Alþýðublaðið - 22.02.1973, Blaðsíða 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórn-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaöaprent h.f.
VINARGJÖF
íslenzka þjóðin er djúpt snortin vegna hlý-
hugsins, bróðurþelsins og hjálparviljans, sem
lýsir sér i einróma samþykkt Norðurlandaráðs
um stórhöfðinglega aðstoð við ísland sakir
náttúruhamfaranna i Vestmannaeyjum. Sam-
kenndin, sem lýsir sér i þessum sem öðrum at-
höfnum Norðurlandaþjóðanna gagnvart íslandi
og íslendingum á erfiðum timum, staðfestir
hversu náin tengsl eru á milli frændþjóða
norðursins. Við íslendingar erum stoltir af að
eiga þessar þjóðir að vinum, frændum og
nánustu samstarfsmönnum.
Það getur verið erfitt fyrir þjóð jafnt og ein-
staklinga, sem eiga sér stolta lund, að taka við
gjöfum frá öðrum. Það er ekki erfitt fyrir eina
Norðurlandaþjóðina að taka við hjálp frá öðrum
Norðurlandaþjóðum þvi sú hjálp er boðin af
hreinum hug, heilu hjarta,fölskvalausri vináttu
og með fullri virðingu. Hin stórhöfðinglega gjöf
frændþjóðanna er þvi allra sómi, jafnt þess, sem
þiggur, og hins, sem gefur.
Norrænir menn eru á margan hátt öðru visi
skapi farnir en aðrir. Þeir eiga sér sinar sér-
stöku siðvenjur og sin sérkennandi lifsviðhorf.
Þessu hefur vel verið lýst i fornum sögum og
ýmislegt, sem þar er sagt um skapferli og sið-
venjur löngu látinna manna, á ennþá við um
hinn norræna kynstofn.
í þessum fornu sögum er m.a. oft frá þvi sagt,
er vinur bauð vini stórhöfðinglega gjöf. Mesta
sæmdin var þá ekki fólgin i þvi að gjöfin yrði
ærnu gjaldi goldin i móti. Þá varð sæmd beggja
mest þegar gjöfin var þegin vegna þess, að það
lýsti svo gagnkvæmri virðingu og svo einlægu
vinfengi beggja, að jafnvel orðskviðurinn
gamli: æ sér gjöf til gjalda; átti ekki við um þá.
Með þessu hugarfari bjóða Norðurlönd íslandi
hjálp sina. Með þessu hugarfari þiggur ísland
það boð, þá gjöf. Af þvi verki vaxa Norðurlönd i
augum umheimsins að virðingu og sæmd.
HINN RÉTTI ÓVINUR
Miklar umræður urðu á Alþingi i fyrradag um
kjaradeilu togarasjómanna.
Við lok umræðnanna dró Benedikt Gröndal
saman i þrjú meginatriði þær niðurstöður, sem
fengust af miklum og löngum orðræðum
Lúðviks Jóseplssonar sjávarútvegsráðherra um
málið.
í fyrsta lagi kom fram hjá ráðherranum, að
togarasjómenn ættu heimtingu á að fá kjara-
bætur til jafns við aðrar stéttir.
í öðru lagi kom fram hjá ráðherranum, að
rikisstjórnin myndi gripa inn i málið og veita
togaraflotanum úrlausn — styrk — , sem þá
a.m.k. samsvaraði þeim kauphækkunum, er
sjómenn eiga heimtingu á að fá.
í þriðja lagi kom það svo glöggt fram hjá ráð-
herranum, að togaradeilan hefur fyrst og
l'remst verið deila milli rikisstjórnarinnar og út-
gerðarmanna. En það er fyrir þessa deilu, sem
togarasjómennirnir hafa orðið að gjalda i mán-
aðarlöngu verkfalli. Þeir hafa þvi i raun og veru
allan timann verið að berjast við rikisstjórnina
og sjávarútvegsráðherra hennar, sem loks nú
gefur ádrátt um að hann sé að láta unda.
SAMA SEM ATKVÆÐI
1 tilefni af grein um atkvæða-
greiðslur og fjarveru Islands i
fyrstu nefnd Allsherjarþings S.Þ.,
sem birtist i blaðinu 2. þ.m. og
forystugreinar frá 14. þ.m. hefur
Haraldur Kröyer sendiherra sent
blaðinu eftirfarandi athugasemd:
„Aðalumræðum um dagskrár-
lið 36 i fyrstu nefnd lauk 6.12. og
atkvæðagreiðsla fór fram um
allar aðaltillögur i málinu og tók
island þátt i öllum þeim atkvæða-
greiðslum. Aðeins tillaga Perú
var eftir óafgreidd. Ilún var sett á
dagskra seinni hluta eftirmiðdags
11.12., en var óvænt tekin fyrir I
fundarbyrjun. Hannes Pálsson
kom á fundinn þegar atkvæða
greiðsla var byrjuð og lét sam-
stundis skrá sig á mælendaskrá.
