Alþýðublaðið - 13.09.1973, Blaðsíða 3
Vændiskona nokkur i Frakk-
landi sagði nýlega frá því i út-
varpsþætti hvað hún heföi i tekj-
ur. Og samkvæmt þvi hefur hún
liðlega 300.000 isl. kr. á mánuði.
Hún sagöi, aö þetta hefðu verið
meðaltekjur hennar á mánuði
siðastliðin sex ár. Nokkrum vik-
um seinna fékk hún skattseðil
upp á 3 milljónir.
* * *
Fegrunarlyf, sem framleitt er
úr ákveðnum liffærum moskus-
hjartarins hefur lengi notið vin-
sælda hjá kvenþjóðinni. Astæð-
an er talin sú að lyktin laðar að
karlmenn af sömu ástæðu og
lyktin frá kynhormónum kon-
unnar laðar þá að.
M -fc &
Blaðaljósmyndari við blað
eitt i Bandarikjunum tók að
kvöldlagi mynd af látnum ungl-
ingi 1 bilflaki. Hann hafði lengi
tekið fjölda mynda af slysum.
Þegar hann kom á blaöiö og
framkallaði myndina, sá hann
að hinn látni var hans eigin
sonur.
* * *
Erlendir sendiráösmenn i
Bretlandi og háttsettir emb-
ættismenn koma mjög oft á fund
gleiðikvenna og skattgreiöend-
ur borga brúsann. Svo segir
Norma Levy, sem var aðalper-
sónan i vændishneykslinu i
Bretlandi i sumar. Norma segir
að háttsettur maður I utanrikis-
ráðuneytinu sé milligöngumað-
ur og að utanrikisráðuneytiö
borgi siöan reikninginn.
-Íí M M
I ljós hefur komið aö meirihluti
unglinga i London hefur tekið
þátt i ofbeldi og 10% þeirra er
spurðir voru, likar ofbeldi.
Þetta kemur fram i skýrslu
lækna er ræddu viö 1500 drengi i
London.
* * *
Eftir árs málarekstur i Bret-
landi er það komiö á daginn, aö
frú Moira Cruise þarf ekki aö
gefa upp aldur sinn við lögregl-
una. Frúin var stöðvuð fyrir
minniháttar umferðarbrot. Hún
neitaði að segja lögregluþjónin-
um til um aldur sinn. Hún var
sektuö fyrir brotiö og einnig
ósvifni við lögregluna. Nú hafa
æðri dómstólar kveðiö upp þann
úrskurö, aö aldur frúarinnar
skipti engu máli i þessu tilfelli
og hefur hún fengiö endur-
greidda sektina.
# & -fc
Yfirvöld i Tanzaniu hafa nú
hafið baráttu gegn stuttum pils-
um og öðrum ósóma. Frá og
meö 10. sept. er bannað aö vera i
stuttum pilsum og þröngum
buxum á opinberum vettvangi
1. okt. verður svo stigið annað
skrf i baráttunni, þá verður
bannað að klæðast áöurnefnd-
um fatnaöi á götum úti. Sam-
kvæmt rannsóknum á Tanzaníu
verða þær konur, sem klæddar
eru samkvæmt hinni stuttu
tisku frekar fyrir árásum, en
hinar, sem klæddar eru upp á
gamla móðinn.
* * *
Borgarstjóri nokkur I Brasilíu
var sakaður um þaö af andstæð-
ingi sinum að hann væri ekki
nógu mikill þjóðernissinni.
Astæðan var sú að borgarstjór-
inn hafði samiö texta á spænsku
við tango. Þetta þótti andstæð-
ingnum hin mesta hneisa, þvi
tangódansinn er upprunninn frá
Argentinu og i ofanálag er töluð
portúgalska I Brasiliu. Borgar-
stjórinn bjargaði skinninu með
þvi að snara textanum yfir á
portúgölsku.
& sK
Nú stendur til aö það veröi
gert að skyldu að nota öryggis-
belti i bifreiðum I Sovétrikjun-
um. Innan tveggja ára eiga
öryggisbelti að vera komin I alla
. einkabila i Sovét.
Verslun
jókst við
lokun
Austur-
strætis
„Verslunin hefur aukist
eitthvað siðan að Austur-
stræti var opnað fyrir
gangandi vegfarendum."
Það var svarið sem við
fengum í verslunum við
Austurstræti i gær, en í dag
er einmitt liðinn mánuður
síðan götunni var breytt í
göngugötu við almennar
vinsældir. Að því tilefni
höfðum við samband við
nokkrar verslanir við göt-
una og spurðumst fyrir um
hvernig verslunin hefði
gengið þennan mánuð.
