drengurinn var orðinn 1 árs
gamall var hann ekki hirrri en 7
mánaða gamalt barn og systir
var oröin honum langlum fremri
aö andlegu og likamlegu atgervi -
—Barn meö ..saknaöar-dverg-
viixt” fær of litinn svefn og þjáist
af sifelldum meltingartruflunum.
Stundum kemur hárlaus blettur i
hnakkann vegna þess, aö barniö
liggur langtimunum saman
hreyfingarlitiö eða hreyfingar-
laust á bakinu. Barn, sem er svo
langt leitt af sjúkdómnum getur
sjaldnast unniö það upp og n;er i
fæstum tilfellum eðlilegum
þroska siöar. Dr. Gardner telur,
aö hann hafi lundiö hina liffræöi-
legu orsiik dvergvaxtarins". Tel-
ur hann. aö i börnum meö
„saknaöar-dvergvöxt" eigi sér
ekki staö næ'gileg framleiösla af
hormóni þeim, er veldur þvi aö
eggjahvitueíni breytast i sykur.
Slik börn geta þvi ekki hagnýtt
sér i næ'gilega rikum mæli eggja-
hvituefnin til uppvaxtar og al-
hliöa þroska, telur dr. Gardner.
Eigi er vitaö hvort þessi kenning
hans hefur enn fengið viður-
kenningu.
Mafiubófa-
striðiö i New York hefur nú þeg-
ar leitt til þess, að 17 mafiu-
foringjar hafa verið drepnir og
einn mafiforingi er kominn vel á
veg með að ná i sinar hendur
allri stjórn á glæpastarfsemi
Mafiunnar i New York. Að sögn
lögregíunnar er þaö Carlo
Gambino — 73ja ára gamall
vingjarnlegur afi. Gambino
hefur um langt skeið verið
talinn aðalstjórnandi Mafiunnar
i New York, þar sem hann hefur
haft i sinum höndum stjórn
öflugustu ,,m a f i u - f j ö 1 -
skyldunnar” þar.
Árum saman hafa bandarisk
lögregluyfirvöld reynt að fá
honum visað úr landi til ítaliu,
þar sem hann fæddist, en þær
tilraunir hafa til þessa reynzt
með öllu árangurslausar.
Lögreglan er sannfærð um, að
Gambino sé nú aðalstjórnandi
glæ'pastarlsemi Mafiunnar i
New York. Hann fer með stjórn
fjögurra af fimm mafiu-,,fjöl-
skyldum”, sem eru við lýði i
New York, og með réttu hefur
honum verið likt við ,,guð-
föðurinn”, sem er aðalpersónan
i bókinni með sama nafni, er
kom út íyrir nokkru vestan hafs
og vakti þá mikla athygli. Um
þessar mundir er verið að kvik-
mynda bókina og leikur Marlon
. Brando aðalhlutverkiö sem hinn
almáttki loringi leynifélags.
Ilinn 16. júli siðastliðinn myrti
glæ'palýðurinn mafiuforingjann
Thomas Eboli. Sá hafði reynt að
koma sér undan þvi aö verða
háöur Gambino, er viö lát Eboli
náöi stjórninni á ljóröu mafiu-
„fjölskyldunni”, aö lögreglan
segir. Anielló nokkur
Dellacroce, náinn samstarfs-
maöur Gambino gamla, er nú
kominn langt áleiöis meö að ná
stjórn á glæpakliku Eboli.
Eina mafiu-,,fjölskyldan”,
sem (iambino hefur enn ekki
náö tökum á. er Austur-Harlem-
klikan, sem er undir stjórn
Carmine nokkurs Tramunti,
uppnelndur Gribbs. Sá mun
þegar hala haft samstarf viö
Gambino-glæ’pahringinn, aö
fenginni „hvatningu”.
Moröiö á Eboli er sautjánda
mafiu-moröiö frá þvi i júni 1971,
þegar Joseph Colombo, foringi
maI iu-,,f jölskyIdu ”, sem
Gambino hefur nú náö á sitt
vald, fannst sundurskotinn og
illa særöur. Colombo er nú sem
lifandi lik vegna þeirra heila-
skemmda, er hann varö fyrir
viö banatilræ'öiö. Ejarri þvi fer
aö hann geti tekið upp sina fyrri
glæpaiöju.
