Alþýðublaðið - 29.04.1973, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 29.04.1973, Qupperneq 2
Hinir „Svörtu hlébarðar” tsraels vekja athygli á sér við grátmúrinn. Lögreglan i Jerúsalem fjarlægir ungan „hlébarða’ /Langtimatakmark tsraels: Þjööarsjálfsmorð. Þessi illkvittnislega rússneska teiknimynd frá tið sexdagastriösins er oröin timabær á ný. Hins vegar viröast tsraelir þó gera sér grein fyrir hættunni. Gyðingar eru mjög seigir við að standa i útistöðum við Araba, ogliðurvarla sá dagur að ekki komi til átaka þeirra í millum. Því hverfur ýmislegt ann- að í skuggann sem miður fer í ríki Goldu Meir. ,,Guðs útvalda þjóð" hefur þjóða mest fengið að kenna á kynþátfahatri og fordómum. En spurn- ingin er, iðkar hún sjálf slíka list í heima- húsum? Mi’nnihluta-Ara- barnir er búa í landinu myndu hiklaust svara já. Og það sem meira er, að gyðingar frá Asíulöndunum tækju undir þetta já. Afrisk- ir og Asíu-gyðingar halda því fram, að þeir séu miklum mis- rétti beittir af hinum hvíta ,,fyrirmanns- stofni". Bandarískir og evrópskir gyðingar halda þeim gjörsam- lega niðri, og nú hefur þolinmæði þeirra brostið. Hafa þeir stofnað samtök með hinu hataða og fyrir- litna nafni ,,Svörtu hlébarðarnir". Þarna er háð örvænt- ingarfull barátta milli hinna riku og þeirra snauðu, barátta sem ekki sér fyrir endann á, og er það sagt að einu friðsömu svæðin I ísrael séu landa- mærasvæðin, og er þá mik- ið sagt. — Húsið brennur. — Það var Golda Meir er viö- haföi þessi orð á ríkis- stjórnarfundi. Og þarna átti hún ekki við strið Araba og gyðinga, heldur innanlandsóeirðir er gyð- ingaraf Asiuuppruna stóðu að. Það hafa ávallt verið smáværingar milli hvita þjóðarbrotsins og þess lit- aða, en nú virtist sem strið hafi brotizt út. „Svörtu hlé- barðar tsraels” höfðu sýnt klærnar og það svo alvar- lega að sjálf rikisstjórnin hafði mætt á aukafundi til þess að ræða málið. En er kynþáttamisrétti hjá gyðingum? Af öllum þjóðum skyldi maður ætla að þeir hefðu bezt lært að lita ekki niöur á aðra, svo miklu kynþáttamisrétti hafa þeir verið beittir i gegnum aldirnar og eru enn. lsraelskir Arabar hafa svarið slikan verknað á gyðinga, og það sem meira er að afrikanskir og gyð- ingar frá Asiulöndunum eru tilbúnir að skrifa undir þann dóm. Þeir halda þvi blákalt fram, að evrópskir og bandariskir gyðingar leiki herra og liti niður á þá ásamt þvi að nota sér þá aðstöðu að vera hin nýja yfirstétt. Þvi stofnuðu nokkur ung- menni af asiskum uppruna flokk mótmælenda er þeir nefndu „Svörtu hlébarðar Israels”. Er það ætlun þeirra aö beina augum stjórnvalda að þessum misrétti meö öllum tiltæk- um ráðum. Hefur þeim tek- izt, meö mótmælagöngum og útistöðum við lög- regluna að nálgast þetta takmark sitt. Það sem hlé- barðarnir krefjast sinum kynþætti til handa er að hafa jafnrétti á við þá hvitu þegar um ibúðir, atvinnu og skólagöngu er að ræða. Og svörtu hlébarðarnir hafa skilið slóð eftir sig, ef marka má orð borgar- stjóra Jerúsalem, Teddy Kollek. — Einu friðsamlegu svæðin