Alþýðublaðið - 03.01.1973, Síða 1

Alþýðublaðið - 03.01.1973, Síða 1
alþýðu ÞJODSTJORN - ,framtíðarmúsik?’ Ólafur Jóhannesson for- sætisráöherra kom fram i sjónvarpiá gamlárskvöld, þar sem hann varpaði fram i landsföðurlegum tón hug- nivnd — en ekki tillögu — um hreytingu á formi rikjandi þingræðisskipulags á þá leið, ,,að rikisstjórnin væri spegil- invnd af Alþingi öllu". Forsætisráðherra sagði m.a.i.Þegar rætt er um þörf á aukinni þjóðareiningu, hlýtur sú spurning að vakna, hvort það form þingræðisskipulags, sem við búum við, og upp er tekið eftir erlendri fyrirmynd, sé endilega það eina rétta fyrir smáþjóð eins og okkur. FRIÐAR- DÚFUNNI MIÐAR HÆGT í PARÍS í fréttastofufregnum frá Saigon og Paris i gærkvöldi var haft eftir heimildum innan rikisstjórnarinnar i Suður-Viet- nam, að Bandarikjamenn og Norður-Vietnamar hafi nú orðið ásáttir um málamiðlunarlausn á striöinu i Vietnam og aðilar vonist til að geta undirritað friðarsáttmála innan tveggja vikna. i sömu fregnum er hermt, að Van Thieu, forseti Suður-Viet- nam, hafi fengið vitneskju um efni þeirrar málamiðlunar, sem Norður-Vietnamar og Banda- rikjamenn hafi þegar orðið ásáttir um. Haft er eftir Van Thieu, að hann muni bcygja sig fyrir þessari málamiðlun, þó að hann sé andvigur ýmsum efnis- atriðum hcnnar. Samkvæmt upplýsingum frá Saigon og París eiga Norður- Vietnamar að hafa fallið frá kröfu sinni um að i friðarsam- komulaginu komi skýrt fram, að Norður- og Suður- Vietnam væri eitt og sama landið, þó að tviskipt væri, en ekki tvö að- .skilin riki. Þá er þvi haldið fram, að Bandarikjamenn hafi fallið frá þcirri kröfu sinni, að allt norður-vietnamskt herlið hverfi frá Suður-Vietnam. Samkvæmt sömu heimildunt hefur Nixon sent Van Thieu bréf, þar sem tekið er fram, að brotthvarf norður-vietnamsks herliðs frá Suður-Vietnam sé ekki skilyrði fyrir undirritun friðarsamninga. A Ellsworth Bunker, ambassador Banda- rikjanna i Saigon að hafa afhcnt Thieu bréf þetta :t0. dcs. Blaðafulltrúi Hvita hússins vildi ekkert um þessar fréttir segja í gær og margir háttsettir bandariskir embættismenn full- yrtu fulium fetum í gær, að engin málamiðlun um Vietnam væri fundin. Bandarikjamenn og N-Viet- namar hófu friðarviðræður á ný á þriðjudag í Paris, en þá fór fram fundur sérfræðinga beggja aðila. Friðarviðræðurnar höfðu þá legið niðri i 10 daga vcgna loftárása Bandarikjamanna á borgir Norður-Vietnam, norðan 20. breiddarbaugsins. Gcrt er ráð fyrir, að Henry Kissinger og Le Duc Tho, aðalsamninga- maður N-Vietnama hittist á fundi i Paris mánudaginn 8. janúar n.k. — FRIÐUR — JÓLAGJÖFIN SEM BRÁST | .3. SÍÐA 1200 SÁTU MÓTMÆLAFUND | 3. SÍDA TRULEEA SLYSa SKOT FREMUR EN BAHATILRÆBI Maður varð fyrir skoti úr ■haglabyssu aðfaranótt nýárs- dags, er hann var staddur i húsi hjá félaga sinum uppi i Hraunbæ, og hlaut hann stórt sár á hægra iæri og liggur nú á Borgarspital- -anum. Hann er þó ekki lifshættu- Jega særður. Rannsókn málsins stendur nú yfir, en ekki er enn ljóst með öllu, hvernig þetta atvikaðist. Fimm ‘manns voru i ibúðinni þegar skotið reið af, og munu allir hafa verið eitthvað við skál. Ekki er fullljóst hvort nokkrar missættir komu upp, en húsráð- andinn dró fram haglabyssu, og fór að handleika hana. Skömmu siðar reið skotið af og i læri mannsins, sem fyrr segir, en aðrirsluppu ómeiddir, þrátt fyrir að höglin dreifðust viða. Var særði maðurinn þegar KVADDI GAMLA- ÁRIÐ MEÐ ÞVÍ AÐ SKJÓTA VIN SINN í LÆRIÐ fluttur á Slysadeild Borgarspital- ans en lögreglan tók skotmanninn i sina vörzlu, og hefur hann verið úrskurðaður i allt að 30 daga gæzluvarðhald. t gærkvöld var ekki enn búið að yfirheyra þann sem varð fyrir skotinu, en að sögn lögreglunnar bendir ýmislegt til að þarna hafi ekki verið um banatilræði