Til viöbótar hinum sautján
moröum hefur mikiil fjöldi ann-
arra minni háttar mafiu-
íoringja horfiö, sem ýmist hefur
verið komið fyrir kattarnef eða
hafa hreinlega flúið.
Lögreglan hefur engar
öruggar uppiýsingar um morðið
á hinum 61 árs gamla Eboli
jafnvel þótt bilstjóri hans og lif-
vörður, hinn 53 ára gamli
Joseph Sternfeld, er var við-
staddur moröið, hafi verið
handtekinn og yfirheyrður. „Ég
hef ekki hugmynd um hvað
gerðist, ég heyröi aöeins
skotrunu”, segir Sternfeld
þessi, sem annað hvort segir
satt eöa fer aö hinum óskráðu
liigum Mafiunnar um
„omerta”: þögn gagnvart yfir-
völdunum.
Sternfeld hefur greint frá þvi,
aö hann hafi ekið Eboli til fá-
imÉMHF HHHH %^Htt3HH^^^HH^HHIiJflV . .*<!SiHHiKI^^^H9HHi
■■■■■■■ GLÆPIR 1
BLODUGT STRIÐ INNAN MAFIUNN-
AR í NEW YORK HELDUR ÁFRAM
larinnar götu i Brooklyn-
borgarhverfinu i New York, þar
sem hann var veginn. Lög-
reglan telur, aö hinn kvensami
Eboli hafi verið að fara á
stefnumót. „Eins og svo oft áður
ók ég Eboli til þessarar götu
með fyrirmælum um aö hverfa
um klukkutima skeiö”, segir
Sternfeld. Eboli var nýklipptur
og mjög vel klæddur.
„Þegar Eboli kom aftur og
æ'tlaöi að stiga inn i bilinn
( Kádilják, árgerð 1971) ók gulur
bill fyrir horniö og skotruna
heyröist", segir Sternfeld.
Eboli fékk 5 kúlur i andlitið og
hneig niöur i blóöpoll á götunni.
Lögreglan leggur ekki fulla
trú á frásögn Sternfeíd. Við
rannsóknir á staðnum kom i
ljós, að að minnsta kosti ein
kúla hefur farið i gegnum fram-
rúðuna og blóðblettir fundust i
baksætinu. Lögreglan telur þvi,
að Eboli hafi verið skotinn niður
er hann sat i bil sinum og að
hann hafi neytt siðustu krafta til
aö komast út á götuna gæti hann
bjargað lifinu meö þvi. Lög-
reglan hefur einnig látið i ljósi
undrun yfir þvi, að Sternfeld
skuli vera með öllu óskaddaöur
þrátt fyrir að hafa verið i miðri
kúluhriðinni.
Flest fórnardýrin frá þvi að
Colombo var gerður óskaðlegur
eru „óbreyttir hermenn”, af
lægstu gráðu mafiu-,,fjölskyld-
unnar”. Á ári hverju eru u.þ.b.
1500 morð farin i New York og
þvi hafa moröin á hinum
„óbreyttu „hermönnum” ekki
vakið mikla athygli. Eitt þeirra
er þó undantekning þar frá. Það
er morðið á Joey Gallo, kallaður
Óði Jói, er var skotinn til bana
hinn 7. april þegar hann sat og
snæddi kvöldverð, ásamt fjöl-
skyldu sinni og nokkrum nánum
vinum i tilefni 43 ára aímælis
sins, á litlu veitingahúsi i hinum
italska hluta Manhattan. Gallo
haföi nokkru fyrr verið látinn
laus úr fangelsi eftir að hafa af-
plánað i 7 ár dóm til 10 ára fyrir
ijárkúgun.
Gallo mun hafa verið fullur
heiftar i garð Colombo fyrir
þaþ, að hann haföi yfirtekið
hluta af hans „svæði” meðan
Gallo sat inni. Lögreglan telur,
að Gallo hafi þvi staöiö á bak viö
tilræðið við Colombo og morðið
á Gallo hafi verið hefnd.
Morðið á Gallo og óhæfni
Colombo til að gegna forystu-
starfi i glæpastarfseminni hafa
auðveldað Gambino við út-
rýmingu þeirra manna, sem
talist gátu nógu voldugir til að
snúast gegn kröfum hans um
full ráð yfir öllum mafiu-,,fjöl-
skyldum".
Átta mafiu-foringjum hafði
verið komiö fyrir kattarnef áður
en Gallo var myrtur og niu hafa
verið drepnir siðan. Eboli var
hinn sautjándi.
