Alþýðublaðið - 07.09.1972, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 07.09.1972, Blaðsíða 3
BLASIÐ í HÁLFA ÖLD Svona leit Lúðrasveit Reykjavíkur út fyrir 50 árum, þegar hún var stofnuð. Þá voru meðlim irnir 29, svarfklæddir og með hvita kolla. Myndin er tekin í Iðnó. Nú á hálfrar aldar af mælinu eru þeir aðeins einum fleiri en búning- arnirtil muna skrautlegri, rauðir, gulir og bláir. Afmæli Lúðrasveitar- innar bar upp á 7. júlí síð- astliðinn og í tilefni þess efnir sveitin til afmælis- tónleika í Háskólabiói kl. 15 á laugardag. Þar verður m.a. frum- flutt verk Árna Björns- sonar, Tema og varia- sjónir, en það fékk 1. verðlaun danska útvarps- ins fyrir lúðrasveitarverk nú nýlega. Tónleikaskráin byggist aðallega á íslenzkum verkum, gömlum og nýj- um, og verður Svavar Gests kynnir. i sambandi við fimmt- ugsafmælið fór Lúðra- sveitin i 20 daga ferðalag á islendingaslóðir í Bandarikjunum oq Kanada. Þar hélt sveitin víða tónleika við mikinn fögn- uð Vestur-islendinganna og í eitt skipti kom hún fram í sjónvarpi. FYRSTI BRETINN UNDIR LÆKNIS- HENDUR Fyrsti brezki togarasjómaöur- inn. sem notiö hefur sjúkrahjálp- ar á tslandi eftir aö landhelgin var færö út i 50 milur. var lagður stórslasaður inn á ísafjarðar- sjúkrahús i gærmorgun. Vestur-þýzkt eftirlitsskip. Frithiof. kom með manninn inn á isafjarðarhöfn um kl. 8,30 i gær- morgun og var hann i skyndingu fluttur á sjúkrahúsið. llann hafði lent með handlegg- inn i gálga togarans og klemmd- ist hann svo illa, að handlegginn tók na'rri af. Alþýðublaðið hafði samband við sjúkrahúsið á tsafirði i gær og fékk þær upplýsingar, að nauð- synlegt hefði reynzt að taka hand- legginn af manninum. sem er 47 ára gamall. Virarnir i gálganum klemmdu handlegg mannsins lyrir ofan olnboga og þegar við ra-ddum við la'kni á sjúkrahúsinu i garn var sá slasaði i svefndái. Hann er háseti á togaranum Falstaff frá Hull, en ósennilegt cr. að sá togari hafi verið að veið- um innan landhelginnar. þegar atvikið átti sér stað. þvi það tók vestur-þýzka eftirlitsskipið Frithiof 12 tima að sigla á tsa- fjörð. Ganghraði þess getur orðið mestur 111 milur á klukkustund, og hélt læknirinn, að togarinn hafi verið að veiðum við Grænland, þegar maðurinn slasaðist. ÁRVAKUR í GRJOTFLUTNINGUM TIL GRIMSEYJAR! OG ÞEIff ERll AD VONUM HELDUR ÖKÁTIR UM RORÐ Hvað ætli það varðskip sé að gera þessa stundina, sem búiðerbeztum tækjum til að klippa togvira, og tekið getur togara á fyrir- hafnarminnstan og auð- veldastan hátt? Er það i eldlínunni úti fyrir Vest- f jörðum? Nei, það er að flytja grjót og steinker til Grímseyjar. Og hvað skyldi áhöfn þessa varðskips segja um það að vera í hafnargerð meðan brezkir togarar streyma inn i landhelgina? Eftirfarandi frétt og viðtal við skipherrann á Árvakri sendi fréttaritari okkar á Siglufirði, Kristján Möller, okkur í gær: Árvakur hefur verið fyrir Norð- urlandi siðan landhelgin var færö út 1. september. en ekki aðallega við landhelgisgæzlu þótt varðskip sé. Hefur skipiö haft nóg aö gera við grjót og keraflutninga fyrir Grimseyinga, og er það furðuleg ráðstöfun á þessum mikla anna- tima landhelgisgæzlunnar. Eru skipverjar að vonum mjög undrandi yfir þessari ráðstöfun, — þeir vilja ólmir komast út til að verja 50 milna landhelgina. Helgi Hallvarðsson, skipherra á Árvakri. sagði eftirfarandi i viðtali við fréttamann Alþýðu- blaðsins á Siglufirði i gær: ,.Við viljum helzt