i Israel þessa dag- ana eru landamærasvæðin. Það eru ekki svo mikil vandræði með Arabana. Erfiðleikar Israelsrikis númer eitt er ekki strið okkar við þá heldur barátt- an milli hinna riku og snauöu i samfélagi okkar. Og falleg israelsk stúlka bætir við. — Guð minn á himnum, að slikt geti átt sér stað hér. Maður les um slikt og sér myndir um það i blöðum frá U.S.A. En að það geti skeð hér i tsrael og það i Jerúsalem. — Það sem hún átti við voru blóð- ugar óeirðir i miðborg Jerúsalem, þar sem ör- væntingarfullir unglingar köstuðu benzinsprengjum að lögreglustöð, brutu verzlunarglugga og mis- þyrmdu nokkrum lögreglu- þjónum. Kain-merkið Þegar svörtu hlébarð- arnir lýstu yfir þessu striði, hryllti alla „góða” gyðinga við. Og það sem fór mest I taugarnar á þeim var nafn- iö á þessum hávaöasama hóp. Nafnar þeirra i Bandarikjunum eru þekkt- ir fyrir gyðingahatur sitt. En Golda Meir var snögg aö taka viö sér. Hún skildi, aö þrátt fyrir þaö að þetta virtist vera fámennur hóp- ur, þá var það aöeins topp- urinn af borgarisjakanum sem sást. Rikisskipuð nefnd var sett á laggirnar til að athuga afbrot ung- linga af Asiu-uppruna. Eitt af þvi sem hlébarðarnir börðust fyrir var athugun á unglingaglæpum i Israel. Þeir sögðu, að vegna kyn- þáttamisréttisins væri prósentutala unglinga af Asiukyni óeðlilega há þeg- ar um afbrot væri að ræða. Og það sem verra var. Það eyðilagði mögu- leika þeirra á þvi að kom- ast i herinn. Þar með var Kains-merkið stimplað á enni þeirra. Þetta var snarlega lagað, nú kemur sakaskýrsla ekki lengur i veg fyrir að ungt fólk geti gengið i herinn. Rótlaus og ráðalaus Vandamálin fátækt og misréttisbeiting er æxli sem tilheyrir öllum nú- timasamfélögum. I Israel er baksvið þess nokkuð sér- stætt og um leið meira og hættulegra. Þar er átt við af hverju uppreisn svörtu hlébarðanna stafar. Þeir gyðingar er byrjuöu að flytjast til Israel i byrj- un þessarar aldar voru ein- göngu frá Evrópu og Bandarikjunum. Enn i dag koma gyðingar frá þesum heimsálfum. Þetta fólk hafði allflest góða menntun og eitthvert fé handa á milli. Ráðamenn rikisins i V dag eru afkomendur þessa fólks og sumir þeir eldri raunverulega landnemar. I dag er meirihluti innflytj- enda frá Asiu og Afriku, með litla sem enga mennt- un og bláskinandi fátækt. Það getur ekki gengið inn i sömu vinnu og hinir hvitu og situr að flestu leyti skör lægra. Þvi er þaö krafa hlé- barðanna að ráöamenn hlutist til um betri náms- möguleika og aðstoði meira en gert er i sam- bandi við húsnæðisvand- ræði, þvi það er opinbert leyndarmál, að i Israel eru að skapast stór fátækra- hverfi. Þess er og einnig skemmst að minnast, að stór hópur rússneskra inn- flytjenda hélt aftur heim til Rússlands af þessum or- sökum. Hér er þvi um uppgjör milli hinna hvitu og þeirra lituðu að ræða. Gyðingar af lituðum uppruna eru nú um 65% af þjóðinni og sú tala eykst hrööum skrefum. En það sem er óhugnanlegast við þetta er það, að leiðtog- ar þeirra eru rótlaust og ráðalaust æskufólk. Þess- um