Alþýðublaðið - 20.08.1972, Síða 1

Alþýðublaðið - 20.08.1972, Síða 1
 Þrátt fyrir Spasski og Fischer, þá er þetta skákstjarnan i ár: Guðiaug Þorsteinsdóttir i Kópavogi. SKÁK, SKATTUR OG SKRÝTIN VIÐSKIPTI ÞAÐ ER leiðinlegt til þess að vita að sá hugsunarháttur skuli virkilega vera til að menn óski þess að verðlaunafé skákeinvigis- ins verði skattlagt hér á landi. Þessari hugmynd var hreyft i þætti i útvarpinu i fyrri viku, og opinberir aðilar hafa staðfest að verði ekki annað úrskurðað muni svo gert. Fyrir utan það að fordæmi fyrir slikri skattlagningu er vart til, þá yrði slikt einungis hnekkir fyrir okkur, og til þess eins að okkur yrði aldrei framar treyst til að annast framkvæmd hliðstæðra stórviðburða. Við kæmumst sem- sé á svartan lista,.ekki einungis hjá skáksamböndum um allan heim, sem ekki sæju sér fært að senda hingað menn á skákmót, heldur mætti ætla að i sambandi við ráðstefnur, kaupstefnur og hliðstæð alþjóðleg mót, sem hér ætti að halda, yrðum við tor- tryggðir. Og hvenær hefur sænska rikið skattlagt fé nóbelsverðlauna- hafa? Hvenær hafa erlend riki skattlagt islenka styrkþega? Er yfir höfuð til nokkuð fordæmi nokkursstaðar i heiminum um skattlagningu sliks verðlauna- fjár? Vegna þess að ýmsir eru i óvissu um réttmæti væntanlegrar skattlagningar er það krafa að opinberir aðilar geri hreint fyrir sinum dyrum varðandi þetta mál. ÖÐRU ATRIÐI varðandi skák- einvigi aldarinnar er rétt að gefa gaum. Það eru viðskipti skák- sambandsins við bissnissmann- inn Chester Fox frá New York. Hvor aðilinn ætlaði að græða á hvorum, Fox eða SSl? Og hvernig stóð á þvi að samið var við Fox án þess að samráð væri haft við aðra aðila, sem hugsanlega hefðu getað séð um framkvæmd myndatöku og sölu myndaefnis? Chester Fox hefur ekki einungis verið staðinn að þvi að hafa ætlað að hagnast á atriðum, i blóra við stjórn skáksambandsins, sem honum var ekki ætlað að hagnast á, heldur virðist forseti skáksam- bandsins gleypa hráar allar þær tölur, sem Fox gefur honum, svo sem þær að útlagður kostnaður hans við myndatökuna hafi um siðustu mánaðarmót verið orðinn sjö milljónir. Nú hefur þessi sami Fox stefnt Bobby Fischer og krafizt riflega 150 milljóna i skaðabætur fyrir tekjumissi, sem Fischer á að hafa valdið með þvi að fallast ekki á kvikmyndatöku i salnum. Skáksambandið ætlar hins vegar að leita á náðir islenzka rikisins og fá þar a.m.k. fimm milljónir til að borga hallann á einviginu. Þetta finnst manni i fljótu bragði einkennileg viðskipti, og þar sem ætlunin er að islenzkir skattborgarar beri hallann, þá væri ekki úr vegi að krefja skák- áambandið nákvæmra upplýs- inga um alla samninga þess við Chester Fox. Bjarni Sigtryggsson: UM HELGINA SUNNUDAGUR 20. AGÚST 1972 — 53. ARG. 186. TBL, 1

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.