„Þetta er algjört bófastrið”,
segir lögreglan. Allir hinir
myrtu eru úr hinum ýmsu
þekktu mafiu-fjölskyldum og
óhugsandi er annað en þessir
glæpahópar hafi verið viðriðnir
morðin”, segir lögreglan. „Þeir
berjast upp á lif og dauða og þvi
ætti þaö ekki að koma okkur á
óvart þótt lik mafiu-foringja
taki á ný að finnast á götum og
torgum”, segir lögreglan.
Þessi mikla innbyrðis barátta
hefur auðveldað Gambino að ná
yfirráðunum i mafiu-heiminum
i New York. Hvort það tekst eða
ekki getur timinn einn skorið úr
um. Til þessa hefur Gambino
tekizt að komast undan tilraun-
um bandarisku innflytjenda-
stjórnarinnar til að fá hann
fluttan á brott.
í hvert sinn, sem hann er
kvaddur fyrir rétt af þessu til-
efni, leggur hann fram læknis-
vottorð um að hann þoli ekki af
heilsufarsástæðum jaln langa
ferö og ferðin frá Bandarikjun-
um til ttaliu væri, hjartað er
veikt.
Þvi getur hann litt eða
óhindraður haldið áfram stjórn
sinni á hinni umfangsmiklu
mafiu-glæpastarfsemi i New
York, starfsemi, sem nær til
eiturlyfja, hóruhúsa, áfengis-
smygls, fjárkúgunar, spila-
klúbba og fjárþvingunar hjá
glæsilegum veitingastöðum og
öflugum flutningafyrirtækjum.
Til viðbótar hinum sautján morðum
hefur mikill fjöidi annarra minni
háttar mafiuforingja horfið, sem
ýmist hefur verið komið fyrir
kattarnef eða hafa hreiniega flúið.
Sovézka rannsóknarskipið
Mikhail Lomonosof hélt héðan
þriðjudagskvöldið i fyrri viku
eftir nokkurra daga viðdvöl.
Undanfarið hefur skipið tekið þátt
i alþjóðlegum rannsóknum, sem
nefnast „Jarðskjálftamælingar á
Norður-Atlanzhafi”. Þetta er 26.
leiðangur skipsins, en hver leið-
angur tekur að meðaltali 3-4
mánuði.
Verkefni visindamannanna um
borð voru i þetta skipti að rann-
saka djúpstraum, sem stefnir á
móti hinum venjulegu yfirborðs-
straumum. Var þessi djúp-
straumur fyrst uppgötvaður af
visindamönnum um borð i þessu
skipi. Hlaut leiðangurinn verð-
laun rikisins fyrir.
Þessi 26. leiðangur skipsins
hófst I Sevastopol. Var fyrsta
athugun gerð við 18 breiddar-
baug. Þar er neðansjávarhryggur
sem nefnist Hvalhryggur. Við
þennan hrygg streymir botnvatn
til yfirborðsins og tekur með sér
mikla átu frá botninum. Að sögn
visindamannanna er þetta mjög
mikilvægt fyrir allt fiskilif.
Aö þessum rannsóknum loknum
tóku við rannsóknir á svæðinu
milli Islands, Bretlands Noregs
og Færeyja. Voru sprengdar
djúpsprengjur og mældi skipið
viðbrögð efri laga hafsbotnsins
við sprengingunum, sem voru
framkvæmdar af brezka rann-
sóknarskipinu Hawthorne.
Alls tóku þátt I rannsóknunum
48 stöðvar á landi og tvær um
borð i skipum. A Islandi voru
staðsettar 12 stöðvar undir stjórn
sovézks visindamanns, Beloúsof,
sem er frá sovézku visindaaka-
demiunni. Ryzjof, yfirmaður
leiðangursins, próf. Kasminskaja
og próf. Kanaéf voru að sögn
mjög ánægð með árangur rann-
sóknanna. Samstarf við visinda-
menn annarra þjóða mun hafa
heppnast mjög vel.
Þýðing Islands frá jarðeðlis-
fræðilegu sjónarmiði er mjög
mikilvæg, þvi eins og flestir vita
er ísland staðsett á miðjum
Atlanzhafshryggnum. Rann-
sóknir á kenningunni um rek
meginlanda eru þvi mjög
þægilegar i framkvæmd hér á
íslandi, svo ekki sé meira sagt.
