Alþýðublaðið - 13.09.1973, Blaðsíða 11
FRAM BIKARMEISTARI
Framarar urðu bikarmeistarar 1973. Eftir
fremur daufan úrslitaleik i gærkvöldi, kom
framlenging sem var hlaðin spennu og fjöri.
Markalaust var eftir venjulegan leiktima, 0:0,
en i framlengingunni komu þrjú mörk, Fram
gerði tvö þeirra en Keflavik bara eitt. Lokamin-
úturnar voru leiknar i myrkri, og með hetjulegri
baráttu tókst Fram að halda forystunni, og
tryggja sér þar með bikarinn i ár. Þeim hafði
tekist það ótrúlega, leggja Keflvikinga að velli
og gera þar með draum þeirra um fjóra bikara
að engu.
Mikið fjölmenni var saman-
komið á völlinn, 4136 áhorfendur
greiddu aðgangseyri. beir
fengu að sjá leik tveggja góðra
liða, tveggja harðra liða, sem
gáfu hvergi eftir. bvi voru
marktækifærin fremur fá lengst
af, og verulegt fjör færðist ekki i
leikinn fyrr en i framlenging-
unni, sem mun lengi i minnum
höfð. bá fengu áhorfendurnir
eitthvað fyrir aurana sina, og
þeir fylgdust með leiknum af lifi
og sál. Stemningin var ólik þvi,
sem áður hefur þekkst á bikar-
leikjum hér, þetta var ósvikin
bikarstemning. Sem sagt sönn-
un þess, að núverandi fyrir-
komulag keppninnar er það eina
rétta.
Framarar sóttu öllu meira i
byrjun, en brátt fóru Keflvik-
ingar að taka leikinn meira i
sinar hendur. í byrjun fyrri
hálfleiks sóttu þeir einnig mun
meira, og áttu nokkur góð tæki-
færi. En undir lok venjulegs
leiktima fóru Framarar að nýju
að láta skina i vigtennurnar, og i
byrjun framlengingarinnar var
ljóst að hverju stefndi, Framar-
ar tóku forystuna.
1-0: 92. min.Guðgeir Leifsson
tók hornspyrnu frá vinstri, bor-
steinn ólafsson markvörður
IBK stökk upp en náði ekki
knettinum, og eftir nokkurn
þæfing tókst Jóni Péturssyni að
skalla knöttinn i netið, alveg
uppi við þverslá.
1- 1: 98. min. Keflvikingar ná
skyndisókn, Hjörtur Zakarias-
son lék upp að endamörkum
hægra megin, gaf knöttinn út i
vitateiginn til Steinars Jóhanns-
sonar sem afgreiddi hann við-
stöðulaust með þrumuskoti út
við stöng. Stórglæsilegt mark,
sem gaf Keflvikingum von.
2- 1: 103. min. En sú von var
skammlif, þvi hornspyrna Guð-
geirs á 13. minútu framlenging-
arinnar gerði útslagið. Enn varð
þæfingur i vitateig IBK, og
endapunktinn á sóknina setti
Marteinn Geirsson, er honum
tókst að koma knettinum i netið
úr þröngri aðstöðu.
Framlengingin bauð upp á
fjölmörg tækifæri, jafnvel fleiri
en leikurinn sjálfur. Framarar
skiptu Guðgeiri Leifssyni inná i
siðari hálfleik, og var það þeirra
lukka, þvi Guðgeir átti þátt i
báðum mörkunum og var sifellt
ógnandi. bá var vörn Fram
mjög traust með borberg sem
besta mann. 1 framlinunni var
Elmar sifellt ógnandi, en hans
var vel gætt.
Vörn IBK stóð fyrir sinu, ef
frá eru talin mörkin tvö. Karl
Hermannsson var óþreytandi á
miðjunni og i framlinunni var
Steinar friskur. bá vakti Ast-
ráður athygli fyrir það sem
Bretinn kallar „overlapping”,
en sjaldan sést til islenskra bak-
varða.
Eysteinn Guðmundsson
dæmdi leikinn óaðfinnanlega,
en hann átti i erfiðleikum undir
lokin, vegna myrkurs Hann var
ekki einn um það. Mótanefnd
góð, gæt þess að láta leikina
byrja timanlega næsta sumar.
—SS.
VANN IBK 2:1
Albert Guðinundsson afhendir
Jóni Péturssyni fyrirliða Fram
bikarinn i gærkvöld.
Nú vann Fylkir!
KnattspyrnudómstóII KRR dæmdi i gær Fylki sigur i kærumálinu
gegn isfirðingum. Samkvæmt þvi telst ieikur liðanna i úrsiitum 3.
deildar isfirðingum tapaður, og Fylkir fer I úrslit gegn Reyni frá
Sandgerði. ísfirðingar geta kært úrskurðinn til dómstóls KSÍ, og má
telja fullvist að þeir geri það.
