Alþýðublaðið - 04.10.1972, Blaðsíða 4
MÆLAR
ÞJÓNUSTA
FLESTIR ÞEKKJA
VOLVO HANOMAG VW
BENZ HENSCHEL B.M.W.
OPEL ^AN D.K.W.
SCANIA VABIS N.S.U.
SAAB
TAUNUS
DAF
FÆRRI VITA
AÐ ÞESSIR BÍLAR ERU MEÐ
VDO MÆLA
Fullkomin viögeröaþjónusta í eigin verkstæði.
FRAMHOLDFRAMHOLDFRAMHOLDFRAMHOLD
HASS_______________________l
stóð. Þegar fyrstu yfirheyrslur
hófust í maí mánuði í fyrra voru
nokkrir nefndarmanna mjög and-
vigir þeim, sem leiddir voru fyrir
nefndina og sögðust mótfallnir
refsingum fyrir neyzlu hass eða
marijuana. Sumir þeirra sér-
fræðinga, sem komu fyrir nefnd-
ina, voru spurðir hvort þeir
byggðu álit sitt að einhverju leyti
á eigin neyzlu þessara efna.
Einn nefndarmanna, læknir og
þingmaður, Tim Lee Carter,
spurði alla þá, sem sögðu að hass
væri ekki skaðlegt, hvort þeir
vissu um uppruna orðsins
„assassin” (morðingi). Hann
sagði siðan að það orðið væri upp-
runnið i Indlandi, komið af orðinu
hashis (hass), sem indverskir
morðingjar eru sagðir gjarnan
hal'a reykt áður en þeir fóru út að
drepa.
Nú segir Carter hafa skipt al-
gerlega um skoðun. Hass sé ekki
efni, sem valdi ruglingsvimu eða
árásarhvöt, eins og hann hafi
haldið.
Annar nefndarmanna, sem
skipt hefur algerlega um skoðun,
er Michael R. Sonnenreich, fyrr-
verandi lögfræðingur Eiturlyfja-
stofnunar Bandarikjanna, en
hann var formaður nefndarinnar.
ÞRIIMA_____________________12
gengu þeir Krag og K. B. Ander-
sen svo á fund Margrétar
drottningar og dvöldu þeir hjá
drottningunni i 10 minútur. Að
fundinum loknum sagðist Krag
hafa tjáðdrottningunni, að hann
hefði ákveðið að draga sig til
baka, sem forsætisráðherra og
að K. B. Andersen, sem gangi
næst forsætisráðherranum,
verði settur til bráðabirgða i
forsætisrá ðherraem bæ ttið.
Að fundi þessum loknum
skýrði Krag fréttamönnum frá
þvi til viðbótar að hann hefði af-
ráðið að hættta einnig sem
flokksformaður og gefa ekki
kostá séraftur til þings. Sagðist
hann þó myndu sitja út kjör-
timabilið á þingi.
Alls kyns orðrómur er nú i
gangi um, hvað Krag hyggist nú
gera, þegar hann lætur af em-
bætti forsætisráðherra. Meðal
annars er sagt, að hann hyggi á
aö flytjast til Brussel og gerast
starfsmaður EBE. Enginn slik-
ur orðrómur hefur fengið $tað-
íestingu.
HEI-MEHH____________________2
baráttu var, að þrátt fyrir gifur-
legan peningamátt fylgjenda
Eh'TA-aðildar og yfirráð þeirra
yfir um 90% allra dagblaða
landsins hurfu þeir hreinlega i
skuggann af ,,nei-fólkinu".
Þannig var það þennan
laugardag i Þrándheimi, — að
fáir virtust taka eftir litlum úti-
fundi „já-manna", en athyglin
beindist fyrst og fremst að gif-
urlegri ,,nei-göngu", sem
hlykkjaðist um miðbæinn undir
lýðraþyt tveggja lúðrasveita og
búin aragrúa spjalda með slag
orðum. Þetta var ekki ganga af
þeirri tegundinni sem við eigum
að venjast hér heima, — fjölda
þátttakenda mátti. telja i tug-
um þúsunda.
Og á mánudagskvöldið komu
stúdentar saman i félagsheimili
sinu þar sem kosningasjón-
varpsmyndinni var varpað upp
á tjald — þar var andrúmsloftið
þannig, að það mátti vera sigur-
viss ,,já-maður”, sem fór ekki að
efast, — að minnsta kosti pinu-
litið.
Samt sem áður voru skilin á
milli já og nei i Þrándheimi ekki
nema 17 atkvæði — nei i vil, en
þakið af félagsheimilinu virtist
ætla að fjúka þegar úrslitin voru
kunn.
IA-MEHH__________________2
(þ.e. Norömönnum) i samn-
ingaviðræðunum, sem i hönd
fara við Efnahagsbandalagið,
þar á meðal i viðræðum um
fiskveiðimál. BæðiDlanir og
Bretar eiga mikilla hagsmuna
að gæta á þessu sviði. Það er
Ijóst, að þessar viðræður verða
ekki auðveldari, þar sem ein-
mitt þessir aðilar sitja hinum
megin við borðið”, sagði Gutt-
orm Hansen.
