Alþýðublaðið - 18.08.1972, Side 9
JfiFN KEPPNI
ÚLDUNGANNA
í GOLFINU!
A miðvikudaginn var háð á
Nesvellinum landskeppni milli is-
lenzkra og tékkneskra „öldunga”
i golfi. Keppnin var ákaflega jöfn
og spennandi, og fóru leikar svo
að Tékkar unnu holukeppnina á
einni holu og íslendingarnir högg-
leikinn, einnig með einu höggi.
Má segja að munurinn hafi vart
getað orðið minni.
Fyrir íslands hönd kepptu þeir
Helgi Eriksson, Jón Thorlacius,
Magnús Guðmundsson og
Guðmundur Ófeigsson og Sverrir
Guðmundsson.
í holukeppninni, sem Tékkarnir
unnu á einni holu voru leiknar 18
holur. Var skorið þannig:
Jón Thorlacius
V. Holan
Magnús Guðm. son
B. Vokoun
J. Fulin
Helgi Eiriksson
Sverrir Guðm. son
Guðm. ófeigsson
85
88
88
88
89
89
92
90
SKRAR
ÍBA f
2. DEILD
Einn leikur fór fram i 2. deild i
fyrrakvöld, Selfoss sigraði
Ármann á Melavellinum 2:0. Var
um nokkurn heppnissigur að
ræða. Bæði mörk Selfyssinga
gerði Sumarliði Guðbjartsson, og
er Sumarliði nú orðinn markhæsti
maður 2. deildar, ásamt Kára
Arnasyni.
Þessi leikur hafði enga
þýðingu, þvi um var að ræða tvö
lið um miðju. Hins vegar stendur
lið Akureyrar bezt að vigi, ei; með
einu stigi meira en FH. En liðið á
eftir fjóra leiki, og margt getur
gerzt i þeim leikjum.
Hér er staðan i 2. deild og
markhæstu menn:
Akureyri
FH
Vöslung.
Þróttur
Selfoss
Ármann
Haukar
tsafjörður
10 8 2 0 35-9 18
107 3 0 25-8 17
105 3221-15 12
93 42 17-15 10
10 4 06 17-18 8
9 2 16 9-22 5
10 2 08 11-21 4
8 0 17 6-33 1
FYRSTA SÝNIHG
DANA ER f DAG
Markhæstu leikmenn i deildinni
eru:
Kári Arnason, IBA 11
Sumarliði Guðbjartss. Self. 11
Helgi Ragnarss. FH 9
Hreinn Elliðason Völs. 9
i dag heldur fimleikaflokkur
Danans Erik Flensted-Jensen
sina fyrstu sýningu hér á landi.
Verður sýningin á Akureyri I
kvöld, væntanlega i iþrótta-
skemmunni á Oddeyri, og hefst
klukkan 20.30.
Flokkurinn heldur hér aðrar
tvær sýningar. Sú næsta verður
á mánudagskvöld klukkan 20.30,
og fer hún fram i iþróttahúsinu i
Hafnarfirði. Og daginn eftir
heldur flokkurinn svo þriðju og
siðustu sýningu sina hér á landi
i þessari ferð. Verður hún haldin
i iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi,
og tíminn er sá sami, 20,30.
Eins og fram kom hér á sið-
unni i gær, er island fyrsti
áfangi þessa fræga fimleika-
flokks á átta mánaða hnatt-
ferðalagi. Þarf vart að hvetja
fólk til að missa ekki af sýning-
um flokksins, hann býður upp á
það bezta i sýningarfimleikum.
Hópurinn umdeildi:
TILKYNNING
OL-NEFNDAR
Miklar umræður hafa orðið
siðustu dagana um fjölda farar-
stjóra á Ólympiuleikana, enda er
hér stórt mál á ferðinni. Málinu
hafa verið gerð skil hér i blaðinu
siðustu daga.
En af ýmsum ástæðum héfur
fréttatilkynning frá Ólympfu-
nefnd islands beðið birtingar, en
verður nú úr þvi bætt. í tilkynn-
ingunni kemur greinilega fram
hverjir verða fararstjórar fyrir
islands hönd á leikunum, og þeir
eru ófáir. Þá kemur þar einnig
fram, i hvaða greinum islend-
ingar keppa á leikunum.
Þess skal getið, að auk upp-
taldra fararstjóra i greininni fer
einn i viðbót, Sigurður Magnús-
son útbreiðslustjóri ÍSÍ, en hann
fer i boði þýzkra aðila.
Fréttatilkynning.
Olympiunefnd Islands hefur
valið eftirtalda keppendur i
Olympiuleikana i Munchen.