staðreyndum neita ráðamenn ekki. Aðeins 3% af lituðu gyð- ingum hafa góðar stöður i ráðuneytunum, gegn 97% af hvitum. A þinginu eiga þeir aðeins 20% og af þeim 18 sem mynda rikisstjórn- ina er aðeins einn litaður, það er hinn Iraksfæddi Shlomo Hillel. Aðeins 60% börn af litaða stofninum ljúka skyldunámi og af öll- um þeim aragrúa sem gengur menntaveginn og lýkur háskólanámi eru ein litil 5% lituð. Miskliðarefni. Meiri hluti hinna Asiu fæddu gyðinga fluttist til tsraels á árunum milli 1948 til 1952 og komu þeir aðal- lega frá Jemmen, írak, Egyptalandi, Marokkó og Sýrlandi. Þá langaði „heim til föðurlandsins” og til þess að geta lifað þar i friði sem gyðingar. Og eina Asiu-dyggð fluttu þeir með sér, en það var virðing barna fyrir foreldrum, og það sem ættarhöfðinginn sagði, það voru lög. Þeir áttu von á þvi að finna þar ónumið land, en komu inn i vel skipulagt samfélag innflytjenda frá Evrópu og Bandarikjun- um, sem höfðu verið þarna i mörg ár. Þetta var nú- tima samfélag með vest- rænar hugmyndir um nám, lög og ekki hvað sizt vest- ræna kerfisvelmegun. Rússarnir koma Að svörtu hlébarðarnir eru komnir fram i sviðs- ljósið er ekki hvaö minnst þvi að þakka hve vel gyð- ingar hafa þjarmað að Aröbum og þvi að nafni til friður i landinu. Það hefur gefið gyðingum aukiö ráð- rúm tii þess að beina kröft- unum að eigin samfélagi. Svo komu Rússarnir. Það var tekið á móti þeim með pomp pg pragt, þeir fengu góðar ibúðir á meöan þær voru fyrir hendi og allt fyrir þá gert. Og Asiu-gyðingarnir áttu erfitt með aö kingja þvi. -4' Sjáiö þið Rússana, — segir bifreiðaverkstæðiseigandi einn i Katamon. — Þeir koma hingað og fá þá strax finar ibúðir. Þegar við- komum fyrir 23árum siðan mátti það kallast gott ef við fengum inni i tjaldi. Ogu hvar stend ég nú? Ég vonhi ast ennþá eftir þvi að getaY fengið mannsæmandi ibúði Hinn lraksfæddi gyðing- ur Ezra Mizrahi segir: — Ég bý i tveggja herbergja ibúð með fjórum bræðrum minum. Og misréttið er ekkert einsdæmi milli Asiufæddra gyðinga. Við komum ætið á eitir evrópskum gyðingum á öll-. um sviðum. — — I gegnum mörg ár leit þetta vel út i frá. — segir framkvæmdastjóri Histraduths, Ben Aharon. — Við höfðum minnstar þjóðartekjur á hvern ibúa, en nú hefur það breytzt. Félagslegt vandamál okk- ar i dag er það að hinir riku og hinir snauðu búa hlið við hlið og það væri lýgi að neita þvi. — Um 20% af ibúum Israels búa við það sem nefna mætti sárustu fátækt. I Tel Aviv býr fjórða hver fjöl- skylda i fátækrahverfi sem fyrir löngu ætti að vera bú-L ið að rýma. Ráðgjafi Menntamála- ráðuneytisins, Dan Ronen, viðurkennir að skólakerfi Israels sé byggt upp á vestræna visu og skapi þvi vandræði fyrirafrikönsk og Asiubörn. Allt hefur verið reynt til þess að lagfæra þetta. Asiu- og Afriku-ung- lingarnir fá inngöngu i æðri menntastofnanir með mun lélegri einkun en þeir hvitu. En þvi var fljótlega hætt af hræðslu við námsstandard- HINIR SVÖRTU HLÉBA Q Sunnudagur 29. apríl 1973.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.