Alþýðublaðið - 24.12.1972, Blaðsíða 1
GLEYMID EKKIJOLASKAP
INII (JÖLAUMFERÐINNI!
Þegar þetta rabb er hripað
niður við kertaljós (vegna
rafmagnsbilana) aðfararnótt
föstudags eru minna er þrir
sólarhringar til jóla — en af og
frá að veðrið sé jólalegt, og þvi
BJARNI
SIGTRYGGSSON:
UM
HELGINA
ef til vill ekki beint að undra þótt
minna fari fyrir jólaskapinu hjá
okkur en ella.
Annars erum við orðin svo
vön misjöfnum veðrum á öllum
timum árs, höfum reyndar
aldrei þekkt annað, að það væri
til of mikils ætlazt að gera ráð
fyrir þétt fallandi mjöll á höfuð
og herðar er við hreyfum okkur
utandyra. En einmitt þannig
hef ég reyndar hugsað mér hið
ákjósanlega jólaveður, og trú-
lega er á svipaðan veg farið með
marga aðra.
En það er þó eitt atriði, sem
hefur hrifsað athygli mina
þessa siðustu daga, — og það er
hversu litið umferðin batnar
þótt menn séu farnir að nálgast
kristilegra hugarfar. Vist má
saka veðrið þarna að hluta, —
og þá lika það sem ég hef heyrt,
að hestar og menn eigi sam-.
eiginlegt hér norður á hjara
veraldar, þurtglyndi skamm-
degisins. Við erum öðrum
þjóðum næmari fyrir riki ljóss
og'skugga, flest erum við börn
vorsins og gróandans en kviðum
þeim degi þegar fyrstu laufin
fjúka.
betta þunglyndi kemur svo
fram i samskiptum okkar hvert
við annað — og þótt áhrif þess
kunni að rista djúpt fái hin
hlýrri hlið hugarþelsins ekki að
ráða orðum og gerðum i nær-
veru sálar, þá er hættan samt
mest ef innbyrgð áhrif skamm-
degisins brjótast fram og fá far-
veg með 100 hestafla orku á 60
kilómetra hraða á klukkustund.
Þarna á ég að sjálfsögðu við ef
önuglyndið verður boðskap
jólanna yfirsterkari i um-
ferðinni.
Það er þvi miöur reynsla um-
ferðaryfirvalda og þeirra
annarra, sem atvinnu sinnar
vegna fylgjasl með umferðar-
málum og umferðarmenningu,
aö . veðráttan getur hæglega
ráðið þvi hvenær skapið setzt
undir stýri — og gerir. Þvi vildi
ég með þessum fátæklegu
orðum biðja Iesendur þess
lengstra orða að gleyma ekki
jólaskapinu i umferðinni. Góö
og gleðileg jól!
1
SUNNUDAGUR 24. DES. 1972 — 53. ARG. — 291. TBL