Grcinargerð hans jafngildir
greiddu atkvæði. Þess má geta að
af Norðurlöndum var Sviþjóð
cinnig fjarverandi þessa at-
kvæðagreiðslu. Aö sjálfsögðu var
island viðstatt endanlega af-
greiðslu um allar tillögur I málinu
sjálfu á Allsherjarþinginu. Af
blaðagreininni virðist mega ráða
að þessi Perú-tillaga hafi verið
eitthvert höfuðatriði i téðu dag-
skrármáli. Þetta verður að álita
annaðhvort byggt á vanþekkingu
og misskilningi greinarhöfundar
eða visvitandi ætlað til að blekkja
lesendur. Aðdróttanir greinar-
höfundar að sendinefnd tslands
liafi litiö sinnt þessu dagskrár-
máli eru ekki svaraverðar. Sendi-
nefndin tók einmitt virkan þátt i
mótun endanlegs texta megintil-
lögunnar i málinu sein höfuðmáli
skiptir fyrir undirbúning haf-
réttarráðstefnunnar.
Siðdegis 11.12. voru fundir i
Allsherjarþinginu og fyrstu, ann-
arri, fjórðu, fimmtu og sjöttu
nefnd og maður á hverjum stað.
Gunnar G. Schram var á fundi i
Allsherjarþinginu og gerði grein
fyrir atkvæði með ræðu. Siðast
skiptust tveir menn á um að vcra
við atkvæðagreiðslur þar. Har-
aldur Kröycr átti þennan dag við-
töl við einstakar sendinefndir,
sem þcgar voru fastmælum bund-
in, m.a. um ályktunartillögu ts-
lands".
BÍLAR
Nú gefum við út nýtt
litprentað bilablað
með myndum af öllum helztu
bilategundum af
árgerðinni 1973, sem
fáanlegareru hérá landi.
Þeir sem vilja fá yfirsýn
yfir islenzka bilamarkaðinn
fá hér allar
nauðsynlegar upplýsingar
á einum stað.
EINA ISLENZKA
HEIMILISBLAÐIÐ
FLOKKSSTARFiÐ
ELDGOS - EFNAHAGUR - PÓLITIK
Gylfi Þ. Gislason talar á félagsfundi — hádegisverðarfundi — i lðnó n.k.
laugardag kl. 12 á liádcgi. Gengið inn unt norðurdyr.
Á dagskrá fundarins er einnig kosning kjörnefndar vegna væntanlegs
stjórnarkjörs i Alþýðuflokksfélagi Reykjavikur.
Alþýðuflokksmenn eru hvattir til þess að fjölmenna á félagsfundinn og mæta
stundvislcga.
Alþýðuflokksfélag Reykja vikur.
ALÞYÐUFLOKKSFELAG REYKJAVIKUR AUGLYSIR
VIÐTALSTÍMAR
ÞINGMANNA OG BORGARFULLTRÚA ALÞÝDUFLOKKSINS
Stjórn Alþýðuflokksfélags Rcykjavíkur liefur ákveðið að
gangast fyrir þvi, að Reykvikingum gefist tækifæri á að hitta að
máli þingmenn Alþýðuflokksins og borgarfulltrúa i Reykjavik. t
þeim tilgangi mun stjórnin auglýsa viðtalstima reglulega hvern
fimmtudag á tímabilinu frá kl. 17—19, þar sem þessir trúnaðar-
menn skiptast á um að vera til viðtals. Viðtölin fara fram á skrif-
stofum Alþýðuflokksins að Hverfisgötu 8—10.
t DAG, fimmtudaginn 23. febrúar, er það varaformaður Al-
þýðuflokksins, Benedikt Gröndal alþm., sem verður til viðtals á
flokksskrifstofunum frá kl. 5 til 7 s.d. Þeir, sem ekki geta komið
til viðtalsins, geta hringt i sima 1-50-20, en það er síminn i við-
talsherberginu.
Reykvikingar og aðrir! Notið þetta tækifæri til viðræðna við
einn af forystumönnum Alþýöuflokksins.
Alþýðuflokksfélag Heykjavíkur.
Benedikt Gröndal, alþm.
Fimmtudaqur 22. febr. 1973.
o