Alþýðublaðið - 10.11.1972, Blaðsíða 1
HRfDVERSHAHDI ATVINNII
ASTAND EYIAKVENFÚLKS
AFLEITAR GÆFTIR, „DAUFUR"
ÁRSTÍMI - OG SUMIR LEGGJA
EINFALDLEGA BÁTUM SÍNUM
Tuttugu konur og einn karl-
maður voru skráð atvinnulaus i
Vestmannaeyjum um siðustu
mánaðamót.
„Þetta er i fyrsta sinn siðan i
kreppunni 1967 — 1968, að at-
vinnuleysi gerir innreið sina hér i
Vestmannaeyjar”, sagði Magnús
H. Magnússon, bæjarstjóri, i
samtali við Alþýðublaðið i gær.
„Atvinnuástandið fer hrið-
versnandi hjá kvenfólki, en hins
vegar er það ennþá nokkuð sæmi-
legt hjá karlmönnum, þó að þeir
hafi að visu viðast aðeins átta
stunda vinnu á dag”, sagði
Magnús bæjarstjóri.
t samtalinu kom fram, að
aðeins tæplega helmingur Vest-
mannaeyjabáta er gerður út um
þessar mundir. Nokkrir stærri
bátanna, sem eru á sjó, sigla með
aflann og selja hann erlendis, og
veita þvi ekki vinnu i landi.
Mjög slæmar gæftir hafa verið
að undanförnu og hafa margir
minni bátanna af þeim sökum
ekki komizt á sjó.
A þessum árstima eru aflalikur
taldar litlar og sem kunnugt er
eru sildveiðar bannaðar sunnan-
lands i haust nema með reknet-
um. Hafa þvi sumir útgerðar-
menn i Eyjum brugðið til þess
ráðs aðleggja bátum sinum alveg
yfir þennan daufasta árstima.
En mestur hluti flotans, sem
ekki er á sjó, er nú i klössun og er
unnið að þvi að undirbúa skipin
fyrir komandi vetrarvertið.
,,Ég geri ráð fyrir, að atvinnuá-
standið myndi lagast, ef tiðarfar
batnaði eitthvað og aflabrögð
glæddust”, sagði Magnús bæjar-
stjóri, og bætti við:
„Það bjargar miklu, að fisk-
vinnslustöðvarnar þurfa á karl-
mönnum að halda til að dytta að
Kramhald á bls. 4
Brezki togarinn:
KAUS SJflVAR-
HÁSKANN FRAM
YFIR ÍS-
LENZKA HÖFN
Brezki togarinn Ssafa FD 155
var i sjávarháska 150 milur suð-
austur af Vestmannaeyjum í gær
og var islenzkt varðskip þegar
scnt af stað honum til hjálpar. En
kl. 21.18 afturkallaði togarinn
hjálparbeiðnina og átti þá varð-
skipið ekki eftir nema stutta sigl-
ingu á þann stað, sem togárinn
var á, þegar liann sendi út
neyðarskeytið.
Laust eftir kl. f jögur i gær sendi
togarinn út neyðarskeyti eftir að
hafa fengið á sig brotsjó. Var tii-
kynnt, að miklar skemmdir hefðu
orðið á brú skipsins og það ræki
stjórnlaust fyrir vcðri og vindum.
Einnig var tilkynnt, að sjór hefði
komizt i skipiö.
Flugvél fra varnariiðinu var
strax scnd á vettvang i öryggis-
skyni Hún flaug yfir togarann um
háiftiu leytið i gærkvöldi og var
þá brezki togarinn Wyre Defense
i fyigd með Ssafa.
Við brotsjóinn fóru Ijósavélar
skipsins úr iagi og var það al-
myrkvað, siðast þegar sást til
þess, en þá stefndi það i suðaustur
i átt til Bretiands.
Þegar brotsjórinn skall á togar-
anum munu ekki hafa orðið
Framhald á bls. 4
OG I GRlMSEY ER SiFELLD
STðRHRfÐ - f SIÖNVARPINU
„Sjónvarpið hefur veriö með
afbrigðum slæmt alveg siðan i
sumar, það hefur verið stórhrið
á skerminum alla daga, hvernig
sem viðrar”, sagði Alfreö Jóns-
son, oddviti i Grimsey, er
Alþýöublaðið hafði samband við
hann i gær. Og það má teljast
slæmt fyrir þá Grimseyinga að
geta ekki mcð góðu móti horft á
sjónvarpið þar sem undanfarið
hefur litið sem ekkert gefið á
sjó, en þá er heldur litið að gera
hjá þeim. Þeir hafa fengið ein-
hvern afsiátt af afnotagjaldinu,
en „við viijum heldur borga
fullt gjald og geta notið sjón-
varpsins að fullu,” sagði Alfreö.
