Alþýðublaðið - 12.01.1973, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 12.01.1973, Blaðsíða 11
í SKUGGA MARÐARINS Saga ástar og örlaga eftir Victoriu Holt 54 Kross- gátu- kríliö ú£R/P Kys/DftR/NH SUT Duun TflLfí iflNóU* 5K£L i- V duRT TólJ f F/SR fíNfl ;lli' J Hv)lt buá iTGuP ■ VWK T4/u FR/vn fíR RfíuP RuU ÖLVfí TíJSt TV/‘ NLJ. f . 506H yrryrrr 1BLUN Jp//? stórtenglegt ætti eftir að gerast. sem kæmi i veg fyrir að brúð- kaupið ætti sér stað. Einhver hindrun myndi koma i 1 jós. Hvilik fjarstæða! Eins og nokkuð gæti aftrað þvi sem Mörður hafði ein- sett sér. Er þetta fyrirboði? hugsaði ég með mér. Stirling forðaðist mig enda þótt ég gerði mér allt far um að leita hann uppi. Ef hann vildi aðeins segja eitthvað; það særði mig djúpt að hann skyldi vera jafn ánægður með væntanlega gift- ingu mina og Adelaide var. En var hann það? Það átti að gefa okkur saman i litlu kapellunni, sem stóð um hálfan kilómetra frá húsinu, gestaboðið átti svo að fara fram i húsinu sjálfu. 1 klæðaskáp i her- berginu minu hékk brúðarkjóllinn minn. Adelaide hafði hengt hann þar daginn áður en hún hafði ný- lokið við hann. Hann var sann- kallað listaverk, sagði ég henni. Ég átti að bera blæju og appelsinublóm sem við höfðum keypt i Melbourne. Um nóttina fyrir brúðkaupið sneri efinn og óttinn aftur marg- faldaður. Ég hughreysti sjálfa mig með þvi að vafalaust liði flestum brúðum þannig kvöldið fyrir brúðkaupið. Ég hugsaði i si- fellu um hin alvarlegu að- vörunarorð Jessicu. Myndi hann breytast gagnvart. mér eins og Arabellu og Maybellu? Hann hafði borið ást sina til min saman við tilfinningar sinar til Arabellu og likt þvi við muninn á skógar- eldi og kertisloga. Skógareldur — það var óheppileg samliking! Og það var fráleitt að láta aðvaranir Jessicu halda fyrir sér vöku. Hún var ekki með réttu ráði hvort sem var. Ég imyndaði mér augnaráð hans þegar hann sæi mig daginn eftir og mig langaði til að fara i brúðarkjólinn til að fullvissa sjálfa mig um að ég væri falleg. Ég smeygði mér i hann og furðaði mig á þeirri vinnu, sem lögð hafði verið i hann. Adelaide var vissu- lega ástrik dóttir. Og nú yrði ég stjúpmóðir hennar — stjúpmóðir Adelaide og Stirlings. Ég dró blæjuna yfir andlitið og hagræddi blóminu. Arangurinn varð dásamlegur. — Brúðir eru alltaf fallegar, sagði ég upphátt. Já, svaraði ég sjálfri mér, — en þú ert það i raun og veru þannig klædd. — Það er aðeins kjóllinn og blæjan. Hún hylur andlit þitt mátulega. Ætli honum þyki þú falleg? — Honum þykir það nú þegar. — Jafn falleg og Ara- bella...Maybella..og hinar? — Þvættingur. Þær eru dánar og þú ert ung. Þú ert hér, og þú ert ekki einungis eftirsóknarverð ung kona. Þú ert honum meira en nokkur hefur nokkru sinni verið. Þú færðir honum aftur æsku hans. Hann sagði það. Og þú færðir hon- um gullið. Ég hrökk við, rjóð i kinnum. Ég vildi óska að Jessica legði niður þennan óþægilega vana sinn að læðast um og birtast allt i einu og óvænt. — Jessica, sagði