I lok blaðamannafundar, sem
haldinn var um borð i Mikhail
Lomonosof s.l. mánudag, sagði
Béloúsof að þegar þessum rann-
sóknum yrði lokið, heföu þeir
væntanlega handbærar nýjar
upplýsingar um tilurð og sögu
Mið-Atlanzhafshryggjarins.
FORNMINJARí
KARÞAGO REIST UR RUSTUNUM DG CERD AD FERDAMANNABDRD
Fyrirhugað er að reisa úr
rústum Karþagó. borgina, sem
forðum daga var skæðasti og
voldugasti keppinautur Róma-
rikis. Og endurreist mun hún bera
nokkurn svip sins forna glæsi-
leika. öldum saman hafa eyð-
ingaröflin haft byggingar hennar
og minnismerki að leiksoppi. Nú
orðið er erfitt að þekkja þær aftur
innan um dreift stórgrýti og eyði-
bletti, þar sem túniskir bændur
reika um og reyna að finna sér
lifsviöurværi i rústum hinnar
fornu borgar Hannibals.
Alþjóðlegri herferð hefur nú
verið hleypt af stokkunum, undir
verndarvæng UNESCO, Menn-
ingar- og visindastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, sem hefur það
að takmarki að endurreisa hin
fornu minnismerki og fram-
kvæme allsherjar fornleifarann-
sókn á borgarsvæðinu öllu. Þegar
René Maheu. forstjóri UNESCO,
tilkynnti herferð þessa. sagði
hann: „Það sem i veði er, er hið
tvöfalda hlutverk mannkynsins
sem forsjá menningar og um-
hverfis. örlög Karþagó hvila á
samvizku heimsins. „Endurreisn
hinnar fornu borgar.sem er um
það bil 10 milur fyrir norðan
Túnis-borg, tekur sennilega um 15
ár og kostar a.m.k. 20 milljónir
bandarikjadala.
Kostnaði þessum verður skipt
jafnt milli UNESCO og rikissjóðs
Túnis. Áætlanirnar um endur-
reisn borgarinnar gera ráð fyrir
kerfisbundnum fornleifa- og arki-
tektúrrannsóknum i mæli, er ekki
hefur átt sér stað fyrr i Túnis.
Leitað verður ráða færustu sér-
fræðinga um endurreisn bygg-
inga og minnisvarða, svo að þeim
megi komast i sem næst upphaf-
legt ástand. Reiknað er beinlinis
með þvi, að gestir muni geta séð
borgina i meginatriðum eins og
hún var þann tima, er hún var við
lýði.
Fönikiumenn stofnuðu hana
árið 814 fyrir Krists burð og Róm-
verjar eyðilögðu hana árið 146
e.K. Fyrri hluti sögu hennar
greinir frá sifelldum bardögum
við Grikki um eignarhald á Sikil-
ey. Siðar komu Púnverjastriðin
þrjú gegn Rómariki og þá
eignaðist Karþagó sina þrjá
miklu hershöfðingja: Hamilkar,
Hasdrubal og Hannibal.
Um skeið réð Karþagó yfir
meginhluta Spánar og þaðan hóf
Hannibal hina frægu herför sina
um Suður-Farakkland og Alpa-
fjöll til ttaliu, þar sem hann réðst
á Rómaborg.
En jafnvel hin mikla her-
stjórnarlist Hannibals og notkun
fila i orrustunni dugðu honum
ekki til þess að sigrast á róm-
verska heimsveldinu. Þriðja
Púnverjastriðið stóð i 3 ár og eftir
hetjulega vörn var Karþagó eydd
og brennd af rómverskum her-
mönnum árið 146 e.K.
Borgarsvæðið allt var helgað
guðum undirheima og mönnum
var harðbannað að reisa sér
heimili á borgarsvæðinu. Siðar
meir var rómversk nýlenda reist
þar, en hún féll i hendur Vandala
á 5. öld og varð virki sjóræningja.
Þvi, sem eftir stóð af Karþagó,
eyddi siðan arabaforinginn
Hasan Ibn Noman á þvi Herrans
ári 698.
Arababorgin Túnis blómgaðist
hins vegar rétt hjá og nú er það
lýðveldið Túnis, sem mun
hagnast á endurreisninni vegna
allra þeirra ferðamanna og forn-
leifafræðinga, er sækja munu
hina fornu, endurreistu Karþagó-
borg heim.
