Alþýðublaðið - 17.10.1972, Síða 4
Lis Granlund safnvörður við Nordiska
Muséet i Stokkhólmi, sem dvelur hér á
landi á vegum Norræna félagsins, heldur
fyrirlestur um búnað húsa i Sviþjóð fyrr
og nú i Norræna húsinu miðvikudaginn 18.
okt. kl. 20,30. Öllum heimill aðgangur.
Kaffistofan opin'.
Norræna félagið.
Norræna húsið.
NORRÆNA
HUSIÐ
Skrifstofustúlka óskast
Kópavogskaupstaður óskar eftir að ráða
stúlku til starfa á bæjarskrifstofunum.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri.
Bæjarstjóri.
rantal
Orðsending frá
RUNTAL-ofnum
Viljum ráða nú þegar nokkra vandaða og
laghenta unglinga sem vilja læra logsuðu
og starf við punktsuðuvélar. Einnig kæmi
til greina að ráða i þessi störf stúlkur eða
konur, þvi þetta er ekki erfiðisvinna. Gott
starf og góð laun.
Upplýsingar ekki i sima.
rany OFNAR hl.
Siðumúla 27.
Dagskrá 3
hafa séð, að fúkyrðin til and
stæðinganna i flokknum hafa
verið stiluð til Alþýðublaðsins.
Þessar aðfarir minna óneit-
anlega mjög á hinar harðvitugu
deilur milli Sovétmanna og Kin-
verja hér á árunum, þegar
Sovétmenn beindu skeytum sin-
um alltaf að Albönum, en hinn
raunverulegi móttakandi var i
Peking. Enda segja gárungarn-
ir innan Framsóknarflokksins,
að nú loksins hafi Þórarinn get-
að haft eitthvert gagn af öllum
lestrinum um heimsmálin i
gegnum árin. — Þjóðrekur.
l&GAVl&GA OGr <ILVZRAM
Fræðslunámskeið fyrir tilvonandi foreldra
Ueilsuverndarstöð Reykjavikur gengst fyrir fræðslunámskeiðum fyrir
tilvonandi foreldra nú i vetur.
A hverju námskeiöi verða 6 fræöslufundir og verða þeir á miðvikudagskvöldum. Námskeiðinu
fylgja einnig slökunaræfingar fyrir konurnar og verða þær á fimmtudögum, i þrjú skipti alls..
Fyrsta námskeiðið byrjar miðvikudaginn 8. nóvember. Mæðradeild stöðvarinnar veitir nánari
upplýsingar og sér um innritun alla virka daga kl. 16.-17., nema laugardaga, i sima 22406.
Námskeið þessi
Seltjarnarness.
eru ókeypis og ætluð Reykvikingum og ibúum
Ileilsuverndarstöð
Reykjavíkur.
Viðtal við gullbrúðhjón
björg systir min var það. Ég var i
stúkunni Röskvu um tima, en
seinna gekk ég i Morgun-
stjörnuna, og hef verið i henni
síðan. Jón var kominn i hana
heldur fyrr, 1921 held ég. Og tvö
ár (1923 og 1924) sáum við um
Góðtemplarahúsið og ' bjuggum
þá i þvi.
Já, mcr er kunnugt um. að þið
liafið lengi verið ágætir
stuðningsmenn stúku ykkar og
Góðtemplarahúsins.
(Halla:) Þaðermiklu minna en
átt hefði að vera. Það er svo mikil
þörf að reyna að gera eitthvað til
þess að sporna við þessari miklu
vinnautn, sem er og hefur verið.
Og þá er fyrst að vera bindindis-
maður sjálfur. Og það er ekki
heldur litils virði að vera i góðum
félagsskap.
(Jón:) Hugsjónir Reglunnar
skipta miklu meira máli en
stefnumál flestra annarra félags-
samtaka. Hún er alhliða mann-
bótafélag. En bindindisstarfið eitt
er ærið nóg til að gera starf innan
hennar hverjum manni hollt og
heppilegt. Mér hefur fundist mér
skylt að reyna að gera eitthvað á
þvi sviði, þótt af veikum mætti.
sé.
Þið liafið bæði verið i Kvæða-
mannafélagi llafnarfjarðar um
langt skeið. Hvað cr gert á fund-
um þess?
(Jón:) Það er farið með visur,
þær ýmist lesnar eða kveönar.
Stundum er eins konar bók-
menntakynning ákveðnir höfund-
ar teknir til meðferðar. Svo er
spjallað saman um ýmsa hluti og
það er ort i ask. Annars erum við
Halla hætt að kveöa.
En þið yrkið bæði. Og þú hefur
gert það lengi, Jón?
Ég ólst upp við visur og kvæði.
Móður minni þótti gaman að Ijóð-
um og var sjálf hagmælt. Guð-
laugur heitinn bróðir minn gat vel
gert visu. Og svo leiddist ég út i
þetta, fyrst með öðrum.