ég ásakandi, — ég heyrði þig ekki berja að dyr- um. — Það er vegna þess að þú varst að tala við sjálfa þig. Það gerði Maybella lika. Þú ert alveg eins og hún þegar þú hefur blæjuna fyrir andlitinu. Þetta gæti verið Maybella, sem stæði þarna, fyrir þrjátiu árum. — Tizkan hlýtur þó að hafa breytzt siðan. — Blæjan var með öðru sniði. Hún hafði ekkert appelsinublóm. Aðeins hvita satinurykkingu. Það var yndisleg blæja og hún var svo falleg með hana. Ég hef aldrei séð neinn eins hamingjusaman og Maybella var að morgni brúð- kaupsdagsins. En hún vissi ekki heldur hvað beið hennar. Ég reyndi að vera hagsýn. — Fyrst þú ert hérna, Jessica, geturðu hjálpað mér úr. Ég tók af mér blæjuna og blómið og lagði það i öskju sina. Svo sneri ég við henni baki og hún fór að baksa við krókapörin. — Það er óheillamerki að fara i brúðarkjólinn kvöldið fyrir brúð- kaupið. — Vitleysa. —- Maybella klæddist sinum kvöldið áður..alveg eins og þú. Hún strunzaði þarna fram og aftur. ,,Er ég falleg, Jessie?” spurði hún. ,,Ég verð að vera það. Hann ætlast til þess”. — Við ættum ekki að láta kerlingabækur hafa áhrif á okkur. Nú verð ég að fara að hátta. Ég á mikið annriki fyrir mér á morgun. Góða nótt, Jessica. Hún hristi höfuðið i uppgjöf. — Góða nótt. Ég afklæddist og fór i rúmið en innan skamms var hún komin aftur. — Ég er hérna með heita mjólk handa þér. Þú sofnar vel af henni. — Það var fallegt af þér, Jessica. Hún lét hana frá sér á borðið við rúmið, stóð svo kyrr og beið. — Þú þarft ekki að biða, sagði ég. — Ég ætla að drekka hana á eftir. Góða nótt og þakka þér fyrir. Hún sveif út. Mér datt i hug að læsa dyrunum. Svo fór ég að hlæja að sjálfri mér. Það var ástæðulaust að vera hrædd við fáráðlinginn hana Jessicu. Ég saup á mjólkinni. t rauninni langaði mig ekkert i hana, en það myndi særa Jessicu ef ég drykki hana ekki. Ég hugsaði um Mörð sem endur fyrir löngu hafði verið-elskhugi þeirra beggja — Maybellu vegna þess að hún var dóttir hús- bóndans, og Jessicu að öllum likindum vegna þess að hann vildi það sjálfur. Það var allt um garð gengið. Hann var breyttur. Hann var ekki lengur sá maður, sem komið hafði inn i garðinn til þeirra með merki eftir járnin á úlnliðunum. En hann hafði hvorki gleymt þvi né fyrirgefið það. Ö Mörður, hugsaði ég, þú ert jafn hörundsár og við hin. Og ég sagði sjálfri mér að hann þarfnaðist min til að annast um sig. Hann átti einnig eftir að læra af lifinu, til dæmis það að hefndin var til- gangslaus — hún var friðarspillir og friður var undirstaða hamingjunnar. Nora hin vitra, hugsaði ég og brosti með sjálfri mér. Og elsku Mörður, sem ég vildi — að vera hjá honum, elska hann, i bliðu og striðu, þar til dauðinn aðskildi okkur. Loksins skildi ég það. Eg var gæfusömust allra kvenna. Mörður elskaði mig. Mörður sem var elskaður sjálfur, virtur og dáður umfram aðra menn, hann elskaði niig. Nú skildi ég hatur Jessicu: það stafaði af þvi að hún hafði elskað hann og misst hann. Hún hafði ef til