Alþýðublaðið - 27.07.1973, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 27.07.1973, Blaðsíða 10
Frá Máli °g menningu Mál og menning gefur út á þessu ári átta bækur, sem félagsmenn geta valið úr, og auk þess Timarit Máls og menningar. Félagsmenn sem greiða lægsta árgjald, kr. 1.500.-, geta valið sér tvær bækur auk Tlmaritsins. Þeir sem greiða 2.200.- króna árgjald eiga kost á fjórum bókum, og hæsta árgjald, kr. 2.700.- veitir rétt til sex bóka auk Timarits. Að auki er inn- heimt sérstakt gjald fyrir band, nokkuð mismunandi eftir stærö bókanna. Af þessum átta bókum eru fjórar pappírskiljur. Nú þegar eru komnar út þrjár félagsbækur: FRANSKA BYLTINGIN, siö- ara bindi, eftir Albert Mathiez, en fyrra bindiö kom út á sfðasta ári. Loftur Guttormsson þýddi bókina, sem er prýdd myndum, tekn- um eftir frönskum samtfma- teikningum. Þá er MANNKYNSSAGA, fornöldin, eftir Asgeir Hjartarson, nýkomin. Þetta er önnur prcntun hinnar vinsælu bókar, scm segja má aö sé þegar orð- in eitt af hinum fáu klassisku sagnfræöiritum islenzkra bók- mennta. Ennfremur er komin út ein pappírskilja, UM LISTÞÖRFINA, eftir Ernst Fischer I þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. — Aörar félagsbækur áætlaðar á þessu ári cru Pétursborgarsögur eftir Nikolai Gogol, þýddar úr rússnesku af Geir Kristjánssyni; bók um mynd- list eftir Björn Th. Björnsson, og þrjár pappfrskiljur; ri tgcrðaúrval Brynjólfs Bjarnasonar I tveim bókum og Umhverfi mannsins eftir Iljörleif Guttormsson. Mál og mcnning hefur undanfarin ár unnið að þvi að koma út ritsafni Þórbergs Þórðarsonar, og er verið að undirbúa næstu bindi, sem þó koma væntanlega ekki út fyrr en á árinu 1974. Hinsvegar er I ráði að gefa út á þessu ári endurprentun af Ofvitanum, en útgáfa Máls og menningar af þessari bók frá árinu 1964 er nú gersamlega uppseld. Mál og menning býður félagsmönnum sínum upp á betri kjör en nú tiðkast á islenzkum bókamarkaði, og þurfa menn aðeins að lita á söluverð nýrra bóka til að sannfærast um það. Fyrir nokkrum árum hóf Mál og menning að gefa út pappírskiljur á islenzku, enda þótt þá væri álitið að slfk utgáfa væri naumast möguleg hér á landi. Raunin hefur orðið sú, að vinsældir þessarar útgáfu hafa aukizt jafnt og þétt, og eru nú sumar þessara bóka nær uppseldar, og verið að undirbúa endurprentun. (Auglýsing) Ingólfs-Café Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9 Hljómsveit Garöars Jóhannessonar Söngvari Björn Þorgeirsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826. SKEMMTANIR — SKEMMTANIR HÓTEL LOFTLEIÐIR - VÍKINGASALURINN er opinn fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga. HÓTEL LOFTLEIÐIR Cafeteria, veitingasalur með sjálfsafgreiðslu, opin alla daga." HÓTEL LOFTLEIÐIR Blómasalur, oplnn alla daga vikunnar. HÓTEL BORG við Austurvöll. Resturation. bar og dans f Gyllta saln- um. Slmi 11440 HÓTEL SAGA Grillið opið alla daga. Mimisbar og Astrabar, opið alla daga nema miðvikudaga. Slmi 2GK90. INGÓLFS CAFÉ við llverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Slmi 12826 ÞÓRSCAFÉ Opiö'á hverju kvöldi. Slmi 23333. SKEMMTANIR — SREMMTANIR Frá Útibúi Landsbankans á Akranesi Tilkynning um breytingu á simanúmeri útibúsins: Fra 27. júli 1973 verður simanúmerið 2333 (5 linur) Landsbanki fslands Útibúið á Akranesi Kennarar Kennara vantar að Barnaskóla Garða- hrepps. Upplýsingar gefa skólastjóri i simum 4-27-56 og 4-26-87 og yfirkennari i sima 4-28-10. Skólanefnd. Frá Barnaskóla Garðahrepps Fólk er flytur i Garðahrepp i haust og hef- ir ekki enn innritað