að ræða, heldur miklu fremur slysa- skot. — SAMKOMULAG UM FISKVERÐ FLOTINN STÖÐVAST ÞVI Fyrir áramót náðist samkomu- lag um fiskverð á komandi vetr- arvertið. Þá náðist einnig sam- komulag milli útgerðarmanna og rikisstjórnarinnar um ráðstafan- ir til að treysta grundvöll sjávar- útvegsins, og leiðir það af sér að ekki kemur til stöðvunar bátaflot- ans, heldur mun vertiö hefjast með eðlilegum hætti. Samkomulagiö er i þvi fólgið, að fiskverð hækkar um 9% frá og með áramótum. Þá var ákveðið að fella niður launaskatt af tekjum sjómanna, sem numið hefur 2,5% af greidd- um launum. Áætluð tala er 70-80 milljónir á ársgrundvelli. I stað þessa skatts greiða út- gerðarmenn sömu upphæð inn á reikninga sina hjá stofnfjársjóði Fiskveiðisjóðs, en stofnfjársjóðir greiða vexti og afborganir af fiskiskipum. Hafi viðkomandi út- gerðarmaður staðið i skilum meö þetta gjald innan ákveðins tima, fær hann greidda sömu upphæð á móti inná sinn reikning frá rikis- sjóði. Þetta felur það i sér, að rikið fellir niður af útgerðinni gjöld EKKI sem nema 70-80 milljónum króna, og leggur fram framlag sem nemur öðrum 70-80 milljónum. Þá hefur rikisstjórnin gefið útgerð- inni fyrirheit um hækkun rekstr- arlána um 50-60%. Samkomulag þetta var lagt fyr- ir aukaaðalfund Landssambands islenzkra útvegsmanna, sem haldinn var að morgni 30. desem- ber. Samþykkti fundurinn að fela formanni sinum Kristjáni Ragn- aicsyni að staðfesta samkomu- lagið. Þrátt fyrir þessar ráðstafanir, er talið að einhver hallarekstur verði á útgerðinni á árinu 1973. Fiskverðið var mikið rætt i yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins milli jóla og nýárs. Eins og fram kom i laugardagsblað- inu, var Jón Sigurðsson hagrann- sóknarstjóri, formaður nefndar- innar, bjartsýnn á að samkomu- lag tækist fyrir áramót, er blaðið ræddi vð hann á föstudagskvöld. Það kom lika i ljós, að samkomu- lag náðist strax um nóttina. Þess má geta, að i haust var einnig ákveðin nokkur hækkun á fiskverði, eða um 15%. FISKIFRÆDINGAR FARNIR AUSTUR TIL AD TAKA A MðTI LODNUNNI Milli jóla og nýárs veiddu tog- bátar við Austfirði þorsk fullan af loðnu. Virtist loðnan komin i það minnsta suður að Gerpi. Rannsóknarskipið Árni Frið- riksson hélt i gærkvöldi til loðnuleitar við Austfirði. Leið- angursstjóri verður Jakob Jakobsson fiskifræðingur, og með i förinni verður einnig Sveinn Sveinbjörnsson fiski- fræðingur. Þá mun Hjálmar Vilhjálms- son fiskifræðingur á næstunni halda til loðnuleitar og merk- inga með Eldborgu frá Hafnar- firði. Ætlar og Eldborg að reyna fyrir sér með flottroll, en eins og kunnugt er af fréttum, mistók- ust veiðitilraunir skipsins fyrir jól. Jakob fiskifræðingur tjáði blaðinu i gær, að þeir á Arna héldu beinustu leið á miðin út af Austfjörðum. Væri ætlunin að byrja leit við Stokksnes, og halda svo vitt og breitt um mið- in. Væri meiningin að reyna að fylgjast með öllum loðnugöng- um suður fyrir land. Þessi fyrsta rannsóknarferð á að standa til 27. janúar. Þá verður haldið til Reykjavikur, en þar aðeins stoppað i örfáa daga, en siðan haldið beinustu leið á miðin aftur, veiðiflotanum til trausts og halds. Aldrei fyrr hafa jafn mörg veiðiskip haft hug á loðnuveið- um. Ætla skip allt niður i 50 tonn að reyna fyrir sér, og svo allt upp i 800 tonn. Er það togarinn Júpiter, sem sótt hefur um leyfi til loðnuveiða með flottrolli. Alls hafa 25 skip sótt um leyfi til slikra veiða, en loðnuveiðiskipin verða liklega um 80 talsins nú. Það hefur komið fram i viðtali við Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræðing hér i blaðinu, að liklega verður loðnugangan hálfum mánuði seinna á ferðinni nú en i fyrra. Þá veiddist fyrsta loðnan 21. janúar.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.