Alþýðublaðið - 06.11.1973, Side 5

Alþýðublaðið - 06.11.1973, Side 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmála- ritstjóri Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs- son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit- stjórnar, Skipholti 19. Sími 86666. Af- greiðsla: Hverfisgötu 8-10. Sími 14900. Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími 86660. Blaðaprent hf. ER EININGIN í HÆTTU? Þessa siðustu dagana hafa stjórnmálaflokk- arnir fjallað um niðurstöður framhaldsvið- ræðna um hugsanlega lausn landhelgisdeilunn ar við Breta á grundvelli þeirra niðurstaðna, sem fengust i viðræðum forsætisráðherra ís- lands og forsætisráðherra Bretlands úti i Lond- on. Þessar framhaldsviðræður hafa verið i höndum Einars Ágústssonar fyrir Islands hönd og breska sendiherrans i Reykjavik af hálfu Breta. Á allra næstu dögum, jafnvel i dag, þurfa islensku stjórnmálaflokkarnir svo að gera upp hug sinn til málsins og kveða upp úr með álit sitt á þvi, hvort ganga eigi til þeirra samninga við Breta, sem nú eru i boði. Að sjálfsögðu verður það mál fyrst að takast fyrir i rikisstjórninni, sem hefur haft alla fram- kvæmd málsins með höndum, og siðan verður hún að ieita til stjórnarandstöðunnar um álit hennar. Þá ber brýna nauðsyn til, að öll atriði málsins liggi skýrt og ljóst fyrir og að enginn vafi geti leikið um nein atriði hugsanlegra samninga, ákveði rikisstjórnin að leggja til að þeir verði gerðir. Á hinn bóginn bendir sumt til þess, að svo kunni að fara, að rikisstjórnin verði e.t.v. ekki sammála um afstöðu til samning- anna. Vera kann, að einhver stjórnarflokkanna — sennilega Alþýðubandalagið eftir siðustu fregnum að dæma — sé ekki reiðubúinn að sam- þykkja fyrir sitt leyti það samningsuppkast, sem fyrir liggur, þótt forsætisráðherra, Ólafur Jóhannesson, hafi nú þegar tilkynnt þá afstöðu sina, að þannig beri að semja. Fari svo, þá er að sjálfsögðu komið upp alveg nýtt viðhorf til málsins, sem ekki hefur legið fyrir til þessa, þvi hingað til hefur þjóðin haldið einingu og fullri samstöðu um öll mikilsverðari atriði land- helgismálsins. Alþýðublaðið telur það ekki geta komið til mála þegar um svo stórt og mikilsvert mál er fjallað, að hægt sé að afgreiða það i stjórninni með þvi, að einhverjir ráðherranna sitji hjá eða láti við það sitja að bóka einhver mótmæli eins og Alþýðubandalagsráðherrarnir gerðu i sam- bandi við lengingu flugbrautarinnar á Kefla- vikurflugvelli á sinum tima. Sá samkomulags- grundvöllur, sem fyrir liggur, er i megin- atriðum mótaður af tillögum, sem ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, lagði sjálfur fram á fundinum með hinum breska starfs- bróður sinum og neiti einhver stjórnarflokkanna að styðja þær tillögur eða reyni að koma sér undan þvi að bera ábyrgð á afgreiðslu þeirra, þá felst vitaskuld i þeirri afstöðu slik vantrausts- yfirlýsing á forsætisráðherrann og gerðir hans i málinu, að hann getur ekki gegnt starfi sinu áfram við óbreyttar aðstæður. Ef rikisstjórnin ætlar að leggja til, að nú verði samið i land- helgismálinu, þá verður hún að standa einróma á bak við þá ákvörðun. Klofni stjórnin um málið, þá hlýtur hún að segja af sér. Fram til þessa hefur rik áhersla verið lögð á það af öllum aðilum að reyna að halda þjóðar- einingu um öll atriði landhelgismálsins. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa lagt sig i lima um, að svo megi verða. Nú er spurningin sú, hvort stjórnarflokkarnir haldi samstöðu sinni. alþýöu mm UR BORGARAAALUM REYKJAVÍKUR SOFANDAHÁTTUR I ATVINNUMÁLUM A fundi borgarstjórnar Reykja- vikur s.l. fimmtudag lagði Björg- vin Guömundsson, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, fram eftirfar- andi fyrirspurn i tveimur liðum til borgarstjóra: 1. Hvaða ráöstafanir hafa verið gerðar til þess aö tryggja fisk- iöjuveri BÚR hráefni i haust og vetur? Verður séð til þess, aö tog- arar BÚR landi nægilegum fisk- afla i Reykjavík eða verður samið við báta um að leggja upp hjá fiskiðjuveri BÚR? 2. Hefur Atvinnumálanefnd Reykjavikur verið lögö niður? 1 svari sinu við fyrri lið spurn- ingarinnar sagði borgarstjóri i stórum dráttum, að hann vonað- ist til þess, að hægt yrði að afla fiskiðjuveri BÚR nægjanlegs hrá- efnis til vinnslu, bæði með til- komu hinna nýju togskipa útgerð- arinnar og eins með þvi að samið yrði við báta i eigu annarra aöila um að leggja upp hjá BÚR. t sambandi við siðari liöinn viðurkenndi borgarstjóri, aö nokkuð langt væri liöið á milli funda i Atvinnumálanefnd Reykjavikur — u.þ.b. eitt ár — en tók þá sök á sjálfan sig. Aður en hann tók við borgarstjóraemb- ættinu var hann formaöur nefnd- arinnar og sagði hann, að töf á störfum hennar hefði m.a. orðið vegna þess, að dregist hefði að hann skilaði af sér formennsk- unni. Hráefnislaus í tvsr vikur Að fengnum svörum borgar- stjóra tók Björgvin Guðmundsson til máls. Hann sagði: „Astæðan fyrir þvi, aö ég bar fram fyrirspurn um hráefnisöflun fiskiðjuvers BÚR er, aö þar til i byrjun þessarar viku er Þormóð- ur goöi lagði upp afla sinn h'já fiskiöjuverinu, hafði þaö verið hráefnalaust i 2 vikur og enginn fiskur verið verkaður þar. betta er mjög slæmt, þar sem hætta er á, að fiskiðjuverið missi starfs- fólk sitt, þegar langir timar liða án þess að hráefni sé fyrirliggj- andi, en það er mikið atriöi fyrir frystihúsið að halda vönu og þjálfuðu starfsfólki. Ég vil i þessu sambandi benda á, að BÚR hefur haft nokkuð aðra stefnu varðandi siglingar togara sinna með afla til útlanda, en t.d. bæjarútgerðin á Akureyri. BÚR hefur ekki haft neinar reglur um það, að togurum fyrirtækisins væri skylt að landa nægilegum fiskafla til fiskiðjuvers BÚR. Má segja, að það hafi verið látið ráð- ast, hvort fiskiðjuverið fengi nægilegt hráefni frá togurunum. Þegarerl.fiskmarkaðirhafa verið góðir hafa tovarar BÚR siglt en þegar þeir hafa veriö miður góðir hafa þeir landað heima. Ég skil vel, að forstjórar BÚR hafi áhuga á þvi að fá hátt verð erlendis fyrir aflann — ekki sist, þar eð pening- arnir koma þá strax i kassann. En fyrirtækið hefur einnig skyld- um að gegna við fiskiðjuverið og starfsfólk sitt i landi. Reynt hefur verið að brúa bilið með þvi að fá báta til þess að leggja upp hjá fiskiðjuverinu, en með þvi aö BÚR á enga báta sjálft gengur misvel að tryggja fiskafla frá bátum annarra aðila”. ÖNNUR STEFNA Á AKUREYRI „Á Akureyri, hjá ÚA, rikir önn- ur stefna i þessum málum. Þar hefur togurunum verið gert aö landa nægilegum fiski hjá frysti- húsi ÚA og siglingar eiga sér yfir- siglingar togara BÚR og rikja i þessum málum á Akureyri”. A AÐ BY9GJA EÐA EKKI? „Með þvi að ég er að ræða hér um Bæjarútgerðina, þá vil ég nota þetta tækifæri til þess að fagna þvi, að Snorri Sturluson, Björgvin Guðmundsson leitt ekki stað. Það er álit Akur- eyringanna, að hagkvæmt sé fyrir ÚA, aö togararnir landi á Akureyri. Skoðun min er sú, að við ættum að taka upp sömu stefnu varðandi hinn nýi skuttogari