skólaskyld börn sin, er vinsamlegast beðið að gera það strax i sima 42756. Armann meistari í kvennaknattspyrnu Armann var meistari i kvennaknattspyrnu f ár. t úr- slitunum léku Armannsstúlk- urnar við FH, og þurfti tvo leiki áöur en úrslit fengust. Fyrri leikurinn endaði 0:0, en sá slðari endaði 1:0 Armanni I vil. Sigur markið skoraði Emilla Sig- urðardóttir úr vitaspyrnu 1 sið- ari hálfleik. Armannsstúlkurnar eru að sigrinum komnar. Þær hafa sýnt jafnbeztu knattspyrnuna i Islandsmótinu. FH stúlkurnar veittu þeim harða keppni, en megnuðu ekki að halda titlinum sem þær unnu til i fyrra. Hér birtist mynd af sigurver- urum Armanns. Fremriröö frá vinstri: Katrin Axelsdóttir, Erla Sverrisdóttir, Emilia Sigurðardóttir, fyrirliði, Sigrún Guömundsdóttir, Guð- rún Sigurþórsdóttir og Sigriður Brynjúlfsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Lúðvik Vilhjálmsson, formaður knatt- spyrnudeildar, Guðbjörg Pedersen, Auður Rafnsdóttir, Svandis Óskarsdóttir, Svanhvit Konráðsdóttir, Guðrún Helga- dóttir, Alfheiður Emilsdóttir og Jón Hermannsson. NORÐMENN LEIKA HÉR í NÆSTU VIKU Á fimmtudaginn í næstu viku leikum viö landsleik í knattspymu við Norðmenn á Laugardalsvellinum. Þetta verður síðari lands- leikur þjóðanna í undan- keppni Heimsmeistara- keppninnar i knattspyrnu, fyrri leikurinn endaði með öruggum sigri Norðmanna, 4:1. I fyrrakvöld léku Norömenn við landslið Norður-Kóreu I Bergen, og lauk leiknum meö sigri Norð- manna 3:0. Þetta eru góð úrslit fyrir Norðmenn, þvi Kóreumenn eru þekktir fyrir aö leika góða- knattspyrnu, og er skemmst að minnast frammistöðu þeirra i HM i Englandi 1966 Johansen Vold, Egil Johansen og Sven Kvia gerðu mörkin. Norðmenn litu á leikinn sem góða upphitun fyrir leikinn við ís- land i næstu viku, og Englending- urinn George Curtis, sem er þjálfari og einvaldur norska landsliðsins sagði, að hann liti björtum augum til landsleiksins i Reykjavik. Það gera Islendingar einnig, og þvi má búast við hörku- baráttu hér á Laugardalsvellin- um i næstu viku. Eins og fram kemur i fréttinni héraðofan, leikum við landsleik við Norðmenn hér heima 2. ágúst, þ.e. fimmtudaginn i næstu viku. Landslið okkar fyrir þann ieik verður að öllum likindum valið nu um helgina. enda stuttur timi til rtefnu og margt sem þarf að undirbúa. Nær öruggt má telja að litlar breytingar verða gerðar á landsliðshóp íum sem lék við Austur-Þjóðverja, og liklega verður hópurinn aiveg óbreyttur, enda hefur Albert Guðmundsson sagt að þar sé að finna þann hóp sem hafi verið i markvissri uppbyggingu siöustu árin. Leikurinn við Norðmenn verður að þvi leiti merkilegur, að þetta verður kveðjuleikur Asgeirs Sigurvinssonar að sinni, og þvi væri gaman að kveðja hann með sigri. Það ætti að geta tekizt. Hermann með gegn IBK Hermann Gunnarsson hafði samband við iþróttasíðuna i gær, og sagði það ekki rétt að hann færi nú sjálfkrafa I leikbann. Aganefnd KSl veröur að taka málið fyrir fyrst, og mun hún ekki koma saman til fundar fyrr en I næstu viku, svo Hermann mun því leika meö Val gegn ÍBK i toppuppgjörinu á laugardaginn. Það fer svo eftir skýrslu dómara hve haröa refsingu Hermann fær, og kemur þá helzt til greina eins eða þriggja leikja bann. í siðar nefnda tilvikinu á Hermann rétt á munnlegum mál- flutningi. Þá má geta þess, aö sá sem Hermann sparkaði i, Þóröur Hallgrimsson, fékk sina fjórðu bókun seint i leikum, og fær sitt mál tekið fyrir á sama fundi aganefndar og mál Hcrmanns fær afgreiðslu. 0 Föstudagur 27. júlí 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.