Alþýðublaðið - 11.12.1973, Side 11

Alþýðublaðið - 11.12.1973, Side 11
Iþróttir Þjálfaramálin Víkingur og ÍA ráða enska Fulltrúar Víkings og Akra- ness eru komnir frá London, og var í ferðinni gengið frá ráðningum enskra þjálfara fyrir b®öi þessi lið. Þannig hafa öll lið i 1. deild nema Akureyri ráöiö sér þjálfara, og ljóst er að a.m.k. sex er- lendir þjálfarar verða hér við þjálfun á næsta ári. Akurnesingar hafa þegar ritaö undir samning við mann að nafniGeorgeKirby. Hann er nokkuö þekktur I Englandi, var m.a. framkvæmdastjóri Watford i fyrra, en var rekin þaðan vegna þess hve illa liö- inu gekk, en það féll úr 2. deild niður I 3. deild. Er Kirby reynd ar enn á launum hjá félaginu. Kirby hafði góð meðmæli. Víkingar eru meö tvo menn I takinu, Antony Sanders og David Pleat. Báðir hafa þeir náð góðum árangri, einkum þó Sanders, sem leitt hefur á- hugamannaliðið Skelmersdale til margra sigra. Hafði hann t.d. Steve Highway og Brian Hall (báðir nú I Liverpool) eitt sinn i sinni þjónustu. Þjálfararnir hefja störf fljótlega eftir áramót. Staðan Staðan i 1. deild tslandsmóts- ins i handknattleik er nú þessi: FH 5 5 0 0 116-83 10 Valur 5 4 0 1 100-88 8 Haukar 6 2 2 2 117- 123 6 Fram 5 1 3 1 93-92 5 Vik. 5 2 0 3 103-105 4 Arm. 5 1 1 0 72-76 3 Þór 5 1 1 3 85-102 3 tR 6 114 112-129 3 Þessir eru markhæstir: Hörður Sigmarss., Haukum,38 Gunnar Einarsson, FH, 34 ÁgústSvavarsson, IR, 32 Viðar Simonarson FH, 32 Gisli Blöndal, Val, 31 Axel Axelsson, Fram, 30 EinarMagnússon, Vik., 30 Vilhj. Sigurgeirsson, IR, 29 Sigtryggur Guðlaugs., Þór, 28 Ólafur Olafsson, Haukum, 24 Hörður Kristinsson, Arm., 22 Stefán Jónsson, Haukum, 22 Þorbjörn Jensson, Þór, 20 Gunnar Einarsson var besti maöur FH i leiknum. Hér sést hann skora eitt marka sinna. Myndina tók Jón E. Guöjónsson fyrir Alþ.bl. en aörar myndir á siðunum tóku Friðþjófur og Smarsi. Þórsarar áttu ekki svar og... FH ER ENN OSIGRAD Annar heimaleikur Þórsara fór fram s.l. föstudagskvöld. Að þessu sinni voru andstæð- ingarnir F.H. Leikurinn var bráðskemmtilegur, einkum fyrri hálfleikurinn, sem var Ijómandi vel leikinn af báðum liðum. Leikurinn var ekki gamall þegar fyrsta markið var stað- reynd. Gunnar Einarsson skor- aði úr viti fyrir F.H. Þessi stór- góði leikmaður átti eftir að koma meira við sögu, hann átti hreint stórkostlegan leik. Hrað- inn var mjög mikill i byrjun og bæöi liðin höfðu ágæt tök á leiknum. Til marks um hraðann er, að staðan eftir 11 min. var 6—5 Þór i vil, og það án þess að slakri markvörslu væri um að kenna.heldur stórgóðum leik að þakka.Hraðannlægöi heldur um miðbik hálfleiksins, en fjörgað- ist siðan á ný undir lokin. Sið- ustu tiu min. hálfleiksins tóku F.H.-ingar fjörkipp, og voru fjórum mörkum yfir i hálfleik 13—9. Einkum reyndist Ólafur Einarsson Þórsurum erfiöur undir lokin. Ahorfendur, sem nær allir voru á bandi Þórs, lifðu þó enn i þeirri von að þeim tækist að rétta hlut sinn, en sú von brást, F.H. hélt áfram að auka forskot sitt, og leiknum lauk með sigri þeirra 24—16. Eins og fyrr getur, var leikur. þessi lengi framan af prýðilega leikinn, algjör andstaða leiks Þórs og Ármanns sem leikinn var á dögunum. Eins og áður hefir fram komið er lið F.H. af- ar sterkt, mun sterkara