Þeir hafa kvartað og kvartað en
ekkert lagast, og cnginn veit
hvað er að.
„Við höfum ekki ennþá orðið
vör við veturinn hérna, frekar
en i fyrra”, sagði Alfreið þegar
við fórum út i þá sálmana. Hann
sagði, að reyndar væri norðan
strekkingur og hriðarveður, en
litill sem enginn snjór væri á
jörðu og frost tvö stig.
Það kvað viö annað hljóð er
við höfðum tal af Kristjáni
Sigurðssyni, bónda á Grims-
stöðum á Fjöllum. Hann sagði,
að snjókoma væri töluverð,
lemjustórhrið öðru hverju, en
birti þó upp á milli. Frost sagði
hann vera um sex stig, er við
ræddum við hann, laust fyrir
klukkan sex i gærkvöidi.
Framhaid á bls. 4
Það var viða vetrarlegt á Islandi i gær, og
snjór um mestallt landið. Aðeins á sunnanverð-
um Austf jörðum var auð jörð, allt að Fagurhóls-
mýri, enda hitastigið hæst þar, viðast 2-3 stig.
En á Hveravöllum voru hjónin Árni Stefánsson
og Halla Guðmundsdóttir i 19 stiga frosti, sem
að visu lækkaði niður i átta stig i gærdag. I
Grimsey var ennþá napurlegt haust, en á
Grimsfjöllum virðist veturinn vera að koma,
þar voru allir vegir orðnir ófærir i gær.
Snjór var nokkuð mikill i gær,
allt frá norðausturlandi og
suðurum, en snjódýptin mest á
Hornbjargsvita og Raufarhöfn,
15-25 sentimetrar, sagði Páll
Bergþórsson veðurfræðingur i
spjalli við Alþýðublaðið í gær.
Talsverður snjór var lika i Vest-
mannaeyjum, sagði hann, eða
10-15 sm. djúpur. Annars var
snjór litill á sunnanverðu land-
inu.
Búast má við svipuðu veðri
liklega næstu 2-3 sólarhringana,
„það er spáð kólnandi veðri og
ákveðinni norðanátt”, sagði
Páll.
Við höfðum i gær samband við
nokkra af afskekktustu stöðum
landsins að spyrja frétta af
veðri og fleiru, og fara samtölin
hér á eftir.
„Það eru norðan sjö vindstig
núna, og reyndar ekki snjókoma
eins og er, en heilmikill skaf-
renningur og frostið er átta
stig”, sagði Arni Stefánsson,
veðurathugunarmaður á
Hveravöllum, er Alþýðublaðið
ræddi við hann um þrjúleytið i
gær. Um tiuleytið i fyrrakvöld
sagði Arni, að hafi skyndilega
lægt og við það kólnað all mikið.
Það var þoka i grennd og mynd-
aðist allmikið hrim, en við þetta
komst frostið niður i 19 stig.
Þó ekki hafi snjóað á Hvera-
völlum i gær hefur verið nokkur
snjókoma þar undanfarna daga,
og hefur snjódýptin verið 30-40
sentimetrar samkvæmt snjó-
mælingum. En vegna allmikils
skafrennings hafa myndazt
töluverðir skaflar, viða eru þeir
töluvert á annan metra að dýpt.
Siðast i október komu siðast
gestir tilþeirra Hveravalla-
hjóna, en það voru leitarmenn
úr Biskupstungum. Siðan hefur
enginn komið, sagði Arni. Við
spurðum hann að lokum, hvern-
ig þeim likaði vistin þarna á há-
lendinu, en eins og kunnugt er
tóku þau við veðurathugana-
stöðinni um miðjan ágúst
siðastliðinn.
„Við höfum nú ekki mikla
reynslu af dvölinni enn sem
komið er, en við erum mjög
Framhald á bls. 4
KALSINN
Það var að visu ckki nema
eins stigs frost hér i Reykja-
vik i gærdag, en það var tals-
verður gustur og þvi asi á
mönnum og mátti lesa hroll-
inn úr svip þeirra. Við tókum
þessa mynd i miðbænum upp
úr hádeginu. — Veðurstofan
spáði norð-austlægri átt i dag
og léttskýjuðu á köflum. Og
frostið átti að vera þetta eitt
til fjögur stig.
FROSTIB VARfi
hItjAn ST1G k
HVERAVOLLUM