ekki þurfa að beita ofbeldi til töku landhelgis- brjótanna. Við viljum fá aö taka þá eins og við erum vanir, án allra átaka, en við erum þó ávallt reiðubúnir til átaka ef svo ber undir. „OFERJANDI OG OALAHDI” Einn piltanna, sem viðriðinn er eiturlyfjamálið á Suðureyri, hef- ur nú verið gerður útlægur af staðnum, þvi ibúar Suðureyrar hafa mælzt til þess við vinnuveit- endur, að þeir taki hann ekki i vinnu, en hann hugðist dvelja áfram á staðnum. bessar upplýsingar fékk blaöið frá fréttamanni blaðsins, sem staddur var á Suðureyri i gær. Pilturinn, sem er aðkominn, var settur i varðhald i fyrrakvöld, og var hann þá i morfin vimu. t gær- morgun yfirheyrði sýslumaður hann og sleppti honum siðan, mörgum til mikillar undrunar. Hinsvegar voru aðrir tveir sett- ir i varðhlad og eru þar enn. Ljóst er nú að morfinið sem pilturinn var með. var stolið úr vélbátnum Sigurvon frá Suðureyri. — Arvakur er ekki vopnaður fall- byssu, en allir yfirmenn bera skammbyssu þegar við förum um borð i togarana. Svo höfum við alveg sérstak- lega góðar víraklippur sem klippa togvirana i sundur við fyrstu snertingu. bessar klippur hafa vélstjórar á Árvakri hannað og smiðað. Eftir þvi sem við bezt vitum hafa hin varðskipin ekki sams konar klippur. Auk þess er- um viö sérþjálfaðir i að sigla upp að togurunum og taka þáánþess að þurfa að nota gúmmibáta. bannig var einn togari tekinn i fyrra. Við biðum nú bara eftir þvi að brezku togararnir dreifi sér meira. beir geta ekki stundað svona veiðiskap til frambúðar i einum þröngum hóp. Annars þurfum við að fara að gripa til róttækari ráðagerða gagnvart þeim togurum, sem eru nafn og númerslausir og fiska áfram i okkar landhelgi og sinna ekki skipunum um að færa sig útfyrir. bað eru eingöngu ttretar, sem fiska nú fyrir innan nýju mörkin, svo og færeyskir togbátar, sem hafa leyfi til að fiska inn að 12 milna mörkunum. Brezka eftirlitsskipið Miranda er nú út af norðvesturlandi og hefur haft nóg að gera undanfarið vegna veikra og slasaðra manna. Annað brezkt eftirlitsskip er úti af suðausturlandi. Við verðum að fara að sýna Bretunum að við séum færir um að verja landhelgina með þvi að taka togarana, sagði Helgi Hall- varðsson, skipherra að lokum. ÞEIR BREZKU BORGA VEL FYRIR FRÉTTIR tslenzkir fréttamenn eru eftir- sóttir þessa dagana, a.m.k. þeir, sem spjara sig við að afla frétta af gangi landhelgismálsins, enda vantar erlendu fréttamennina oft tilfinnanlega islenzka aðstoðar- menn. Við höfðum lrétt af einum slik- um, sem veitt hefur erlendri sjón- varpsstöð fyrirgreiðslu undanlar- ið, og útvegað fréttir. Og launin eru 300 sterlingspund á viku, eða riflega 60 þúsund krónur. bótti sjónvarpsmönnunum samt bil- lega sloppið. LeiÖin í skólann Til að draga úr þcirri auknu liættu, scm fylgir skólagöngu 6—7 ára barna, hcfir umferðarráð ið i samvinnu við fræðslumálad. mcnntamálaráðuneytisins, gcfið út brcf til forcldra; sein bcr nafn- ið ..Leiðin i skólann”. Brcfið hcfur vcrið scnt til skóla i þcttbýli og þcss óskað, að þvi vcrði dreift til allra barna, scm nú hefja skólagöngu i fyrsta sinn. í bréfinu er lögð áherzla á, að foreldrar fylgi börnunum fyrstu dagana til skólanna og vclji öruggustu leiðina. bá eru einnig birtar nokkrar mikilvægar rcglur og forcldrar og kcnnarar bcðnir að lciðbcina börnunuin. Myndin er af ..forsiðu” bréfs- ins. Fimmtudagur 7. september 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.