Hvergi hafði farið fram
nein fræðileg könnun, en
öllum bar saman um að
verslun hefði aukist og þó
sérstaklega fyrsta hálfa
mánuðinn. Síðan hefði
þetta verið jafnara, en þó
bar verslunarfólki saman
um að um aukningu væri
að ræða.
HORNIÐ
Upp með
kolaportið
við Arnarhól
,,Nú er að láta kné fylgja
kviði”, sagði lesandi i viötali við
Hornið i gær. „Viö verðum að
fylgja eftir sigrinum yfir Seðla-
bankahúsinu við Arnarhól.
Allt skal til sins heima og nú
verður að setja af staö hreyf-
ingu til að fá aftur kolaportið viö
Arnarhól. Burt með banka og
blikkbeljur og upp með mynd-
arlegt port. Fyllum það siöan af
vel völdum kolamolum og þegar
vindáttirnar geisa óbeislaöar
um Arnarhólinn, stöndum vér i
kolarykinu: bendum inn I
mökkinn og segjum börnum
vorum: „Sjá. Þarna rls Islands
hæst”. Og svo bætum við auö-
vitaö veiðafærageymslunni við,
þegar Framkvæmdastofnunin
leyfir.”
LlQGUR Þr
ElTTHVfte. 'A
1 rtOEMll
Síhi 8
HVAÐ
LÍDUR
ORLOFINU?
Verkamaður á Isafirði
skrifar Horninu: „Sam-
kvæmt lögum (nr. 87 frá
24. des. 1971) um orlof
segir í reglugerð um orlof
(nr. 150 frá 21. júnfi 1972) í
5. grein • • // A þriggja
mánaða fresti SKAL
Póstur og simi senda
launþegum reikningsyfir-
lit, er sýni fjárupphæð
móttekins fjár þeirra
vegna", o.s.frv.
Nú er að byrja fimmti
mánuðurinn án þess að
verkafólk hér á Isafirði
fái nokkuð að vita um
innborganir á orlofi frá
Pósti og síma. Hvað veld-
ur?"
Frá rnönnum
og málefnum
TIL
BJARGAR
SÓLAR-
LAGINll
Það hefur þó tekist að bjarga
sólarlaginu, samkvæmt yfirlýs-
ingu forseta borgarstjórnar,
þegar Seðlabankabyggingin var
til umræðu i sjónvarpinu nú i
vikunni. Afturá móti hefur upp-
lýsts, að alls konar aðilar fá að
byggja átölulaust hingað og
þangaö um bæinn, svo sem eins
og Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn. Það er
ekki einasta að almenningur láti
slikar byggingarframkvæmdir i
friði, sjálf Framkvæmdastofn-
un rikisins lætur sllka bygging-
arsóun átölulausa, þótt með öllu
sé ófært aö byggja yfir Seðla-
bankann.
Hús Framsóknar er við Rauð-
arárstig, þar sem bráönauösyn-
leg bilastæði voru tekin undir
lóðina, og er ekki vitað til þess
að Framsókn ætli aö útbúa eins
og fimmtiu bilastæði i staðinn
handa borgarbúum, hvað þá
koma þeim fyrir i kjallaranum.
Hús Sjálfstæðisflokksins eru
orðin mörg um dagana, og þaö
sem þeir eru nú að byggja,
rennur upp alveg mótmæla-
laust, þótt þar sé auövitaö um
fjárfestingu að ræða sem Fram-
kvæmdastofnuninni kemur við.
Hvorugt hús flokkanna ris upp
af gömlu og aflögðu kolaporti,
eins og Seplabankinn. Þetta
kolaport, sem notað var öll upp-
vaxtarár elstu leikara og þula
útvarpsins skar aldrei neinn
mann i augun. Þaö var heldur
ekki fyrir þvi að fara að menn
teldu kolaportið hluta af Arnar-
hóli, sem alveg nýverið hefur
verið dubbaður upp i bæjarhól
Ingólfs Arnarsonar, hvernig
sem það fæst nú samrýmst bæj-
arstæði Ingólfs við Suðurgötu.
Kannski Ingólfur hafi kosið að
eiga nokkurn spöl á bæjarhólinn
morgun hvern.
Nú hefur það gerst i málinu
um meðferð kolaportsins, að
Seðlabankinn hefur lýst sig fús-
an að hefja viöræöur að nýju við
borgarstjórn um staðsetningu
hússins. Hefur bankastjórnin
farið mildilega að ráöi sinu i þvi
efni, enda mun það áreiðanlega
vera gott medisin fyrir spenntar
taugar andófsmanna, aö stofn-
un eins og Seðlabankinn skuli
vera á hrakhólum, þessi útlend-
ingur i landinu. Gott ef hann er
ekki angi af „dönsku valdi”. Að
visu eru margir merkir staðir til
undir hús, og merkari en þetta
kilaport við Arnarhól. Svo er um
Votmúla i Flóa.