EKKI STORLEIKIR ~8
Victoria, Setubal
— F’iorentina, Italiu.
Grasshoppers, Zurich
— Ararat Yerevan, Sovét.
Barreirense, Portúgal
— Keiserslautern, V-Þýzkal.
Las Palmas. Spáni
— Slovan Bratislava, Tékk.
Ruch Chorzow, Póllandi
— Dynamo Dresden, A-Þýzkal.
F'ram. Kaupmannahöfn
— Twente Enschede, Holland.
SEÐILLINN__________________5^
Cg held að ég hafi ekki ástæöu
til að kvarta um að ég hafi ekki
fengið niinn skerf af sköttunum.
Kunningi niinn sagði við niig
þegar við vorum að fara út af
fundinum. Þetta verður lagað.
Bara að syna honum Jóni seðilinn
og hann lagar þetta.
Itér með sýni ég honum Jóni
seðilinn. Klateyri 21.9. 1972
Kolbeinn Guðmundsson
R-VlkURMÖTID 9
ingur. KR, Armann og Þróttur.
Leikirnir i kvöld hefjast kl-
ukkan 20,15.Þrir leikir fara fram i
kvöld, fyrst leika Fram og 1R þá
Fylkir og Valur og siðast KR og
Þróttur.
Næsta leikkvöld er á sunnudag-
inn, og fara þá einnig fram þrir
leikir. Siðan verður leikið á
hverju miðvikudags- og sunnu-
dagskvöldi fram til 5. nóvember.
en þá lýkur keppni i meistara-
flokki karla, Keppni i öðrum
flokkum lýkur 9. desember.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
TÓNLEIKAR
i Háskólabiói fimmtudaginn 5. október kl.
2».:jo.
Stjórnandi: Karsten Andersen.
Einleikari: Eva Knardahl.
Efnisskrá: Nordheim: Canzona.
Grieg: Pianókonsert a-moll.
Sibelius: Sinfónia nr. 5.
Aðgöngumiðar i Bókabúð Lárusar
Blöndal, Skólavörðustig og Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti.
Hjúkrunarkonur —
Námsstöður
Við Landspitalann eru lausar 3 stöður
námshjúkrunarkvenna i skurðstofuhjúkr-
un.
Námið hefst 1. nóvember n.k. Umsóknareyðublöð fást
hjá forstöðukonunni, sem gefur allar nánari upplýsingar.
Reykjavik, 3. október 1972
Skrifstofa rikisspitalanna.
Ritari óskast
Við Landspitalann er laus staða læknarit-
ara.
Laun samkvæmt launakerfi rikisstarfsmanna. Góð
vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir með upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu
rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, fyrir 21. október n.k.
Reykjavik, 3. október 1972
Skrifstofa rikisspitalanna.
Sjúkraliðanám
Sjúkraliðaskóli verður starfræktur i
Landspitalanum.
Námstiminn er 1 ár og hefst 22. janúar 1973. Umsækjendur
skulu hafa lokið prófi skyldunámsstigsins og vera fullra 18
ára.
Upplýsingar gefnar og umsóknareyðublöð afhent á skrif-
stofu forstöðukonu kl. 12—13 og kl. 17—18. Umsóknir skulu
hafa borizt forstöðukonu Landspitalans fyrir 21. október
n.k.
Reykjavik, 3. október 1972
Skrifstofa rikisspitalanna.
Nútíma verkstjórn
Næsta almenna verkstjórnarnámskeið
verður haldið: Fyrri hluti 16.—28. október
1972. Siðari hluti 2—13. janúar 1973.
Farið verður m.a. yfir:
Nútíma verkstjórn, vinnusálarfræði.
Öryggi, eldvarnir, heilsufræði.
Atvinnulöggjöf, rekstrarhagfræði.
Vinnurannsóknir, skipulagstækni.
Innritun og upplýsingar i sima 81533 hjá
verkstjórnarfræðslunni, Iðnþróunarstofn-
un íslands, Skipholti 37.
Aukin þekking. — Betri verkstjórn.
Tækjafræðingur
Veðurstofa Islands óskar eftir að ráða
tækjafræðing til starfa um eins árs skeið.
Umsækjendur þurfa að hafa iðnréttindi í einhverri grein
málmsmiða, vélstjórapróf eða svipaða menntun. Fjöl-
hæfni og veruleg smiðareynsla er nauðsynleg. Laun sam-
kvæmt 17. launaflokki launakerfis opinberra starfs-
manna.
Umsóknir með upplýsingar um aldur, menntun og fyrri
störf, sem og meðmælum, ef fyrir hendi eru, sendist
Veðurstofunni fyrir 20. október næstkomandi.
Nánari upplýsingar gefur deildarstjóri áhaldadeildar
Veðurstofunnar.
o
Miövikudaqur 4. október 1972.