Bergur Guðnason dómforseti sagði iþróttasiðunni í gærkvöidi, að
dómstóli KRR hefði klofnað i afstöðu sinni til kærunnar. Bergur og
Viiberg Skarphéðinsson töldu nægar sannanir liggja fyrir um það að
umræddur leikmaður isfirðinga væri óiöglegur, leikskýrslur lægju
fyrir frá fyrra sumri, um að hann hefði þá leikið með Fylki, og KSÍ
hefði staðfest að maðurinn hefði aldrei verið tilkynntur til isfirðinga
aftur. Carl Bergmann var hins vegar á þeirri skoðun, að félagaskipti
umrædds ieikmanns, sumarið 1972, frá isafirði til Fylkis, hefðu ekki
verið lögleg og því teldist hann nú leikmaður isfirðinga. Samkvæmt
skoðun Carls, væru þvi allir leikir Fylkis sumarið 1972 ólöglegir.
Sem fyrr segir má telja fullvist, að isfirðingar áfrýji úrskurðinum,
og dómstóll KSÍ fái málið i hendur. Ætti hann að afgreiða það nú í vik-
unni. Samkvæmt knattspyrnulögunum eru llkur á þvi að Fylkir vinni
málið, en siðferðilega er það tapað fyrir Fylkismenn, eins og þeir
hafa að málum staðið. —SS.
i
IhíTfapar
LIVERPOOL
Ensku meistararnir Liverpool I
töpuðu fyrir Derby i 1. deild i
Knglandi i gærkvöld. Úrslit leikja [
urðu þessi:
1. deild:
Derby-Liverpool 3:1
Man.Utd.-Leicester 1:2
Newcastle-Ipswich 3:1
Norwich-Southampton 2:0
Holland vann 2:1
Holland sigraði Noreg i undan-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar 1 gærkvöld 2:1. Leikurinn fór
fram i Osló. Sigurmarkið kom
ekki fyrr en tveimur minútum
fyrir leikslok, og gerði það Barry
Hulshoff. Cruyff gaf Hollending-
um forystuna, en Harry Hestad
jafnaði fyrir Noreg. Tap i gær-
kvöld hefði orðið mikið áfall fyrir
Hollendinga.
bá sigraði irska liðið Ards lið
Standard Liege (lið Ásgeirs
Sigurvinssonar) i UEFA bikar-
keppninni i gærkvöld 3:2. Leikur-
inn fór fram i Belfast, og var hann
dæmdur af Guðjóni Finnbogasyni
frá Akranesi — SS.
Guðmundur besti dómarinn
Guðmundur Haraldsson KR er að mati leik-
manna 1. deildar besti knattspyrnudómarinn á
íslandi i dag. Guðmundur reyndist vera i sér-
flokki, hlaut 53% allra greiddra atkvæða i skoð-
anakönnun sem iþróttasiða Alþ.bl. gekkst fyrir.
Til stóð að birta viðtal við Guðmund, um leið og
úrslit könnunarinnar eru kunngjörð, en það
verður að biða betri tima, þvi Guðmundur er nú
staddur á dómaranámskeiði i Sviss.
bað hefur tiðkast hjá fjölmiðl-
um hér á landi sem annars stað-
ar, að velja besta markvörðinn,
besta bakvörðinn og þar fram
eftir götunum, og eru þessar
kosningar nær undantekninga-
laust bundnar við knattspyrnu-
mennina sjálfa. En það skal
haft i huga, að dómarinn er ekki
svo litill hluti af leiknum, og þvi
ekki að láta þá dómara sem vel
gera njóta þess? bað heíur viða
tiðkast að velja bestu dómar-
ana, og nú er það i fyrsta sinn
gerthér á landi. Oráðið er hvort
framhald verður á þessu eða
ekki.
En hverjir eiga svo að velja
besta dómarann? Við komumst
á þá skoðun, að réttlátast væri
að láta leikmennina sjálfa um
valið. Til þess að ná sem bestri
viðmiðun, voru 100 leikmenn
látnir greiða atkvæði, að lokn-
um 1. deildarleikjum um siðustu
helgi. Gefin voru upp nöfn
þeirra dómara sem samkvæmt
leikjabók KSI hafa rétt til þess
að dæma i 1. deild, en þeir voru
23 talsins. Af þeim fengu 8 dóm-
arar atkvæði, og skiptast þau
þannig. bar sem 100 leikmenn
greiddu atkvæði gefur atkvæða-
talan jafnframt til kynna hve
mörg prósent atkvæða hver
dómari fékk.
Guömundur Haraldsson KR 53
atkv.
Ilannes b. Sigurðsson Frain 17
atkv.
Rafn Hjaltalin ÍBA II atkv.
Eysteinn Guðmundss. brótti 8
atkv.
Guðjón Finnbogason IA 6 atkv.
Baldur bórðarson brótti 2atkv.
Magnús V.Pétursson brótti 2
atkv.
Steinn Guðmundss. Fram 1
atkv.
Eins og sjá má eru yfirburðir
Guðmundar mjög miklir.
Meirihluti leikmanna sex liða af
átta höfðu hann efstan á blaði,
Rafn Hjaltalin var hins vegar
efstur á blaði hjá Keflvikingum
og Eysteinn Guðmundsson hjá
Akureyringum. beir dómarar
sem atkvæði fengu eru flestir
með millirikjadómararéttindi,
aðeins Baldur bórðarson og
Steinn Guðmundsson hafa ekki
slik réttindi.
-SS
MATILEIKMANNA I. DEILDAR
Fimmtudagur 13. september 1973