Alþýðublaðið - 17.08.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 17.08.1973, Blaðsíða 12
alþýðu INNLÁNSVIÐSKIPTl LEIÐ TIL LÁNSVIÐSKIPTA BLNAÐARBANKI ÍSLANDS KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli k!. 1 og 3.Símj40102_ SENDIBIL ASTÖDIN Hf BJART ÁFRAM Gert er ráð fyrir áframhaldandi bjartviðri um Suður- og Vesturland. Á Suðvesturlandi er búizt við norðankalda og siðan stinningskalda, þegar liða tekur á daginn, en það er þó bót i máli að spáð er bjart- viöri. Á Vestfjörðum er spáð norðaustan stinningskalda og má búast við rigningu vestan til. A Norðausturlandi og Austurlandi er búizt við norðaustanka1da eða stinningskalda, viða má gera ráð fyrir þokulofti og súld eða rigningu. Suðaustanlands er spáð bjartviðri og norðaustan- kalda. A laugardaginn er búizt við björtu veðri sunnan lands og vestan, en skýjað annars staðar. Mestur hiti i gær mældistá Hellu á Rangárvöll- um, eða 19 stig. t Reykjavík mældist 14 stiga hiti. KRIUÐ f NKTuRUO/ruNN ! '/A’ ! -----í------ STmJR FU&U NN EKK/ mfíNÞi ELDM/s /flfíÐUR £ND / nCt IP fíttKI ÍUÚÚIK* Sft/nST UNG VIVI » mm n 1EINS FUjN » PYNCj JfíN 'OÚKK FLEYTf, 'fíL/T /Ð VE „ snLfl £ND Sfirö KOmu \ FfíG VEDK FfERN LEIKU f?!NN T/L KL /PPT/ 1 r ÚVfST IGÆRKVÚLD HVORT SUMIR OKKAR MANNA FÆRU TIL HOLLANDS Þótt búið sé að velja landsliðshópinn til Hollands- ferðarinnar, er ekki alveg vist að allir þeir leikmenn sem valdir hafa verið gefi kost á sér til fararinnar. Vitað er að nokkrir þeirra eru á báðum áttum, telja sig ekki hafa tima til þess, þvi þetta er rúmlega 10 daga ferð. Þá eru aðrir sem telja sig ekki geta tekið sér fri frá vinnu, telja sig tapa peningum á þvi. Var ekki búið að ganga frá þessum málum i gærkvöld. Landsliðsfyrirliðinn Guðni Kjartansson hefur óskað eftir þvi að fá fri frá ferðinni, þvi hann hyggst taka sér sumarleyfi ásamt fjölskyldu sinni. Er nú verið að reyna að fá Guðna til að fresta sumarleyfinu, þvi landsliðsnefndin telursig ekki geta án hans verið. Það mál var ekki frágengið i gær, og Guðni enn ákveðinn i að fara ekki til Hollands. 3-4 leikmenn hafa látið i ljósi óánægju með að fá ekki greidda dagpeninga meðan á ferðinni stendur. þar eð þeir fá ekki greiðslur frá vinnuveitendum á meðan. Telja þeir, að KSl geti opnað pyngjurnar, þvi gróðinn að þessum landsleikjum nemi milljónum króna. Liklegast er þó að þessi mál leysist áður en liöið heldurtil Hollands á þriðjudagsmorgun. Enda er vist ekki vanþörf á að tefla fram okkar sterkasta liði þegar við mætum köppum eins og Gruyff, en mynd af honum er hér til hliðar. ISLENZKA LANDSLIDID GLÍMIR VID HEIMSINS BEZTU KNATTSPYRNUMENN - GRUYFF OG FÉLAGA! „Vift erum búnir að fá vitneskju um hollenska landsliðið, og samkvæmt henni verða þeir með alla sina beztu menn, þar á meðal 9 leikmenn frá ineistaraliðinu Ajax með Johan Gruyff i broddi fylkingar, en eins og menn vita er hann talinn einn snjallasti knattspyrnumaður heims- ins”, sagði Hafsteinn Guðmundsson landsliðs- nefndannaður i samtali við Alþ.bl. Hafsteinn og Albert Guðmundsson völdu í gær 17 manna landsdliðshæop til tveggja leikja við hol- lenzka landsliðið á næst- unni, 22. og 29. ágúst úti í Hollandi. Þetta eru leikir í heimsmeistarakeppninni, og Hollendingar munu leggja sig alla fram, því það skiptir miklu að skora sem flest mörk. Hollend- ingar léku i fyrra við Noreg og unnu 0:0, en við töpuðum nýlega fyrir Noregi 4:0. Eftirtaldir leikmenn voru valdir til Hollands- fararinnar: Þorsteinn Ólafsson IBK Diðrik Ólafsson, Víkingi Ólafur Sigurvinsson IBV Ástráður Gunnarsson ÍBK Guðni Kjartansson ÍBK Einar Gunnarsson IBK Marteinn Geirsson Fram Gísli Torfason I BK Ásgeir Elíasson Fram Guðgeir Leifsson Fram Karl Hermannsson ÍBK Jóhannes Edvaldsson Val AAatthías Hallgrímsson ÍA Ásgeir Sigurvinsson St. Liege Ólafur Júlíusson IBK Hermann Gunnarsson Val Elmar Geirsson Fram Þeir Teitur Þórðarson ÍA og Friðfinnur Finn- bogasnon í BV falla út úr fyrra liði, en í staðinn koma Valsmennirnir Jó- hannes Edvaldsson og Hermann Gunnarsson, en margirhafa viljað fá þá í liðið. fimm á förnum vegi ■•v Skrifar þú oft sendibréf? Sveinþór Kristjánsson, sjó- maður: Ég skrifa stundum bréf hérna innanbæjar og þá aðal- lega til að gera at i kunningjun- um. Stundum sendir maður stelpum bréf. Ég hef einu sinn sent bréf alla leið til Indlands þar sem einn kunningi minn bjó um skeið og eitt hef ég sent til Englands. Eyrún Ingvadóttir. skrifstofu- stúlka hjá hernum: Ég geri nú ekki mikið af þvi. Skrifa svona á að gizka einu sinni i mánuði og þá aðallega innanbæjar, en þó einstöku sinnum út á land. Svo á ég einn pennavin i Bandarikjun- um, við erum búin að skrifast á i eitt ár. Páll Björgvin, matreiðslu- maður: Ég skrifa töluvert af bréfum og þá mest út á lantý flest fara þau til Akureyrar. Mér finnst ekki taka þvi að senda bréf hér innanbæjar. Ég átti einu sinni pennavin, þá bjó ég úti á landi, en pennavinurinn i Reykjavik. Frfða Jóhannesdóttir, sjúkra- liði: Nei, ég sendi afskaplega litið af bréfum, og þá sjaldan sem ég sendi eitthvað þá er það út á land. Ég átti einu sinni tvo pennavini, það var árið 1966. Báðir minir pennavinir bjuggu erlendis þ.e.a.s. i Danmörku og Sviþjóð. Hanna Unnsteinsdóttir, nemur félagsráðgjöfun I Arásum.: Já ég held að óhætt sé að, segja að ég skrifi mjög mikið af bréfum. Flestöll.sem ég skrifa, sendi ég heim til vina og kunningja, bæði hér i Reykjavik og úti og á landi. Afturá móti sendi ég ekki mikið til annarra landa. •

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.