Alþýðublaðið - 10.11.1972, Qupperneq 9
SVO SEM EKKERT ÚVÆNT:
REAl MADRID SIGRADI
ÍR f GÆRKVOLD1117:65
Það fór eins og menii bjuggust við, Real Madrid
sigraði ÍR með yfirburðum i Laugardalshöllinni i
gærkvöldi. Lokatölurnar urðu 117:65, og má segja
að það sé i sjálfu sér afrek hjá ÍR að skora svona
mörg stig hjá þessu frægasta körfuknattleiksliði
Evrópu.
Yfirburðir Real voru algerir á
öllum sviðum körfuknattleiksins.
t liðinu voru margir leikmenn yfir
tvo metra, og þeir nýttu hæð sina
til hins ýtrasta gegn hinum smá-
vöxnu leikmönnum tR.
En það var þó einkum á einu
sviði, sem munurinn var tilfinn-
anlegastur. Var það varnarleik-
urinn sem var hreint frábær hjá
Real, pressuvörn sem var svo
þéttriðin að um tima tókst IR-ing-
um alls ekki að rjúfa hann. Þegar
losarabragur komst á vörnina,
voru IR-ingarnir fljótir að komast
á bragðið, en þeir gefðu þó ekki
meira en halda i horfinu.
Byrjunin var ákaflega skemmti-
leg og spennandi. Liðin skiptust á
um að skora, og tR hafði reyndar
yfirum tima. Hvert langskotið af
öðru frá Agnari Friðrikssyni
small i körfunni, og óhætt er að
segja að Agnar hafi verið bezta
langskytta kvöldsins, enda var
hann stigahæstur allra leikmanna
i gærkvöldi með 22 stig.
Þegar staðan var 17:16 Real
Madrid i vil, virtist svo sem allt
hlypi i baklás hjá tR. Körfuskot
tR-inga lentu ekki nálægt körf-
unni, og rúmlega helmingur allra
sendinga fór beint i hendurnar á
leikmönnum Real. A þessu tima-
bili var sem IR-ingum væri það
ómögulegt að finna smugu á
sterkri pressuvörn Real.
Enda fór svo að Real skoraði
næstu 21 stig, og staðan var
skyndilega orðin 38:16. Eftir það
var spurningin einungis sú hversu
stigamunurinn yrði mikill, og
hvort Real tækist að ná 100 stig-
um. Staðan i hálfleik var 54:26.
t seinni hálfleik keyrðu leik-
menn Real af engu minni grimmd
en i fyrri hálfieiknum, og þótt ein-
staka leikmenn týndust útaf með
fimm villur, komu bara betri
menn inn i þeirra stað. Þannig
kom sjálfur konungurinn,
Emiliano Rodriquez, ekki inná
fyrr en i lok leiksins, en hann
skoraði samt 16 stig. Lokatölurn-
ar urðu sem fyrr segir 117:65
Spánverjunum i vil.
1 liði Real Madrid eru leik-
mennirnir hver öðrum betri, og
þar er greinilega valinn maður i
hverju rúmi. Nokkuð er um út-
lenda „atvinnumenn” i liðinu, þó
það eigi að kallast áhugamanna-
'lið.
Beztu menn liðsins voru þeir
Rodriquez (no. 10) og Carmelo
Cabrera (no. 7) auk hávöxnu mið-
herjanna sem voru mjög góðir.
Paniagua (no. 8) var stigahæstur
með 20 stig, en Rodriquez,
Thimm (no. 15) og Vinas (nor. 14)
gerðu allir 16 stig.
Agnar Friðriksson var i sér-
flokki i sókninni hjá 1R með 22
stig, en varnarleikurinn var ekki
góður hjá honum. Kristinn Jör-
undsson og Birgir Jakobsson
gerðu 13 stig, Sigurður Gislason 7
stig, Einar Sigfússon 6 stig og
Pétur Böðvarsson og Kolbeinn
Kristinsson 2 stig.
Dómarar leiksins voru hreint út
sagt frábærir. —SS.
Agnar Friðriksson og Einar Sig-
fússon berjast um knöttinn ásamt
Carmelo Cabrera (No. 7). Myndin
er frá leiknum i gærkvöldi.
GUÐGEIR LEIFSSON
IFRAM!
Guðgcir Leifsson, hinn snjalli
landsliðsmaður Vikings i knatt-
spyrnu, hefur gengið i Fram.
Gekk hann frá félagaskiptunum i
fyrradag, og leikur þvi mcð Fram
næsta ár.
Guðgeir haföi fyrir löngu gefið i
skyn að hann hygöist skipta um
féíag ef Vikingur félli i 2. deild.
Stóð lengi til að Guðgeir færi til
Vestmannaeyja, en úr þvi varð
ekki.
