Alþýðublaðið - 01.10.1972, Blaðsíða 3
PERLUR - TÍZKUFARALDUR
Perlur, ektaogóekta, eru það sem flæðir
yfir tizkuheiminn þessa dagana, og borið
hefur mikið á þegar haust og vetrartizkan
hefur verið sýnd i Paris að undanförnu.
Það er um perlur eins og svo marga hug-
dettuna, að þær hafa gripið um sig, og tizku-
höfundar hafa gripið þær höndum tveim.
Perlur fara nú með hverju sem er, drögt-
um, peysum kjólum, skyrtum og nefnið hvað
sem er. Þar ganga perlur.
Það eru stórar perlur, sem vinsælastar
eru, og vinsælustu litirnir eru ekta perlulitur,
svart og hvitt.
Finleg perluhálsbönd, gull og silfurlituð,
eru 'ofarlega á listanum, og einnig næstum
gagnsæjar glerperlur.
PARIS
Er erfitt að
koma sér á fætur?
Þá er um að gera að hafa góða vekjaraklukku.
Kr. 635,00 Við höfum nú ágætis úrval af fallegum klukkum
á hagstæðu verði. Komið og veljið vekjaraklukku
sem hringir mátulega hátt og auðvelt er að stoppa.
Mikið úrval Vedette eldhúsklukkur,
Wherle stofuklukkur, Pierpont úr,
og ýmsar tegundir skartgripa.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
Kr. 605,00
Kr. 645,00
Ér&fefoíáur
Laugavegi 3 - Simi 13540
Óskar Kjartansson gullsmiður Valdimar Ingimarsson úrsmiður
MENN ERII OF
BLAUTIR SEGIA
SOVÉTBLÖDIN
— Drykkjuskapur er
orðinn hættulegur þjóðar-
sjúkdómur í Sovétríkj-
unum. — Þetta er alls-
herjardómur, sem blöð
um gervöll Sovétríkin
hafa kveðið upp.
Um þessar mundir reka
fjölmiðlar í Sovétríkj-
unum ákafan áróðurgegn
óhóflegri notkun áfengis
og fylgir hann í kjölfar
nýrra strangra reglna um
sölu á rússneska þjóðar-
drykknum Vodka.
En menn efast um, að
áróðurinn beri tilætlaðan
árangur. Oft áður hefur
verið gripið til svipaðra
áróðursherferða gegn
áfengisneyzlu i Sovétríkj-
unum, en þær hafa ger-
samlega mistekizt. Þær
hafa meira segja leitt til
enn meira öngþveitis og
aukinnar heimabrugg-
unar.
i,Heimabruggað
brennivín „Fylla", hefur
náð þvílikrí útbreiðslu í
Sovétríkjunum, að líkja
verður við þjóðarógæfu.
Hún er glöggt merki um
siðferðilega úrkynjun
þjóðfélags, sem sífellt
sekkur dýpra og dýpra á
vit varanlegrar áfengis-
eitrunar!"
Þennan harða dóm
hefur hinn heimsfrægi
visindamaður, Andrej
Sacharav, sem oft hefur
verið nefndur „faðir
sovézku atombomb-
unnar", kveðið upp yfir
hinu sovézka þjóðfélagi.
Aður en síðustu aðgerðir
sovézkra yfirvalda gegn
hinni gífurlegu áfengis-
neyzlu hófusf, var verð á
Vodka hækkað verulega,
en verðhækkun hafði i för
með sér stórkostlega
aukningu á heimafram-
leiðslu áfengis. Almenn-
ingur drakk einfaldlega
eigin brennivinsfram-
leiðslu í stað hins rándýra
Vodka í rikisverzl-
ununum.
Síðustu aðgerðir hófust í
júní í sumar, er yfirvöld
ákváðu að draga verulega
úr löglegri framleiðslu
Vodka á ári hverju auk
þess sem dregið var úr
alkahólinnihaldi fram-
leiðslunnar. Ennfremur
var sá tími dagsins, sem
heimilt er að selja áfengi
á, styttur talsvert. Nú er
einungis heimilt að selja
áfengi í Sovétríkjunum á
tímabilinu frá klukkan 11
á morgnana til klukkan 19
á kvöldin.
Haft er eftir heimildum
i Sovétríkjunum, að fæstir
Rússar séu trúaðir á að
þessar aðgerðir verði til
þess að draga úr áfengis-
neyzlunni að neinu 'ráði.
Flestir segjast gera ráð
fyrir, að heimafram-
leiðslan eigi enn eftir að
aukast, þrátt fyrir hótanir
stjórnvalda um stranga
refsingu. Heimabruggara
má samkvæmt sovézkum
lögum dæma í eins til
þriggja ára fangelsi. —
Sunnudagur 1. október 1972
o