En það sem gladdi mest ve-
sæla áhorfendur að hildarleikn-
um i kolaportinu var sú stað-
reynd, að sólarlaginu var borg-
ið. Mörg hús hafa verið byggð
fyrir sólarlagið og Esjuna og
Sundin. Svo er um Landsbóka-
safnið, Arnarhvál, Sænska
frystihúsið, Alþýðuhúsið og Út-
varpshúsiö við Skúlagötu. Allt
eru þetta byggingar, sem vondir
menn hafa reist til að þrengja
að Arnarhóli, sólarlaginu, norö-
anáttinni, Esjunni og Sundun-
um, og hafa ekki i annan tima
verið unnin meiri spjöll á um-
hverfi manna. Veröur nú ekki
annað fyrir hendi en rlfa þessi
hús öll, svo hinir móðu og að-
þrengdu andófsmenn geti andað
og horft I senn nokkurn veginn
óhindrað.
Að visu hefði ein leið verið
fær, fyrst nota átti kolaportiö
undir hús, þaö er vitað mál, að
hér i Reykjavik eru margir dag-
ar sólarlitlir. Þá daga þarf ekki
ýkja mikið að hugsa fyrir útsýn-
ingu. Þá daga mega þau hús
standa, sem annars kynnu að
skyggja á sólina. Það hefði þvi
mátt geta þá tillögu til vara, aö
þannig yrði gengiö frá Seðla-
bankanum i kolaportinu fræga,
að þegar sól skini og hætta væri
á miklu sólarlagi væri hægt að
draga húsið niður, en draga það
siðan upp i rigningu og súld og
öðru sólarlausu veðri. Meö þvi
móti hefði verið hægt að koma
til móts við andófsmennina, og
auk þess tilkynna um stöðu
krónunnar i leiðinni, þvi með
hverri nýrri gengisfellingu
gengi húsið styttra og styttra
upp úr jörðinni uns sólarlagiö
rikti eitt i kolaportinu.
VITUS
Flóin aftur
upp hjó L.R.
Rúmlega 48 þúsund manns
sóttu sýningar hjá Leikfélagi
Reykjavikur i Iönó á siðasta leik-
ári, en að þvi er Vigdis Finnboga-
dóttir leikhússtjori sagöi á fundi
með fréttamönnum i gær er varla
hægt að gera ráð fyrir betri sæta-
nýtingu. Sé aðsókn aö sýningum
LR á söngleiknum „Jesús giið
stórstjarna”, sem sýnd var i
Austurbæjarbiói, talin með er hún
komin upp i 69 þúsund áhorfend-
ur.
Vigdis sagði á fundinum, að
Leikfélagið hefði fullan hug á að
nota i vetur þá aðstööu, sem kom-
ið var upp I Austurbæjarbiói i
fyrravetur, og hafa ákveðin verk
komið til umræðu i þvi sambandi,
en ekkert ákveðið ennþá.
Fyrsta frumsýning leikársins
verður á laugardagskvöldiö, en
þá hefjast sýningar á leikriti Ed-
wards Albee, „Delicate Bal-
ance”, sem hefur hlotið á Islensku
nafnið „Ötrygg er ögurstundin”.
Samkvæmt orðabók Háskólans
þýðir þetta nafn „stutt, friðsæl
stund, þegar sjór er kyrr um
fallaskiptin”. Thor Vilhjálmsson
þýddi leikritið, en leikstjóri er
Helgi Skúlason.
Áður hafa verið sýnd hér á
landi leikritin „Hver er hræddur
við Virginiu Woolf”, Dauöi Bessy
Smith”, „Allt I garðinum min-
um” og „Saga úr dýragarði” eftir
Edward Albee. „ótrygg er ögur-
stundin” var frumsýnd á Broad-
way árið 1966 og fékk þá
Pullitzerverölaun sem besta leik-
rit ársins.
Næsta frumsýning veröur um
miðjan oktober, en þá hefjast
sýningar á leikritinu „Svarta
kómedian” eftir Peter Shaffer,
stm Vigdis Finnbogadóttir hefur
þýtt.
Að minnsta kosti tvö leikrit frá
fyrra leikári verða tekin upp að
nýju, en það eru Fló á skinni, sem
hefur verið sýnt 95 sinnum, og
Loki þó. í ráði er að taka upp sýn
ingar á Leikriti Birgis Sigurðsson
ar, Pétri og Rúnu, en sá hængur
er á þvi, að einn aöalleikarinn,
Arnar Jónsson, hefur ráöist til
starfa við Leikfélag Akureyrar og
er ekki útséð hvernig það mál
verður leyst.
Fimmtudagur 13. september 1973
o