Ég hef heyrt sitthvað eftir þig,
sumt skcmmtilegt. Og ég veit, að
þér er annt um ferskeytluformið.
Kn hvernig kanntu við hin svo-
nefndu órimuðu Ijóð?
Æ, ég finn ekki listina i þeim.
Ég sagði einu sinni um þetta:
Við samtið hef ég samband misst.
Svona með þá öldnu fer.
Það. sem núna þykir list,
það er ólist fyrir mér.
Og ef ég ber hringhenduna
saman við þetta órimaða, þá
kemur mér annar samanburður i
hug:
Við ljóðform tvenn ég liking fann,
er leit á andartaki
efnisgóðan geirnegldan
grip hjá spýtnabraki.
En kannske geta aðrir fundið
eitthvað i þessum ljóðum. Mér
varð einu sinni að orði eftir lestur
i rimleysunni:
Er ég skil á engan veg
atómljóða frægan smið:
Hvor er vitlaus, hann eða ég?
hlýtur að vera spursmálið.
En er grunda á annan veg
aldarhátta breyttu stig:
Sinu viti, vona ég,
vita muni hvor fyrir sig.
Þá er það þin visnagerð Halla.
Það er allt mesta bull. Annars
komst ég ung i kynni við visur og
kvæði. Faðir minn var kallaður
ágætlega hagmæltur. Hann orti
sitthvað, erfiljóð og lausavisur.
Og ég kunni einu sinni dálitið af
visum. En það var allt eftir aðra
en mig.
Ég vcit nú betur. Og ég vcrð að
fá að heyra eitthvað cftir þig
sjálfa.
Nú, jæja. Ég fór einu sinni með
Jóni og öðrum manni suður á
Strönd. Við stönzuðum i heiðinni
og þeir gengu frá bilnum til þess
að skoða og skoða landslagið. Þá
sagði ég. þegar þeir komu aftur:
Þú þekkir hvern stein i
Strandarheiði,
stórgrýti jafnt sem völukorn.
Atvikin mörg frá æskuskeiði
ylja þér nú við kynni forn.
Ilugurinn vermist hlýjum blæ,
heim þegar sérðu að Litlabæ.
Og einu sinni sagði ég þetta,
þegar við vorum á berjamó:
— úr opnu
Þegar berjabirgðir finn,
birtir mér i sinni.
Höndin þá og hugurinn
hlúa að velgengninni.
Og svo þú fáir að heyra eitthvað
úr annarri átt, þá sagði ég þetta
einhverju sinni, þegar kosningar
stóðu fyrir dyrum:
Kosninganna blöðin beint
bruna að dyrum minum.—
011 þau segjast hafa hreint
hveiti i poka sinum.
Alveg held ég nú að þetta sé
gjaldgengur varningur.
Ætli ég geti þá ekki vitnað i
sjálfa mig og sagt:
Lokið er, en litið var,
að láta til sin heyra.
Ég er orðin skorpið skar
og skrambi litið meira.
Og ég held, að raargur
maðurinn mætti vera ánægður, ef
hann ætti andlega heilsu á við
ykkur hjónin, þótt þið séuð komin
liátt á. áttræðisaldur.
(Halla:) Það eigum við öðrum
að þakka en okkur. Mennirnir
ráða ekki sliku sjálfir. En við höf-
um átt marga hamingjustund
saman. Fyrir það megum við
vera þakklát. Og við höfum enga
ástæðu til að kvarta. Magnús son-
ur okkar og kona hans og börnin
þeirra þrjú eru ákaflega góð við
okkur og láta sér annt um okkur.
(Jón:) Já, og við teljum okkur
hafa verið hamingjusöm i hjóna-
bandinu. Ég orti þetta i morgun:
Þakkarhrif i huga berum.
A hálfrar aldar ferðalags-
samleiðinni ánægð erum,
ástarfersk til þessa dag.
Alþýðublaðið óskar gullbrúð-
hjónunum til hamingju og þakkar
þeim störf þeirra að menningar-
málum. —Ó.Þ.Kr.
Sund 8
lýsinga til þess að hægt sé að birta
lista yfir flesta sundstaði á land-
inu, hvað þátttöku varöar. Hér
fylgja þó upplýsingar um þá staði
sem eru i keppni sin á milli.
•Fyrst er það þá staðan i keppn-
inni er stendur á milli, Reykja-
vikur, Hafnarfjarðar og Akureyr-
ar. ___________________________
IÞROTTIR______________9_
andi bezti maður FH liðsins i
leiknum, og liklega bezti maður
vallarins. Þá átti Ómar mark-
vörður góðan leik, svo og vörnin i
heild.
Vörnin var einnig sterkari hluti
ÍBK liðsins.enframlinan var afar
slök t.d. átti Steinar Jóhannsson
afleitan dag.
Smurstöðin Hraunbæ auglýsir
Smyrjum bila allan daginn og gerum við
hjólbarða.
Hjólbarðaviðgerðir!
Hraunbæ 102, simi 85130.
Þriðjudagur. 17. október 1972