GERVIMENN
VINNA FÁ-
BROTNUSTU
OG LEIDIN-
LEGUSTU
STORFIN
í mörgum verksmiðjum og verkstæðum i Svi-
þjóð, hafa gervimenn nú veriö settir til að vinna
fábreytilegustu og leiðigjörnustu störfin, til
dæmis við samsetningu hluta á færiböndum. Ro-
land Kaufeldt AB verksmiöjurnar sænsku hafa
„skapað” og selt 120 slika iðnaðar-gervimenn,
siðustu þrjú árin, og Eletrolux-verksmiðjúrnar
sænsku hafa þegar hafið samkeppni með fjöl-
virkum iðnaðar-gervimönnum. Það er áætlað að
slikum gervimönnum fjölgi i 20.000 i sænskum
iðnlyrirtækjum næstu tiu árin, þar sem þeir
vinni óþriflegustu „heitustu” fábreytilegustu og
leiðigjörnustu störfin. Trygging hefur verið sett
fyrir þvi, að engum iönverkamanni verði sagt
upp starfi vegna tilkvámu þeirra gervimanna.
Gervimennirnir frá Kaufeldt kosta 6.000 doll-
ara, en þar við má svo bæta kostnaði við áhöld
hans, sem numiö getur allt að 800 dollurum, en
/þau áhöld getur kaupandinn venjulega smið-
' að i sinu eigin verkstæði. Alvarlegasta sam-
keppnin i gervimannaframleiðslu lyrir heims-
markaðinn má gera ráð fyrir að verði frá Japan.
flrgangi breytt
í protein
Karl-Erik Erikson, prófessor við rannsóknar-
og lilraunastofnun trjáviðarvinnslunnar, og
samstarfsmenn hans, sækja nú um einkaleyfi á
aðferð til að framleiða næringarefni úr þeim úr-
gangi, sem fellur til við trjáviðarvinnsluna.
Þessi úrgangur, svo sem trefjar, börkur og
kvoða, hefur löngum valdið þeim áhyggjum,
sem eiga að halda mengun umhverfisins i skef j-
um. En nú telja þeir Erikson prófessor og fé-
lagar hans hins vegar að unnt muni að breyta
þessum úrgangi i nytsamleg næringarefni með
eins konar gerjun, en aöferðinni hefur ekki
verið lýst nákvæmlega með tilliti til einkaleyfis-
ins. Þó hefur nægilega mikið verið látið upp-
skátt til þess, að ekki fer á milli mála að unnt
verður að breyta úrganginum þannig i verðmæt
efni. Þar verða þvi slegnar tvær flugur i einu
höggi — erfitt umhverfisvandamál leyst og iðn-
aðurinn gerður um leiö arðbærari — og að lokum
að heimurinn er þurfandi fyrir þá framleiðslu,
sem þarna verður um að ræða.
Úrgangs-viðartrefjarnar eingöngu nema
50.000 smálestum árlega. Fram að þessu hefur
þeim að siun lokinni verið hrúgað upp i útigörð-
um verksmiðjanna, eða notuð sem uppfylling i
malarnámur úti i skógunum. En nú hafa áður-
nefndir visindamenn komizt að raun um að
sveppgerill nokkur „Chrysosporium lignorum”,
getur uppleyst hið kristallaða tréni á fjórum
sólarhringum. Við það breytist 40% af þunga
úrgangsins i eins konar mauk, „fungus Mycel-
ium”, sem inniheldur 18% af næringarefni, en
talið er að með aukinni reynslu og bættum að-
ferðum, megi auka það magn i allt að 35%. Nú
hefur sænski Tækniþróunarsjóðurinn veitt fé til
tilraunastarfsemi Eirikson prófessors og sam-
starfsmanna han^ i þvi skyni að þeir reyni
að finna hagnýtar leiðir til að framleiða protein
úr öllum úrgangi frá sögunarmyllunum sænsku,
svo hreint, að unnt verði að nota það til mann-
eldis, en þeir félagar telja sig þegar hafa náð
þeim árangri að unnt sé að nota próteinið til
skepnufóðurs, bæði kúafóður og handa svinum,
eldisfiski og kjúklingum. Einnig megi nota það
sem hráefni i efnaiðnað alls konar.
Föstudagur 11. ágúst 1972
Föstudagur 11. ágúst 1972