vill verið honum litils eða einskis virði, en hann hafði verið henni allt, og hún hafði horft á hann kvænast frænku sinni og hafði búið undir þeirra þaki árum saman. Það var sizt að undra þótt hún væri orðin eitthvað geggjuð. Hve geggjuð? Eg leit á mjólkina og hræði- legur grunur gerði vart við sig hjá mér. Ósjálfrátt tók ég hana upp, gekk út að glugganum og hellti henni niður. Svo hló ég að sjálfri mér. Brúðkaupsskrekkur. sagði ég upphátt. — Þú imyndar þér að þessi veslings litla kona geti byrlað þér eitur, til að hefna sin á manninum sem hún elskaði einu sinni — og elskar ef til vill enn — vegna þess að hún geti ekki af- borið að sjá hann kvænast. Ég opnaði skáphurðina og horfði á kjólinn minn. Siðan lyfti ég öskjulokinu og handfjatlaði blæjuna. Eftir morgundaginn, hugsaði ég, verða allar efasemdir á bak og burt. Við verðum saman...þar til dauðinn aðskilur okkur. Ég sofnaöi nærri samstundis. Mig hlýtur að hafa dreymt að vofa Maybellu kæmi til min og stæði við rúm mitt. Hún tók blæjuna og blómið af höfði mér — þvi i draumnum hafði ég hana á höfðinu — og lét i staðinn á mig blæju með satinpifum. Þá heyrði ég rödd. Það var rödd Jessicu. — Nú ertu tilbúin, May- bella. En mundu að þetta verður aðeins um stundarbil. Ég vaknaði og lá i svitakófi. Fyrstu sekúndurnar hélt ég að Maybella hefði i raun og veru risið upp úr gröf sinni til að að- vara mig, þvi þarna á snyrti- borðinu hjá mér var slæðan með, satinurykkingunum og það leið nokkur stund áður en ég gerði mér ljóst að hún haföi verið hengd á litla styttu sem stóð á borðinu. Ég fór fram úr rúminu og gekk þangað. 69 yfir 251. hverfi. Athugaðu, hvaða hús er á bak við Austur 73. stræti 535. Það er norðan- vert við 73. stræti, svo að þetta hús er á suðurhlið 74. strætis. Sennilega nr. 534 eða 536. Fáðu lýsingu á þvi. Hailey: Já.Kl. 2.52.49. Fineally: Viltu tala við mig? Jameson: S im a m enn ir ni r segja, að simi húsvarðarins sé óvirkur. Þeir vita ekki, hvað veldur. Og það er ekki svarað i nokkurn sima húss- ins. Fineally: Hver sagði þeim að reyna önnur simanúmer i húsinu? Jameson: Það gerði ég. Fineally: Hvað heitir þú? Jameson: Marvin Jameson. Fincally: Háskólagenginn? Jameson: Ég var i tvö ár i há- skóla. Fineally: Þú stendur þig vel, Jameson. Ég gleymi þessu ekki. Jameson: Þakka yður fyrir. Kl. 2.59.03. Bailey: Húsið á bak við Austur 73. stræti 535 er Austur 74. stræti 536. Það er tiu hæða ibúðahús, og svæðið á milli húsanna er steinlagt. Fineally: Gott og vel. Hver tal- aði við bilstjórann, sem sá — eða þóttist sjá grimumenn- ina? Jameson: Ég talaði við sendi- boðann. Fineally: Þú aftur? Hvaða bill var það? Jameson: Georg þrir. Finealiy: Hvar er hann nú? Jameson: Ég skal komast að þvi. Fineally: Vertu fljótur. Undir- foringi. O'Nuska: Já. Fineally: Finnst þér, að við ættum að láta sækja varð- stjórann? O'Nuska: Já. Fineally: Það finnst mér lika. Hringdu til hans og láttu bil- stjórann hans vita. 3.01.26 Jameson: Liðþjálfi. Fincally: Já. Jameson: Bill Georg þrir biður á Austur 73.stræti. Fineally: Láttu hann aka að Austur 74. stræti 536. Ekkert sirenuvæl. Segðu þeim að fara upp á þak hússins eða þak einhvers annars húss, þaðan sem þeir sjá niður á Austur 73. stræti 535. Segðu þeim að tilkynna allt, sem þeir sjá. Hefurðu það? Jameson: Já. O’Nuska: Varðstjórinn er á leiðinni. En hann verður að koma um Queens. Það verður ekki fyrr en eftir hálftima i fyrsta lagi. Fineally: Jæja þá. Þetta getur samt verið gabb. Við ættum að hringja á varðstöðina i 251. hverfi og tala við varðstjór- ann og segja honum, hvað er á seyði. Reyndu að komast að . þvi, hvar nærtækustu götu- lögregluþjónarnir eru. Við ættum að senda þrjá bila i viðbót. Þeir mega hvorki nota sirenur né ljós. Segðu varð- stjóranum i 251-hverfi, að við munum senda tvo bila úr hverfi Harry. Þú annast það. Og við tilkynnum honum gang mála. Við skulum nú sjá — höfum við gleymt einhverju? O’Nuska: Hvað um árása- sveitina? Fineally: Guð blessi þig og varðveiti. En hvar er hún i kvöld? Nú er almenn frihelgi. O’Nuska: Við ráðum yfir einum fólksflutningabil með tuttugu mönnum. Ég segi þeim að búast til átaka. Fineally: Agætt. O’Nuska: Og ég var ekki i háskóla. (67) Hér verður fram haldið frá- sögn Gerald Binghams yngra, eins og hann skýrði fulltrúa héraðssaksóknara New York frá málavöxtum. Vitnið:Eg gizkaði á, að klukkan væri nú um þrjú. Ég heyrði raddir og hávaða handan yfir ganginn. Ég áleit, að þjóf- arnir létu greipar sópa um ibúð 5B og myndu brátt snúa sér að okkar ibúð. Ég varð allkviðinn, þvi að hjá þvi gat ekki farið, að þeir fyndu raf- eindabúnaðinn i skápnum. En ég huggaði mig við, að ekki væri vist, að þeir kynnu skil á tækjunum. Ekki var vist, að þeir sæju, að þetta var stutt- bylgjusendir. Ef til vill gæti ég sannfært þá um, að þetta væri hluti af hljómflutnings- tækjum. Hvað um það. Enda þótt ég væri hræddur — ég fann að ég var rennvotur af svita —- þó var ég ekki hræddur um sjálf- an mig. Þeir gátu ekki vitað, að ég hafði notað tækin. Og ég var ekki trúaður á, að þeir færu að drepa mig. En sársaukinn er mér ekkert nýnæmi, og það var ekki óeðlilegt að ég væri hræddur. En ég kveið þvi, að þeir kynnu að misþyrma foreldrum minum. Reyndar var ótti minn ástæðulaus. Einhverra ástæðna vegna, sem mér voru ekki ljósar þá hlupu þeir ger- samlega yfir okkar ibúð. Eini maðurinn, sem kom inn, var hávaxni, granni maðurinn, sem hafði fjarlægt hjóla-. stólinn og hækjurnar fyrr um nóttina. Hann kom inn, gekk að rúminu minu og sagði: ,,Hefur þú verið góður?” ,,Já, herra,” svaraði ég. Ég hafði ekki fyrr sleppt orðinu, en ég furðaði mig á því, hvers vegna ég hafði kallað hann herra. Ég segi aldrei slikt við föður minn. Ég hef mikið hugsað um hann siðan og komizt að þeirri niðurstöðu — ég veit ekki hvers vegna — að þvi olli valdsmannsbragurinn á honum. Ósjálfrátt bar maður virðingu fyrir honum. Föstudagur 12. janúar 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.