heldur en menn þorðu að vona i upphafi mótsins. Kraftur og dugnaður eru einkennandi fyrir leik þess, svo og þroskuð samvinna. Þó er það svo, að tveir leikmenn eru mjög afgerandi, þeir Gunnar Einarsson og Viðar Simonar- son. Kraftur þeirra og útsjónar- semi er einstök. Þaö sem helst háir liði Þórs er, hversu breiddin er litil. Af- Árni norður Leikur hann með ÍBA næsta sumar? Arni Stefánsson, hinn kunni markvörður Akureyringa I knattspyrnu, mun vera hættur námi við Háskólann, a.m.k. i bili, og er kominn til Akureyr- ar að nýju. Hann mun vinna þar i vetur, og jafnframt leika með meist- araflokki KA I handknattleik. Lék hann reyndar báða leiki KA um helgina. óvist er enn hvort hann leikur með Akur- eyringum I knattspyrnunni næsta sumar, en þó eru taldar á þvi töluverðar likur. leiöing þess kom glöggt fram i þessum leik, þar sem sömu mennirnir léku nær allan leik- inn. I hægari leik en þessum, er mögulegt að halda sama liði inni á heilan leik. Eftir hinn gif- urlega hraða sem var i byrjun, slökuðu Þórsarar nokkuð á, enda ekki eðlilegt að sömu leik- menn haldi slikum hraða hvildarlaust. Sigtryggur og Þorbjörn eru þeir leikmenn sem F.H. hafði sérst. gætur á, en viö þaö losnaöi um aöra. Þeir tveir voru ágætir svo og Benedikt og Arni Gunnarsson, þó svo hinn siöarnefndi geri sig oft á tiðum sekan um óþarfa skyssur. Mörkin: F.H. Gunnar 7 (3v), Þórarinn 4, Viðar 3, Auðunn 3, Arni, Birgir, Gils og Jón Gestur eitt hver. Birgir Finnbogason værði mark F.H. allan timann all vel. (Hjalti lék ekki með). Þór, Sigtryggur 4 (2v), Benedikt 4, Aðalsteinn 3, Arni 2, Jón, Þor- björn og ólafur eitt hver. Tryggvi varði mark Þórs allan leikinn og gerði marga fallega hluti. Þaö var sama upp á teningn- um I þessum leik sem i fyrri leikjum mótsins, dómgæsla var afar fálmkennd, án þess þó að annaö liðið hagnaðist umfram hitt. Dómarar voru Haukur Hallsson og örn Pétursson. Sigb. Klikkun gaf 55þús.!! Keflvikingur einn datt heldur betur i lukkupottinn um helgina. Hann reyndist nefnilega eiga tvo af þremur seölum meö 12 réttum leikjum i getraununum. „Við erum helst á þeirri skoðun aö það hafi orðib klikkun I kerfinu hjá honum, og þannig hafi hann óvart verið meö tvær raðir alveg eins”, sagöi staríÉmaöur hjá Getraun- um í gærkvöld. Og þetta var sannarlega „klikkun” i lagi, þvi i stað þess að fá 195 þúsund i sinn hlut, fær maðurinn 250 þúsund. Þriðji aðilinn, sem er Akureyringur, fær i sinn hlut 129,500 krónur. 15 raöir fundust með 11 rétta leiki, og hefur hver 11,100 krón- ur í sinn hlut. Seldar raðir voru 44,500 og potturinn 556 þúsund krónur, og er þaö lækkun frá fyrri viku. Úrslit leikjanna urðu annars þessi. Leeds og Liverpool unnu sannfærandi sigra, og er Leeds stöðugt aö treysta stöðu sina, þrátt fyrir mikil meiðsli -leik- manna. 1 Birmingham-Newcastle 1-0 1 Chelsea-Leicester 3-2 1 Coventry-Wolves 1-0 x Derby-Arsenal 1-1 2 Everton-Liverpool 0-1 2 Ipswich-Leeds 0-3 x Manch. Utd.-Southampton 0-0 x QPR-Sheff.Utd. 0-0 1 Tottenham-Stoke 2:1 1 West Ham-ManCity 2:1 1 Sunderland-Aston Villa 2:0 MÁLFÖT Aldrei fallegri efni en nú Urvals klaeðskerar Einnig LAGERFÖT lUtinta KJÖRGARÐI Þriöjudagur n. desember 1973. o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.