Handknattleikur:
Hjalti Einarsson
Birgir Finnbogason
Ólafur Benediktsson
Gunnsteinn Skúlason
Geir Hallsteinsson
Ólafur H. Jónsson
Jón Hjaltalin Magnússon
Ágúst Ogmundsson
Stefán Jónsson
Sigurbergur Sigsteinsson
Viðar Simonarson
Gisli Blöndal
Björgvin Björgvinsson
Axel Axelsson
Sigurður Einarsson
Stefán Gunnarsson
Þjálfari er Hilmar Björnsson
og liðsstjóri Jón Erlendsson. 1
flokksstjórn handknattleiks-
manna eru: Einar Mathiesen,
Rúnar Bjarnason og Hjörleifur
Þórðarson.
| Frjálsar iþróttir:
: Erlendur Valdimarsson i kringlu-
: kasti.
. Lára Sveinsdóttir i hástökki.
i Bjarni Stefánsson i 400 m hlaupi.
Framhald á bls. 4
UNGLIHGAR
TIL MUNCHEH
Olympiunefndin hefur þegið
boð um að senda fulltrúa i
unglingabúðir Olympiuleikanna
og valdi til þess eftirtalda þátt-
takendur:
Kristin Björnsdóttir
Salome Þórisdóttir
Friðrik Þ. Óskarsson
Sigurður Ólafsson.
Vilhjálmur Einarsson, skóla-
stjóri og verðlaunahafi frá
Olympiuleikunum i Melbourne,
verður fyrir unglingahópnum.
A 2000. FUNDINUM
MARGIR HEIÐRADIR
Eins og við höfum skýrt frá var
2000. fundur stjórnar Knatt-
spyrnuráðs Ueykjavikur haldinn
á þriðjudaginn. Til hátlðabrigða
var gestium boðið til þessa
fundar, og þar voru nokkrir menn
heiðraðir.
Dómaramerki KRK hlutu
þessir menn: Guðmundur Guð-
mundsson Fram, Sveinn
Kristjánsson Fram, Gunnar
Gunnarsson Val, Halldór B. Haf-
liðason Þrótti og Eysteinn Guð-
mundsson Þrtti.
Lárviðarsveig KIIR hlutu
þessir mcnn: Sigurður Marelsson
Val, Þórður Þorkelsson Val, Gisli
Þ. Sigurðsson Val, Björn Sigurðs-
son Val, Þorkell Þorkelsson
Fram, Baldur Scheving Fram,
Hörður Pétursson Fram, Iteynir
Karlsson Fram, Hörður Felixson
KR, Gunnar Felixson KR,
Guðmundur Haraldsson KR,
Atli Helgason KR, Örn Steinssen
KR, Heimir Guðjónsson KR,
Ilreiðar Arsælsson KR, Gunnar
Eggertsson Ármanni, Anton
Kærnested Vikingi, Vilberg
Skarphéðinsson Vikingi, Helgi
Þorvaldsson Þrótti, Gunnar
l'étursson Þrótti og Börge Jóns-
son Þrótti.
A fundinum var lesin upp skrá
yfir þá scm setið hafa flesta fundi
KRR, i þau rúm 50 ár sem ráöið
hcfur starfað. Þcir eru:
Erlcndur Ó Pétursson KR 207
llans Kragh KR 213, Ólafur
Halldórsson Fram 237, Guðjón
Einarsson Vikingi 247, Sveinn
Zoega Val 425, Jens Karlsson
Þrótti 444, Einar Björnsson Val
568, Jón Guðjónsson Fram 881,
Haraldur Gíslason KR 937 og
ólafur Jónsson Vikingi 1096.
Núvcrandi stjórn KRR er
þannig skipuð: Ólafur Erlendsson
Vikingi, formaður, Hilmar
Svavarsson Fram, vara-
formaður, Elias Hergeirsson Val
gjaldkeri, Haraldur Gíslason KR
ritari, Gunnar Eggertsson
Armanni, bréfritari, Guðmundur
Vigfússon Þrótti, meðstjórnandi,
Sævar Sigurðsson Fyíki, með-
stjórnandi, Hreggviður Jónsson
Hrönn, meðstjórnandi og Ásgeir
Guðlaugsson ÍR, meðstjórnandi.
SS
Lausar stöður
Nokkra farastjóra vantar vegna ferðar á
Olyinpiuleika i Miinehen.
Starfsreynsla ekki nauðsynleg. Læknar,,
nuddarar og iþróttamenn koma ekki til
greina,
Umsóknir merktar ,,t>vi fleiri, þvi betra”,
scndist Visi fyrir kl. 15, 15. ágúst.
Þessa auglýsingu setti einhver gamansamur (eða aivörugefinn)
náungi i Visi i vikunni. Hún vakti þá athygli á málinu sem ætlast var
til.
Föstudagur 18. ágúst 1972
9