Guðgeir hefur sagt i samtali við
iþróttasiöuna, að hann leiki
knattspyrnu aðeins ánægjunnar
vegna. Engin ánægja sé af þvi að
leika knattspyrnu i 2. dcild, og þvi
hafi ekki verið annað fyrir sig að
gera en að skipta um félag eða
hreinlega hætta. —SS.
HAUKARNIR ALVEG I SERFLOKKI
Ekkert nema hrein óheppni getur komið i veg
fyrir að Haukar úr Hafnarfirði endurheimti sæti
sitt i 1. deild i handknattleik. Á miðvikudaginn
báru Haukarnir sigur úr býtum i viðureign sinni
við Gróttu um lausa sætið i deildinni 17:9. Var
þetta fyrri leikur liðanna.
Seinni leikurinn fer framá sunnudaginn, og
þarf Grótta þá að sigra með niu marka mun,
sem er alveg útilokað, þvi Haukarnir virðast
vera heilum gæðaflokki ofar en Grótta.
Leikur Hauka og Gróttu fór
fram í hinu nýja iþróttahúsi
þeirra Hafnfirðinga. Mikill
fjöldi áhorfenda fylgdist með
.leiknum, og þeir hvöttu sina
menn með ráðum og dáð.
Greinilegt var i byrjun leiks-
ins, að taugarnar voru alls ekki i
lagi. Voru leikmenn þjakaðir
taugaspennu allan fyrri hálf-
leikinn, og fyrir bragðið var
leikurinn ekki i þeim gæðaflokki
framan af, sem hefði mátt
vænta.
Stefán Jónsson var sem fyrr
beztur i liði Hauka.
Haukarnir byrjuðu nokkuð
vel, tóku tveggja marka forystu
strax i byrjun. Þeirri forystu
héldu Haukarnir lengi vel, allt
þar til um miðjan hálfleikinn að
Grótta náði sér á strik og náði
að jafna 3:3, og siðan að komast
yfir 4:3 þegar eftir voru 10 min-
útur af fyrri hálfleik. En Hauk-
arnir hristu af sér slenið seinni
hluta hálfleiksins, og tókst að
breyta stöðunni i 7:5. A þessum
tima lék Sigurgeir Sigurðsson i
markinu hjá Haukum, og lokaði
þvi gjörsamlega.
1 byrjun seinni hálfleiks
minnkuðu Gróttumenn bilið i
7:6, en upp frá þvi var eins og
allt hryndi hjá Grótti ekki var
heil brú i leik liðsins seinni hálf-
leikinn og Haukarnir sigu fram-
úr hægt og sigandi og unnu með
átta marka mun.
Sem fyrr segir var staðan 7:6,
en Haukarnir breyttu henni
fyrst i 12:6 og siðan i 17:7. A
þessu timabili misnotuðu
Gróttumenn m.a. vitakst, og allt
gekk á afturfótunum hja þeim.
Haukarnir héldu hins vegar
fullkomlega höfði, og á þessum
minútum kom vel fram munur-
inn á þessum tveim liðum. Er
óhættað segja að Haukarnir séu
i heilum gæðaflokki betri en
Grótta.
Grótta skoraði tvö siðustu
mörk leiksins, og urðu lokatölur
sem fyrr segir 17:9 Haukum i
vil. Seinni leikurinn fer fram á
Seltjarnarnesi á sunnudáginn.
1 liði Hauka var Stefán Jóns-
son i algjörum sérflokki, enda I
mikilli æfingu eftur þátttökuna i
Ólympiuleikunum. Var Stefán
óþreytandi eins og fyrri daginn,
og krafturinn er sá sami og ætið.
Þá áttu þeir Þórður Sigurðsson
og blafur ólafsson þokkaleg-
an leik, og Elias var lipur. Báðir
markveröir liðsins vörðu vel,
hvor tveggja ungir piltar, Sigur-
geir Sigurðsson og Gunnar
Einarsson. Annars var nokkuð
áberandi hjá Haukaliðinu að út-
hald virðist ekki vera upp á það
allra bezta, og kemur það tölu:
vert á óvart, þvi liðið hefur aö
sögn æft mjög vel.
1 liði Gróttu er aðeins ástæða
til þess að nefna þrjá leikmenn,
þá Arna Indriðason, Þór Otte-
sen og Guömund Ingimarsson
markvörð. Aörir leikmenn eru
vart umtalsverðir.
Mörk Hauka skoruðu: Þóröur
4 Stefán 4, Elias 3, Ólafur 2,
Sigurður Jóakimsson 2, Haf-
steinn og Guðmundur eitt hvor.
Mörk Gróttu: Halldór 3,
Grétar 2, Kristmundur 2, Sig-
urður og Þór eitt hvor.
Á undan léku FH og Armann
aukaleik, og sigraði FH 31:20,
jafnvel þótt Geir og Hjalta vant-
aði i liðið. Eru þetta slæmar
tölur fyrir Armann.
—SS.
og hljóta að fara upp í I. deild
Föstudagur 10. nóvember 1972
o