BÚR, er kom- inn til landsins. Vonandi mun hinu nýja og glæsilega skipi farn- ast vel og það verða atvinnulifi borgarinnar lyftistöng. t tilefni af komu hins nýja skips efndi útgerðarráð til veislu um borö i skipinu. Borgarstjóri flutti þar aöalræðuna, en einnig tók for- maður ráðsins til máls. Morgunblaðiö sagði, aö borgar- stjóri hefði sagt það i ræöu sinni um borð i skipinu, að nú hefði veriö ákveðið að reisa nýtt fyrsti- hús fyrir BÚR. Er ég las þessa frétt i blaðinu, þá fagnaöi ég þvi, að þetta baráttumál Alþýðu- flokksins hefði náð fram að ganga. En á næsta borgarráðsfundi, sem haldinn var eftir veisluna, sagði borgarstjórinn, að Morgun- blaðið hefði hér ekki haft rétt eftir sér. Engin ákvörðun heföi verið tekin um að reisa nýtt frystihús fyrir BÚR. Hins vegar hefur engin leiðrétt- ing birst við fregnina i Morgun- blaðinu — hvorki frá borgarstjóra né blaöinu sjálfu. Segir það sina sögu og bendir til þess, að Sjálf- stæðisflokkurinn sé e.t.v. i þann veginn að fallast á tillögu Alþýðu- flokksins um nýtt frystihús fvrir BÚR. Hinn 2. nóvember 1972 flutti ég i borgarstjórn tillögu um, að sam- þykkt yrði að reisa frystihús fyrir BÚR, sem unnið gæti úr 200 tonn- um af fiski á dag. Tillögunni var visaö til borgar- ráðs og útgerðarráðs. Vildi ég leyfa mér að spyrja háttvirtan borgarstjóra hvað liði athugun þessara aðila á umræddri tillögu og hvernig þetta mál standi yfir höfuö”. NEFNDIN SEM SVAF í ÁR „Siðari fyrirspurn min fjallar um atvinnumálanefnd Reykja- vikur. Borgarstjóri upplýsti, að nefndin hefði ekki verið lögð nið- ur. Svo bar raunar viö, að nokkru eftir að ég lagði inn fyrirspurn mina s.l. mánudag var fundur boðaður i nefndinni, en ekki hefur verið haldinn fundur þar siðan borgarstjóri lét af formennsku i nefndinni fyrir tæpu ári. Atvinnumálanefndinni var komið á fót árið 1968 skv. sam- þykkt borgarstjórnarinnar þar um. Þegar þáverandi rikisstjórn ákvað að koma á fót atvinnu- málanefndum um allt land vegna atvinnuleysis, sem þá rikti i land- inu voru flestir hinir sömu fulltrú- ar skipaðir i hina nýju atvinnu- málanefnd og veriö höfðu i nefnd þeirri, sem borgarstjórn kom á fót, þannig að hún starfaði áfram litið breytt. Og þegar atvinnu- málanefndir rikisins voru lagðar niður árið 1971 ákvaö borgin, að Atvinnumálanefnd Reykjavikur skyldi starfa áfram. Min skoðun er sú, að ekki sé sið- ur þörf á þvi, að atvinnumála- nefnd starfi á vegum Reykjavik- urborgar, þegar atvinna er næg, en þegar atvinnuleysi er. Það þarf að skipuleggja fram i tim- ann, athuga hvaða greinar at- vinnulifs borgarinnar þarf að efla og hvaða ráðstafanir borgaryfir- völd geti gert i þeim efnum. Það er einmitt erfiðara að gera ráð- stafanir i þeim efnum, þegar at- vinnuleysi er skollið á. Með þessum orðim minum er ég ekki að spá neinum samdrætti i atvinnumálunum. En ég tel, að meirihluti borgarstjórnar hafi sýnt skilningsleysi á nauðsyn skipulagningar i atvinnumálun- um með þvi að kalla Atvinnu- málanefnd Reykjavikurborgar ekki saman til fundar i heild ár”. FLOKKSSTARFIÐ Albvðuflokkskonur í Revkiavík: KYNNINGARFUNDUR Fimmtudaginn 8. nóvember n.k., kl. 20,30, efnir Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik til fundar i félagsheimili prent- ara að Hverfisgötu 21. Fundarefni: Kynning á verkum Elinborgar Lárus- dóttur. Félagskonur annast kynninguna. Mætið vel og stundvislega! Stjórnin Þriðjudagur 6. nóvember 1973

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.