Alþýðublaðið - 09.02.1973, Qupperneq 4
Fcöiirvöruhækkun:
VERÐÁ
BYGGI
HEFUR
TVÖ-
FALDAZT
Töluverð hækkun hefur oröið á
fóðurvörum að undanförnu.
Stafar þessi hækkun af nokkrum
samverkandi atburðum sem átt
hafa sér stað úti i heimi. Hefur
verð á sumum tegundum fóöur-
vara hækkað um helming, svo
sem byggi. Koma þessar upplýs-
ingar fram i nýútkomnum Sam-
bandstiðindum.
Þar segir ennfremur, að upp-
skerubrestur i Sovétrikjunum og
aflabrestur i Perú hafi leitt til
aukinnar eftirspurnar á fóöur-
vörum, og samsvara þvi hækk-
andi verði. Nú nýlega hafa svo
oröið töluveröir þurrkar bæði i
Afriku og Astraliu, og hefur það
ekki hjálpað upp á sakirnar.
Verðið hér innanlands hefur
ekki hækkað mjög mikið ennþá,
vegna mikilla fyrirframkaupa.
En nú eru þær birgðir senn á
þrotum, og má þvi búast við
miklum hækkunum á næstunni.
ilK
a
Leigði sér
ýtu — tók
mið ó hús-
ið og...
Það hefur fátt staðið í vegi
fyrir þeim, sem að undanförnu
hafa unnið björgunarstörf i
Eyjum. Þó vikrinum rigni
niður allt i kring, hefur björg-
unarstarfið haldið áfram
næsta sleitulaust. Einn Vest-
mannaeyingur, sem átti ný-
legt hús i nágrenni eldstööv-
anna, varð fyrir þvi, að missa
gjörsamlega sjónir af húsi
sinu. Það fór á kaf i vikur. En
þar sem ekki hafði tekizt aö
bjarga öllu þvi sem verömætt
gat talizt tók hann fyrir stuttu
mið á húsið, leigði sér jaröýtu
og lét ýta frá innganginum og
mokaði siðan restinni sjálfur.
Nú standa steinveggirnir berir
eftir. E ldhúsinnrétting,
skápar, allt sem hægt var aö
losa er úr húsinu komið.
"ítí
;ri>
i
■<ÍI
■<1.
Uppselt
til
tunglsins
Barnaleikurinn Feröin til
tunglsins, verður sýndur i 10.
skipti n.k. sunnudag og eru
nú aðeins liðnar tæpar þrjár
vikur frá frumsýningu leiks-
ins. Mjög mikil aösókn hefur
verið að leiknum og uppselt á
öllum sýningum. Um næstu
helgi verða þrjár sýningar á
leiknum, ein á laugardag og
tvær á sunnudag kl. 14 og kl.
17.
Myndin er af Þórhalli
Sigurðssyni i hlutverki
Aldinborans.
Hi.
Í?I
ifÆ'
yn
Vtio
M
Óvissan um framvindu
gossins i Vestmannaeyjum og
hugsanlega ennþá meiri eyði-
leggingu og eignatjón af völdum
þess en þegar hefur orðið virtist
setja mark sitt á þær
spurningar, sem dundu á bæjar-
stjórn Vestmannaeyja i sjón-
varpinu i fyrrakvöld.
I sumum spurninganna gætti
harðrar gagnrýni á þá aðila,
sem veita aðstoð til Vestmanna-
eyinga móttöku, og var
sumsstaðar látið að þvi liggja,
að ekki hafi verið gerð grein
fyrir þvi, hvernig þessi aðstoð
yrði notuð, né heldur hve mikið
fé hefði verið boðið fram af
innlendum og erlendum aðilum.
Að þvi Alþýðublaðið kemst
næst hefur fjárhagsaðstoð
beinzt til fjögurra aðila, þ.e.
Rauða kross Islands, Hjálpar-
stofnunar kirkjunar, bæjarsjóðs
Vestmannaeyja og til rikis-
stjórnarinnar.
Eini aðilinn af þessum fjór-
um, sem gerir reglulega grein
fyrir þvi, hve miklu fé hann hafi
veitt móttöku, er Rauði
krossinn. Þó ber þess að geta,
að i svari bæjarstjórans i Eyj-
um i sjónvarpsþættinum i fyrra-
kvöld kom fram, að bæjarsjóði
hafi enn ekki borizt umtalsverð
fjárhagsaðstoð, en það fé, sem
til hans rynni yrði örugglega
notað til uppbyggingar, þegar
gosinu linnti.
Alþýðublaðinu er hvorki
kunnugt um það fé eða fram-
boðna aðstoð, sem beint hefur
verið til Hjálparstofnunar
kirkjunnar eða til rikis-
stjórnarinnar, og er kannski von
að Vestmannaeyingar spyrji
kirkju og riki.
Að þvi bezt verður séð snúa
erlendar rikisstjórnir, sem
bjóðast til að aðstoða Islendinga
vegna áfallanna, sem þeir hafa
orðið fyrir af völdum eld-
gossins, sér eðlilega til rikis-
stjórnarinnar. Hún virðist hins
vegar spör á upplýsingar um
hin stórhöfðinglegu boð margra
rikja. Hið eina sem fæst upp úr
ráðherrum er þetta: „Við höf-
um engum boðum neitað”. Hins
vegar taka þeir ekki fram, hvað
þeim hafi verið boðið né af
hverjum.
Alþýðublaðið sneri sér i gær-
22 AF 38
MILLJÓNUM
SÖFNUN-
ARINNAR
HÖFÐU ÞEG-
AR FARIÐ í
STYRKI OG
ÝMIS
VERKEFNI
kvöldi til Eggerts Asgeirssonar,
framkvæmdastjóra Rauða
kross Islands. Hann gaf blaðinu
þær upplýsingar, að nú hefðu
safnazt i „Vestmannaeyja-
söfnuninni” samtals
38,674.000,00 krónur, en af
þessari upphæð hafi þegar verið
varið 21-22 milljónum króna i
styrki til einstaklinga frá Vest-
mannaeyjum og i ýmiss konar
félagsleg verkefni þeirra vegna.
A bæjarskrifstofunni i Vest-
mannaeyjum fékk blaðið þær
upplýsingar i gær, að bæjar-
stjórninni þar hafi engin skýrsla
borizt um þegar framkomna
fjárhagslega aðstoð vegna
náttúruhamfaranna. —
150 MILUON KRONA REIKNING-
UR FYRIR RANGA VERKLfSINGO
„Stefndi, Vita- og hafnarmála-
stjóri, samgönguráðherra og
fjármálaráöherra, fyrir hönd
rikissjóðs, greiði stefnanda
Hotchtief A.G. og Véltækni hf. kr.
149.455.000.00 með 7% ársvöxtum
frá 8. júli 1971 til greiðsludags.
Framannefnd fjárhæð á aö
breytast i samræmi við þær
breytingar, sem veröa kunna á
gengi islenzkrar krónu gagnvart
vestur-þýzku marki á timabilinu
8. júli 1971 til greiðsludags.
Framangreinda fjárhæð ber að
greiða innan 15 daga frá lög-
birtingu þessa dóms að telja.
Málskostnaður fellur niður.”
Ofangreint er dómsorð i máli,
sem höföað var fyrir Bæjarþingi
Reykjavíkur i þvi skyni, að fá
ÁRID SEM LEIÐ: GREIDSLUJfiFN-
UÐURINN VAR HAGSTÆDUR EN VfiRU-
SKIPTAJOFNUDURINN DHAGSTÆÐUR
í heild var greiðslujöfnuðurinn
við útlönd hagstæður um 1,110
milljónir króna fyrstu niu mánuði
ársins 1972. Segir frá þessu i nýút-
komnu yfirliti Seðlabankans. A
sama timabili i fyrra var
greiðslujöfnuöurinn hagstæður
um 1,458 milljónir króna.
1 yfirlitinu segir að vöruskipta-
jöfnuðurinn hafi verið óhag-
stæður um 244 milljónir króna
fyrstu niu mánuði ársins. Þjón-
ustujöfnuður varð hagstæður á
sama tima um 545 milljónir, en til
hans teljast samgöngur, trygg-
ingar, ferðalög, vaxtagreiðslur
o.fl. Skuldbindingar i formi fastra
erlendra lána jukust á timabilinu
um 1 !009 milljónir. Þetta
fjármagnsinnstreymi á öðru
fremur þátt i hagstæðurn
greiðslujöfnuði.
Gjaldeyrisstaða bankanna
batnaði um 1,205 milljónir á
fyrstu niu mánuðum ársins, og
verðmætaaukningin i útfluttum
sjávarafurðum nam 476 mill-
jónum.
aðfararheimild hér á landi fyrir
úrskurði, sem Gerðardómur
alþjóða verzlunarráðsins i Paris
kvað upp hinn 8. júli 1971.
Ágreiningur málsaðilja reis út
af framkvæmdum við höfnina i
Straumsvik. Höfðu þeir samið um
það fyrirfram, að skjóta ágrein-
ingnum til nefnds gerðardóms, og
hlita úrskurði hans.
Enda þótt Vita- og hafnarmála-
stjóri véfengdi gildi gerðardóms-
ins hefur hann eins og fyrr segir
verið staðfestur i héraöi og þar
með aðfararhæfur hérlendis.
Ekki liggur neitt fyrir um það,
hvort málinu verður áfrýjaö til
Hæstaréttar, en trúlega veröur
það þó gert, enda snýst málið um
einhverja hæstu f járupphæð, sem
dæmd hefur verið fyrir is-
lenzkum dómstólum.
Stefndu i málinu véfengdu gildi
gerðardómsirs, eins og fyrr
segir, m.a. vjgna þess, að hann
hafi ekki farrb rétt ab i meðferð
málsins. Þessa véfengingar-
ástæðu hefur héraðsdómur ekki
fallizt á, enda er það islenzk dóm-
venja að staðfesta gerðardóma,
ef rétt er með mál farið réttar-
farslega.
Stefán Már Stefánsson, borgar-
dómari, kvað upp dóminn, en
meðdómendur voru dr. Gunnar
Sigurðsson verkfræðingur, og dr
Ragnar Ingimarsson.
A sinum tima reis ágreiningur
milli verksala, Vita- og hafnar-
málastjóra, og verktaka, Hoch -
tief A.G. og Véltækni hf. Töldu
verktakar, að lýsing islenzkra
aðilja á verkinu hafi verið röng og
tilboð i verkið þvi verið miðað við
útboöslýsingu, sem ekki var rétt
og framkvæmdir kostnaðarsam-
ari en ráð var fyrir gert.
Sigurgeir Sigurjónsson hrl
flutti málið fyrir Hochtief A.G.
en Hjörtur Torfason hrl. fyrir
Vita- og Hafnarmálastjóra.
UR Uti SKAHIGRIPIR
KCRNELÍUS
JONSSON
- SKÖLAVÖROUSTlG 8
BANKASTRÆT16
thS88-18600
Auglýsingasíminn
okkar er 8-66-60
ir
Föstudagur 9. febrúar 1973